Morgunblaðið - 17.04.1996, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 17.04.1996, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Aukastörf dómara TALSVERÐ umræða hefur orðið um hvort og að hvaða marki dómurum er heimilt að stunda aukastörf. Sam- kvæmt 61. gr. stjórnar- skrárinnar skulu dóm- endur í embættisverk- um sínum fara einungis eftir lögunum. Gert er ráð fyrir því að dómarar séu sjálfstæðir og óvii- hallir í embættisverkum sínum og taki hvorki við fyrirmælum frá stjóm- völdum né öðrum. Ástæður þessa eru tald- ar augljósar og almennt viðurkenndar. Gert er ráð fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstólum í mörgum þjóðréttar- samningum svo og í löggjöf margra ríkja. Ýmis atvik geta valdið því að unnt sé með réttu að draga óhlut- drægni dómara í efa í tilteknu máli eða málum. Þegar svo stendur á ber honum að víkja sæti. Hugsan- legt er einnig að aukastörf dómara, eignaraðild hans og önnur atvik leiði til þess að hann verði talinn vanhæfur í mörgum málum. Aðilar eiga heimtingu á því að dómari dæmi „rétt“, þ.e. einungis eftir lög- unum. Augljós hætta er á því að sú viðleitni geti raskast ef dómari er tengdur máli eða aðilum að til- teknu marki. Að auki er óhlut- drægni dómara talin nauðsynleg til að skapa dómstólum traust sem e_r forsenda fyrir sterku dómsvaldi. Á dómara hvílir því viss lagaskylda að forðast að slík staða komi upp því að hún er til þess fallin að vinna gegn þeim meginsjónarmiðum sem fyrr eru nefnd. Lög um meðferð einkamála hafa að geyma reglur um við hvaða að- stæður dómara beri að víkja sæti í máli. Þar er fyrst og fremst um að ræða tii- tekin tengsl dómara og skyldmenna hans við aðila eða sakarefnið. Almenna reglan er að dómari er vanhæfur til að fara með mál ef fyr- ir hendi eru atvik eða aðstæður sem eru falln- ar til að draga óhlut- drægni hans með réttu í efa. Svipuð regla hef- ur verið lengi í íslensk- um lögum og hún er í samræmi við lagaregl- ur á hinum Norðurlönd- unum og 6. gr. Mann- réttindasáttmála Evr- ópu. Samkvæmt íslenskum rétti er það stjórnarskrárbundin meginregla að menn eigi rétt til athafnafrelsis. Sú meginregla á að sjálfsögðu einnig við um dómara. Þessi meginregla verður aðeins takmörkuð með lög- um. Það getur síður en svo talist andstætt hlutverki dómara að hann afli sér þekkingar og reynslu á sem víðtækustum grunni og skiptir í því sambandi engu máli hvort greiðsla komi fyrir eða ekki. Því má með réttu halda fram að dómari sé því hæfari til þess að takast á við þau margþættu úrlausnaratriði sem að höndum bera þeim mun meiri reynslu og þekkingu á viðfangsefn- um þjóðlífsins sem hann hefur. Dómari hefur vissar lagaskyldur til að gæta hófs er hann tekur að sér og vinnur aukastörf. Þær skyld- ur verða einkum leiddar af fyrr- greindum reglum og meginsjónarm- iðum um sjálfstætt og óháð dóms- vald. Mörkin eru þó matskennd og þau verður að miða við efnisrök. Samkvæmt fyrrgreindum sjónarmið- um verður tæplega önnur lína dreg- in en sú að dómari megi ekki koma Lagareglur eru því ekki til fyrirstöðu, segir Stefán M. Stefánsson, að dómari taki að sér samningu lagafrumvarpa. sér í þá stöðu að óhlutdrægni hans verði oft með réttu dregin í efa. Næsta álitaefni er það hvenær segja megi að aukastörf dómara séu með þeim hætti að óhlutdrægni hans verði oft dregin í efa. Hér koma eink- um tvö tilvik til álita en hér verður ekki rætt um það sérstaklega hvort aukastörf dómara séu það umfangs- mikil að þau komi niður á reglu- bundnu starfi hans: a. Hvort þóknun fyrir aukastarf sé eðlileg. Þar er fyrst og fremst átt við að þóknun sé hófleg miðað við það framlag sem hún á að vera til greiðslu á. Þetta sjónarmiðið fær því meira vægi þeim mun öflugri sem viðskiptaaðilarnir eru og því tíðari sem samskiptin eru. Við framtíðar- mótun lagareglna virðist eðlilegt að greiðslur til dómara vegna auka- starfa á vegum stjórnsýslunnar séu ákveðnar af óháðum aðilum svo sem Kjaradómi. Óhlutdrægni dómara sem þegið hefur óhóflega greiðslu fyrir verk virðist með réttu verða dregin í efa þegar sá sem greiddi er eða verður síðar aðili dómsmáls. b. Hvort aukastörfin sjálf sam- rýmast dómarastarfinu. Sum auka- störf eru með þeim hætti að þau fá alls ekki samrýmst dómarastarfinu, t.d. þau sem eru siðferðilega eða lagalega vafasöm. Um þau störf verður ekki fjallað nánar hér. I öðr- um tilvikum getur þetta verið álita- mál, t.d. hvort dómari geti skipað sæti í úrskurðarnefnd á vegum stjórnsýslunnar ef við því má búast að úrskurðum hennar verði oft skot- ið til dómstóla til prófunar um lög- mæti. Skiptir þá ekki öllu máli þótt annar dómari sama dómstólsins fari með málið og dæmi. í nágrannaríkjunum er víðast ekki við að styðjast ítarlegar lagareglur um fyrrgreind álitaefni. Sums staðar starfa þó nefndir sem skera úr álita- málum af þessu tagi. Þar er algengt að dómarar taki þátt í samningu laga. Þeir stunda einnig oftlega kennslu eða sinna prófdómenda- störfum við háskóla og þeir starfa oft sem gerðarmenn í deilum milli einstaklinga eða lögaðila. Að auki er algengt að þeir sinni fræðistörfum og flytji fyrirlestra af ýmsu tagi. Er þá miðað við að störfin séu ekki mjög umfangsmikil og langvarandi og að greiðslur fyrir þau séu í hófi. Þegar tekist er á við það álitaefni hvort aukastarf sem í því felst að semja lagafrumvarp verði talið sam- i-ýmast embættisstarfi dómara verð- ur að hafa í huga fyrrgreind megin- sjónarmið um athafnafrelsi annars vegar og þær takmarkanir sem leiða af dómarastarfinu hins vegar. Við samningu lagafrumvarpa reynir venjulega á lögfræðilega þekkingu. Dómari tekur auðvitað ekki neinn þátt í lagasetningunni sem slíkri heldur vinnur aðeins umrætt undir- búningsverk venjulega fyrir ráðu- neyti eða Alþingi. Sá sem semur lagafrumvarp verð- ur auðvitað oft að hafa eða mynda sér skoðun á því hvernig beri að rita eða skilja frumvarpstexta. Ekkert er hins vegar athugavert við það að dómari hafi eða myndi sér skoðun á hvaða málefni sem vera skal. Hann verður almennt hvorki talinn van- hæfur né talinn rýra álit dómstóls við það að mynda sér almennar skoð- Stefán M. Stefánsson Fagþekking iðjuþjálfa mikilvæg fyrir grunnskóla JÓI er spenntur og ánægður að vera byrj- aður í skóla. Hann er í 6 ára bekk með 20 öðrum börnum. Börnin klippa, líma, lita og eru byrjuð að draga til stafs. Jói finnur fljót- lega að verkefnin hans eru ekki jafn fín og hjá hinum. Hann nær ekki að klippa eftir línum, lím klessist út um allt og hann litar alltaf út fyrir. Jói truflar skóla- félaga sína vegna þess að hann getur ekki verið kyrr. Hann talar mikið og fær stöðugt áminningu frá kenn- Anna Sigríður Jónsdóttir Hrefna Oskarsdóttir ara. Honum finnst hann vera heimskur og vitlaus að geta ekki gert eins og hinir. Jóa fer að leið- ast í skólanum og hættir að reyna að gera vel. Hann reynir að fela hvað hann á erfitt með því að fífl- ast og láta kjánalega. Krakkarnir verða pirruð á honum og vilja ekki hafa hann með í leikjum eða við lærdóminn. Kennarinn skilur ekki af hvetju hann hagar sér svona og af hveiju svona skýr strákur getur ekki lært einföldustu hluti. Ákveðið er að Jói fái stuðningskennslu sem hjálpar honum en það dugar ekki til. Þegar Jói er kominn í 9 ára bekk fer námið að þyngjast og vandamálin aukast verulega. Kenn- ari og foreldrar Jóa hittast og ræða erfiðleika hans í skólanum sem einnig koma fram heima. Ákveðið er að leita til sérfræðinga eftir nánari gieiningu. Það kemur í ljós að Jói er misþroska og þarf á iðju- þjálfun að halda. Misþroska börn Samkvæmt norrænum rannsókn- um hafa um 10-15% barna einkenni misþroska og gera má ráð fyrir að svipaðar tölur gildi hér á landi. Þetta þýðir að 2-3 böm í hveijum 20 manna bekk eru með þessi einkenni. Að auki eru um það bil 3-5 hreyfi- hömluð böm í hvetjum árgangi grunnskólans. Einkenni misþroska geta komið fram á margvíslegan hátt og eru ekki eins hjá öllum. Því þarf að meta hvert barn fyrir sig og finna úrræði sem hæfa hveiju barni. Þarna getur iðjuþjálfi komið inn í skólastarfíð. Hann prófar barnið og finnur út á hvaða sviðum það á í erfiðleikum. Síðan eru útbúnar til- lögur að æfíngum út frá niðurstöð- um prófana og kennurum og for- eldrum veittar ráðleggingar um örv- un og þjálfun. í sumum tilfellum er nóg að veita ráðgjöf og fræðslu en önnur börn þurfa markvissa iðju- þjálfun í ákveðinn tíma. Hvað gera iðjuþjálfar? Markmið iðjuþjálfunar er að ýta undir skyn- og hreyfiþroska barn- anna og auka færni þeirra við nám og leik. í iðjuþjálfun er lögð áhersla á þjálfun grunnþátta í þroska mið- taugakerfisins. Þessir þættir eru jafnvægis-, snerti- og stöðuskyn. Þeir eru undirstaða eðlilegs skyn- og hreyfiþroska. Til þess að skipu- lagning hreyfinga hjá börnum sé góð verður líkamsvitund að vera í lagi. Það er svo aftur háð eðlilegu snerti- og stöðuskyni. Eðlileg sjón- úrvinnsla er mikilvæg t.d. til þess að við getum hreyft okkur án þess að rekast á hluti, teiknað einfalt strik og kastað bolta á milli. Mis- þroska börn eiga oft í erfiðleikum með fínhreyfingar. Það kemur fram í „klaufaskap“ við að teikna, klippa, skrifa, hnýta sjaufu og borða með hníf og gaffli. í iðjuþjálfun eru allir þessir þættir þjálfaðir. Þjálfunin fer að mestu fram sem leikur og mikil- vægt er að börnunum þyki gaman í þjálfun. Iðjuþjálfinn leggur áherslu á að gera kröfur til barnanna í sam- ræmi við getu þeirra og bendir þeim á hvernig þau geta nýtt sér sínar sterku hliðar. Þetta styrkir sjálfsmat barnanna. Þeim líður betur og eru betur undir það búin að takast á við verkefni sem áður hafa reynst erfið. Hreyfihömluð börn Hreyfihömluð börn eru í auknum mæli að flytjast úr sérdeildum inn í almenna bekki í sínum hverfisskól- um. Iðjuþjálfar meta þörf á hjálpar- tækjum, veita ráðgjöf og aðstoða 10-15% barna hafa ein- kenni misþroska, segja Anna Sigríður Jóns- _ dóttir og Hrefna Osk- arsdóttir, og vísa til norrænna rannsókna. við útvegun þeirra. Þeir þjálfa börn- in í notkun hjálpartækja og leiðbeina öðrum sem annast barnið um notk- un þeirra. Hreyfihamlaðir eiga oft í erfiðleikum með að tjá sig og þurfa að nota tölvur eða annan tæknibún- að við tjáskipti og nám. Iðjuþjálfar meta þörf fyrir slíkt og sjá um að finna þann búnað sem hentar hveiju sinni. Margar skólabyggingar eru ekki hannaðar með tilliti til hreyfí- hamlaðra nemenda og því þarf að aðlaga umhverfíð að barninu þannig að það komist sem auðveldast um í skólanum. Góð vinnuaðstaða er mikilvæg fyrir alla. Iðjuþjálfar meta setstöðu, borðhæð og annað í um- hVerfi barnanna og koma með tillög- ur að úrbótum ef þörf er á. Mikil- vægt er að gæta að góðum vinnu- stellingum hjá börnum til að koma anir á mönnum og málefnum. Á hinn bóginn getur dómari ekki að réttum lögum skipað dóm í máli ef hann hefur áður beint eða óbeint látið í ljós skoðun sína á því hvernig beri að leysa úr því sérstaka dómsmáli sem hann hefur til úrlausnar. Dóm- ari sem semur fræðirit um tiltekinn lagabálk verður því ekki vanhæfur til þess að dæma um ágreiningsat- riði sem lenda innan þess lagabálks í framtíðinni og ekki telst hann held- ur með réttu rýra álit dómstóls þótt hann skipi dóm í slíkum málum. Aðstaðan er nákvæmlega eins við samningu lagafrumvarpa. Spyija má hvort ekki sé eðlilegt að setja fram þá kröfu að dómari komi ekki nálægt neinum aukastörf- um. Þá sé ekki unnt að saka hann eða dómstól um óhlutdrægni. Krafa í þessa átt gengur þó of langt og hún er andstæð meginreglunni um athafnafrelsi. Gildandi reglum um aukastörf dómenda má ekki rugla saman við þær reglur sem gilda um kviðdómendur í íjarlægum réttar- kerfum. í norrænum rétti er einmitt á því byggt að dómari skuli sí og æ afla sér sem víðtækastrar þekkingar á öllum sviðum og þá auðvitað alveg sérstaklega á sviði lögfræði. Helstu niðurstöður eru þessar: Athafnafrelsi manna er megin- regla. Hvorki í íslenskum né norræn- um rétti er að finna ítarleg laga- ákvæði sem taka af skarið um það hvort tiltekin aukastörf samrýmist dómarastarfi. Þar er fremur við meginreglur að styðjast sem leiddar verða af einstökum ákvæðum laga. Endurgjald dómara fyrir auka- störf verður að vera í hófi. Mjög umfangsmikil og langvarandi auka- störf fyrir Qársterka aðila sem oft eiga aðild að dómsmálum geta rýrt álit dómstóls. Lagareglur eru því ekki til fyrir- stöðu að dómari taki að sér samn- ingu lagafrumvarpa, riti fræðigrein- ar, flytji fyrirlestra eða taki að sér önnur fræðileg störf á almennum grundvelli ef hófs er gætt í samræmi við fyrrgreind meginsjónarmið. Höfundur er lagaprófessor. í veg fyrir ýmsa álagssjúkdóma síð- ar meir. Iðjuþjálfun í skólum Nú þegar skólar verða færðir frá ríki til sveitarfélaga verða miklar breytingar í skólakerfinu. Sveitarfé- lögin eiga samkvæmt lögum að veita sérfræðiþjónustu fyrir grunnskólana, þar sem kennarar geta sótt ráðgjöf fyrir börn með sérþarfir. Starfsmenn slíkrar sérfræðiþjónustu skulu vera kernarar með framhaldsmenntun, sálfræðingar og aðrir sérfræðingar. Störf talmeinafræðinga hafa verið viðurkennd sem nauðsynleg sér- fræðiþjónusta fyrir skólana. Við telj- um að fagþekking iðjuþjálfa sé ekki síður mikilvæg og myndi styrkja sérfræðiþjónustu við grunnskóla og leikskóla. Iðjuþjálfar hafa undanfar- in ár veitt skólum og leikskólum ráðgjöf varðandi hreyfíhömluð og misþroska börn. Skilningur hefur aukist í skólum á högum bama með sérþarfír þó enn skorti verulega þekkingu á vandanum og hvernig á að bregðast við honum. Margir skóla- stjórar, kennarar og leikskólakenn- arar hafa lýst yfír áhuga á að fá iðjuþjálfa inn í skólana til nánara samstarfs, en hingað til hafa iðju- þjálfar aðallega unnið á sérstofnun- um, en ekki innan skólakerfísins. Með nánari tengslum iðjuþjálfa við börn á leikskóla- oggrunnskóla- aldri er hægt að koma börnum með sérþarfir fyrr í þjálfun og auðveld- ara verður að fyigja þeim eftir í grunnskólanum. Aukin samvinna sérfræðinga kemur öllum til góða en mest börnunum sem þurfa á hjálp okkar að halda. Fjöldi þeirra barna, sem þurfa á iðjuþjálfun að halda, sýnir fram á nauðsyn þess að iðjuþjálfun verði hluti af sér- fræðiþjónustu sveitarfélaganna við skólana. Höfundur eru iðjuþjálfar og slnrfa á æfingastöð Styrktarfclags lamaðra og fatlaðra og vinna við iðjuþjálfun barna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.