Morgunblaðið - 23.04.1996, Page 21

Morgunblaðið - 23.04.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 21 Njósna- mál Olek- sys fellt niður PÓLSKI ríkissaksóknarinn hef- ur hætt við málshöfðun á hend- ur Jozef Oleksy, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna meintra njósna hans í þágu sovésku og síðar rússnesku leyniþjónustunnar. Astæðuna segir hann vera ónógar sannan- ir. Sagði ríkissaksóknarinn, Slawomir Gorzkiewicz, að „ástæðulaust væri að draga nokkurn mann til ábyrgðar" vegna málsins. Upplýsingar pólsku leyniþjónustunnar (UOP) urðu til þess að fyrrver- andi innanríkisráðherra, Andrzéj Milczanowski, skýrði frá meintum njósnum Oleksy á þingi í desember sl. Heita sókn gegn vest- rænni stefnu ÍRÖNSK afturhaldsöfl, Bar- áttuöfl klerka, iýstu í gær sigri í þingkosningum sem fram fóru í íran 8. mars og 19. apríl. Sögðust þau hafa náð meiri- hluta á 270 sæta þingi lands- ins, en í frétt samtakanna, sem fjöldi fjölmiðla birti, var ekki getið nánari úrslita. Erlendir stjórnarerindrekar sögðu hins vegar, að svo virtist sem sam- tökunum hefði mistekist að auka þingmannaijölda sinn sem var 140. Samtökin hétu því að ráðast gegn efnahags- vanda og kröppum kjörum fá- tækra og segja vestrænni vel- ferðarstefnu stríð á hendur. Vegur hart að handan FRANCOIS Mitterrand fyrr- verandi Frakklandsforseti gagnrýnir Charles de Gaulle harkalega í tveimur endur- minningabókum sem út komu um helgina. Hrósar hann ein- vörðungu andófskalli de Gaulle gegn innrás Þjóðverja í júní 1940 en finnur mjög að stjórn- arskránni frá 1958 og stefnu hans í málum Evrópu og Afr- íku, þar sem hann hafi oft mis- reiknað sig alvarlega. Hann segir Valery Giscard d’Estaing forvera sinn á forsetastóli hafa verið helsta andstæðing sam- einingar þýsku ríkjanna í Frakklandi og neitar því í löngu máli að hafa sjálfur misreiknað skjótt hrun Berlínarmúrsins og sameiningu Þýskalands. Loks ver hann störf sín í þágu Viehy- stjórnarinnar, kveðst aidrei hafa verið fullgildur embættis- maður hennar og aldrei svarið Philippe Petain marskálki holl- ustueið. Endurminningarnar koma út tæpum fjórum mán- uðum eftir andlát Mitterrands. Eðlilegt fiug í Dusseldorf STARFSEMI flugvallarins í Dusseldorf í Þýskalandi kemst í samt lag í dag. Fyrir 12 dög- um varð mikill eldsvoði í flug- stöðvarbyggingu með þeim af- leiðingum að 16 manns biðu bana. Risastór bjórhátíðartjöld hafa verið reist á vellinum til að taka við þeirri starfsemi sem fram fór í byggingarhlutanum sem brann. Anægðir með árang- ur á leiðtogafundi Lestarslys í Finnlandi Helsinki. Morgunblaðið. FJÓRIR biðu bana og rúmlega 40 slösuðust, þar af sjö alvar- lega, þegar lest fór út af sporinu í Finnlandi á sunnudagsmorgun. Þetta er mesta lestarslys í Finn- landi á þessum áratug. Lestin var á leið frá Norður- Finnlandi til Helsinki þegar hún fór af teinunum. Um 200 farþeg- ar voru í lestinni, sem var á brú yfir veg þegar slysið varð í mik- illi þoku. „Skyggnið var aðeins þrír eða fjórir metrar,“ sagði björgunarsveitarmaður. „Flestir farþeganna voru enn sofandi." ERLEÍMT Reuter Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti og Bill Clinton Bandaríkjaforseti sögð- ust hafa náð árangri á leiðtoga- fundi sínum á sunnudag í viðræðum um tvenna afvopnunarsamninga, en ágreiningur ríkti enn um stækk- un Atlantshafsbandalagsins. Clinton sagði að betur horfði nú með að ágreiningur um sáttmála um fækkun hefðbundinna vopna í Evrópu (CFE) frá 1990 og gagneld- flaugasamninginn (ABM) frá 1972 leystist. Mikilvægur áfangi hefði náðst í að leysa ágreining um hvaða flaugar síðarnefndi samningurinn næði til, en deilt hefur verið um hvort hann skuli ná til skamm- drægra vígvallarvopna í Evrópu auk langdrægra gagneldflaugakerfa. Þá hafa Rússar ekki staðið við ákvæði CFE-samningsins um tak- mörkun hefðbundinna vopna á Kákasussvæðinu. Rússar segja að CFE-samningurinn hafi sjálfkrafa úrejst með hruni Sovétríkjanna. Á blaðamannafundi sagði Clinton að átökin í Tsjetsjníju væru innan- ríkismál Rússa. agur lók t arinnar - Alþjóðlegur dagur bóka og höfundaréttar - UNESCO hefur ákveðið að gera 23. apríl að árlegum alþjóðadegi bóka og höfundarréttar, en þessi dagur er íslendingum minnisstæður sem fæðingardagur nóbelsskáldsins okkar, Halldórs Laxness. Af þessu tilefni stendur Bókasamband íslands fyrir kynningu á íslenskum bókmenntum og bókagerð. Á dagskránni verður meðal annars: Kl. 16.00: Vaka Helgafell afhendir barnabókaverðlaun í Þjóðarbókhlöðunni. Kl. 16.30: Samtök iðnaðarins afhenda bókaviðurkenningar í Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg I. Kl. 20.30: Rithöfundar lesa úr verkum sínum í Deiglunni.Akureyri: Helga Ágústsdóttir, Heiðdís Norðfjörð, Lárus Hinriksson, Kristján Kristjánsson og Jón Hjaltason. Lesið verður úr verkum Magneu frá Kleifum ogVigfúsar Björnssonar. Kynnir er Ragnheiður Ólafsdóttir. Kl. 21.00: Rithöfundar lesa úr verkum sínum á Café Reykjavík: AriTrausti Guðmundsson, ísak Harðarson, Kristín Ómarsdóttir, LindaVilhjálmsdóttir, Ólafur Gunnarsson og Þorsteinn frá Hamri. Kynnir er Steinunn Sigurðardóttir. Kl. 21.00: Rithöfundar lesa úr verkum sínum á Sólon íslandus: Anton Heigi Jónsson, Ingi Rúnar Eðvarðsson, Sigfús Bjartmarsson, Vilborg Dagbjartsdóttir,Vigdís Grímsdóttir og Þórarinn Eldjárn. Kynnir er Ingibjörg Haraldsdóttir. Bókasamband íslands býður bókaunnendum vel að njóta. Bókasambandið hvetur foreldra, skóla og vinnustaði til að leggja sitt lóð á vogarskálina til að gera þennan fyrsta dag bókarinnar sem veglegastan. BÓKASAMBAND ÍSLANDS LES/Ð FYR/R LÍFIÐl Stjórn Bókasambands Islands er skipuð fulltrúum frá samtökum og félögum sem hagsmuna eíga að gæta í íslenskri bókaframleiðslu og -útgáfu. Bókavarðafélag íslands - Félag bókagerðarmanna - Félag íslenskra bókaútgefenda - Félag íslenskra bóka- og ritfangaverslana - Hagþenkir - Rithöfundasamband íslands - Samtök gagnrýnenda - Samtök iðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.