Morgunblaðið - 23.04.1996, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996
UR VERINU
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Þorkell
Urrandi fískur
Árásin á gríska ferðamenn í Kairó
Morðingjarnir
enn ófundnir
Kairó. Morgunblaðið.
Útvegsmannafélag
Norðurlands
Vill að línu-
tvöföldun
verði hætt
Akureyri. Morgunblaðið.
FÉLAGSFUNDUR í Útvegsmanna-
félagi Norðurlands samþykkti í vik-
unni tillögu þess efnis að línutvö-
földun, sem auki á ójöfnuð, verði
hætt og að jöfnunarsjóðir verði af-
lagðir. Jafnframt að 50% af þeim
afla sem tekinn hefur verið frá til
línutvöföldunar, eða um 6.800 tonn,
verði skilað aftur inn í aflamarks-
kerfið og'önnur 50% fari til þeirra
báta sem stundað hafa línuveiðar.
Þá er í tillöguni lagt til að þau
6.800 tonn sem fari til línubáta
aukist ekki fyrr en heildaraflamark
í þorski fari yfir 200 þúsund tonn
en þá taki sú úthlutun hlutfallsleg-
um breytingum.
Magnús Magnússon, útgerðar-
stjóri ÚA og formaður Útvegs-
mannafélags Norðurlands, segir
það skoðun útvegsmanna á Norður-
landi að þessir jöfnunarsjóðir hafi
ekki virkað sem skyldi og að
ákveðnum landshlutum hafi verið
hyglað umfram aðra. Því sé ekki
ástæða til annars en að leggja þá
niður.
Ráðgert var að Jakob Jakobsson,
forstjóri Hafrannsóknarstofnunar,
og Jóhann A. Jónsson á Þórshöfn
flyttu erindi á fundinum en þeir
komust ekki til Akureyrar vegna
erfíðleika í flugsamgöngum. Jakob
ætlaði að ræða ástand og horfur
helstu nytjastofna og um togara-
og netarallið og Jóhann um úthafs-
veiðar og nýja möguleika þar.
ÞING _ Alþjóðaþingmannasam-
bandsins samþykkti ályktun um
vernd og nýtingu fiskistofna sem
byggð er á drögum sem íslands-
deiid Alþjóðaþingmannasambands-
ins lagði fram á þinginu sem haldið
var í Istanbul dagana 15.-19. apríl.
Meðal efnis í ályktuninni er hvatn-
ing til ríkja heims -um að tryggja
sjálfbæra og skynsamlega nýtingu
sjávarlífvera, þar með talda sjálf-
bæra nýtingu sjávarspendýra, þ.e.
FISKUR með sérstætt útlit kom
inn á gólf frystihúss Borgeyjar
hf. á Höfn á dögunum og vakti
hann athygli Svanhvítar Krist-
jánsdóttur. Fiskurinn kom með
síld. Vinnufélagi hennar, Sverrir
Aðalsteinsson, sagðist hafa séð
svona fisk áður en var ekki viss
um heitið. Fann hann síðan í
hvali og seli, og að draga úr og að
lokum afnema ríkisstyrki í sjávarút-
vegi. Þetta er í fyrsta skipti sem
ísland hefur lagt fram ályktunartill-
lögu ásamt greinargerð fyrir þing
sambandsins.
Alþingismennimir Geir H. Ha-
arde, formaður íslandsdeildar Al-
þjóðaþingmannasambandsins, Mar-
grét Frímannsdóttir, varaformaður
deildarinnar, og Einar K. Guðfínns-
son, sóttu þingið fyrir hönd Alþingis.
Fiskabók Gunnars Jónssonar.
Fiskurinn heitir urrari og fær
nafn sitt af því að hann getur
gefið frá sér urrandihljóð með
aðstoð sundmagans. I Fiskabók-
inni kemur fram að urrari hafi
fundist meðfram allri suður-
strönd íslands og að mest virðist
um hann á Mýragrunni.
Geir H. Haarde segir að fulltrúar
frá 117 þjóðþingum hafi verið á
þinginu og það sé yfír 1.000 manna
samkoma. Auk íslands sendu sendi-
nefndir 19 annarra þjóðþinga drög
að ályktunum um vemd og nýtingu
fískistofna.
„Okkar texti varð fyrir valinu
vegna þess að hann var efnis- og
umfangsmestur að dómi nefndar-
manna,“ sagði Geir.
Rannsóknir verði efldar
Einar K. Guðfinnson segir að í
ályktun íslensku sendinefndarinnar
beri fyrst að nefna kröfuna um
sjálfbæra þróun í sjávarútvegi við
nýtingu sjávarafla.
„Við nefnum að eðlilegt sé að
nýta sjávarspendýr rétt eins og
aðrar lífverur i lífríki hafsins. Þegar
ég fylgdi þessu máli úr hlaði á fundi
nefndar þar sem vom staddir full-
trúar allra þeirra ríkja sem áttu
seturétt á fundinum, lagði ég ein-
mitt áherslu á þetta til þess að það
lægi þá fyrir að við værum ekki
að smygla í gegn þessum áherslu-
punkti. Niðurstaðan varð sú í nefnd-
inni, og ennfremur á þinginu sjálfu
að þessi áhersla var samþykkt mót-
atkvæðalaust," sagði Einar.
í ályktuninni em ríki heims einn-
ig hvött til þess að staðfesta Haf-
réttarsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, efla rannsóknir á fískistofn-
um og hraða fjölstofnarannsóknum,
efla vamir gegn mengun sjávar og
losun þrávirkra efna i hafíð. „Það
sem skiptir okkur líka miklu máli
er að þama var samþykkt að stefnt
skyldi að því að falla frá ríkisstyrkj-
um í sjávarútvegi," sagði Einar.
EGYPSKA lögreglan hefur enn ekki
haft hendur í hári hryðjuverkamann-
anna fjögurra sem myrtu 18 gríska
ferðamenn, einn Egypta og særðu
14 aðra úti fyrir Hótel Evrópu við
Pýramídaveg í Gíza í Kairó í síðustu
viku. Það vekur athygli að blöð og
aðrir fjölmiðlar hafa verið mjög fá-
orðir um þennan atburð og augljóst
að stjómvöldum er mjög í mun að
sem minnst veður sé gert út af þessu.
En því meira er rætt um þetta manna
á meðal og sögusagnir af öllu tagi
virðast kvikna af sjálfu sér.
Ein af þeim kenningum er að ein-
hverjir morðingjanna hafi verið fé-
lagar í hinum opinbera örryggis-
sveitum og aðrir staðhæfa að þeir
hafi fengið upplýsingar frá starfsliði
hótelsins. Augljóslega hafí ætlunin
verið að skjóta ísraelska ferðamenn
en þeir búa jafnan margir á þessu
hóteli en vegna þess hve margir
hópar voru að leggja af stað þennan
morgun hafi morðingjarnir farið
hópavillt og skotið Grikkjana.
Altjent hefur ekki verið gert mik-
ið úr því að þetta hafi verið hryðju-
verk og innanríkissráðuneytið talaði
um „hörmulegt slys“ þegar það gaf
út yfirlýsingu um árásina.
Ósamhljóða fréttir
í fyrstu fréttum hér í Kairó var
sagt að morðingjamir fiórir hefðu
verið drepnir af öryggisvörðum hót-
elsins sem hefðu fljótlega svarað
skothríðinni. Síðar var þetta að vísu
ekki leiðrétt berum orðum en sagt
að þeir hefðu allir náðst. Það var
ekki fyrr en á sunnudag að innanrík-
isráðuneytið greindi frá því að þeir
lékju lausum hala en bætt við að
þeir yrðu „handteknir mjög fljót-
lega.“
Einnig var þá án frekari mála-
lenginga sagt að þrettán foringjar
frá tveimur deildum innanríkisráðu-
neytisins hefðu verið reknir og við-
komandi yrðu leiddir fyrir neyðar-
herrétt. Það rennir óneitanlega stoð-
um undir þær getgátur að sterkur
granur leiki á að einhveijir morð-
ingajanna hafí verið úr sveitum
ráðuneytisins.
í ljós hefur komið að öryggisverð-
ir hótelsins gátu eki svarað árásinni
því enginn þeirra ber vopn og einnig
að sérstakur hópur vopnaðara
manna sem hefur gætt þessa hótels
sl. tvö ár vegna ísraela sem þar búa
að staðaldri, fékk skipun um það
fyrir nokkru að hætta gæslu við
bygginguna.
Fólk altekið skelfingn
Um alla Kairó er nú öryggis-
varsla slík að ekki hefur sést annað
eins. Vélbyssubúnir hermenn era á
hveiju strái og um tíma var talað
um að setja á útgöngubann sem
ekki verður betur séð en að sé öld-
ungis óframkvæmanlegt í þessari
borg. Óskapleg skelfing greip um
sig eftir hryðjuverkið, fólk grét á
götum úti og jafnvel hermönnum við
sína vörslu virtist órótt.
Hópurinn Gama’a al-Islamiya,
sem lýsti verknaðinum á hendur sér
hefur hótað að halda árásum áfram
og ætlar að einbeita sér að Kairó.
Frétt um þessa yfirlýsingu síaðist
út eftir morðin en síðan hefur ekki
verið á það minnst.
Hrynur ferðamanna-
þjónustan?
Ferðamannaþjónustan hér rétti
vel og rækilega úr kútnum sl. ár
eftir að hafa hranið tvisvar á sex
áram en árið 1995 komu að jafnaði
300 þúsund ferðamenn á mánuði til
Egyptalands og útlit fyrir 1996
virtist mjög gott. Eftir að fréttist
um hryðjuverkið í Giza streyma nú
afpantanir inn frá hópum í Japan,
Bandaríkjunum, Ítalíu, Þýskalandi,
Hong Kong og vitanlega Grikklandi.
Þetta er auðvitað stóralvarlegt mál
fyrir egypskan efnahag en
ferðamannaþjónustan gaf af sér
mestar tekjur í fyrra á eftir skipa-
gjöldum af Súezskurði.
Kaldhæðnislegt verður að teljast
að örfáum dögum áður en þetta
gerðist var innanríkisráðherrann
sérstaklega lofaður af Hosni Múbar-
ak forseta fyrir að hafa tekist svo
glæsilega að bijóta á bak aftur starf-
semi hryðjuverkahópa.
Ekkert hefur heyrst frá Múbarak
nema hann sendi samúðarkveðju til
grísku ríkisstjómainnar. „Þeir stinga
hausnum í sandinn og reyna að gera
minna en ekki neitt úr þessu. Það
er heimskulegt og enn heimskulegra
hversu furðulega er tekið á málinu,"
sagði grískur sendimaður, sem ekki
vildi að nafn hans kæmi fram í sam-
tali við Morgunblaðið.
Er morðingjanna leitað?
Eftir að viðurkennt var loksins
að morðingjamir hefðu ekki náðst
var ekki minnst á að þeirra væri
leitað fyrr en í gærmorgun að sagt
var í fréttum að Ieit væri „hafin að
nýju og handtöku að vænta“. Ekkert
frekar um það. En í ritskoðuðum
fiölmiðlum Egyptalands þykir þetta
samt furðulega komist að orði. Þá
tóku menn eftir því á sunnudag að
útkoma vikublaðsins The Middle
East Times, sem oft hefur verið
nálægt því að verða fyrir skærum
ritskoðarans, tafðist og kom blaðið
ekki út fyrr en í gær.
Hvemig sem á þetta mál er litið
er sýnt að það getur haft bæði póli-
tískar og efnahagslegar afleiðingar
í för með sér svo ekki sé nú minnst
á mannslífín sem fómað var.
23. apríl
á 60 mínútum
MIKILVÆGIMENMTUNAR
OG MENNINGAR
kl. 17:15 á Hótel Borg
Frummælendur:
Bjöm Bjamason, menntamálaráðherra
Sigrún Gísladóttir, skólastjóri
Súsanna Svavarsdóttir, blaðamaður
Fundarstjóri:
Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður SUS
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
AUKINN viðbúnaður er nú á ferðamannastöðum í Egyptalandi
eftir að 18 grískir ferðamenn voru myrtir fyrir utan hótel sitt
I Kaíró á föstudag. Hér sjást lögregluþjónar á úlföldum gæta
öryggis við píramídana.
Aiyktun Alþjóðaþingmannasambandsins
Ríkisstyrkir í sjávar-
útvegi afnumdir