Morgunblaðið - 17.04.1996, Side 19

Morgunblaðið - 17.04.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 19 FINNA Birna Steinsson. lfa?“bh"ð'Aadto Þjóðlegar þúfur VERK eftir Finnu. FINNA Birna Steinsson myndlistarmaður sýnir þijár j,Tilraunir um þúf- ur“ í Asmundarsal. Þá valdi hún og setti upp sýningu á verkum As- mundar Sveinssonar. Finna vakti athygli fyr- ir þremur árum þegar hún gerði verkið „1000 veifur í Vatnsdalshólum". Þar gerði hún tilraun til að kasta tölu á hólana í Vatnsdal sem löngum hafa verið taldir ótelj- andi. Á sýningunni Skúlptúr/Skúlpt- úr/Skúlptúr á Kjarvals- stöðum árið 1994 gróður- setti hún þúfur á stéttinni fyrir framan listasafnið. í Ásmundarsal eru þúf- urnar komnar í hvítan gifsbúning sem rímar við sýn- ingarsalinn sem er ljósleitur. Einnig er formið á þúfunum ákveðin tilvísun í kúpulinn á Ásmúndarsal, að því er lista- konan segir sjálf. Hin tvö verk- in á sýningunni eru ljósmyndir, teknar í tengslum við sýning- una á Kjarvalsstöðum. „Þetta er bæði heimilda- mynd af þúfnaverkinu og meira en það. Mér finnst ég vera að ganga aðeins lengra,“ sagði Finna Birna. „Eg hef hingað til verið að vinna að verkum utandyra og hef valið það til að bijóta upp hið hefð- bundna form. Það er einhver innri löngun í mér að leita nýrra leiða í myndlist." Finna sagði að Ásmundur Sveinsson hefði haft áhuga á að hanna og búa til þúfnasláttu- vél. „Hann hefur greinilega verið þúfnavinur og þessi hug- mynd hefur komið fyrir tíma þúfnabanans fræga sem notað- ur var til að slétta landið," sagði Finna sem einnig telst til þúfnavina, enda telur hún hana til eins af sérkennum landsins og kemur inn á það í sýningar- skrá: „Margt bendir til að í náinni framtíð verði sérkenni landa og þjóða, einkum smá- þjóða, útflött og afmáð í hring- iðu viðskiptabandalaga og múgmiðlunar. Á slíkum óvissu- timum er sjálfsagt að draga þúfuna fram í dagsljósið og minna á dulúð hennar, þjóðleg- an kraft og einfaldleik: leyfa henni að rétta úr kútnum á ný.“ En hvers vegna gifsþúfur? „Þetta eru eins konar portrett af þúfum og ekkert óeðlilegra en að gera portrett af mönnum til að gera þá ódauðlega. Þetta er unnið í mjög klassiskum anda og þúfan er beygð undir lögmál hússins sem hún er sýnd í. Borgin kallar á vinnslu þúf- unnar yfir í hart og gelt form og um leið nálgast ég Ásmund, og hans höggmyndir, í efnis- notkun." TRÍÓ Björns Thoroddsen og Egill Ólafsson. Tríó Björns og Egill Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- hálftími að lengd og hefjast kl. ræna húsinu í dag, miðvikudaginn 12.30. 17. apríl, mun tríó þeirra Björns Handhöfum stúdentaskírteina er Thoroddsen og Egils Ólafssonar boðinn ókeypis aðgangur, en að- koma fram. Tónleikarnir eru um gangseyrir fyrir aðra er 300 kr. Fiðlu- o g píanóleikur TÓNLEIKAR verða haldnir á veg- um Tónlistarfélags ísafjarðar og Norræna félagsins á Isafirði í Frí- múrarasalnum á ísafirði í kvöld kl. 20.30. Verða þeir endurteknir í Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, föstudaginn 19. apríl. Flytjendur eru Tapani Yijöla fiðluleikari frá Finnlandi og Guð- ríður St. Sigurðardóttir píanóleik- ari. Á efnisskránni verða Vorsón- ata Beethovens, sónata nr. 3 eftir Grieg, sónatína eftir Sibelius og sónata eftir Jón Nordal. Tapani Yijöla er mjög virkur í tónlistarlífi Finna. Hann heldur árlega um 50-70 tónleika í heima- landi sínu og í Bandaríkjunum. Hann lauk doktorsgráðu í fiðluleik frá háskólanum í Michigan og auk tónleikahalds er hann deildarstjóri strengjadeiidar tónlistarskólans í Joensu, en Joensu er vinabær ísa- fjarðar í Finnlandi. Guðríður hefur haldið fjölda tónleika, bæði hér heima og er- lendis, ýmist sem einleikari eða með öðru tónlistarfólki. Hún er með meistaragráðu í píanóleik frá háskólanum í Michigan. Auk tón- leikahalds stundar hún píanó- kennslu, meðal annars í Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Þetta er í fyrsta skipti sem Guðríður heldur tónleika á ísafirði. Verö frá kr. hvora leiö meö flugvallarskatti 9.900 f Sala: Wihlborg Rejser, Danmörku, 1 Simi: 0045 3888 4214 K Fax: 0045 3888 4215 J Sœnsklr símadagar i Kringlunni i 17. til 20. apríl í tilefni af sænskum dögum í Kringlunni býður Póstur og sími 15% afslátt af eftirtöldum símabúnaði á meðan birgðir endast ___________________Tele-pocket 2QQ Verð kr. 31.500,- Með 15% afsl. kr. 26.775,- Lítill og léttur þráðlaus sími með skjá • Handtæki 210 g með rafhlöðu - aukarafhlaða • 20 númera skammval með nöfnum • Endurval - stillanleg hringing • íslenskar leiðbeiningar Telia Fax 10 Verð kr. 31.557,- Með 15% afsl. kr. 26.823,- • Fyrirferðarlítið og hentugt faxtæki með síma • 6 númera hraðvalsminni • 40 númera skammvalsminni • Skjár • Endurval • íslenskar leiðbeiningar Verð kr. 2.980,- Með 15% afsl. kr. 2.533,- Ódýr og traustur borðsími • Endurval - styrkstillir fyrir hlust • Stillanleg hringing - 5 númera hraðval • íslenskar leiðbeiningar • Litir: gulur, hvítur og svartur Telia Magni sími með stórum tökkum, hentar sjónskertum og hreyfihömluðum Bizz 66 handfrjáls borðsími Referens borðsími með skjá Telia KombiFazil sími og simsvari Telia Casall þriggja númera hraðvalsminni Respons borðsími Respons veggsími Ouno ódýr og einfaldur sími Replik borð- eða veggsími Allgon loftnet fyrir GSM og NMT farsíma Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 • Söludeild Ármúla 27, simi 550 7800 Þjónustumiðstöð i Kirkjustræti, sími 550 6670 • Póst- og simstöðvar um land allt OG SIMI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.