Morgunblaðið - 23.04.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 23
LISTIR
KARLAKÓR Keflavíkur ásamt söngsljóra og undirleikara.
Karlakór Keflavíkur í söngferð
um Norðurland
KARLAKÓR Keflavíkur heldur á
sumardaginn fyrsta í fjögurra daga
söngferð um Norðurland. Kórinn
mun halda þrenna tónleika í ferð-
inni. Fyrst verður sungið í Miðgarði
á sumardaginn fyrsta kl. 21.00, á
föstudeginum 26. apríl kl. 21.00
verður sungið í Dalvíkurkirkju. Loka-
tónleikamir verða í Akureyrarkirkju
á laugardaginn 27. apríl kl. 17.00.
Á söngskrá kórsins eru lög eftir
innlenda og erlenda höfunda og má
þar nefna Gunhar Þórðarson, Sig-
valda Kaldalóns, Sigvalda Snæ
Kaldalóns, Þórarin Guðmundsson,
Inga T. Lárusson, Jónas Tómasson
og Maríu Brynjólfsdóttur. Af erlendu
höfundum má nefna Verdi, Wagner,
Bárdos Lajos, Mabel Wayne o.fl.
Söngstjóri kórsins er Vilberg Vigg-
ósson og undirleikarar Agota Joó á
píanó, Asgeir Gunnarsson á harmon-
ikku, Víðir Guðmundsson á gítar og
Þórólfur Ingi Þórsson á bassa.
Einsöngvarar koma úr röðum kór-
félaga, það eru þeir Eiður Örn Hrafns-
son, Guðmundur Haukur Þórðarson,
Steinn Erlingsson og Þórður Guð-
mundsson.
Karlakór Keflavíkur er um þessar
mundir að ljúka upptökum á hljóm-
diski, en lögin á diskinum er uppi-
staða laganna á tónleikunum.
Tónleikar fyrir áskriftarfélaga
kórsins verða síðan í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju sunnudaginn 12. maí, þriðju-
daginn 14. maí og fímmtudaginn 16.
maí og hefjast þeir allir kl. 20.30.
Tifandi
fiskar
MYNDUST
Listhús 39
GLERLIST
Dröfn Guðmundsdóttir. Listhús 39:
Opið kl. 14-18 alla dagatil 21. apríl.
Aðgangur ókeypis.
ÞETTA litla rými í bakher-
bergi við Strandgötuna í Hafnar-
firði hefur reynst drjúgt til sýn-
ingarhalds allt frá því það var
opnað, og oftar en ekki hefur
mátt finna þar skemmtilega
hugsaðar sýningar, sem hafa
tekið sig vel út í plássinu, enda
miðaðar við þann stað sem hér
um ræðir. Svo var einnig farið
með sýningu Drafnar Guðmunds-
dóttur, sem opnaði fyrir páska.
Dröfn útskrifaðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
vorið 1993 og hefur síðan sótt
námskeið í glerlist, en slík verk
eru uppistaða sýning-
arinnar hér. Þessi
glerverk skipast flest
í þrjá flokka: Fjöll,
fiska og grímur, en
listakonan vísar til
alls þessa í stuttum
ljóðatexta, sem fylgir sýningunni
úr hlaði.
Listakonan vinnur út frá hug-
myndinni „fjarlægðin gerir fjöllin
blá“ þegar hún sker útlínur
þeirra í æðótt blátt gler. Snæ-
fellsjökull, Herðubreið, Öræfa-
jökull og fleiri fjöll njóta sín vel
í þessum bláma, sem byggir á
minningum jafnt sem raunveru-
legum útlínum þeirra; þetta reyn-
ast tindar andans ekki síður en
efnisins.
Fiskarnir hér eru tæpast af ríki
náttúrunnar heldur litríkir flat-
fiskar, hnarreistir og fjörlegir á
skærlitum teinum. Fleiri glerlista-
konur hafa verið að fást við svip-
að efni, og falla þess-
ir vel að því skemmti-
lega fiskasafni; nöfn
eins og Skvetta,
Gletta og Vakur segja
allt sem segja þarf um
þetta tifandi efni.
Flatar grímurnar
marka upphaf sýn-
ingarinnar og eru ef
til vill hinn alvarlegi
undirtónn hennar
þegar allt kemur sam-
an. Augu, nef og
munnar eru mótuð í
efni sem er brætt milli
Dröfn ^ . glerja, og horfa tóm-
Guðmundsdóttir um svjp 4 önnur verk.
Hér er ef til vill komin sú endur-
speglun kyrrðar, sem minning-
arnar snúast um.
Þessi hughrif eru sterk í stöku
verki í glugga staðarins, sem er
afar tært að allri gerð, og tilvísan-
ir til trúar og hörpu náttúrunnar
koma sterkt fram.
Það er óvenjulegt að í jafnlitlu
sýningarrými og hér sé pláss fyr-
ir gestalistamann, en verk Hall-
gríms Magnússonar hlýtur samt
slíkan sess. Einföld uppsetningin
nýtur sín vel, en er ef til vill út-
skýrð um of - meiri dulúð hefði
kallað á meiri vangaveltur áhorf-
andans.
Eiríkur Þorláksson
Háskóla-
fyrirlestur
í TILEFNI þess að 21. apríl eru
25 ár liðin síðan fýrstu handritin
komu til íslands frá Kaupmanna-
höfn flytur dr. Már Jónsson sagn-
fræðingur opinberan fyrirlestur á
vegum heimspekideildar Háskóla
íslands þriðjudaginn 23. apríl kl.
17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlest-
urinn nefnist Fornfræðabylting
Árna Magnússonar árið 1686.
í fyrirlestrinum fjallar Már um
fyrstu viðfangsefni Árna Magnús-
sonar (1663-1730) prófessors og
handritasafnara á sviði íslenskra
fræða. Árni lauk guðfræðiprófi frá
Hafnarháskóla vorð 1685 og var
þá farinn að starfa fyrir konungleg-
an fomfræðing, Thomas Bartholin.
Jafnframt hóf Ámi rannsóknir á
eigin vegum og fékkst einkum við
miðaldalög og íslendingasögur.
Hann þróaði fljótlega með sér nýja
vitund um meðferð texta frá mið-
öldum og bylti vinnubrögðum við
uppskriftir handrita á skinni. Sú
vinna varð upphaf að handritasöfn-
un hans.
Már Jónsson lauk doktorsprófi í
sagnfræði frá Háskóla íslands árið
1993. Doktorsritgerð hans, Blóð-
skömm á íslandi 1270-1870, kom
út hjá Háskólaútgáfunni sama ár.
Hann vinnur nú að ritröð um fræði-
mennsku, handritasöfnun og
stjórnmálaafskipti Áma Magnús-
sonar, en undirbýr jafnframt út-
gáfu á verkum hans.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Haraldur Jóns-
son kynnir eigin
verk á Kjarvals-
stöðum
NÚ STENDUR meðal annars yfír á
Kjarvalsstöðum sýning á verkum
eftir Harald Jónsson myndlistar-
mann. í tengslum við sýninguna
mun listamaðurinn flytja fyrirlestur
um eigin verk og sýna litskyggnur
af eldri verkum. Fyrirlesturinn fer
fram á Kjarvalsstöðum, í dag þriðju-
dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
Haraldur Jónsson (f. 1961) stund-
aði nám fyrst við Myndlistar- og
handíðaskóla íslands, en síðar við
Listaakademíuna í Dusseldorf á ár-
unum 1987-1990. Haraldur hefur
haldið íjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum bæði hér heima
og erlendis.
Mikið úrval af vönduðum,vörum á útsölu 19.-30. apríl, t.d. flís- og Gore Tex fatnaður frá
Karrimor, North-Face og Phoenix, Rossignol skíðabúnaður, snjóbrettabúnaður, gönguskór o.m.fl.
Tilboðin hafa aldrei verið betri í bílskúrnum!
-SKAWs FRAMÚR
Póstsendum samdægurs Snorrabraut 60 • Sími 561 2045 ‘Staðgreitt