Morgunblaðið - 17.04.1996, Síða 15

Morgunblaðið - 17.04.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 15 Skuldasöfnun heimilanna heldur áfram að aukast Islensk heimili með þeim skuldugustu innau OECD SKULDASOFNUN íslenskra heimila hefur verið mjög mikil á undanfömum 15 árum og er nú svo komið að skuldir heimilanna hér á landi, sem hlutfall af ráðstöf- unartekjum þeirra, eru meðal þess hæsta sem gerist innan ríkja OECD. í fréttabréfi verðbréfafyrir- tækisins Handsals er þessi skulda- söfnun heimilanna gerð að um- ræðuefni ög kemur þar m.a. fram að frá því í byijun 9. áratugarins hafi skuldir heimilinna vaxið úr því að vera 20% af ráðstöfunar- tekjum þeirra í 120%. Skuldabyrð- in hefur því sexfaldast á fimmtán árum. Þijár ástæður eru taldar til fyr- ir þessari skuldasöfnun. í fyrsta lagi skipti betra aðgengi einstakl- inga að lánsfé nokkru máli eftir þær skipulagsbreytingar sem átt hafi sér stað á íslenskum ijár- magnsmarkaði að undanförnu. Þá hafi reynsla áttunda áratugarins eflaust sett mark sitt á hugarfar íslendinga til skuldasöfnunar. Síðast en ekki síst hafi kaup- máttur launa lækkað verulega undir lok 9. áratugarins, á sama Aðalfundur Síld- arvinnslunnar Hlutafé aukið um 80 millj- ónir Á AÐALFUNDI Síldarvinnsl- unnar hf. í Neskaupstað sl. laugardag var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 10% með útgáfu jöfnunarhluta- bréfa. Jafnframt var stjórn fé- lagsins veitt heimild til þess að auka hlutafé fyrirtækisins um 48 milljónir til viðbótar, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá Síldarvinnslunni hf. Alls verður hlutafé félags- ins því aukið um 80 milljónir króna og verður 400 milljónir króna. Á fundinum var jafnframt samþykkt að greiða hluthöfum 7% arð. Hagnaður Síldar- vinnslunar á síðasta ári var 165 milljónir króna og jókst hann um 40% á milli ára. Jafnframt jókst eiginfjárhlutfall félagsins úr 21% í ársbyrjun 1995 i 28% í árslok. Nam eigið fé fyrirtæk- isins 905 milljónum króna í árslok og hefur það aukist um 1 milljarð króna á undanförn- um 6 árum. Hluthafar í Síldarvinnslunni voru 347 í árslok. Tveir hlut- hafar eiga yfir 10% hlut í félag- inu, en þeir eru Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, með rúmlega 25% hlut, og Bæjarsjóður Neskaupstaðar, sem á 11%. Á aðalfundinum á laugardag var stjórn fyrirtæk- isins endurkjörin. Stjórnar- formaður er Kristinn V. Jó- hannsson. tíma og raunvextir hækkuðu um- talsvert. Þetta hafi gert heimilun- um nokkuð erfitt fyrir, enda taki það nokkurn tíma fyrir þau að aðlaga sig að óvæntum breyting- um í tekjum og vöxtum. Skuldir heimilanna jukust um ÁÆTLAÐ er að rúmlega 200 millj- óna króna hagnaður hafi orðið af rekstri Islenska járnblendifélagsins á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þessi afkoma er enn betri en afkoma árs- ins 1995, en hagnaður ársins nam 520 milljónum króna. Ástæða þessa er hátt og stöðugt verðlag á járn- blendi og er útlit fyrir framhald á því svo langt sem séð verður. Þetta kom fram í ræðu dr. Stefáns Ólafs- sonar, stjórnarformanns íslenska járnblendifélagsins, á aðalfundi þess sl. föstudag. u.þ.b. 26 milljarða króna á síðasta ári og námu 318 milljörðum í árs- lok. Ef tekið er til vaxtaþróunar og lánskjaravísitölu á síðasta ári samsvarar þessi aukning nokkurn veginn til verðbóta og vaxta- greiðslna af lánum heimilanna, að í máli Stefáns kom jafnframt fram að stækkun verksmiðjunnar er enn í athugun og er stefnt að því að stjórnin komi saman til aukafund- ar vegna málsins síðar á þessu ári. Þá er stefnt að því að ákvörðun um hvort af stækkun verður eða ekki liggi ekki siðar fyrir en öðru hvoru megin við áramótin 1996/97. Breytingar á stjórn Á fundinum var samþykkt að greiða um 190 milljónir króna í arð til hluthafa með hliðsjón af styrkri því er fram kemur í greininni. Því virðist sem heimilin hafi haldið nokkuð í horfinu á síðasta ári, áður en tekið er tillit til fjármagns- kostnaðar. í greininni kemur fram að er- lendis hafi heimilin farið að greiða niður skuldir sínar eða í það minnsta dregið verulega úr skuldasöfnun. Greinarhöfundur telur líklegt að sú verði einnig raunin hér á landi, en erfitt sé þó að segja til um hvenær það verði. Bent er á að Þjóðhagsstofnun spái því að kaupmáttur rástöf- unartekna aukist ívið meira en einkaneysla á þessu ári, jafnframt því sem spáð er óbreyttri íbúð- arfjárfestingu. Fyrir vikið megi ætla að skuldasöfnunin verði eitt- hvað minni á þessu ári en í fyrra. Þá séu vextir að þokast niður samhliða því sem einstaklingar séu í vaxandi mæli farnir að hagræða skuldum sínum í því skyni að ná hagstæðari lánskjörum. Með þess- um hætti geti heimilin oft lækkað fjármagnskostnað sinn verulega og stuðlað að því að bæta skulda- stöðuna þegar fram í sækir. stöðu fyrirtækisins. Fulltrúar ríkis- valdsins í stjórn verða hinir sömu og áður, en Jón Sveinsson, lögfræð- ingur, mun þó taka við stjórnarform- annsstarfinu af Stefáni Ólafssyni. Skipt var um fulltrúa erlendu eig- endanna tveggja. Fyrir Elkem sitja nú í stjórn félagsins Helge Holen og Guðmundur Einarsson, verkfræð- ingur, sem gegnir stöðu yfirmanns kísilmálmframleiðslu Elkem í Nor- egi. Fyrir Sumitomo Corporation mun Mitsuhiko Yamada taka sæti í stjórn. Góð afkoma Járnblendifélagsins á fyrsta fjórðungi þessa árs Yfir200 millj. hagnaður Apple missir hæf- an mann til AT&T Palo Alto, Kaliforníu. Reuter. APPLE tölvufyrirtækið hefur misst mikilsvirtan rannsóknar- stjóra sinn, David Nagel, til fjarskiptarisans AT&T og sala fyrirtækisins heldur áfram að minnka samkvæmt óháðri könnun. Nagel var einn sex æðstu yfirmanna Apples og verður forstjóri rannsóknardeildar AT&T. Að sögn rannsóknarfyr- irtækisins Computer Intellig- ence InfoCorp. hafði sala App- les til fyrirtækja minnkað um einn þriðja á fyrsta ársfjórð- ungi 1996. Sérfræðingar telja ekkert „ískyggilegt“ við brottför Nag- els og bæði þeir og Apple segja að hann hafi látið freistazt af einstæðu tækifæri til að stjórna ránnsóknum, sem AT&T hafi lengi verið frægt fyrir. Brottför Nagels kemur sér hins vegar illa fyrir Apple, því að á sama tíma er unnið að undirbúningi endurskipulagn- ingar á starfsemi fyrirtækisins til að snúa tapi upp í hagnað. Sumir sérfræðingar segja að brottför Nagels geti seinkað svokallaðri Coplandáætlun um gerð stýrikerfis, sem margir notendur Apples bíða óþreyju. Vafi leiki á hvort stýrikerfið komist í gagnið á þessu ári. Rannsóknardeildin sem Nagel tekur að sér að stjórna, AT&T Labs, er hluti fyrri rann- sóknardeildar, Bell Laboratori- es. Vísindamenn og verkfræð- ingar deildarinnar stóðu fyrir rannsóknum og þróunarstarf- semi AT&T áður en fyrirtækið var endurskipulagt í septem- ber. Vísindamenn Bell Labs hlutu oft Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar. Útboð á rík- isvíxlum staðfestir vaxtalækkun VAXTALÆKKUN sú sem varð á skammtímabréfum í liðinni viku var staðfest í útboði Lánasýslu ríkisins á ríkisvíxlum í gær. Ávöxtunarkrafa 3, 6 og 12 mánaða ríkisvíxla lækk- aði um 0,73-0,76%, eða sem svarar til þeirrar lækkunar sem Seðlabank- inn gerði á kaupkröfu sinni á ríkis- víxlum á miðvikudag í síðustu viku. Alls var tekið tilboðum í víxla að fjárhæð 2.145 milljónir króna. Þar af keypti Seðlabankinn víxla fyrir 715 milljónir á meðalverði sam- þykktra tilboða. Meðalávöxtun 3 mánaða víxla var 6,73%, 6 mánaða víxla 6,85% og 12 mánaða 7,13%. Guðmimdim Rapi Gemöal vœimnleqm pKseTafmmhjóðandi Stefnuskrá, 9. liður af 12: „Að styðja bætta menntun."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.