Morgunblaðið - 23.04.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 13
FRÉTTIR
Doktor í
rafmagns-
verkfræði
• HÁKON Guðbjartsson lauk
doktorsprófi í rafmagnsverkfræði
við Massachusetts Institute of
Technology (MIT) í Bandaríkjun-
um í janúar sl. Heiti doktorsrit-
gerðarinnar er „Magnetic Reson-
ance Imaging of Diffusion in the
Presence of
Physiological
Motion" og fjallar
um notkun seg-
ulómtækni til
myndunar á
sveimi (diffusi-
on), en slíkar
myndir nýtast við
greiningu á heila-
blóðfalli.
Leiðbeinandi var Dr. Samiil
Patz við Brigham and Women’s
Hospital, Harvard Medical Scho-
ol, Boston. Dómnefndina skipuðu
prófessor Martha Gray (MIT),
prófessor Jacob White (MIT), Dr.
William C. Karl (Boston Univers-
ity) og Dr. Robert Weisskoff
(Massachusetts General Hospit-
al).
Þessi nýja aðferð til myndunar
á sveimi með segulómtækni er
laus við þær hreyfitruflanir sem
hingað til hafa staðið í vegi fyrir
notkun sveimmynda til greining-
ar á sjúklingum sem þjást af
heilablóðfalli.
Niðurstöður þessara rann-
sókna hafa þegar verið birtar í
vísindatímaritum vestan hafs og
tilnefndar til verðlauna í „Young
Investigator’s Award Competiti-
on“ sem „The Intemational Soci-
ety of Magnetic Resonance in
Medicine" stendur fyrir árlega.
Til námsins hlaut Hákon styrki
frá „The American-Scandinavian
Foundation", minningarsjóði
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar og frá íslenskum
aðalverktökum.
Hákon lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1986, brautskráðist frá raf- *
magnsverkfræðideild Háskóla ís-
lands árið 1990 og lauk prófi til
meistaragráðu frá MIT árið
1992.
Foreldrar Hákonar eru Guð-
bjartur Kristófersson og Guð-
björg Tómasdóttir framhalds-
skólakennarar. Hann er fæddur
30. mars 1966, kvæntur Magneu
Arnadóttur, sem lýkur meist-
aragráðu í flautuleik frá Boston
University næstkomandi haust.
Sonur þeirra er Guðbjartur,
fæddúr í Boston 22. nóvember
1994.
Sendifulltrúar
til Súdan
og Kenýa
• HJÚKRUNARFRÆÐING-
ARNIR Björg Pálsdóttir og
Elísabet Halldórsdóttir fór ný-
verið utan til starfa sem sendifull-
trúar Rauða kross íslands í
Kenýa og S-Súdan. Sendifulltrú-
ar Rauða kross íslands eru nú
tíu talsins og starfa í níu löndum
Evrópu, Asíu og Afríku. Hjúkrun-
arfræðingarnir Maríanna Csillag
og Hólmfríður Garðarsdóttir
komu heim fyrir skömmu eftir
að hafa lokið störfum sínum í
Bosníu.
Björg verður yfirhjúkrunar-
fræðingur spítala
sem Alþjóðaráð
Rauða krossins
rekur í Lokic-
hokio nyrst í
Kenýa. Þar er
tekið við særðum
vegna borga-
rastyijaldarinnar
í S-Súdan en
borgarastyijöld
hefur geisað þar í landi frá 1983
og er ekki útlit fyrir að lát verði
á óöldinni. Þjálfun súdanskra
lækna og hjúkrunarfólks er mikil-
vægur liður í
starfsemi spítal-
ans. Þar er jafn-
framt rekið gervi-
limaverkstæði og
endurhæfingar-
stöð fyrir börn og
fullorðna sem
skaðast hafa í
átökunum, ekki
síst af völdum
jarðsprengna. Talið er að um ein
milljón jarðsprengna séu í jörðu
í Súdan. Björg er með reyndustu
sendifulltrúum Rauða kross ís-
lands. Hún hefur áður starfað í
Taflandi, Afganistan, Kenýa og
Jemen.
Elísabet starfar hinum megin
landamæranna á spítala sem Al-
þjóðaráð Rauða krossins styrkir
í Jupa í S-Súdan. Rauði krossinn
stendur þar einnig fyrir fræðslu
um mannúðarlög og dreifir úts-
æði, áhöldum, veiðarfærum og
mattil flóttafólks og heimilis-
lausra.
Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson
Bleshæna hefur vetursetu
BLESHÆNA hélt til í Fossvogin-
um í vetur, þar sem hún kafaði
gjarnan eftir fæðuúrganginum við
Ora eins og sést á þessari mynd.
Bleshænur eru árlegir vetrargest-
ir á íslandi sem gista oft einhvem
tíma. Vitað er til þess að þær hafa
orpið nokkrum sinnum hér á landi,
en þó án þess að hafa komið upp
ungum. Bleshænan er auðþekkt á
alsvörtum búningi, hvítri blesu og
gogg. Bleshænur koma frá Evr-
ópu þar sem þær eru algengar
varpfuglar.
Bæjarstiórn Garðabæjar
Farið verður í eignarnám
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hefur
samþykkt að 34 hektarar lands á
Amameshálsi verði teknir eignar-
námi, þar sem samningar við land-
eigendur hafi ekki tekist.
Benedikt Sveinsson forseti bæj-
arstjómar, sagði að bæjarstjóm
hafí samþykkt að farið yrði í eign-
arnám á landi á Amameshálsi. „Það
hafa staðið yfir samningaumleitanir
um kaup á landinu en ekki gengið
sarnan," sagði hann. „Það er mat
okkar að við verðum að fara þessa
leið.“
Sagði hann að vinnu við skipulag
á Amameshálsi væri nánast lokið
en að samþykkt hafi verið að hefja
vinnu við skipulag á Hraunsholti ef
svo færi að bærinn fengi ekki land-
ið á Amameshálsi. Hraunsholt ligg-
ur vestan við Hafnarfjarðarveg að
Álftamesvegi og er í eigu bæjarins.
IBALENO* 114 SELDIR!
ÞRE-
FÖLD
aukning í sölu
síðustu 3 mánuðíl
Vandaður 3-dyra BALENO fyrir aðeins 1.140.000,-kr.
4-dyra BALENO fólksbíll fyrir aðeins 1.265.000,- kr.
MEÐ: 86 hestafla 16 ventla vél • vökvastýri • veltistýri •
samlæsingum • rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • útvarpi/segulbandi með 4 hátölurum • upp-
hituðum framsætum • öryggisloftpúðum fyrir ökumann
og farþega í framsæti • styrktarbitum í hurðum • sam-
htum stuðurum. Geturðu gert betri bílakaup?
Gerðu samanburð
og taktu síðan
ákvörðun.
SUZUKI
Afl og öryggi •
m
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.