Morgunblaðið - 17.04.1996, Síða 52
HYUNDAI
Hátækni til framfara
Tæknival
Skeifunnl 17 • Slmi 568-1665
MORGUNBIAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 II00, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<SCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
m'ðjarðT^
SAUDI-
ARABIA
NIGER
Samherji slítur sam-
starfinu við Isberg
SAMHERJI á Akureyri hefur nú slit-
ið samstarfi sínu við fyrirtækið ís-
berg í Hull. ísberg hefur undanfarin
10 ár selt mikinn hluta afurða Sam-
herja, einkum sjófrystan fisk. Sam-
herji hefur í hyggju að stofna nýtt
fyrirtæki um sölu afurða sinna.
Ekki er ljóst hvernig eignaraðild
að því verður, en þó er ljóst að Sam-
herji mun þar eiga meirihlutann.
Ekki er ætlunin að leita samstarfs
við önnur íslenzk físksölufyrirtæki.
ísberg hefur séð um alla sölu á sjó-
Ætlunin að stofna
eigið sölufyrirtæki
frystum flökum af skipum Samherja
í Bretlandi og hefur sú sala vegið
mjög þungt í heildarviðskiptum Is-
bergs undanfarin ár. ísberg var upp-
haflega stofnað til að selja ferskan
fisk á mörkuðunum í Hull og
Grimsby, en þau viðskipti hafa dreg-
izt verulega saman undanfarin ár
vegna minnkandi kvóta hér heima
og lækkandi verðs á mörkuðunum
ytra í kjölfar minnkandi eftirspurnar
á fiski til frumvinnslu.
Velta Samherja og dótturfyrir-
tækja á síðasta ári var um 5,5 millj-
arðar og er hún að mestu tilkomin
vegna afurðasölu. Taki fyrirtækið
yfrr alla sölu eigin afurða í framtíð-
inni, verður þar líklega um að ræða
fjórða stærsta útflytjanda íslenzkra
sjávarafurða, miðað við verðmæti.
■ Samherji hf./Cl
Gul gorma-
dýr á
dimission
FRAMHALDSSKÓLANEMAR í
skrýtnum búningum setja um
þessar mundir svip á miðborg
Reykjavíkur. Kennslu er að ljúka
í skólunum og nemar efstu
bekkja „dimittera", kveðja skól-
ann áður en síðasta próflestrar-
törnin hefst. Þetta unga fólk úr
Menntaskólanum við Sund hafði
búið sig í gervi geðgóða gula
gormadýrsins úr bókunum um
Sval og Val, sem hoppar á róf-
unni og tjáir sig með orðunum
„húba! húba!“
Reykjaneshryggur
^Rússi eyði-
lagði troll
íslensks
togara
PRYSTITOGARINN Baldvin Þor-
steinsson EA varð fyrir verulegu
tjóni, þegar rússneskur verksmiðju-
togari eyðilagði veiðarfæri hans á
úthafskarfamiðunum í fyrrinótt. Sá
rússneski dró eigið troll þvert yfir
troll Baldvins og klippti það hrein-
lega aftan úr honum.
Þorsteinn Vilhelmsson hjá Sam-
herja, útgerð togarans, segir að tjón-
ið sé mikið. Veiðarfæratjón sé ekki
undir tveimur milljónum og þá sé
tap vegna tafa frá veiðum ótalið.
Þorsteinn segir framferði Rúss-
anna hafa verið til mikilla vandræða
í fyrra. „Varðskip verður að vera á
svæðinu til að hafa eftirlit með því
að fárið sé að alþjóðlegum siglinga-
lögTjm. Við ætlum okkur að fara í
þetta mál af fullri hörku. Það verður
ekkert gefið eftir,“ segir Þorsteinn
Vilhelmsson.
Trollið klippt/C3
Morgunblaðið/Kristinn
Pílagrímaflug til Sádi-Arabíu takmarkað vegna heilahimnubólgufaraldurs
Atlanta fækkar um eina vél
ATLANTA-flugfélagið, sem annast
pílagrímaflug frá Nígeríu til Jedda
í Sádi-Arabíu, hefur orðið að finna
annarri Boeing 747-þotu sinni, sem
notuð hefur verið á flugleiðinni,
önnur verkefni. Astæðan er sú að
Sádi-Arabar hafa takmarkað píla-
grímaflutninga frá fjórum múslima-
ríkjum í Vestur-Afríku, þar á meðal
Nígeríu, vegna mannskæðs heila-
himnubólgufaraldurs, sem geisað
hefur þar að undanförnu.
Um 31.000 múslimar í Norður-
Nígeríu höfðu bókað flug til Jedda
í vor til að taka þátt í hinni árlegu
pílagrímsferð, eða hajj; til Mekka,
helgasta staðar islam, sem sérhveij-
um múslima ber að heimsækja einu
sinni á ævinni. Af þessum pílagrím-
um átti Atlanta að flytja um þriðj-
ung, eða tíu þúsund.
Samið um minni
pílagrímakvóta
Heilahimnubólgufaraldurinn,
sem geisar nú í Vestur-Afríku, er
meðal annars tilkominn vegna mik-
illa þurrka. Um 73.000 manns hafa
veikzt og níu þúsund látizt frá því
í janúar, þar af helmingurinn í Níg-
eríu, samkvæmt tölum frá Alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni, WHO.
Ástandið er einna verst í borginni
Kano, sem er einn af þremur
áfangastöðum Atlanta í Nígeríu.
Þar hefur ekki rignt síðan í októ-
ber. Hinir áfangastaðirnir eru Kad-
una og Sokoto.
Sádi-Arabar tilkynntu á mánu-
dag að vegna faraldursins fengju
pílagrímar frá Nígeríu og ná-
grannalöndunum Burkina Faso,
Malí og Níger, ekki að koma til
landsins. Síðdegis í gær greindi níg-
eríska ríkissjónvarpið hins vegar frá
því, að sögn fteufers-fréttastofunn-
ar, að emírinn í Kabo-ríki, Ado
Bayero, hefði flogið til Sádi-Arabíu
og samið við þarlend stjórnvöld um
að hægt yrði að halda pílagríma-
fluginu áfram strax í gærkvöldi.
Arngrímur Jóhannsson, forstjóri
Atlanta, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að emírnum hefði tekizt að
semja um minni kvóta af pílagrím-
um en áður hefði gilt. Atlanta yrði
því að finna annarri þotunni, sem
sinnt hefði pílagrímafluginu, ný
verkefni og myndi hún fljúga fyrir
franskt félag þar til ástandið í Níg-
eríu breyttist.
Starfsfólkið
bólusett
Arngrímur sagði að Atlanta
myndi ekki tapa á þessum breyting-
um. Hann sagði jafnframt að starfs-
fólk félagsins í Nígeríu væri allt
bólusett gegn sjúkdómum og væri
því ekki í neinni smithættu. „Við
höfum ekki áhyggjur af þessu,“
sagði Arngrímur.
Manna-
bein við
þjóðveg 1
Jökuldal
Jökuldal. Morgunblaðið.
MANNABEIN fundust við
bæinn Hrólfsstaði á Jökuldal
um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi. Ármann Halldórsson
gröfumaður var á ferð á
traktorsgröfu, þegar hann
kom auga á beinin, þar sem
þau liggja, rétt við þjóðveg-
inn, skammt frá Sandhóli við
Hrólfsstaði.
Að sögn Ármanns var hann
að keyra eftir veginum þegar
hann sá hvítan blett í stóru
flagi við veginn. Hann stopp-
aði til að huga betur að þessu
og sagði hann að þetta séu
örugglega mannabein. Hann
hefur fundið mannabein tvisv-
ar áður þegar hann hefur
verið að vinna á gröfunni, svo
hann telur sig vera farinn að
þekkja þau með nokkru ör-
yggi. Að þessu sinni fann
hann hauskúpu og lærleggi.
Beinin koma í ljós nú vegna
þess að ýtt hefur verið ofan
af þeim þegar unnið var að
vegagerð fyrir um það bil
tveim árum. Síðan hefur blás-
ið frá þeim og frost lyft þeim
þar sem góð tíð hefur verið
og snjólítið í vetur.
Að sögn Guðmundar Óla-
sonar, bónda á Hrólfsstöðum,
liggur beinagrindin á bakinu
um það bil í norður og suður,
með höfuðið í suður. Segist
hann álíta að þetta sé ekki
maður er hafi orðið úti, því
þetta sé rétt við gömlu þjóð-
leiðina um Jökuldalinn. Þess
vegna álítur hann að þetta sé
frekar gröf eða kuml.
Fólk frá minjasafni Austur-
lands er væntanlegt á staðinn
í dag til að kanna þennan
fund nánar.
Skulda-
byrði heim-
ilanna sex-
faldast
SKULDASÖFNUN íslenskra
heimila hefur sexfaldast á und-
anförnum 15 árum og er hlut-
fall skulda af ráðstöfunartekj-
um heimila hér á landi með því
hæsta sem gerist innan ríkja
OECD, eða 120%.
f fréttabréfi verðbréfafyrir-
tækisins Handsals kemur -m.a.
fram að frá því í byijun 9. ára-
tugarins hafí skuldir heimilanna
vaxið úr 20% af ráðstöfunartekj-
um í 120%, eða sexfaldast á
fimmtán árum. Skuldir heimil-
anna jukust um u.þ.b. 26 millj-
arða króna á síðasta ári og námu
318 milljörðum í árslok. Ef litið
er til vaxtaþróunar og lánskjara-
vísitölu á síðasta ári samsvarar
þessi aukning nokkum veginn
til verðbóta og vaxtagreiðslna
af lánum heimilanna.
■ íslensk heimili/15
MALI
NIGERiA
C uineuflói \