Morgunblaðið - 01.05.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 13
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STARFSFÓLK fær sér morgunverð í boði hótelsins í tilefni af 30 ára afmælinu.
Hótel Loftleiðir 30 ára
30 ÁR eru í dag liðin frá því Hót-
el Loftleiðir var opnað. Hótelið
hefur leikið stórt hlutverk í ferða-
þjónustu í Reykjavík þennan tíma
og sett svip sinn á borgarlífið.
Dansleikir á Hótel Loftleiðum urðu
vinsælir og komu ýmsir erlendir
skemmtjkraftar þar fram. Kalda
borðið í Blómasal Hótels Loftleiða
var einnig vinsælt og það varð líka
gamla kaffiterían sem margir
Reykvíkingar muna eftir. Þangað
komu heilu fjölskyldurnar til að
fá samlokur og franskar með sósu,
sem á þeim tíma var ekki hægt
að fá alls staðar. Núna er Hótel
Loftleiðir stærsta hótelið í Reykja-
vík með 220 herbergi og góða
ráðstefnuaðstöðu.
Hin eiginlega afmælishátíð
verður 1. maí. Fjölskylduhátíð
verður um daginn og síðan verður
boðið upp á kalt borð og dansleik
upp á gamla mátann um kvöldið.
í gær bauð Hótel Loftleiðir starfs-
mönnum Flugleiða og ýmsum öðr-
um velunnurum og góðum við-
skiptavinum til lengsta morgun-
verðar-hlaðborðs sem upp hefur
verið sett á hótelinu. Þá voru einn-
ig 20 starfsmenn, sem hafa unnið
á hótelinu gegnum tíðina, heiðrað-
ir sérstaklega.
Heimili og- skóli gagn-
rýna samræmd próf
Sátu ekki
allir við
sama borð
LANDSSAMTÖKIN Heimili og skóli
hafa sent Rannsóknarstofnun upp-
eldis- og menntamála fyrirspurn
vegna framkvæmdar samræmdra
prófa í dönsku og íslensku á þessu
vori. í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að í ljós hafi komið að
nemendur sátu ekki allir við sama
borð við fyrirlögn prófanna varðandi
' upplestur af segulbandi.
Samtökin líti það alvarlegum aug-
um að nemendum í skólum sé mis-
munað hvort sem er á þessu sviði
eða öðrum. Nemendur taki prófin
alvarlega og hafi undirbúið sig undir
þau af bestu getu. Mistök af þessu
tagi hafi væntanlega áhrif á frammi-
stöðu þeirra í öðrum þáttum prófsins
og valda þeim óþarfa kvíða og hugar-
angri. „Samtökin Heimili og skóli
telja afar mikilvægt að vel sé vandað
til undirbúnings og framkvæmdar
samræmdra prófa og að tryggt sé
að allir nemendur njóti jafnréttis við
fyrirlögn þeirra svo og við mat á
úrlausnum. í tengslum við þetta mál
vakna einnig spurningar um hvernig ■
verði staðið að framkvæmd þeirra
samræmdu prófa sem væntanlega
verða tekin upp í 4. og 7. bekk á
næsta skólaári."
------»--------
* ••
Lát konu í Oxnadal
Unnið að
rannsókn
UNNIÐ er að rannsókn á því hvern-
ig lát konu á bæ í Öxnadal í Eyja-
firði um síðustu helgi bar að og vildi
Daníel Snorrason, fulltrúi rannsókn-
arlögreglunnar á Akureyri, ekki
segja neitt um gang rannsóknarinnar
í gær.
Karlmaður um sextug hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald fram
til næsta föstudags, 3. maí, en hann
er bóndi á umræddum bæ. Konan
sem lést var systir mannsins og var
hún gestkomandi á bænum. Kallað
var á lækni og sjúkrabíl og lögregla
fór einnig á staðinn. Ummerki á
staðnum bentu til þess að látið hefði
ekki borið að með eðlilegum hætti.
----------»--».♦----
Gullpottur til
Keflavíkur
GULLPOTTUR að upphæð
10.938.779 krónur vannst í Ránni í
Keflavík um ki. 22.30 á mánudags-
kvöld. Það var keflvískur karlmaður
sem vann pottinn að þessu sinni.
Vinningurinn verður væntanlega
greiddur út á föstudag.
Samkvæmt upplýsingum frá Gull-
námunni byijar Gullpotturinn í
tveimur milljónum króna. Pottarnir
sem hafa unnist hafa verið á bilinu
frá 2,1-14,5 miiljónir króna.
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS KYNNIR
Lista-, óperu- og sælkeraferð - Það besta á Italíu
Listskoðun og lífsnautn í fegurstu héruðum og borgum Italíu.
Brottför 10. ágúst
Skipulag og
fararstjórn
Ingólfur
Guðbrandsson
£/öfrar ítalíu
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR:
1. MILANÓ, m.a. LA SCALA-óperan, dómkirkjan og Síðasta kvöld-
máltíðin eflir Leonardo da Vinci í Santa Maria delle Grazie.
Gisting: GRAND HOTEL DORIA.
2. VERÓNA, hin heiilandi miðaldaborg Rómeós og Júlíu og óperan CAR-
MEN I ARENUNNI með mörgum frægustu söngvurum heimsins,
frátekin tölusett sæti.
3. GARDAVATNIÐ með töfrandi fegurð og bæjunum SIRMIONE, BAR-
DOLINO og GARDA. Siglt á vatninu.
4. Listir og líf í FENEYJUM, þar sem gist verður á GRAND HOTEL
LUNA við CANAL GRANDE, rétt við MARKÚSARTORG til að uppli-
fa töfra borgar hertoganna á nóttu sem degi.
5. Italska hjartað - listaborgin FLÓRENS, þar sem gist er í 3 nætur á
BERNINI PALACE, mitt í heimslistinni til að sjá nteð eigin augunt
snilld endurreisnarinnar, mestu listfjársjóði veraldar í söfnunum UFFIZI
og PITTI, hús Dantes og fjölmargt fleira.
6. PISA, SIENA OG ASSISI, borgimar, sem eru sjálfar eins og undurfagurt
safn aftan úr öldum, ótrúlegri en orð fá lyst.
Gist á PERUGIA LA ROSETTA.
7. RÓM, borgin eilífa, fyrrurn miðpunktur heimsins, hefur engu tapað af
þeirn segulmagnaða krafti, sem dregið hefur að ferðamenn frá öllum
heimshornum í 2000 ár. Gist 4 nætur á REGINA BAGLIONE hótelinu
við sjálfa VIA VENETO.
8. BOLOGNA, PARMA og RONCOLE, slóðir VERDIS.
VERÐUEKKUN !
MIÐAÐ VIÐ GÆÐIHEFUR ÞESSIFERÐ ÞÓTT
ÓTRÚLEGA ÓDYR - SÖMU GÆÐIEN VERÐ-
LÆKKUN - EF STAÐFEST ER FYRIR 7. MAÍ
Settu sjálfa(n)
þig í réttu
sporin í
þessari ferð !
FERÐAMÁTI: Flug til og frá MÍLANÓ.
Akstur um Ítalíu í glæsilegustu gerð farþegavagna.
GISTING: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum,
sérvöldum nteð tilliti til gæða og staðsetningar.
Hlaðborðsmorgunverður
,^/v/ eiig/H awiitfHH ((/: /
Ferð sem aílir unnendur lista og
fegurðar ættu að láta eftir sér.
Eitt tækifæri enn
undir fararstjórn Ingólfs !
Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík, simi 56 20 400, fax 562 6564
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Arena í Verona
- heimsfrcegir
flytjendur
Hógœða-hótel
- Cogeta
Palace
FAN
kynning
á Hótel Sögu í kvöld,
miðvikudag 1. maí, kl. 20.30 í
þingsal A. Ókeypis aðgangur,
en mætið snemma til að
tryggja ykkur sæti.
Dagskrá:
1) Thor Vilhjálmsson rithöfundur, forseti
Islandsdeildar stofnunarinnar Dante
Aligieri segir frá félaginu og Dante.
2) Benedikt Gunnarsson listmálari og
lektor viö KHf sýnir og skýrir lit-
skyggnur af frægum málverkum.
Kaffihlé.
3) Ingólfur Guðbrandsson forstjóri kynnir
„Töfra Ítalíu" í máli og myndum.