Morgunblaðið - 17.04.1996, Síða 18

Morgunblaðið - 17.04.1996, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Takakó Inaba Jónsson Tónlistarskóli Kópavogs Attunda stigs tón- leikar TAKAKÓ Inaba Jónsson sópran heldur tónleika í sal Tónlist- arskólans í Hamraborg 11, jarð- hæð, á morgun, fímmtudag, kl. 20.30. Tónleikarnir eru hluti af lokaprófi hennar í áttunda stigi. Á efnisskránni eru meðal annars aríur, japönsk og íslensk lög og lagaflokkurinn Brúðar- Ijóð eftir Peter Comelius. Með- leikari á píanó er Jóhannes Andreasen. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill. Stofnfundur Hins íslenska kvikmynda- fræðafélags FRAMKVÆMDANEFND sú sem skipuð var á óformlegum stofnfundi félagsskapar áhuga- fólks um kvikmyndafræði á hundrað ára afmælisdegi kvik- myndarinnar hefur nú lokið störfum. í nefndinni sátu Anna Sveinbjamardóttir, Böðvar Bjarki Pétursson, Siguijón Bald- ur Hafsteinsson og Þorvarður Ámason. Nefndinni var einkum ætlað að semja drög að lögum og stofnskrá þessa félags í sam- ræmi við þær hugmyndir og til- mæli sem fram komu á „afmæl- isfundinum" 28. desember í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nú hefur verið ákveðið að stofna þennan félagsskap form- lega á fundi sem haldinn verður á Kornhlöðuloftinu, Banka- stræti 2, miðvikudaginn 8. maí næstkomandi. Fundurinn mun hefjast klukkan 20 og er hann opinn öllum sem áhuga hafa á málefnum og starfi Hins ís- lenska kvikmyndafræðafélags. Fyrsti samlestur á Galdra- Lofti FYRSTI samlestur á óperu Jóns Ásgeirssonar, Galdra-Lofti, var í húsakynnum Islensku óperunn- ar á mánudag. Verður hún frum- sýnd í tengslum við Listahátíð i Reykjavík 1. júní næstkomandi. Galdra-Loftur er önnur ópera Jóns Ásgeirssonar og byggir á samnefndu leikverki Jóhanns Sigurjónssonar en jafnframt eru nokkur ljóð skáldsins felld inn í óperuna. Sitthvað í verki Jó- hanns, sem tengist staðsetningu og tíma þess, er fellt burt en í staðinn er megináhersla lögð á tilfinningaátök persónanna, að því er fram kemur í frétt frá Islensku óperunni. Segir þar ennfremur: „Sagan fjallar um Loft, metnaðarfullan ofurhuga, og leit hans að almætt- inu. Hann svífst einskis til að ná settu marki og verður samferða- fólk hans að peðum sem fórnað er í hinu örlagaríka tafli hans. Þetta er ástþrungin galdrasaga af manni sem krukkar í hið óþekkta til að öðlast mátt, völd eða einungis tilverurétt en tapar öllu á hálum brautum mannshug- ans.“ Á meðfylgjandi mynd eru Bergþór Pálsson, sem fara mun með hlutverk Ólafs; tónskáldið Jón Ásgeirsson; Þorgeir Andrés- son sem syngja mun hlutverk Lofts; Halldór E. Laxness leik- stjóri og hljómsveitarstjórinn Garðar Cortes. Á vit göngnnnar MYNPLIST Önnur hæð — Laugavegi 3 7 BLÖNDUÐ TÆKNI Hamish Fulton. Opið kl. 14-18 alla miðvikudaga (eða eftir samkomu- lagi) til 22. maí. Aðgangur ókeypis. „SÚ LÍKAMLEGA áreynsla sem fylgir því að ganga gerir menn móttækilega fyrir landslagi. Ég geng á jörðu til að samsamast nátt- úrunni.“ Þessi orð gætu verið sem töluð út úr hjarta hvers sem er af þeim vaxandi fjölda náttúruunnenda og gönguhrólfa sem kjósa að leggja land undir fót og þramma á milli staða jafnt í byggðum sem óbyggð- um, í stað þess að kjósa sér auðveld- ari (og vélvæddari) fararmáta. Sú staðreynd að sá gönguhrólfur sem þetta er haft eftir er um leið skap- andi listamaður sem hefur stundað slíkar göngur í meira en aldarfjórð- ung og lítur á þær sem nauðsynlega forsendu listsköpunar sinnar verður til að færa list og land saman á nokkuð nýstárlegan hátt. Hamish Fulton kom fram á sjón- arsviðið í listheiminum á sjöunda áratugnum og átti þá þegar nokk- urn þátt í þeirri þróun sem varð á sviðum bókalistar, hugmyndalistar og jarðlistar. Gangan hefur frá fyrstu tíð verið hluti af mynstri hans sem listamanns, án þess þó að verða endilega hvati að lista- verki hveiju sinni, því að „göngu- ferð fær sitt eigið líf og það þarf ekki endilega að gera hana að lista- verki“. Sem er eins gott, því „mynd- listin getur ekki endur- skapað sjálfa gönguna. Straumur áhrifanna á að liggja frá náttúr- unni til mín, ekki frá mér til náttúrunnar". Ofangreindar til- vitnanir (og aðrar í þessari grein) eru teknar úr ávarpi lista- mannsins, sem fylgir sýningunni. Þar kemur einnig skýrt fram virð- ing Fultons fyrir náttúrunni, því hann hagræðir þar engu, tekur ekkert, rótar ekki upp jarðvegi eða Hamish Fulton pakkar inn hlutum hennar - en helstu aðferðir þeirra sem stunda jarðlist hafa einmitt haft í för með sér rask af þessu tagi. Á hvem hátt koma þessi áhrif gönguferð- anna þá fram í list hans? Það gerist fyrst og fremst með skrásetningu, upplýsingaflæði og einföldum teikningum. Lengi vel vann Fulton mest með texta sem gjarna tengdust ýmsum fyrirbærum náttúrunnar, hugtökum hennar og litum, og skapaði þannig myndverk jafnt sem bókverk. í seinni tíð hef- ur hann lagt aukna áhersiu á fjöl- breyttari framsetningu þessara áhrifa, og koma þá m.a. til útlínu- teikningar steina og skrásettar upp- lýsingar, sem verða líkt og grafísk minnismerki ferðanna í sýningar- hæfu formi. Tákngildi talna, árstíða og gangs himintunglanna hafa greinilega vakið áhuga Fultons, því margar þeirra gönguferða sem hér eru kynntar markast af slíkum þáttum. Síðasta ferð hans hér á landi (á Mýrdalssandi í síðasta mánuði) hófst á jafndægri á vori og stóð í sjö daga; önnur ferð hér (1987) mark- aðist af sumarsólstöð- um. Aðrar ferðir sem nefndar eru á sýning- unni voru t.d. miðaðar við tunglmánuð (frá tunglfyllingu að hinni næstu), níu daga eða sex þúsund punkta - tákn um jafnmörg ber- fætt skref á gangi í Mexíkó. Slíkar upplýsingar verða til að varpa ákveðinni dulúð á það ferli að ganga í náttúrunni, dulúð sem flestir göngumenn hafa fundið fyrir. Samhengi hinna ýmsu áhrifa sem Fulton vinnur eftir er þó alltaf ljóst í huga hans: „Ég er myndlistarmaður sem geng, en ekki göngumaður sem býr til myndverk." En hann gerir sér einnig fulla grein fyrir takmörkum þeirra sem eiga að njóta verkanna: „Ég skrá- set gönguferðir til að votta þeim virðingu mína. Göngumaðurinn lít- ur á textana sem staðreyndir, allir aðrir líta á þá sem uppspuna. Að ganga langt út fyrir mörk hugar- flugsins." Göngumenn og aðrir aðdáendur hugarflugsins eru hvattir til að þramma á sýninguna á Annarri hæð einhvern miðvikudaginn og njóta þeirra áhrifa sem þessi hógværi listamaður hefur fram að færa eft- ir að hafa leitað á vit göngunnar. Eiríkur Þorláksson ■ • ■■■ Morgunblaðið/Þorkell Flaubert ogfrú Bovary PÉTUR Gunnarsson flytur fyrir- lestur í franska bókasafninu, All- iance Francaise, Austurstræti 3 í dag miðvikudag kl. 20.30 um Gustave Flaubert og frú Bovary. Talar á frönsku og íslensku Fyrir jólin 1995 kom út hjá bóka- forlaginu Bjarti í þýðingu Péturs Gunnarssonar saga Gustave Flau- berts, Frú Bovary. Pétur talar á frönsku og íslensku og eru allir velkomnir. Alliance Francaise er flutt í Aust- urstræti 3 og er gengið inn frá Ingólfstorgi. Röð einþáttunga í Kaffileikhúsinu Um íslenskan hallærisg'ang Morgunblaðið/Ásdís „ÞETTA er fyrst og fremst skopleikur sem ég býst við að fólk eigi eftir að geta speglað sig í,“ segir Vala Þórsdóttir um einþátt- ung sem hún frumflytur í Kaffileikhúsinu í kvöld. „SÓLEY er þrítug reykvísk kona og fráskilin. Hún var ein af þessum konum sem fóru í jogginggalla og inniskóm út á vídeóleigu, hún horfði jafnvel á Derrick með eiginmannin- um. En hún rífur sig uppúr þessu; skilur við kallinn, fer á sjálfsstyrk- ingamámskeið og heldur svo útá markaðinn að nýju. Þar hittir hún dónalega íslenska karlmenn sem spyija hvort þeir megi ekki fara með henni heim. Þetta er öðrum þræði saga um íslenskan hallæris- gang.“ Þannig kemst Vala Þórs- dóttir að orði um einþáttunginn, Eða þannig, sem hún er höfundur að og leikur jafnframt eina hlut- verkið í og verður frumsýndur í kaffileikhúsinu í kvöld kl. 21. Vala Þórsdóttir lauk prófi í leik- list frá Bretton College í Leeds á Englandi á síðasta ári. Hún er fyrst til að stíga á stokk af ungum leikur- um sem munu setja upp einleikssýn- ingar í Kaffileikhúsinu á næstunni með aðstoð þekktra leikstjóra. *■ Samfélagsdoði Vala segir að það hafi verið áber- andi þegar hún kom heim frá námi erlendis að það væru allir annað hvort fráskildir á íslandi eða að skilja. „Ég ákvað því að taka þetta efni fyrir, skopast eilítið að umtal- inu, dónaskapnum og áreitinu sem einkum fráskildar konur verða fyrir á íslenskum skemmtistöðum. Verk- ið fjallar um þennan samfélagsdoða sem maður verður hvergi meira var við en einmitt hér á íslandi; kannski vegna nálægðarinnar sem er hér á milli fólks. Þetta er fyrst og fremst skopleikur sem ég býst við að fólk eigi eftir að geta speglað sig í, fólk á e’ftir að þekkja sjálft sig í verk- inu.“ Vala segir það mikla áskorun að standa ein á sviði. „En það hjálpar að verkið er eftir sjálfa mig og því þekki ég textann inn og út. Þetta verk er hins vegar í öðrum stíl en ég hef verið að fást við, það er natúralískara og því verður skemmtilegt að sjá hvað úr þessu verður." Ein í eldinum Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri, tekur undir það með Völu að það sé mikil ögrun fyrir ungan leikara að standa einn á sviði. „Hún stendur ein í eldinum, án nokkurrar stoðar. Mitt hlutverk hefur verið meira í ætt við starf lærimeistara en leik- stjóra; ég kem að sýningunni hálf- kláraðri þar sem Vala er þegar búin að móta hana að stórum hluta, búin að vinna þá undirbúningsvinnu sem yfirleitt er í höndum leikstjórans." Brynja lærði leiklist í sama skóla og Dario Fo í París en eitt af loka- verkefnum Völu við Bretton Hall Coliege fjallaði einmitt um þennan ítalska gamanleikjameistara. „Ég er mjög spennt að sjá hvort leikstíll Völu sé ekki eitthvað I ætt við þann sem við þekkjum frá Dario Fo.“ Aðeins þijár sýningar verða á Eða þannig að þessu sinni. Auk frumsýningar í kvöld verða sýning- ar sunnudaginn 21. apríl og fimmtudaginn 25. apríl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.