Morgunblaðið - 17.04.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.04.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 39 FRÉTTIR Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon BILAFLOTI Vöruflutninga Ragnars og Ásgeirs. Fiskflutningar eru meginverkefnið Grundarfirði. Morgunblaðið. yÖRUFLUTNINGAR Ragnars og Ásgeirs í Grundarfirði er 25 ára á þessu ári. Á þessum aldarfjórðungi hefur fyrirtækið stækkað og dafnað og verkefnin hafa breyst mikið. í upphafi var fyrst og fremst um vöruflutninga að ræða en upp á síðk- astið er fiskur u.þ.b. 80% af því sem flutt er. Bílakosturinn er líka miðað- ur við þessi breyttu verkefni. Keypt- ir hafa verið bílar með tengivögnum, sem eru sérútbúnir fyrir fiskflutn- inga. Þeir eru með kælingu og einn þeirra er útbúinn sérstökum renni- brautum í gólfinu þannig að eins manns verk er að ferma eða afferma vagninn af fiski. Auk fiskflutninga annast fyrir- tækið almenna vöruflutninga til og frá Grundarfirði. Fyrirlestur um félagslega færni tíu ára bama DR. GUÐRÚN Kristinsdóttir við endurmenntunardeild Kennarahá- skóla íslands flytur fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskólans fimmtudaginn 18. apríl kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefnist: Félagsleg færni tíu ára barna. í fyrirlestrinum verða kynntar fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar Daglegar aðstæður og félagsleg færni barna. Athugunin nær til reykvískra barna, foreldra þeirra og kennara en er jafnframt liður í norrænu rannsóknarverkefni. Meginrannsóknarefnið er félags- Erindi um sérkennslu SVANHILDUR Svavarsdóttir, sérkennari og boðskiptafræð- ingur, verður með erindi um TEACCH-skipulagið í sér- kennslu í Æfingaskóla Kenn- araháskóla íslands á horni Bólstaðarhlíðar og Háteigs- vegar miðvikudaginn 17. apríl kl. ,20.30. Á eftir erindinu verða fyrir- spurnir og almennar umræður. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. leg færni barnanna og aðstæður þeirra heima og í skóla, og tekur rannsóknin þannig til margra þátta. Athugunin er sérstök að því leyti að svör foreldra, barna og kennara eru borin saman og meðal annars athugað hvort félagsleg færni og hæfni þeirra í skóla fylgist að. Einn- ig eru rannsökuð áhrif fjölskylduað- stæðna og daglegs lífs á færni barn- anna. I fyrirlestrinum verður fyrst og fremst fjallað um mismun sem fram kemur bæði innan íslenska barna- hópsins og í samanburði við nor- ræna barnahópa. Mismunurinn snertir meðal annars afstöðu barn- anna til skólans, mat þeirra á sjálf- um sér, líðan og áhyggjuefni. Einn- ig verður fjallað um mat foreldra og kennara á þessum atriðum. Guðrún Kristinsdóttir er kennari og félagsráðgjafi að mennt og hefur starfað í Danmörku, Svíþjóð og Reykjavík. Hún hefur m.a. unnið að rannsóknum á sviði barnavernd- ar og stefnu í félagsmálum frá sjón- arhóli kvennafræða. Guðrún hefur umsjón með starfsleikninámi við endurmenntunardeild Kennarahá- skóla Islands og veitir þar einnig ráðgjöf við þróunarstarf. Fyrirlesturinn verður í stofu M- 301 í Kennaraháskóla íslands og er öllum opinn. Listavaka leikskóla í Ráðhúsinu LISTAVIKA leikskóla miðsvæðis í Reykjavík hefst í Tjarnarsal Ráð- húss Reykjavíkur um helgina. Listavikan hefst laugardaginn 20. apríl Tjarnarsal nk. kl. 14.00 með opnun listsýningar. Sýningin verður opin til 26. apríl frá kl. 8.00 til 19.00 virka daga og frá 12.00 til 18.00 um helgar. Listaverkin eru eftir börn í leik- skólunum Barónsborg, Grænu- borg, Laufásborg, Lindarborg og Njálsborg. Meðal annars er borg- arstjóranum í Reykjavík og stjórn Dagvistar barna boðið til opnun- arinnar. Miðvikudaginn 24. apríl ki. 16.00 bjóða svo börn og starfs- menn Laufásborgar öllum foreldr- um barnanna á sönghátíð í Tjarn- arsalnum til að kveðja veturinn með hressilegum söng. Málþing um umburðarlyndi og fordóma SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskóla Islands gengst fyrir málþingi um umburðarlyndi og fordóma laug- ardaginn 20. apríl í Odda, stofu 101. Fundarstjóri er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Frummælendur verða eftirtald- ir: Hjördís Hákonardóttir, héraðs- dómari og nefnist erindi hennar: Lög og umburðarlyndi, Ágúst Þór Árnason, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu íslands, nefnir erindi sitt: Umburðarlyndi og mannréttindi, Gunnar Her- sveinn, blaðamaður, flytur erindi er hann nefnir: Takmarkað um- burðarlyndi, Friðrik Jónsson, dós- ent í sálarfræði, nefnir erindi sitt: Eru fordómar óhjákvæmilegir? Erindi Magnúsar Skúlasonar, geð- læknis, nefnist: Fordómar og geð- heilsa og Unnur Dís Skaptadóttir, mannfræðingur, flytur erindi sem hún nefnir: Margmenning - for- dómar eða umburðarlyndi? Að er- indum loknum verða umræður. Málþingið hefst kl. 13, er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Síðdegi gegn vímu á Astró Æ SKUÐLÝÐSSAMBAND íslands í samvinnuy við Mótorsmiðjuna og Jafningjafræðsluna gengst fyrir síðdegis uppákomu á Astró í Aust- urstræti miðvikudaginn 17. apríl nk. á milli kl. 17 og 19. Yfirskrift síðdegisins er: Vímill, vímuefni eru góð ef þú vilt við- halda vondu ástandi. Þar munu fulltrúar frá Jafningjafræðslunni, Ingi Bæringsson meðferðarfulltrúi og Mummi og Bjössi frá Mótor- smiðjunni fjalla um málefni ungs fólks á öðruvísi hátt. Þar munu einnig koma fram rokksveitin Stingandi strá og Lög- reglubandið. Kynnir verður Davíð Þór Jónsson. Aðgangur er ókeypis. Öllum heimill aðgangur. Edda Borg á Kringlu- kránni DJASSTRÍÓ Eddu Borg leikur í kvöld, miðvikudagskvöld, á Kringlukránni. Tríóið skipa, auk Eddu Borg, sem syngur, þeir Björn Thoroddsen á gítar og Bjarni Sveinbjörnsson á kontra- bassa. Tríóið leikur djassperlur liðinna tíma í eigin útsetningum eftir þá Gershwin, Ellington, Monk, Rodg- ers/Hart o.fl. Leikurinn hefst um kl. 22 og eru allir velkomnir. Texas Jesús á 22 TEXAS Jesús heldur tónleika ásamt The Bags of Joys í kvöld, miðvikudagskvöldið 17. apríl, á veitingastaðnum 22 við Lauga- veg. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Texas Jesús heldur til Dan- merkur og Finnlands í maí nk. og eru tónleikar þessir hugsaðir sem generalprufa á utanferðar- efnisskrá hljómsveitarinnar. Einnig verður kynntur nýr gítar- leikari. Fræðasetur fær bækur BREZKI sendiherrann á ís- landi, Michael Hone, afhenti nýlega bókagjöf til Fræðaset- ursins í Sandgerði. Það var Kristín Hafsteinsdóttir, for- stöðukona fræðasetursins, sem tók við bókagjöfinni. Gengið um Rauðarár- o g Arnarhólsholt í GÖNGUFERÐ Hafnargöngu- hópsins í kvöld, miðvikudags- kvöldið 17. apríl, verður farið frá Hafnarhúsinu kl. 20 og gengið með Sundum inn í Rauðarárvík og þaðan upp á Rauðarárholt og yfir gömlu Arnarhólsmýrina og Arnarhólsholtið niður í Grófina. Allir velkomnir. Fyrirlestur um kísilþörung á vatnasviði Hvítár GUNNAR Steinn Jónsson, líffræð- ingur á Hollustuvernd ríkisins, heldur fyrirlestur á vegum Líf- fræðifélagsins fimmtudaginn 18. apríl nk. Hann fjallar um vöxt kísil- þörungategundarinnar Didymosp- henia geminata á vatnasviði Hvítár í Borgarfirði. Fyrirlesturinn verður í Odda, Hugvísindashúsi Háskóla íslands, stofu 101 kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis og allir sem áhuga hafa velkomnir. í fréttatilkynningu segir m.a.: „í ágúst árið 1994 varð vart óeðli- legs þörungagróðurs í Hvíta í Borgarfirði sem þakti árbotninn sem gráleitur, þéttur og nokkuð stamur massi á árbotninum. Um var að ræða kísilþörungategundina Dydimosphenia geminata (Lyngb.) M. Smidth, sem er stór einfruma kísilþörungur sem vex á steinum eða gróðri og festir sig með grei- nóttum stilk. Megin hluti lífþyngd- arinnar er í stilknum og blaðgræna finnst eingöngu í frumunni sem situr á enda stilksins og skýrir það gráleitan lit þörungabreiðunnar. Engar fyrri heimildir eru um þenn- an jþörung á íslandi. Árið 1994 var útbreiðsla þör- ungsins upp fyrir Sámsstað í Hvítá. í Norðurá var hann að finna allt að flúðum við Paradís. Þörung- urinn fannst einnig í Þverá og Kjarrá upp að fremra veiðihúsi. Hann fannst einnig á neðstu at- hugunastöðunum í Reykjadalsá og Grímsá.“ Fræðslufundur Fuglavernd- arfélagsins SÍÐASTI fræðslufundur Fugla- verndarfélags íslands í vetur verður haldinn í Lögbergi, stofu 101, fimmtudaginn 18. apríl kl. 20.30. Arnþór Garðarsson, prófessor og formaður Náttúruverndarráðs, heldur erindi um votlendisvernd. Allt frá gerð fyrstu votlend- isskrárinnar sem birtist í Votlendis- bók Landsverndar árið 1975 hefur Arnþór verið framarlega í flokki þeirra sem barist hafa fyrir votlend- isvernd og endurheimt votlendis hér á landi. Hann hefur stundað viðamiklar rannsóknir á votlendis- fuglum t.d. á Mývatni og í Þjórsár- verum. Féll af baki Rannsóknadeild lögreglunnar í Hafnarfirði óskar eftir að hafa tal af ökumanni, sem ók bíl sínum á hest á Kaldárselsvegi í lok mars. Knapi var að koma á hesti sín- um að hesthúsum Hafnfirðinga í Hlíðarþúfum undir miðnætti mið- vikudagsins 27. mars, þegar hann varð fyrir bíl. Hann féll af baki og meiddist nokkuð. Fagsýning matvælagreina 1 Kópavogi um næstu helgi SÝNINGIN Matur ’96 verður opn- uð á föstudag. Sýningin fer fram í Smáranum í Kópavogi (íþrótta- húsi Breiðabliks) dagana 19.-21. apríl og er opin frá kl. 13-19 föstu- dag, laugardag og sunnudag. Sýn- ingin Matur ’96 er önnur í röð sýn- inga undir yfirskriftinni matur, síð- ast var sýningin haldin í maí 1994. Sýningin er öllum opin enda eitt- hvað fyrir alla. Fjöldi fyrirtækja víðs vegar af landinu, sem tengjast matvælum á einn eða annan hátt, munu kynna þjónustu sína. Nú er komið að íslendingum að halda Norðurlandakeppni nema í matreiðslu og framreiðslu ársins 1996 og koma lið frá öllum Norður- löndunum. Keppnin fer fram á sér- stöku sýningarsvæði þar sem áhorfendur geta fylgst með þátt- takendum keppa um titilinn Norð- urlandameistari ársins 1996. Nýjungar verða kynntar Fjöldi fyrirtækja og stofnana sem tengjast matvælum á einn eða annan hátt munu kynna vörur sín- ar og þjónustu. Gestum verður gefinn kostur á að bragða á lysti- semdunum og sannreyna gæðin, einnig munu sýningaraðilar bjóða vörur sínar á kynningarverði. Meistarafélag kjötiðnaðarmanna hefur staðið fyrir keppni undir kjör- orðinu Islenskir kjötdagar og verða afurðir keppninnar sýndar á sýn- ingunni. Keppnin er haldin annað hvert ár og er nú keppt í þriðja sinn. Keppt er í hráum og soðnum kjötvörum, hrápylsum, soðnum mat og áleggspylsum, kæfúm og paté, blóðþylsum og sultum, sérvörum og nýjungum. Margir fremstu matreiðslumenn íslendinga keppa um titilinn mat- reiðslumaður ársins. Keppnin fer fram í sérstökum keppniseldhúsum sem gerir gestum kleift að fylgjast með. Þetta er i þriðja sinn sem að keppnin fer fram á Islandi og var hún fyrst haldin á sýningunni Mat- ur ’94. Nokkrir af okkar fremstu bökur- um skreyta risastóra brúðkaups- tertu fyrir gesti á sýningunni og stefna að því að slá met. Tertur og ýmiss konar listaverk úr súkkul- aði og öðru góðgæti verða einnig til sýnis. Keppendur í fagkeppni kjöt- iðnaðarnema 1996 fá lambsskrokk sem þeir vinna eftir eigin aðferðum. Keppendur fá 120 mínútur til að skila afurðunum tilbúnum í kjöt- borð til sýnis. Sýningaraðilar hafa gefið fjölda vinninga og munu vinningshafar geta sótt þá áður en sýningin er yfirgefm. Vinningsnúmer verða til- kynnt í útvarpi Matur ’96 sem starfrækt verður á sýningunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.