Morgunblaðið - 17.04.1996, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.04.1996, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR LISTAMENNIRNIR sem sýna í Ingólfsstræti 8. MYNPLIST Ingólfsstræti 8 SAMSÝNING Steingrímur Eyfjörð, Sara Björnsdóttir, Börkur Amarson, Svanur Kristbergsson. Opið frá 14-18 alla daga nema mánudaga. Til 28 apríl. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ ER að vonum, að aðstand- endur sýningarsalarins litla að Ingólfsstræti 8 marki honum stærð eftir vexti og leggi öllu meiri áherslu á innsetningar og tilvísanir en ábúðarmikil og kröft- ug verk. Þannig hefur verið tekin sú stefna í sambandi við dymbil- viku og páska að setja saman vís- anir til atburðarásarinnar varðandi pínu, dauða og upprisu Krists. Fjorir listamenn standa að þessari sýningu sem þeir nefna „Blóð „Blóð Krists“ Krists“ og var hún opnuð á skír- dag. Hugmyndin á annars rætur í sérstöku tónverki Gavins Bryars, og tildrög þess má rekja til upp- hafs áttunda áratugarins er Bry- ars vann við hljóðupptökur á vett- vangi útigangsmanna í Lundún- um. Þá varð á vegi hans flækingur einn sem söng fyrir hann vísu eft- ir óþekktan höfund. Bryars hljóð- ritaði sönginn sem varð svo kveikj- an að tónsmíðinni. Það er svo út frá þessu ferli í tónverkinu sem listamennimir vinna og að sjálfsögðu inntaki þess sem má vera píslarsagan. í enda salarins er aðalvísunin, sem er stór kross eftir Söru Björnsdótt- ur og er nærri því að fylla um of út í rýmið. En til beggja handa eru ýmis almenn tákn svo og vís- anir til sársaukans, einnegin til alnetsins svonefnda eins og til að færa píslarsöguna nær vettvangi dagsins. Innsetningin er mjög í anda þess sem víða má sjá á sýningarvett- vangi í dag, sem ekki skal endilega tekið sem neikvæður framsláttur, því það er auðvitað besta mál að fólk vilji vera „in“ í sínum tíma. Hún er smekkleg og ásjáleg, hins vegar geta gerendur ekki gert kröfu til þess að gjömingurinn sé meðtekinn einstæður og framlegur, frekar að hönd sé lögð að því sem hvarvetna er gert þar sem gerend- ur era á sömu nótum. Bragi Ásgeirsson Fjölskylda snýst til varnar KYIKMYNPIR Bíóborgin FYRIR OG EFTIR „Before and After“ ★ ★ Vi Leikstjóri: Barbet Schroeder. Handrit: Ted Tally eftir skáldsögu Rose Ellen Brown. Aðalhlutverk: Meryl Streep, Liam Neeson, Edward Furlong, Alfred Molina. Hollywood Pictures. 1996. NÝJASTA mynd Barbet Schro- eders heitir Fyrir og eftir af mjög einfaldri ástæðu. Þetta er fyrir: Meryl Streep leikur virtan lækni í smábæ í Bandaríkjunum. Liam Neeson leikur eiginmann hennar. Hann er listamað- ur. Þau eiga son á unglingsaldri og yngri dóttur. Lífið gengur sinn vana- gang eins og hjá hverri annarri venju- legri amerískri fjölskyldu. Þetta er eftir: Sonurinn á heimilinu er granað- ur um morð á vinkonu sinni. Bæjar- samfélagið lokar dyram sínum á flöl- skylduna og fjölskyldan sjálf tekst harkalega á um leiðir í vanda sínum. Ekki er nóg með að líf hennar verður aldrei eins og áður eftir þennan skelfí- lega atburð. Fjölskyldan fær aldrei að vita hvemig það hefði orðið ef allt hefði haldið áfram sinn friðsæla vanagang. Hún mun lifa í skugga þessa atburðar um ókomna tíð. Gleði hennar verður aldrei söm. Fyrir og eftir er ekki þessi venju- lega glæpamynd þar sem hasarinn og spennan stigmagnast í eltingar- leik við morðingja. Schroeder og handritshöfundurinn Ted Tally (Lömbin þagna) nota óvenjulegt morðmál til að kryfja innbyrðis til- fínningasambönd innan fjölskyld- unnar og hvernig hún tekst á við eitthvað eins stórkostlega fráleitt og það að sonurinn geti hugsanlega verið morðingi. Spennan er öll sál- fræðileg og felst í mörgum samtvinn- uðum þáttum; í ólíkri afstöðu hjón- anna til þess hvernig bregðast eigi við; í sambandi sonarins við föður- inn, sem hann lítur upp til og vill geðjast og setja traust sitt á sérstak- lega undir þessum óvenjulegu kring- umstæðum; í samskiptum við lög- fræðinginn, sem Alfred Molina leik- ur, er hirðir ekki um sannleikann í málinu heldur aðeins hvernig unnt er að sigra í réttarsalnum; í hugsan- legum afleiðingum ef verður að bæla niður það sem sækir svo átakanlega upp á yfirborðið. Fyrir og eftir er sálfræðileg spennumynd gerð á eink- ar skynsömum nótum, lágstemmdum og alvarlegum og raunsæum og án þess að væmni fái svigrúm til að setja mark sitt á leikinn. Schroeder hefur áður fjallað af óvenju skýra innsæi um venjulegt fólk sem stendur frammi fyrir hinu óhugsandi og verður á einhvern hátt að bregðast við því. Hann er líka fær í að stýra leikurum. Allar persónur myndarinnar telja sig vera að gera það eina rétta þótt það stangist á við álit annarra og leikurinn mótast af því. Streep gerir enn einu tárfel- landi móðurhlutverkinu skil af sinni tæknilegu fullkomnun. Neeson stjórnast af eðlisávísun dýrsins í bar- áttunni við að vernda son sinn hvað sem það kostar. Furlong sýnir vel hvernig sonurinn lítur til föðurins eftir leiðarljósi. Fyrir og eftir er öðruvísi og ítar- legar hugsuð en venjuleg spennu- mynd. Hún krefst þess að áhorfand- inn taki afstöðu, sem er meira en hægt er að segja um megnið af saka- málamyndum dagsins. Arnaldur Indriðason Frá sagnaþáttum tíl heimildaskáldsagua BOKMENNTIR Frædirit íslenskar heimildabókmenntir: Athugun á rótum íslenskra heimildaskáldsagna eftir Magnús Hauksson. Bókmenntafræðistofnun Háskóla íslands, Studia Islandica 52., 1996 - 251 síða. BÓKMENNTASAGAN einkenn- ist af þröngu vali sem ákvarðar hvaða höfundar og verk lifa og hveijir verða gleymskunni að bráð. Hinn mexíkóski hattur þagnarinnar varpar skugga á fylgsnamenn og konur sem hin fræðilega hugsun hefur veigrað sér við að taka á. Sagan er í raun sett saman úr örfá- um einstaklingum - einkum af karl- kyni - sem í krafti „snilldar", inn- sæis eða trúarhita hafa ekki sokkið til botns. Orðræðum fortíðarinnar er þannig mismunað á afar reglu- bundinn hátt sem stjórnast af við- horfum manna til skáldskapar og sannleika á hverjum tíma. Af ein- hveijum ástæðum hefur alþýðleg sagnaritun svokölluð ekki verið fyr- irferðarmikið viðfangsefni fræði- manna þótt ljóst megi vera að hún hefur átt töluverðan þátt í því að móta viðhorf okkar til fortíðarinnar. Það viðhorf birtist ef til vill í nokk- urs konar leit að annarleika sem á einhvem hátt festir okkar eigin hugsun í sessi og setur mark sitt á skáldskap um söguleg efni á síðustu áratugum þar sem valdið er í lykil- hlutverki - vald sem var oftar en ekki grimmt á annan hátt en það er í dag en virðist að einhveiju leyti vera samofið eðli frásagnarinnar. í riti sínu íslenskar heimildabók- menntir fjallar Magnús Hauksson um bókmenntagrein sem hingað til hefur lítill gaumur verið gefinn og fremur verið viðfangsefni sagnfræð- innar en bókmenntafræðinnar. Hann leitast raunar við að sameina greiningarhugtök þessara tveggja húmanísku fræðigreina til að varpa ljósi á rit sem standa á mörkum skáldskapar og sagnfræði. Til grandvallar rannsókninni liggja Sagan af Natan Ketilssyni eftir Gísla Konráðsson, Saga Natans Ketilssonar og Skáld-Rósu og Sagan af Þuríði formanni og Kambráns- mönnum eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi, Rauðamyrkur eftir Hannes Pétursson, Tyrkjaránið eftir Jón Helgason, Dómsdagur og Bókin um Daníel eftir Guðmund Daníels- son, Haustskip og Falsarinn eftir Björn Th. Bjömsson og loks Yfir- valdið eftir Þorgeir Þorgeirsson. Bókin skiptist í þijá meginhluta þar sem fyrst er ákvörðuð merking hugtaka á borð við frásögn, skáld- sögu, sagnfræði, dókúmentarisma, heimildaskáldsögu, alþýðlega sagnaritun og sagnaþátt og afstaða þeirra til hvers annars rædd. í síð- ari hlutunum tveimur era formleg og hugmyndafræðileg einkenni ein- stakra verka athuguð, alþýðlegra sagnarita í þeim fyrri og heimilda- skáldsagna í þeim síðari. Tilgangur Magnúsar er að kanna samband þessara bókmenntagreina, hvort flokka megi alþýðleg sagnarit frá síðustu áratugum undir dókúment- arisma ellegar hvort íslenskar heim- ildaskáldsögur hafi í raun inótast að einhverju leyti af alþýðlegum sagnaþáttum í Ijósi hinnar löngu hefðar hérlendis fyrir bókmenntum sem liggja á mörkum sagnfræði og skáldskapar. Niðurstaða Magnúsar kemur ein- hvern veginn ekki á óvart, það er að segja sú að hin alþýðlega sagna- ritun hafí verið að mótast allt fram á þennan dag og heimildaskáldsög- urnar séu hlekkur í þeirri þróun fremur en einhlítt viðbragð við dókúmentarisma sjöunda áratugar- ins á Norðurlöndum og í Þýska- landi, þótt áhrifa hans gæti vissu- lega í verkum Þorgeirs, Björns og Guðmundar. í því samhengi skipta hugmyndaleg einkenni ekki hvað minnstu máli, eins og Magnús bend- ir á, til að mynda sú staðreynd að samfélagsgagnrýni beinist að svip- uðum þáttum í báðum greinunum: að fletta ofan af ómannúðlegu rétt- arfari. Öfugt við hin dókúmentar- ísku verk sem höfðu brennandi málefni samtíðarinnar að viðfangs- efni leita höfundar íslenskra heim- ildaskáldsagna aftur í fortíðina og fylgja þannig hefð hinnar alþýðlegu sagnaritunar þar sem alla jafna er fjallað um afbrot, örlög sakafólks, dómsmál, morð og lifsbaráttu ís- lenskrar alþýðu. Áherslan er lögð á að segja sögu einstaklingsins sem berst við réttvísina í formi óviðráð- anlegra örlaga sem vonlaust er að hnika. Heimildaskáldsögurnar greina sig frá hinum eldri sagnarit- um manna eins og Gísla Konráðs- sonar og Brynjólfs frá Minna-Núpi, sem fyrst og fremst voru að halda fróðleik urn atburði og einkennilega menn til haga, með því að meira er lagt upp úr eigindum skáldskap- arins og listrænum búningi, sagt er frá því sem hefði getað gerst, skáldað er upp í þagnir heimild- anna. Um leið veita höfundar þeirra sér svigrúm til að koma ákveðinni heildarhugsun eða hneigð á fram- færi líkt og Þorgeir gerir í Yfírvald- inu, þar sem markmiðið er þjóðfé- lagslegt, að afhjúpa misrétti og andstæður auðs og örbirgðar, valda og áhrifaleysis í samfélaginu. Gagn- týnin beinist ekki aðeins að óper- sónulegu kerfí réttarfarsins heldur að handhöfum valdsins. I þessari hneigð greinir Magnús hugmynda- leg áhrif frá erlendum dókúmentar- isma enda er niðurstaða hans sú að í sögu Þorgeirs sé að finna skörp- ustu þjóðfélagsgagnrýnina af þeim verkum sem hann fjallar um og að saga einstaklingsins í anda alþýð- legra sagnarita setji einna minnst mark sitt á hana af íslenskum heim- ildaskáldsögum. Út úr verki Magnúsar má lesa ákveðna þróun frá alþýðlegum sagnaþáttum til heimildaskáld- sagna; þróun sem hann byggir á hugmyndum um mörk skáldskapar og sagnfræði, formleg einkenni, frá- sagnarhátt, viðhorf til sanhleika og heildarhugsun, svo nokkuð sé nefnt. Um er að ræða þróun frá því að segja sögu burtséð frá hugmynda- legri eða samfélagslegri merkingu hennar til frásagnar sem lýtur þeim lögmálum sem kennd eru við skáld- skap. Þannig staðsetur hann verk eins og Rauðamyrkur Hannesar Péturssonar á mörkum eldri sagna- þáttahefðar og skáldskapar og telur Tyrkjarán Jóns Helgasonar uppfylla öll formleg einkenni heimildaskáld- sögunnar en greina sig frá lungan- um af dókúmentarískum verkum að því leyti að samfélagsleg ádeila eða afhjúpun sé ekki markmið verksins. Falsara Björns Th. Björnssonar seg- ir hann vera nær því að vera „hrein“ skáldsaga en Haustskip sama höf- undar. Hugmyndir um slíka þróun geta verið varhugaverðar þar sem þær byggja oftar en ekki á rótgrón- um hugmyndum sem gera skáld- skap nútímans sjálfkrafa hærra undir höfði en eldri skáldskap; eldri form og viðhorf verða „vanþróaður" undirbúningur fyrir nýlegri verk sem falla að leiðarljósi ákveðinnar fræðikenningar eða flokkunar. í stað þess að kanna hvort Saga Natans Ketilssonar og Skáld-Rósu falli að skilgreiningu á heimilda- skáldsögum er vænlegra að glíma við verkið á þess eigin forsendum, sem afsprengi þjóðlegrar sagnarit- unar sem rætur sínar á allt aftur í miðaldir, eins og Magnús bendir raunar réttilega á. Á móti kemur að kosturinn við verk Magnúsar er að hann gengur ekki of langt í því að heimfæra erlenda strauma í heimildabókmenntum upp á íslensk rit enda gerir hann ágætlega grein fyrir áhrifum alþýðlegrar sagnarit- unar á heimildaskáldsögurnar. Greining Magnúsar á sagnaþátt- um og heimildaskáldsögum er í flesta staði ítarleg og vönduð, flokk- un verkanna er vel rökstudd og fræðilega ígrunduð. Galli greining- arinnar er helst sá að hún er ákaf- lega hefðbundin, ef svo má segja, þar sem mikil áhersla er lögð á form- ræna þætti verkanna. Vænlegra hefði mér fUndist að gera enn skarp- ari atlögu að hugmyndaheimi ís- lenskra heimildabókmennta, I ljósi þeirrar sérstöðu sem þær hafa gagn- vart dókúmentarismanum. Þá hefði mátt leita svara við þeirri spurningu af hveiju fortíðin er í ríkari mæli viðfangsefni íslenskra heimildabók- mennta (burtséð frá þeirri goðsögn Björns Th. um að við séum tímalaus þjóð) og um leið skýra þá hug- myndafræðilegu þversögn sem sam- kvæmt Magnúsi einkennir heimilda- skáldsögumar og yngri sagnaþætti og felst í því einstaklingurinn sé í þessum verkum í senn máttlítill leik- soppur yfirvalda eða náttúrufars og hetja sem á það undir eigin seiglu og lífsþrótti hvernig honum farnast. Með slíkri athugun hefði mátt kafa dýpra í viðhorf okkar til sögunnar eins og það birtist í heimildaskáíd- sögum og sagnaþáttum, nýjum og gömlum, og varpa um leið ljósi á þá tilhneigingu að gera söguna að heldur óhrjálegum spegli sem við hrökkvum undan og heillumst af á sama tíma. Eiríkur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.