Morgunblaðið - 23.04.1996, Síða 38

Morgunblaðið - 23.04.1996, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Háagerði 87, Reykjavík, sem lést 16. apríl síðastliðinn, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 24. apríl kl. 15.00. Stefanía Júníusdóttir, Herborg Júníusdóttir, Guðmundur Hermannsson, Guðjón Júniusson, Ólafur Júníusson, Árdís Bragadóttir, Sævar Júníusson, Guðný Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, ALEXANDER SIGURSTEINSSON frá Djúpadal, Goðheimum 21, sem lést í Landspítalanum þann 15. apríl sl., verður jarðstyiginn frá Foss- vogskirkju á morgun, miðvikudaginn 24. apríl, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Guðrún Helgadóttir, Gunnar Alexandersson, Katrin Óskarsdóttir, Hafdi's Alexandersdóttir, Gísli J. Friðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför mannsins míns, föður okkar og fósturföður, HARALDAR EINARSSONAR, Ljósheimum 4, Reykjavik, Verður gerð frá Fossvogsktrkju þriðju- daginn 23. apríl kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er vin- samlegast bent á Kristniboðssamband- ið, afgreiðsla í síma 588 8901. Helga G. Jakobsdóttir, Gréta S. Haraidsdóttir, Sigrún J. Haraldsdóttir, Friðþjófur D. Friðþjófsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + . Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og systir, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, Sellátrum f Tálknafirði, sem andaðist 16. apríl sl. verður jarð- sungin frá Stóra-Laugardalskirkju laug- ardaginn 27. apríl nk. kl. 14.00. Ingimar Ejnar Ólafsson, Guðjóna Ólafsdóttir, Gunnbjörn Ólafsson, Guðrún Ólöf Ólafsdóttir, Sigurlína Davíðsdóttir, Guðný Davíðsdóttir, Höskuldur Davíðsson, Hreggviður Davíðsson, Davfð J. Davíðsson, Ólafur Davíðsson, Benedikt Davi'ðsson, Guðlaug Einarsdóttir, Guðleif Jónsdóttir, Einar Ármannsson, Björg Þórhallsdóttir, Björn Sveinsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Jón H. Ólafsson, Marit Ranestad, Fjóla Benediktsdóttir, Bára Pálmarsdóttir, Þórdís Marteinsdóttir, Sigurjón Davfðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Einlægar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR EMILÍU GUÐLAUGSDÓTTUR, = Hrafnistu, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks 4-B, Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir góða umönnun. Helgi Björn Einarsson, Sólveig Einarsdóttir, Aðalsteinn Einarsson, Ólöf Guðjónsdóttir, Erna Einarsdóttir, Guðmundur E. Jónmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. INGUNN THORLA CIUS + Ingunn Thorlacius fæddist á Akureyri 30. ágúst 1913. Hún lést á Landspítal- anum 16. apríl sl. Foreldrar hennar voru hjónin Anna María Isleifsdóttir f. 12. júlí 1883, d. 26. desember 1953 og Frímann Frí- mannsson, kaup- maður, f. 3. októ- ber 1871, d. 8. mars 1920. Börn Önnu Maríu og Frímanns voru auk Ingunnar Anna Mar- ía og Frímann, bæði dáin, og eftirlifandi er Unnur fv. húsfrú á Heiðabæ II í Þing- vallasveit. Hinn 24. maí 1941 giftist Ingunn Jóni Thorlacius f. 1. júlí 1914. Börn þeirra eru: Edda, f. 6. ágúst 1942, gift Matt Rechtorovic, þau eiga 3 syni; Ingunn f. 4. september 1945, ógift; Árni f. 14. ágúst 1947, giftur Magnþóru Magn- úsdóttur, þau eiga 2 dætur; og Anna f. 22. ágúst 1950, gift Guðmundi Gunnarssyni og eiga þau 3 dætur. Ingunn ólst upp hjá foreldrum sínum til 7 ára aldurs eða þar til faðir hennar dó, en var þá tekin í fóstur til hjónanna Ingunnar Jónsdóttur og Björns Árnasonar á Kornsá í Vatnsd- al. Ingunn stundaði nám við Kvenna- skólann á Blöndu- ósi og eftir námið hóf hún störf á skrifstofu Eim- skips á Siglufirði og bjó þar hjá fóst- ursystur sinni Guð- rúnu og manni hennar Þormóði Eyjólfssyni. Hún starfaði hjá Sambandi ísl. Samvinnufélaga þegar hún fluttist til Reykja- víkur og bjó þá hjá fóstursyst- ur sinni Sigríði og manni henn- ar Jóni Árnasyni, bankasljóra, þar til hún hóf sjálf búskap árið 1941 með Jóni Thorlacius. Þau bjuggu fyrstu búskaparár sín á Njálsgötu 87. Ingunn var húsmóðir í mörg ár en starfaði síðar í allmörg ár hjá prjóna- stofunni Iðunni. Ingunn og Jón voru búsett að Kvisthaga 21 hér í bæ. Útför Ingunnar fer fram frá Bessastaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. í dag verður til moldar borin Ingunn Thorlacius tengdamóðir min. Ingunn lést á Landspítalanum 16. apríl sl., banamein hennar var krabbamein í hálsi, sem því miður uppgvötvaðist allt of seint. En æðrulaust og með reisn tók hún þeirri frétt að um krabbamein var að ræða og að hún þyrfti að gang- ast undir mikla skurðaðgerð, þá 81 árs að aldri. Hún var mjög vel á sig komin bæði andlega og líkam- lega, enda voru þau hjónin Ingunn og Jón miklar útivistarmanneskjur. Spiluðu þau hjónin golf saman upp á hvem einasta dag sem veður leyfði og alit fram til þess dags er Ingunn missti þrek í desember sl. Jón spilaði golf að vísu frá unga aldri en Ingunn byrjaði um sextugt að spila golf og hafði mikla unun af. Einnig gengu þau mjög mikið og voru ótrúlega dugleg að ferðast um landið sitt, í þau 22 ár sem við hjónin, ég og Árni sonur þeirra, höfum farið í sumarhús að Búðum á Snæfellsnesi voru Ingunn og Jón ávallt tilbúin að heimsækja okkur og keyrðu ótrauð fram og til baka á tveimur dögum. Alltaf var þá glatt á hjalla, golfkylfurnar teknar fram og spilað á úfnu grasinu og hlegið mikið en kannski mest að vankunnáttu minni. Ingunn og Jón voru heiðursfélagar bæði í Golf- klúbbi Ness og Golfklúbbi Reykja- víkur í Grafarvoginum og oft buðu þau okkur út á golfvöll og hvöttu okkur til að byija í golfi. Alltaf hlakkaði ég til að fara með þeim á góðum, björtum sumarmorgni út á golfvöll því þar skemmtum við okkur konunglega. Þau voru mjög samrýnd hjón og nutu hverr- ar mínútu sem þau voru saman. Ingunn var raunsæ kona en hjarta- hlý, trygglynd og umfram allt hóg- vær og dáðist ég að þrótti hennar, lífsgleði og styrk og það sýndi sig best hversu sterk og trygglynd hún var við dóttur þeirra hjóna, Ingu, sem er þroskaheft. Ingunn og Jón helguðu líf sitt Ingu sinni og voru henni mjög góð. Ég á margs að minnast og margar góðar stundir átti ég með ERFIDRYKKJUR Næg bílastæði P E R L A N sími 562 0200 tengdamóður minni í gegnum þau 25 ár sem ég þekkti hana enda vár hún ávallt glöð á góðri stund. Þegar ég horfi til baka og hugsa um lífshlaup þitt, Ingunn, þá kem- ur þessi setning mér í hug. „Því þannig er hinn vitri. Hann skeytir ekki um mikilmennsku og fyrir því verður starf hans víðtækt." Nú er starfsdegi þínum lokið, Ingunn mín, og með söknuði kveð ég þig, en mestur verður þó söknuður þíns ástkæra eigin- manns, Jóns, og Ingu þinnar. Hvíl í friði. Magnþóra. Elsku amma okkar. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur. Þú varst svo sterk í baráttu þinni við veikindin. Þú kvaddir okkur á þinn ljúfa og ró- lega hátt. Þegar hugur leitar til baka minnumst við hversu gott var að koma í heimsókn á Kvisthga til þín og afa. Amma tók alltaf á móti okkur opnum örumum, glöð í bragði. Við minnumst ferðarinnar vestur á Snæfellsnes, þar vorum við öll fjölskyldan saman. Amma tók þátt í langstökki og allskonar leikjum, svo yndislega hress og kát. Amma og afi voru samrýnd og það var mikill kraftur í ömmu þegar hún fór í golf og göngutúr með afa. Með þessum orðum kveðjum við ömmu okkar og biðjum góðan guð að varðveita hana. Elsku afi, megi guð styrkja þig í þinni miklu sorg. Minningin um ömmu mun verða með okkur alla tíð. Hvíl í friði. Ingunn Ágústa, Hildur Björk, Selma Edda. Elsku amma Inga, okkur langar að kveðja þig með örfáum orðum. Það er ávallt sárt að þurfa að kveðja, en við huggum okkur við það að nú hefur þú fengið hvíldina þína og án efa átt þú allt það besta skilið..Við munum minnast þín sem brosmildrar, hraustrar og alltaf svo duglegrar konu sem sýndi sig best í því hve þú barðist gegn veik- indunum þínum þar til yfir lauk. Eitt sinn er við spjölluðum sam- an sem fyrr, minntist þú á að við skyldum nú skrifa eitthvað fallegt um ömmu gömiu og með þessum línum stöndum við við það. Fyrst kemur upp í hugann þegar við minnumst þín, amma, það hvað þú varst mikið náttúrubarn og hve þú unnir því að ferðast um landið, fara í golf og gönguferðir með afa Jóni og hve hraust og heilbrigð kona þú alltaf varst. Nokkrar urðu ferðirnar okkar í bústaðinn vestur á Snæfellsnes þar sem við áttum ávallt góðar stundir saman, hlaup- in, langstökkið á ströndinni þar sem þið afi gáfuð okkur þeim yngri síður en svo nokkuð eftir. Einnig voru ófáar góðar stundir á Kvist- haganum þar sem margt var brall- að og mikið hlegið. Þú passaðir upp á að eiga gamla fataleppa sem við allar stelpurnar fimm, barna- börnin þín á íslandi, gátum klætt okkur í og verið með tískusýningu fyrir ykkur eldra fólkið. Elsku amma Ingunn, minning- una um þig munum við geyma í hjarta okkar. Við kveðjum þig nú með söknuði og munum hugsa vel um afa Jón og Ingu okkar. Hvíl þú í friði, kæra amma. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, - augun spyija eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi . ófullkomna hjalið mitt Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin - amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann - lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir - amma kyssir undurblítt á kollinn hans. Breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Anna og Linda Thorlacius. Mig langar að minnast móður- systur minnar Ingunnar Thorlacius með nokkrum orðum. Það er misjafnt hvernig aldurinn fer með fólk, oft finnst manni að fólk sem komið er yfir áttræðisald- ur sé aldrað fólk. Aldrei kom það í huga manns að Inga væri gömul kona. Hún var sérstaklega ungleg og hélt sér vel allt þar til hún fyr- ir tæplega tveimur árum greindist með þann sjúkdóm sem nú hefur lagt hana að velli. Ekki hafði Inga samt komist áfallalaust í gegnum lífið. Hún var aðeins sex ára þegar hún missti föður sinn og varð þá móðir hennar, sem stóð uppi með fjögur börn, að koma henni í fóst- ur. Hún var svo lánsöm að hjónin Björn og Ingunn á Kornsá í Vatns- dal í Húnavatnssýslu buðust til að taka hana að sér og ólst hún þar upp. Inga var alltaf þakklát öllu þeirra fólki. Þegar hún hafði náð fullorðinsaldri fór hún í Hús- mæðraskólann á Blönduósi. Eftir það fluttist hún suður til Reykja- víkur. Þar kynntist hún eftirlifandi manni sínum Jóni Thorlacius. Oft komu þau Inga og Jón aust- ur að Heiðarbæ. Það var alltaf mikil hátíð fannst okkur krökkun- um og slegið upp íþróttamóti. „Reykjavík á móti sveitinni," sagði Jón og stjórnaði mótinu. Þau byggðu þar síðan sumarbústað sem þau áttu í nokkur ár. Þegar börnin voru öll flutt að heiman fóru Inga og Jón að stunda ferða- lög. Ferðalög og golf voru þeirra helstu áhugamál. Margar ferðir fóru þau til Amer- íku til Eddu og fjölskyldu en einn- ig til margra annarra landa. Sum- arið sem Inga veiktist höfðu þau áformað að fara til Eddu en af því varð nú ekki. Við þökkum Ingu fyrir sam- fylgdina og vottum Jóni og fjöl- skyldu samúð okkar. Fyrir hönd systkinanna frá Heiðarbæ II. Anna María Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.