Morgunblaðið - 01.05.1996, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TFÍ segir sumar hugmyndir tryggingayfirtannlæknis
fjarri nútímaviðhorfum
Eigum heiður skilinn
fyrir að útrýma
tannskemmdum
FORSVARSMENN Tannlæknafé-
lags íslands segja ekki búið að end-
urskoða gjaldskrá tannlækna og að
meira en bensín
enginn fundur hafi verið boðaður í
samstarfsnefnd tannlækna og
Tryggingastofnunar ríkisins í þeim
tilgangi. Þá segja þeir yfirlýsingar
tryggingayfirtannlæknis í Morgun-
blaðinu á laugardag um að draga
eigi úr flúorlökkun tanna hjá böm-
um og taka færri röntgenmyndir
fjarri nútíma viðhorfum í tannlækn-
ingum. Finnast þeim tannlæknar
frekar eiga heiður skilinn fyrir að
koma í veg fyrir tannskemmdir.
Helgi Magnússon, formaður
Tannlæknafélags íslands, og Sig-
urður Þórðarson varaformaður
segja jafnframt að eftirlit hafi verið
haft með stéttinni frá því að sam-
starfssamningur var gerður milli
TFÍ og Tryggingastofnunar ríkisins
árið 1974. Félagið hafi jafnan hvatt
til eftirlits, einkum hin síðari ár,
því tannlæknar vilji ekki liggja und-
ir ámæli og láta einstaka starfs-
bræður, sem uppvísir hafi orðið að
því að bijóta gegn samningi við TR,
eyðileggja fyrir stéttinni allri.
Stjórn Tannlæknafélags íslands
kom saman til fundar í fyrradag
til þess að bregðast við ummælum
nýskipaðs tryggingayfírtannlæknis,
Reynis Jónssonar, í Morguhblaðinu
laugardaginn 27. apríl um breyting-
ar sem fyrirhugaðar eru á rekstri
tannlæknadeildar TR.
„Yfirtryggingatannlæknir telur
alla jákvæða fyrir breytingum sem
hann hefur boðað, „allt frá ráðherra
og niður úr,“ eins og hann kemst
að orði og endar á Tannlæknafélag-
inu.
„Þetta hefst ekki nema með góðri
samvinnu allra aðila,“ segir hann
réttilega en sú samvinna virðist
helst fólgin í skætingi og aðdróttun-
um af hans hálfu um rangfærslur
tannlækna á reikningum og falsan-
ir á aðgerðaliðum," segir Sigurður
Þórðarson í samtali við Morgun-
blaðið.
Hugmyndir verði ræddar á
réttum vettvangi
Sigurður segir ekki rétt að búið
sé að endurskoða gjaldskrá fyrir
tannlækningar ásamt skýringum
og leggja fyrir Tannlæknafélag Is-
lands. „Hið rétta er að félagið hefur
fengið í hendur hugmyndir trygg-
ingayfirtannlæknis um endurskoð-
aða gjaldskrá og verða þær ræddar
ásamt tillögum TFÍ á réttum vett-
vangi, eins og gert hefur verið síð-
astliðin 22 ár.
Fundur í samstarfsnefnd Trygg-
ingastofnunar ríkisins og Tann-
læknafélags íslands hefur hvorki
verið boðaður upp úr mánaðamót-
um, eins og hann segir, né verður
hann haldinn nema báðir aðilar séu
tilbúnir að ræðast við. Þegar þar
að kemur verða auðvitað ræddar
tillögur beggja um reikningsform
og breytingar á gjaidskrá og taxta-
skýringu," segir Sigurður.
Sigurður og Helgi segja líka að
hugmyndir tryggingayfirtannlækn-
is um breytingar á gjaldskránni
feli meðal annars í sér að fækka
aðgerðaliðum og fella suma þeirra
saman. Tannlæknafélagið hafi
löngum tekið vel í þær hugmyndir
en viljað að Tryggingastofnun
greiddi forvarnir að fullu í staðinn.
Sigurður segir auk þess að um-
mæli tryggingayfirtannlæknis í
Morgunblaðinu um flúorlökkun
tanna og röntgenmyndatökur hljóti
að vera rangt eftir höfð svo fjarri
séu þau nútímaviðhorfum í tann-
lækningum.
„Vísindalegar rannsóknir sýna
að tannskemmdir hafa minnkað svo
mikið á síðustu 15-20 árum að börn
og unglingar eru með mjög lítið af
fyllingum í tönnum sínum. Tann-
læknar ættu í raun að fá verðlaun
fyrir að vera næstum búnir að koma
í veg fyrir tannskemmdir og útrýma
þannig stéttinni með fyrirbyggjandi
aðgerðum á borð við flúorlökkun
og skorufyllur," segir Helgi Magn-
ússon.
Með skorufyllum er átt við lokun
á tyggingarflötum jaxla þar sem
tannskemmdir gera yfirleitt fyrst
vart við sig.
Endurgreiðsla fyrireldri en
16 stefna TFÍ
„Það er jákvætt að heyra að
Tryggingastofnun geti hugsað sér
að hækka endurgreiðslualdurinn i
20-25 ár en það hefur verið stefna
Tannlæknafélagsins í mörg ár.
Flestir í þessum aldurshópi eru enn-
þá í skóla og að stofna fjölskyldu
og efnalitlir eftir því. Það er vont
að missa þetta fólk úr reglubundnu
eftirliti því margir koma illa farnir
eftir fimm ár eða lengri tíma. Marg-
ir svonefndra trassa, sem trygg-
ingayfirtannlæknir nefnir, hegða
sér svo því TR greiðir forvarnirnar
ekki að fullu. Þar með veigrar fólk
sér við að koma tií tannlæknis því
það hefur ekki efni á að borga þenn-
an mismun milli endurgreiðslunnar
og kostnaðar. Það hefur sýnt sig
og þetta er aðallega efnaminna fólk
og barnmargar fjölskyldur,“ segir
Helgi.
„Við höfum lagt mikla áherslu á
að allar forvarnir í tannlækningum
fyrir börn og unglinga, eða ung-
menni til 25 ára aldurs, verði að
fullu endurgreiddar þannig að allir
geti komið í reglulegt eftirlit. Við
lögðum mikla áherslu á þetta í síð-
ustu samningum því full endur-
greiðsla mun margborga sig i fram-
tíðinni með færri tannskemmdum."
Þá segja tannlæknarnir að þegar
upphaflega var samið við Trygg-
ingastofnun hafi taxtinn verið
byggður þannig upp að 50% upp-
hæðarinnar voru laun og 50%
kostnaður. „Þetta hefur þróast
þannig undanfarin ár að 33% af
taxtanum eru laun, annað er til-
kostnaður. Kostnaðargrunnurinn er
byggður á mörgum þáttum og það
er ekki rétt sem fram kom að 7%
álag sé á taxtanum til þess að tölvu-
væða stofurnar. Hið rétta er að 7%
af kostnaðargrunni taxtans eru í
þeim tilgang," segir Helgi Magnús-
son.
Að lokum segir Sigurður að dæmi
til skoðunar úr sjúklingaskrám, sem
liður í hertara eftirliti með tann-
læknum, sem tryggingayfirtann-
læknir lagði til í viðtali við Morgun-
blaðið, séu ekki nýjar af nálinni.
„Þetta hefur verið gert frá upphafi
og í miklum mæli undanfarin ár.
Við viljum ekki liggja undir því að
einstaka kollegar séu að eyðileggja
fyrir stéttinni. Það hefur komið fyr-
ir að menn hafa sætt ámæli eða
misst samning um einhvern tíma
vegna brots á samkomulagi við TR.
Þannig að þetta er ekkert nýtt und-
ir sólinni. Menn eru jafn mismun-
andi og þeir eru margir í þessari
stétt sem öðrum," segir Sigurður
Þórðarson.
Forsetakosningar
Frambjóðendur á
veraldarvef alnetsins
TVEIR forsetaframbjóðendur,
Guðrún Agnarsdóttir og Pétur Kr.
Hafstein, hafa tilkynnt opnun
heimasíðna á veraldarvef alnets-
ins.
Pétur Kr. Hafstein reið á vaðið
og tilkynnti opnun heimasíðu sinn-
ar í fyrradag. Þar er meðal annars
að finna æviágrip Péturs, upplýs-
ingar um atkvæðagreiðslu utan
kjörfundar og gestabók. Slóð síð-
unnar er (http://www.centr-
um.is/'hafstein/) og netfang Pét-
urs er:
petur.kr.hafstein@centrum.\s.
Heimasíða Guðrúnar Agnars-
dóttur verður opnuð formlega á
laugardag en áhugasamir geta
kynnt sér efni hennar þegar á
fimmtudagskvöld. Á síðunni verð-
ur æviágrip Guðrúnar, áherslu-
þættir í kosningabaráttu hennar
og dagbók. Guðrún mun taka þátt
í netspjalli við kjósendur hvern
miðvikudag kl. 18-19. Slóð heim-
asíðunnar er
(http://www.saga.is/Gudr-
un.Ágnarsdottir.) Netfang Guð-
rúnar er:
gudrun.agnarsdottir@ssiga..is.
Lindarbraut 27 - Opið hús
Til sýnis í dag kl. 13-16
björt og falleg 4ra herb.
1. hæð ásamt 31 fm bíl-
skúr í fallegu þríbýlishúsi
á Seltjarnarnesi. Nýl. gler,
eldhús o.fl. Verðlauna-
garður. Verð 8,9 millj.
Valhöll, fasteignasala, sími 588-4477.