Morgunblaðið - 17.04.1996, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.04.1996, Blaðsíða 42
±2 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Er vorið komið? Skjótt skipast veður í lofti segir Kristín Gestsdóttir, sem á föstudaginn langa situr veðurteppt inni í húsi á Garðaholtinu. FYRIR dyrum úti eru mann- hæðarháir snjóskaflar og ófært upp að húsinu í fyrsta skipti í vetur. Hver hefði trúað því fyrir tæpri viku, þegar ég bar fram kaffi úti á palli? Við erum oft minnt á að við búum á íslandi, þar sem aldrei er hægt að treysta á vorið. Salatfræið og steinseljan eru farnar að spíra í pottunum og bíða þess að komast út í vermireit og paprikan er kom- in vel á veg og farið að koma eitt og eitt blóm á hana. Hún fær þó aldrei að fara út en ber mikla uppskeru í vesturglugganum. Páskahret er oftast árvisst og að þessu sinni voru þrjár vikur í sum- ardaginn fyrsta. Ég á myndir sem teknar voru á páskadag, 3. apríl, fyrir tveimur árum, en þær sýna 1 lítill blaðlaukur (púrra) 2 stórar kartöflur 1 lítill blómkálshaus væn grein fersk steinselja hveitihristingur (vatn + hveiti) 50 g rjómaostur án bragðefna 1. Skafið roðið vel og skerið af ugga. Stráið 1 tsk. af salti yfir og látið standa í 10 mínútur. 2. Hreinsið gulrætur og afhýðið kartöflur, kljúfið blaðlaukinn og lát- ið kalt vatn renna inn í hann. Sker- ið allt í sneiðar. 3. Setjið vatn í pott ásamt pipar- komum, lárviðarlaufi og 2 tsk. áf salti. Látið sjóða en setjið þá gulr- ætur og kartöflur út í og látið sjóða í 10 mínútur. 4. Setjið blaðlaukinn og flsksneið- arnar út í og látið sjóða í 7 mínútur. 5. Skiptið blómkálinu í hríslur og klippið helming steinseljunnar, setjið út í og sjóðið áfram í aðrar 7 mínút- ur. 6. Takið fiskinn upp út og fjar- lægið bein og roð. Búið til hveitihristing og þykkið súpuna örlítið. Látið sjóða í 2 mínútur. börn mín og barnabörn koma í matarboð til mín klædd snjógöllum. Á myndunum beijast for- eldrarnir við snjóbylinn með yngstu bömin í fang- inu. En þá hafði veturinn ekki verið svona blíður og hvellurinn kom ekki á óvart. Um sjálfa páskana núna kom svo vorið á ný og þegar ég geng út í vorið á þriðjudags- morgni eru sílamávarnir sem börðust í skafbylnum fyrir nokkrum dögum sestir á varpset- ur sín vestan á holtinu. Þótt síl- amávar séu engir aufúsugestir eru þeir nú samt einn fyrsti vor- boðinn á Garðaholti ásamt þröst- um. Árla morguns 29. mars horfði ég á hóp þeirra koma hingað, kannski alla leið sunnan frá sól- heitum ströndum Marokkós, svo að mikil voru viðbrigðin fyrir þá þegar páskahretið skall á. Eftir allar páskasteikurnar er lúðusúpa með grænmeti á borðum hjá mér í dag. Með henni ber ég 7. Setjið rjómaostinn í skál, hrær- ið í sundur með 'h- 1 bnolla. af súp- unni, setjið síðan út í og sjóðið upp. 8. Takið fiskinn örlítið í sundur og setjið út í. Klippið það sem eftir er af seinselju yfir og berið fram í pottinum eða hellið í skál. Hvítlauksbrauð hússins „hvítlauksbrauð hússins". 6 heilhveiti- eða hveitibrauðssneiðar Matarmikil lúðusúpa 1 kg stórlúða með beinum og roði 2 lítrar vatn 3 tsk. salt 6 svört piparkorn 1 lárviðarlauf 2 stórar gulrætur 3 msk. matarolía 2 hvítlauksgeirar 2 msk. smjör 1. Meijið hvítlaukinn og setjið saman við matarolíuna. Penslið báð- ar hliðar brauðsneiðanna með þessu, setjið í brauðristina og léttristið. 2. Takið úr brauðristinni og smyijið báðar hliðar með þunnu lagi af smjöri, ristið aftur og berið heitt á borð. I DAG SKÁK llmsjón Margeir Pétursson Hvítur á leik STAÐAN kom upp á árlega Melody Amber-mótinu í Mónakó. Það er óvenjuleg- asta mót hvers ár, því þar er keppt bæði í atskák og blindskák. Þessi staða kom upp í atskák stúlknanna Júditar Polgar (2.675), sem hafði hvítt og átti leik,' og Xie Jun (2.530), fyrrver- andi heimsmeistara kvenna. 22. Rdf5! - Rxe4! (Finnur einu vörnina. Eftir 22. — gxf5 23. Bd4 fellur svarta drottningin) 23. Rxh6+?! (23. Bxe4 var öruggara) 23. - Bxh6 24. Bd4 - Rc5 25. Rh5! - Hxel + 26. Dxel — gxh5 27. Hc3 - h4 28. De7 - Rc6?? (Leikur sig beint í mát. Svartur gat varist með 28. — Bg7 29. Dg5 - f6! 30. Bxf6 - Re6) 29. Bh7+! og Xie Jun gafst upp því hún er mát I næsta leik eftir 29. — Kxh7 30. Dxf7+. Heildarstaðan eftir þrjá keppnis- daga er þessi: 1. Kramnik 5‘/z v. af 6, 2. Anand 4‘/2 v. 3-5. ívantsjúk, Piket og Shirov Z'h v. 6-8. Karpov, Lautier og Júdit Polgar 3 v. 9-11. Kamsky, Ljubojevic og Nikolic 2 v. 12. Xie Jun 'h v. Fyrsta keppnisdaginn mættust væntanlegir keppi- nautar í heimsmeistaraein- vígi FIDE. Karpov vann Kamsky bæði í atskák og blindskák. Með morgunkaffinu t HVAÐ ertu að gera í kvöld? Láttu það ganga. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Léleg þjónusta Ríkissj ónvarps GUÐRÚN Einarsdóttir hringdi til að kvarta yfir lélegri þjónustu Ríkis- sjónvarpsins hvað varðar að tímasetningar dag- skrárliða í auglýstri dag- skrá. Tímasetningar standast yfírleitt ekki og minnast þulumar hvorki á það né biðja afsökunar á því. Sýndir hafa verið tólf þættir Kontrapunkts í vetur og hafa aðeins tveir þeirra verið á auglýstum tíma. Úrslitakeppnin fór svo fram eins og kunnugt er í sjónvarpinu sl. sunnu- dagskvöld og var auglýst á dagskrá kl. 22.30 en seinkaði um hálftíma. Ekki var á það minnst í dagskránni að þessi sein- kun yrði og Guðrún sem var að horfa á aðra rás fyrir þáttinn var sífellt að skipta yfir og athuga hvort hann færi ekki að hefjast. Guðrún vildi líka vekja athygli á að hvergi í dag- skránni var minnst á að spilað yrði lag eftir Jón Leifs í þessum úrslita- þætti né að Vigdís forseti myndi veita verðlaunin. Perluúr tapaðist PERLUÚR tapaðist föstudagskvöldið 12. apríl, mjög sennilega á Feita dverginum. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 567-4559. Fundarlaun. Moongoose fjallahjól GRÆNT Moongoose Ultra Strom strákafjalla- hjól hvarf frá Vogaskóla sl. föstudagskvöld. Finnandi vinsamlega hringi í síma 568-2485. Brúðarslör tapaðist BRÚÐARSLÖR tapaðist á skírdag, annaðhvort í kringum Austurver eða fyrir utan Hótel Esju. Finnandi vinsamlega hringi í síma 581-1877. Farsi Víkveiji skrifar... KUNNINGI Víkveija á tvær dætur sem eru í leikskólanum Foldakoti í Grafarvoginum. Nýlega var gerð bragarbót á anddyri leik- skólans og við það tækifæri var sérsmíðuð glæsileg skógrind sem stendur vð einn vegginn. Mikið þarfaþing, en arkitektinn virðist því miður hafa gleymt einum mikilvæg- um hlut þegar hann sat við teikni- borðið. Hin forláta skógrind er nefnilega þannig að hillurnar eru með götum þannig að bleyta lekur úr efstu hilluni niður í skóna í ann- arri hillur og svo framvegis. Stígvél barnanna eru því rennblaut að inn- an þegar blautt er úti, en ekki má breyta grindinni - hún er svo fín og flott, þó svo notagildið sé mjög takmarkað. XXX MJÖG mismunandi er hvernig þjónustu menn fá í verslun- um. Ein er sú verslun sem kunn- ingjakona Víkveija hefur slæma reynslu af og þykir leiðinlegt, því verslunin býður upp á góða vöru og mikið úrval. Nýlega keypti kunn- ingjakonan efni í gardínur í Sauma- 'list og spurði í leiðinni hvað kostaði að láta sauma gardínurnar. Var henni gefið upp fast verð, ríflega 3.000 krónur, og þar sem sauma- skapur er ekki sterkasta hlið kon- unnar, sló hún til. Eiginmaðurinn var síðan sendur á tilsettum tíma að ná í gardínurnar og þegar heim kom sá konan að saumaskapurinn kostaði rúmlega 6.000 krónur. Verslunarstjórinn sagði að þetta væru mistök viðskiptavinarins, hún sjálf væri búin að vinna svo lengi við þetta að hún gerði ekki mistök. Og við það sat. xxx EGAR Víkveiji bregður undir sig betri fætinum og heim- sækir Suðurnesin kemur það æ oft- ar fyrir að tófa hleypur fyrir bílinn. Oftast eru þær á ferðinni á Stranda- heiðinni en nú síðast skammt sunn- an Álversins í Straúmsvík. Víkveiji hefir árangurslaust reynt að festa lágfótu á filmu en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefir það enn ekki tekist. Nú síðast, þ.e. á þriðja degi páska, stökk Víkveiji út úr bílnum og mundaði vélina en heillaður af dýrinu gleymdi hann að smella af og þrátt fyrir leit var eins og jörðin hefði gleypt það. Þetta var fjórða eða fimmta til- raun Víkveija til að reyna að ná mynd af tófunni og ef vegfarendur sjá viðkomandi gaggandi á harða- hlaupum úti í hrauni verið þá ekki of dómhörð, því vonandi fáið þið að sjá afrakstur erfiðisins fyrr en seinna. xxx YÍKVERJI átti leið um ísaijarð- arflugvöll um síðustu helgi. Hann'rölti um flugstöðvarbygging- una og varð litið upp á vegg þar sem við blasti heljarstór mynd af Vigdísi Finnbogadóttur. Víkverji fór ósjálfrátt að skipta um persón- ur í rammanum og urðu hughrifin mismunandi eftir því hvaða fram- bjóðandi fór í rammann hverju sinni!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.