Morgunblaðið - 23.04.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 19
ERLEIMT
Reuter
Gistihús hrynur í Nýju Delhí
17 MANNS biðu bana, þeirra á
meðal átta útlendingar, þegar
fjögurra hæða gistihús hrundi
af ókunnum ástæðum í Nýju
Delhí á Indlandi á laugardags-
kvöld. í fyrstu lék grunur á
sprengjutilræði vegna þingkosn-
inganna, sem hefjast á laugar-
dag, en engin merki um sprengju
höfðu fundist í rústunum í gær.
Lögreglan kvaðst efast um að
sprengja hefði valdið hruni bygg-
ingarinnar en vildi þó ekki úti-
loka það. A myndinni leita björg-
unarmenn að fólki í rústunum.
Bretar æfir vegna útflutningsbanns á breskt nautakjöt
Ihuga bann víð nauta-
kjöti frá ESB-ríkjum
Lúxemborg. Reuter.
STJÓRN Bretlands staðfesti í gær
að hún væri að íhuga refsiaðgerðir
gegn öðrum aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins ef það afléttir ekki al-
gjöru banni við útflutningi á bresku
nautakjöti vegna kúariðu, sem talin
er geta borist í menn og valdið ban-
vænum heilahrörnunarsjúkdómi.
„Við viljum að sambandið komist
mjög fljótlega að niðurstöðu, sem
feli í sér afnám bannsins. Þetta er
það sem þarf að gerast. Ef það ger-
ist ekki verðum við auðvitað að íhuga
aðra kosti,“ sagði Malcolm Rifkind,
utanríkisráðherra Bretlands, fyrir
fund með starfsbræðrum sínum frá
ESB-ríkjum í Lúxemborg í gær. Rif-
kind neitaði að svara spurningum
fréttamanna um til hvaða refsiað-
gerða breska stjórnin kynni að grípa.
Búist við hörðum
viðbrögðum
Reuter
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, ræðir við Jacques
Santer, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og
Lamberto Dini, forsætisráðherra Italíu, á leiðtogafundinum í
Moskvu. Major ræddi þar kúariðumálið við evrópska leiðtoga.
Breskir fjölmiðlar sögðu að stjórn-
in væri að íhuga algjört bann við
innflutningi á nautakjöti frá ESB-
ríkjunum til Bretlands. Slík ákvörð-
un myndi valda miklu uppnámi með-
al annarra ESB-ríkja, sem ofbýður
nú þegar að breska stjórnin skuli
ekki hafa gert meira til að auka
traust neytenda á nautakjöti og
leysa þannig vanda evrópskra nauta-
kjötsframleiðenda vegna kúariðunn-
ar. Víst þykir að grípi breska stjórn-
in til innflutningsbanns fari málið
fyrir Evrópudómstólinn.
Heimildarmenn frá öðrum ESB-
ríkjum sögðu að stjórn Bretiands
hefði sýnt að hún hygðist beita sér
af fullri hörku fyrir því að bannið
við útflutningi bresks nautakjöts
verði afnumið.
Major „rauðglóandi"
The Financial Times skýrði frá
því í gær að John Major, forsætisráð-
herra Bretlands, væri „rauðglóandi“
eftir misheppnaðar tilraunir hans til
að fá leiðtoga Frakklands, Þýska-
lands og Ítalíu til að samþykkja af-
nám útflutningsbannsins. Major
ræddi málið við leiðtogana á fundi
sjö helstu iðnríkja heims í Moskvu
á föstudag.
The Financial Times sagði að
bann við innflutningi á nautakjöti
frá ESB-ríkjum til Bretlands væri á
meðal þeirra kosta sem stjórnin
væri að íhuga. Vitað væri að riða
hefði heijað á nautfé á írlandi, í
Frakklandi, Portúgal, Þýskalandi,
Danmörku og á Ítalíu.
Ottast um hag brugghúsa
Brussel. Reuter.
BRESKIR kráareigendur óttast
það í vaxandi inæli, að Evrópu-
sambandsstjórnin (ESB) muni
gera miklar athugasemdir við fyr-
irkomulag eignarhalds á einhverri
æruverðugustu stofnun landsins,
kránni. Brugghúsin eiga fjölda
kráa og leigja verktökum rekst-
urinn. Þeir síðarnefndu hafa
kvartað undan því að brugghúsin
í krafti eignarhaldsins reisi
skorður við því hvaða tegundir
þeir geti selt.
Talið er að stjórn ESB muni
bæði óska breytinga á hvernig
skipulagi bjórdreyfingar er háttað
og hvernig flestar krár Bretlands
tengjast bjórframleiðslufyrirtækj-
um eignartengslum.
fk'k'k+'
EVRÓPA^
■ i ^
„Fyrirkomulagið er til hagsbóta
bæði fyrir neytendur, kráareig-
andann og framleiðendur," sagði
lögfræðilegur ráðgjafi samtaka
evrópskra bjórframleiðenda
(CBMC).
Samtök breskra bjórframleið-
enda og veitingaleyfishafa (BLRA)
sögðust myndu beijast gegn breyt-
ingum á skipulaginu sem tengir
um 26.000 krár breskum bjórverk-
smiðjum eignarböndum.
Ráðgerður var í gær fundur
bjórframleiðenda með Karel van
Miert, sem fer með samkeppnis-
mál í framkvæmdastjórn ESB.
Líklegt er talið að stjórnin krefj-
ist breytinga á fyrirkomulagi
framleiðslu- og bjórsölumála í
Bretlandi þar sem samkeppni sé
ekki tryggð að óbreyttu. A borði
stjórnarinnar liggur fjöldi kvart-
ana frá kráarrekendum þess efnis
að bjórverksmiðjurnar misnoti
aðstöðu sína neytendum í óhag.
Fyrst og fremst er kvartað und-
an þeim takmörkunum sem verk-
smiðjurnar setja við því hvaða
tegundir kráarrekandanum leyf-
ist að bjóða upp á.
Þegar þú vilt sofa vel
skaltu velja Serta,
mest seldu amerísku
dýnuna á íslandi.
Serta dýnan er einstök
að gæðum og fylgir allt
að 20 ára ábyrgð á
dýnunum.
Serta -einfaldlega
sú besta.
' nmnnn
Margar gerðir, margar stærðir
og mismunandi verö.
Frystiskápar
GS 21B04:169 I nettó.
Staðgreiðsluverð:
54.900 kr.
GS 26B04: 210 I nettó.
Staðgreiðsluverð:
59.900 kr.
GS 30B04EU: 250 I nettó. |
Staðgreiðsluverð:
64.900 kr.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjöröur:
Rafstofan Hvítárskála • Snæfellsbær: Blómsturvellir • Grundarfjöröur:
Guöni Hallgrímsson • Stykkishólmur: Skipavfk • Búöardalur: Asubúö
• ísafjörður: Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauöárkrókur: Rafsjá
• Siglufjöröur: Torgiö • Akureyri: Ljósgjafinn • Húsavík: Öryggi
• Þórshöfn: Noröurraf • Vopnafjörður: Rafmagnsv. Árna M.
• Neskaupstaður: Rafalda • Reyöarfjöröur: Rafmagnsv. Árna E.
• Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson • Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson
• Höfn í Hornafirði: Króm og hvítt • Vík í Mýrdal: Klakkur
• Vestmannaeyjar: Tróverk • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga
• Heila: Gilsá • Selfoss: Árvirkinn • Grindavík: Ráfborg
• Garóur: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavík: Ljósboginn
• Hafnarfjöröur: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði.
SMITH & NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 511 3000
- kjarni málsins!