Morgunblaðið - 01.05.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ1996 39
AÐSENDAR GREINAR
Eru þetta nútíma
stjómunaraðferðir?
HAMIN6JURÁNI£>
A UNDANFORN-
UM vikum hafa opin-
berir starfsmenn mót-
mælt harðlega þeim
áformum ríkisstjórn-
arinnar að samþykkja
nýtt frumvarp um rétt-
indi og skyldur starfs-
manna ríkisins á yfir-
standandi þingi. Opin-
berir starfsmenn hafa
gert athugasemdir við
marga þætti þessa
frumvarps og einnig
hafa þeir gagnrýnt það
harðlega að ríkis-
stjórnin skuli ætla sér
að knýja fram breyt-
4
i
i
Ásta Möller
ingar og skerðingar á réttarstöðu
opinberra starfsmanna og virða að
vettugi lögbundið samráð og samn-
inga við stéttarfélög. Samtök opin-
berra starfsmanna hafa margoft
bent á nauðsyn þess að lögin verði
endurskoðuð en telja óhjákvæmi-
legt að nýta þekkingu og reynslu
stéttarfélaganna á aðstæðum
starfsmanna. ríkisins við þá endur-
skoðun.
í þessari grein verður tæpt á
örfáum þáttum frumvarpsins, en
af mörgu er að taka. Yfirlýstur til-
gangur ríkisstjórnarinnar með
breytingum á lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins er að
færa ríkisreksturinn í nútímalegra
Ný starfsmannastefna
stjórnvalda endurspegl-
ar ekki, að mati Ástu
Möller, nútíma stjórn-
unarhætti.
horf, sbr. yfirskrift upplýsingabréfs
fjármálaráðherra frá mars 1996.
Til að ná þessu markmiði skuli
m.a. stefnt að aukinni valddreifingu
samfara aukinni ábyrgð stjórnenda.
Þetta yrði m.a. gert með því að
færa stjórnendum stofnana aukið
vald í hendur gagnvart starfsmönn-
um sínum.
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga er sammála því markmiði að
færa stofnunum aukið vald og
stjórnendum meira sjálfstæði og
ábyrgð á rekstri stofnananna. Hins
vegar er það skoðun félagsins að
slíkt verði ekki gert á kostnað rétt-
arstöðu starfsmanna, eins og gert
er ráð fyrir í frumvarpinu.
Nú ríkir ákveðið jafnræði milli
vinnuveitanda og starfsmanns þar
sem þeir semja í ráðningarsamn-
ingi m.a. um launakjör, í mörgum
tilvikum launakjör umfram lág-
marksákvæði kjarasamninga, og
um verksvið og vinnutíma starfs-
manns. Við gerð ráðningarsamn-
inga, líkt og við gerð samninga
almennt, koma báðir aðilar jafn-
réttháir að samningaborði og slík-
um samningi verður einungis
breytt með samkomulagi milli aðila
eða að öðrum kosti sagt upp í heild
sinni. Þetta er meginregla í vinnu-
rétti og hefur hún ver-
ið staðfest í íslenskri
réttarframkvæmd. í
frumvarpi til laga um*
réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins
er hins vegar staða
starfsmanna við gerð
ráðningarsamninga
rýrð verulega og kom-
ið er í veg fyrir að jafn-
ræði geti ríkt milli
vinnuveitanda og
starfsmanns við gerð
og framkvæmd ráðn-
ingarsamninga. Rétt-
arstaða ríkisstarfs-
manna er á þennan
hátt gerð mun lakari en réttarstaða
starfsmanna á almennum vinnu-
markaði. Samkvæmt frumvarpinu
getur vinnuveitandi t.d. tekið ein-
hliða ákvörðun um að breyta vinnu-
tíma og verksviði og lækka laun
starfsmanns án þess að starfsmað-
urinn hafi möguleika á að bregðast
við á annan hátt en þann að segja
upp starfi sínu og starfsmönnum
verður jafnvel gert að þiggja lægri
laun en ráðningarsamningur kveð-
ur á um hluta af uppsagnarfresti
sínum.
í frumvarpinu eru nokkur ákvæði
sem varða stöðu starfsmanna ef
þeim verður á í starfi eða ef þeir
sýna ekki fullnægjandi árangur í
starfi. Stjórnsýslulög voru sam-
þykkt á árinu 1993. Tilgangur
þeirra er m.a. sá að tryggja ein-
staklingum lágmarksréttindi í sam-
skiptum sínum við stjórnvöld. Með
frumvarpinu um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins er víða komið
í veg fyrir að starfsmenn ríkisins
njóti verndar ákvæða stjórnsýslu-
laga þegar teknar eru íþyngjandi
ákvarðanir um störf og stöðu þeirra
og þannig eru ríkisstarfsmenn sett-
ir skör lægra en aðrir þegnar þjóð-
félagsins í samskiptum sínum við
stjórnvöld. Þessi ásetningur ríkis-
stjórnarinnar er óskiljanlegur. Sem
dæmi um þetta má nefna að í frum-
varpinu ef forstöðumanni ekki gert
skylt að gefa starfsmanni kost á
að tala máli sínu áður en ákvörðun
er tekin í máli hans, né er gert ráð
fyrir að starfsmaður geti skotið
máli sínu til æðra stjórnvalds sé
hann ósáttur við úrskurð yfirmanns
síns.
Niðurstaðan er því sú að með
frumvarpinu er vald forstöðumanna
aukið á kostnað réttarstöðu starfs-
manna og skapað er óviðunandi
ójafnvægi í samskiptum þessara
aðila.
Hjúkrunarfræðingar eru sam-
mála því markmiði ríkisstjórnarinn-
ar að færa ríkisreksturinn í nútíma-
legra horf og hafa lengi lýst sig
reiðubúna til samstarfs við stjórn-
völd við slíkt verk.
Framangreind atriði í frumvarpi
um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins teljast hins vegar seint til
nútímalegra stjórnunarhátta, þar
sem starfsmaðurinn er settur undir
ægivald yfirmanns síns. Nýjustu
stjórnunarkenningar kveða á um
að leiðin til árangurs við rekstur
í
i
IÐNAÐARHURÐIR - BÍLSKÚRSHURÐIR
ÞAK- OG VEGGSTÁL
fyrirtækja felist m.a. í að skapa
aðstæður þar sem framlag hvers
og eins til reksturs fyrirtækisins er
metið,og samskipti yfirmanna og
undirmanna taki fremur mið af að
setja sameiginleg markmið, en að
starfsmaðurinn sé undir hælnum á
yfirmanninum.
í nýju tölublaði Fijálsrar
verslunar er kynnt ný bók eftir
metsöluhöfundinn Mark H.
McCormack, en hann er einn
þekktasti höfundur síðari ára um
nútímastjórnunaraðferðir. I bók-
inni eru dregin fram 10 helstu atr-
iði sem stjórnandi þarf að tileinka
sér til að hann teljist nútímastjórn-
andi, en eitt þeirra er: „Komið á
opnum samskiptum milli stjórn-
enda og starfsmanna." Þá er í
greininni dregið fram megininntak
bókarinnar sem felst í eftirfarandi
tilvitnun höfundar í Biblíuna
„Komið fram við aðra eins og þið
viljið að aðrir komi fram við ykk-
ur“. Varla er hægt að segja að hin
nýja starfsmannastefna stjórn-
valda sem á að endurspegla nú-
tímastjórnunarhætti - sem birtist
í nýju frumvarþi að réttindum og
skyldum starfsmanna ríkisins -
taki mið af þessum ráðleggingum.
Höfundur erformaður Félags
íslenzkra bjúkrunarfræðinga.
s&asffl
OSKA EFTIR
10 MILLJÓN g
KRÓNA LÁNI.
TILBOÐ j
SENDISTÁ
SMÍPAVERKSTÆÐIÐ.
WOÐLEIKHUSIÐ
Sími 551 1200
ÍSVAi-BORGA H/F
HÖFÐABAKKA9 -112 REYKJAVÍK - SÍMI: 587 8750 - FAX: 587 8751
T oba.ksva.rnir
í nútfð og framtfð
Ráðstefna í Háskólabfói laugardaginn 4. maí kl.
13.00-16.30 á vegum Tóbaksvarnanefndar og
Heilsueflingar
Salur III:
Inngangur.
Fundarstórí Magnús Karí Pétursson, formaður Hjartaverndar.
13.00 Ráðstefnan sett: Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.
Ávarp: Björn Bjarnason, menntamáiaráðherra.
13.10 Staða tóbaksmála á íslandi - auknar reykingar unglinga.
Helgi Guðbergsson, yfirlæknir.
Salur III:
Siðferðisleg og fjárhagsleg
vandamál tengd tóbaksneyslu
Fundarstjóri Jón Kristjánsson, aiþm.
13.40 Hvað kosta reykingar
einstaklinginn og þjóðfélagið?
Pétur Blöndal, alþingismaður.
14.00 Ættu reykingamenn að borga meira
en aðrir fyrir heilbrigðisþjónustu?
Vilhjálmur Árnason, heimspekingur.
14.20 Eiga þeir sem ekki reykja að fá
ódýrari tryggingar en þeir sem reykja?
Daði Fríðriksson, sölu- og markaðsstjóri.
Salur IV:
Sala tóbaks til barna
og unglinga
Fundarstjóri Össur Skarphéðinsson, alþm.
13.40 Er tóbak auglýst á íslandi
þó að ólöglegt sé?
Oddur Albertsson, skólastjóri.
14.00 Hvernig á að stöðva sölu tóbaks
til barna og unglinga?
Hrund Sigurbjörnsdóttir, fulltrúi.
14.20 Er reyklaust tókbak ekki
hættulaust?
Pétur Heimisson, heilsugæslulæknir.
14.45 Kaffi og kleinur.
Salur 111:
Nýjungar og stefna
Fundarstjórí Sigríður Jakobínudótir, hjúkrunarfræðingur MPH.
15.15 Nýjungar í meðferð þelrra sem háðlr eru nlkótíni.
Þorsteinn Biöndai, yfirlæknir.
15.35 Þarf að takmarka reykingar meira en orðið er?
Haildóra Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri.
15.55 Hvert skal stefna í tóbaksvörnum og hvernig?
Þorvarður Örnólfsson, framkvæmdastjóri.
Ráðstefnan er öllum opin - aðgangur ókeypis.
Heilbrigðisráðuneytið Landlæknisembættið