Morgunblaðið - 23.04.1996, Page 1

Morgunblaðið - 23.04.1996, Page 1
64 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 92. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Olífubandalag mið- og vinstriflokka fær að reyna stj órnarmyndun á Ítalíu Bretland Hafa tap- að 20% kvótans Brussel. Reuter. BRETAR réðust mjög hart gegn svokölluðu „kvótahoppi" í gær en nú er svo komið, að Spánn og önnur ríki í Evrópu- sambandinu, ESB, hafa náð undir sig 20% af kvóta breskra fiskimanna. Tony Baldry, sjávarútvegs- ráðherra Bretlands, sem staddur var á fundi sjávarút- vegsráðherra ESB í Brussel, sagði, að um 150 erlend út- gerðarfyrirtæki, meðal annars spænsk, hollensk og belgísk, væru búin að ná til sín 20% af breska kvótanum með því að skrá sig í Bretlandi og kaupa bresk fiskiskip. Bretar bönnuðu Spánveij- um að stunda „kvótahopp“ af þessu tagi 1989 en í síðasta mánuði töpuðu þeir máli, sem um 100 spænsk útgerðarfyrir- tæki höfðuðu gegn þeim í kjöl- farið. Bretar segjast þó ekki ætla að sætta sig við fram- ferði af þessu tagi og Emma Bonino, sem fer með sjávarút- vegsmál í framkvæmdastjórn ESB, sagði að leitað yrði lausna á þessu máli á sérstök- um fundi í næstu viku. ugleika og sterkri stj órn Róm. Reuter. ROMANO Prodi, forsætisráðherra- efni Olífubandalagsins, samsteypu vinstri- og miðflokka, hét því í gær að mynda styrka stjóm á Ítalíu og binda enda á upplausnina, sem ein- kennt hefur landsstjórnina á síðustu árum. Olífubandalagið var ótvíræð- ur sigurvegari í þingkosningunum á sunnudag en hefur þó meirihluta í hvorugri deildinni. Það getur hins vegar reitt sig á stuðning pháðra þingmanna og kommúnista. Úrslitin eru mikið áfall fyrir Silvio Berlusc- oni, leiðtoga Frelsisbandalagsins, samsteypu mið- og hægriflbkka, en hann vísaði því á bug í gær, að hann hygðist hætta pólitískum af- skiptum. „Olífubandalagið vann góðan sig- ur en við munum stjórna í nafni allra ítala,“ sagði Prodi í gær en takist honum að mynda stjórn verður það í fyrsta sinn í 50 ár, að vinstrimenn komast til valda á Italíu. Stuðningur kommúnista Úrslit kosninganna á sunnudag komu nokkuð á óvart því að skoð- anakannanir bentu til, að hvorugri fylkingunni tækist að mynda meiri- hluta að kosningum loknum. Niður- staðan var hins vegar sú, að Olifu- bandalagið vantaði aðeins einn þing- mann upp á meirihluta í öldunga- deild og getur auðveldlega tryggt sér stuðning óháðra þingmanna þar en í fulltrúadeildinni hefur það nú 284 þingmenn af 630. Þar kemur hins vegar til stuðningur 35 þing- manna kommúnista. Berlusconi efndi til blaðamanna- fundar í gær þar sem hann vísaði á bug vangaveltum fjölmiðla um að hann hygðist segja af sér for- mennsku í Frelsisbandalaginu og hætta afskiptum af stjórnmálum. Berlusconi sagði, að Frelsis- bandalagið hefði í raun borið sigur- Reuter ROMANO Prodi, væntanlegur forsætisráðherra, umkringdur fréttamönnum eftir að ljóst var orðið, að Olífubandalagið hafði sigrað og fengi að spreyta sig á stjórnarmyndun. orð af Olífubandalaginu, fengið 16,28 millj. atkvæða á móti 16,27 millj., en vegna kosningakerfisins hefði Olífubandalagið fengið fleiri þingmenn. Prodi vill róa á önnur mið Berlusconi minnti einnig á, að Olífubandalagið yrði að mynda stjórn með stuðningi harðlínukomm- únista, sem hafa þegar lýst yfir, að þeir muni leggja áherslu á sín stefnumál, meðal annars, að vísi- tölubinding launa verði aftur tekin upp. Prodi hefur þó gefíð í skyn, að leitað verði eftir stuðningi ann- arra flokka en kommúnista, til dæmis Norðursambandsins, sem vegnaði vel í kosningunum. Um- berto Bossi, leiðtogi Norðursam- bandsins, vísaði þó á bug í gær samstarfi við Olífubandalagið. ítalski fjármálamarkaðurinn brást mjög vel við sigri Olífubanda- lagsins og horfum á stöðugra stjóm- arfari í landinu og viðbrögðin í Evr- ópu voru svipuð. Margir vöruðu þó við of mikilli bjartsýni og sögðu, að Olífubandalagið væri jafnvel enn lausara í reipunum en Frelsisbanda- lagið. Þá væri ólíklegt, að stjórn, sem reiddi sig á stuðning harðlínu- kommúnista, yrði langlíf. ■ Sögulegur sigur/18 ■ Þung prófraun/28 ísraelar segja árás- imar án tímamarka Heita landsmönnum stöð- Bcirút, Jerúsalem, Damaskus. Reuter. ÍSRAELAR héldu í gær áfram stór- skotaliðs- og loftárásum á Líbanon í gær, tólfta daginn í röð, og sögð- ust ekki hafa sett hernaðaraðgerð- unum tímamörk. Warren Christ- opher, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, ræddi við ráðamenn í Sýrlandi og ísrael um helgina. Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, sagði að markmiðið með hernaðaraðgerðunum væri að binda enda á árásir Hizbollah- skæruliða á norðurhluta ísraels en þær væru án nokkurra tímamarka. Ekkert lát var á flugskeytaárásum Hizbollah í gær þrátt fyrir harðar árásir ísraela, sem hafa kostað 155 manns lífið og sært hundruð manna. 400.000 manns hafa flúið heimili sín vegna árásanna.' Líbanir minntust fórnarlamba árásanna með tveggja mínútna þögn í gær og verslunum, bönkum og fyrirtækjum var lokað að beiðni ríkisstjórnarinnar, sem lýsti yfir þjóðarsorg í landinu. „Mjög erfiðar" viðræður Bandarískir embættismenn í föruneyti Christophers í Damaskus sögðu að honum hefði ekki tekist að ná fram því markmiði sínu að koma á vopnahléi áður en hafnar yrðu samningaviðræður um póli- tíska lausn deilunnar. Embættis- menn í Líbanon sögðu stjórn lands- ins hafa hafnað þeirri leið þar sem hún tryggði ekki að flóttafólkið gæti snúið heim að nýju á næst- unni. Christopher ræddi í gær við Hafez al-Assad, forseta Sýrlands, í annað sinn á þremur dögum og bandarískir embættismenn sögðu að hann þyrfti nú að beita sér fyr- it' pólitískri lausn deilunnar sam- hliða vopnahléi. Utanríkisráðherr- ann sagði að viðræðurnar yrðu „mjög erfiðar" en kvaðst þó bjart- sýnn á að samkomulag næðist að lokuni. Reuter Leníns minnst í Moskvu NOKKUR hundruð manna komu saman á Rauða torginu í Moskvu í gær til að minnast þess, að 126 ár eru liðin frá fæðingu Vladímírs Leníns, stofnanda Sovétríkjanna. I hópnum var meðal annarra Gennadí Zjúganov, leiðtogi rúss- neskra komnuinista, og sagði hann við fréttamenn, að framlag Leníns til siðmenningarinnar væri ómetanlegt. Dagblöð hliðholl kommúnistum minntust Leníns fagurlega en blaðið Moskovskí Komsomolets skopaðist að afmæl- inu. Hér er hópurinn saman kom- inn fyrir framan grafhýsi Leníns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.