Morgunblaðið - 01.05.1996, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ný stgóm
Torfusamtakanna
Ráðstefna um
framtíð mjólkur-
framleiðslunnar
Hermilíkön
kynnt
í Odda
FJALLAÐ verður um hermilíkön
í stofu 101 í Odda fimmtudaginn
2. maí kl. 16.30-18 með því að
sýna tvö hermilíkanaforrit. Bæði
forritin eru auðveld í notkun og
er vonast til að fundargestir fái
nokkuð góða hugmynd um hvers
konar líkön er auðvelt að gera
með þessum hugbúnaði og hvern-
ig-
Dagskráin hefst á því að Rúnar
Júlíusson og Jón Sch. Thorsteins-
son kynna Promodel. Þeir munu
sýna þrjú sýnidæmi sem fylgja
forritinu; af biðröðum í banka, af
jámbrautarstöð og um birgðir.
Auk þess ræða þeir hugmyndir
sinar um að gera hermilíkön af
rekstri í fyrirtækjum sínum.
Síðan kynna Guðjón Ingólfsson
og Snjólfur Ólafsson Simul 8. Auk
þess að skoða sýnidæmi verður
sagt örlítið frá tilraunum nemenda
í viðskiptafræði til að nota forrit-
ið. Umræður verða í lokin um
hermilíkön.
ÁFORM eru uppi um að efla starf-
semi Torfusamtakanna. Fyrirhugað
er að samtökin beiti sér fyrir
fræðslu og útgáfustarfsemi um
málefni sem snerta húsverndun og
láti sig varða verndun og viðhald
eldri og merkra mannvirkja. Á aðal-
fundi var kjörin ný stjórn samtak-
anna. Hana skipa: Páll V. Bjarna-
son, formaður, Guðjón Friðriksson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Sævar
Guðbjörnsson og Margrét Þormar.
Námskeið í
psykodrama
í SAMVINNU Barnageðlæknafé-
lags Íslands, Geðlæknafélags ís-
lands og Bama- og unglingageð-
deildar Landspítalans verður haldið
námskeið um notkun psykodrama
dagana 3.-4. maí. Námskeiðið er
einkum ætlað ungum læknum, sál-
fræðingum, félagsráðgjöfum, geð-
hjúkrunarfræðingum og öðru fag-
fólki.
Kennari verður Göran Högberg,
sænskur geðlæknir barna jafnt sem
fullorðinna. Hann hefur verið frum-
kvöðull psykodrama-meðferðar í
Svíþjóð og var m.a. meðal stofnenda
Svenska Psykodrama Institutet.
Hann hefur kennt psykodrama víða
um lönd.
Psykodrama hefur verið við lýði
um fjölda ára þótt aðferðin hafi
ekki rutt sér að ráði til rúms á ís-
landi.
Á námskeiðinu verður unnið með
tjáskipti, óræða tjáningu og þá sér-
hæfingu psykodrama sem nefnist
Doubleteknik eða Pacing inorm
NLP. Kynnt verður fjölskylduvinna
m.a. vinna með fleiri kynslóðir,
sorgarvinnu og unnið með tengsl
einstaklinga, bæði innávið og útávið
(intra- och interpersonell). Mögu-
leikar verða á handleiðslu með mál
sem þátttakendur leggja fram.
Námskeiðið verður haldið á
Barna- og unglingageðdeildinni við
Dalbraut og stendur daglega frá
kl. 9-16. Þátttökugjald er 9.000
kr. og takmarkast þátttÖkuíjöldi við
25. Ef aðsókn verður meiri ganga
þeir fyrir sem hafa greitt þátttöku-
gjald.
-----♦ ♦ ♦
Athuga-
semd
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd frá Vöru-
happdrætti SÍBS:
„Að gefnu tilefni skal tekið fram
að í Happdrætti SÍBS vinna allir á
árinu. í ágústmánuði munu öll núm-
er frá vinning, einstæða bók sem
er Ijósprentuð, handskrifuð verk
124 íslenskra skálda, myndskreytt
af Hring Jóhannessyni. Auk þess
munu 913 númer fá annan vinning
í sama flokki, aldrei lægri en að
verðmæti 10.000 kr.
Það er því ekki rétt sem fullyrt
hefur verið í auglýsingum Lands-
bjargar að happdrætti hennar sé
eina happdrættið þar sem ailir fá
vinning."
LANDSSAMBAND kúabænda
gengst fyrir spástefnu um
mjólkurframleiðslu á íslandi í A-
sal Hótel sögu mánudaginn 6. maí
næstkomandi kl. 11-17.30. Á spá-
stefnunni verður fjallað um mjólk-
urframleiðslu á íslandi næsta ára-
tug.
Spástefnan hefst með ávarpi
Guðmundar Bjarnasonar landbún-
aðarráðherra, en að því loknu fjall-
ar Jón K. Baldursson frá Samtök-
um afurðastöðva í mjólkuriðnaði
um framleiðslu og sölu mjólkur
síðustu ár. Jónas Bjarnason for-
stöðumaður Hagþjónustu land-
búnaðarins fjallar um afkomu
greinarinnar og möguleika til ha-
græðingar og bættrar afkomu,
Magnús B. Jónsson, skólastjóri
Bændaskólans á Hvanneyri, fjallar
um starfs- og endurmenntun kúa-
bænda og Ari Teitsson, formaður
Bændasamtaka íslands, fjallar um
leiðbeiningarþjónustuna og stoð-
kerfið.
Að loknum hádegisverði ræðir
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, um lagarammann í mjólkur-
framleiðslunni nú og líklegar
breytingar, Óskar II. Gunnarsson,
formaður Samtaka afurðastöðva í
Þriðji áfangi
minja-
göngunnar
í RAÐGÖNGU Ferðafélagsins
1996, minjagöngunni, eru kynntir
áhugaverðir sögu- og minjastaðir
innan borgarmarka Reykjavíkur
og í næsta nágrenni borgarinnar.
Á miðvikudaginn 1. maí er komið
að þriðja áfanga göngunnar og er
brottför frá BSÍ austanmegin og
Mörkinni 6 kl. 13.
Ekið verður að Elliðavatni og
gengið með vatninu út í Þingnes.
Þar mun Guðmundur Ólafsson
fornleifafræðingur sýna og segja
frá staðnum en þarna er eitt merk-
asta rústasvæði borgarinnar.
Margt bendir tii þess að þarna
hafi verið forn þingstaður. Þetta
er ferð við allra hæfi. Minjagangan
hófst 14. apríl í Laugarnesi og
henni lýkur 23. júní í Grafardal.
Á 1. maí verður einnig farin
árleg göngu- og skíðaferð á Heng-
il og er brottför kl. 10.30.
-----♦ ♦ ♦-----
Hátíð harmon-
ikkunnará
tveimur stöðum
HÁTÍÐ harmonikkunnar verður í
ár bæði haldin í Reykjavík og á
Akureyri. Sérstakir gestir verða
Norðmennirnir Amstein Johansen
og Sverre Cornelius Lund.
í Reykjavík verður hátíðin í
Súlnasal Hótels Sögu og hefst
klukkan 20.15 föstudaginn 3. maí
með setningu og barnatónleikum.
Þar koma fram nemendur úr Al-
menna Músikskólanum og hópur
frá Tónlistarskóla Akraness. Á al-
mennum tónleikum sem hefjast
klukkan 21 koma fram einleikarar,
dúett, stórsveit Harmonikufélags
Reykjavíkur og erlendir gestir.
Á Akureyri hefst hátíðin klukk-
an 21 á laugardagskvöld í Sjallan-
um. Á dagskrá er leikur erlendu
gestanna, einleikarar, sextett og
tríó.
Að loknum tónleikum á báðum
stöðum verður dansleikur.
mjólkuriðnaði, fjallar um núver-
andi umhverfí við inn- og útflutn-
ing mjólkurafurða og hagræðingu
í mjólkuriðnaðinum, möguleika og
hindranir, Tryggvi Þór Herberts-
son, forstöðumaður Hagfræði-
stofnunar Háskóla íslands, ræðir
um mjólkurframleiðslu á íslandi
innan ESB, Ketill Hannesson, hag-
fræðiráðunautur, fjallar um end-
urnýjun fjósa, Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambands íslands, ræðir
um mjólkurframleiðsluna og lífs-
kjör, Markús Möller, hagfræðing-
ur, ræðir um leiðir stjórnvalda til
að móta umhverfí mjólkurfram-
leiðslu og mjólkuriðnaðar og Guð-
mundur Þorsteinsson, varafor-
maður Landssambands kúa-
bænda, ræðir um viðhorf til fram-
tíðar. Að erindaflutningi loknum
verða umræður.
Fundarstjóri á spástefnunni
verður Guðmundur Lárusson, for-
maður Landssambands kúa-
bænda. Skráning þátttakenda þarf
að fara fram í siðasta lagi föstu-
daginn 3. maí á skrifstofu Lands-
sambands kúabænda. Verð er
1.500 krónur og er hádegisverður
og kaffiveitingar innifalið í verði.
Málþing
um söfn og
þjóðfræði
MÁLÞING verður haldið um söfn
og þjóðfræði að Skógum undir Eyja-
fjöllum á laugardag, 4. maí, og er
það tengt 75 ára afmæli Þórðar
Tómassonar. Að málþinginu standa
Félag ísl. safnmanna, Héraðsnefndir
Rangárvalla- og Vestur-Skaftafells-
sýslu, Skógaskóli og Þjóðminjasafn
íslands .
Málþingið hefst klukkan 13 með
ávarpi Sverris Magnússonar skóla-
stjóra, en síðan flytja eftirtaldir er-
indi: Þór Magnússon, Einar Jónsson,
Guðmundur Ölafsson, Guðný Gerður
Gunnarsdóttir, Hörður Geirsson,
Inga Lára Baldvinsdóttir, Jón Böð-
varsson, Smári Ólason, Vilhjáimur
Örn Vilhjálmsson, Þóra Kristjáns-
dóttir, Sverrir Kristinsson og Sigríð-
ur Sigurðardóttir.
-----♦ ♦ ♦------
Ný kvóta-
skipti rædd
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, heldur
opinn fund um fiskveiðistjórnun í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, fimmtu-
daginn 2. maí kl. 20.30.
Géstir fundarins verða Þorsteinn
Pálsson, sjávarútvegsráðherra, Sig-
hvatur Björgvinsson, alþingismaður
og Pétur Örn Sverrisson, hdl.,
starfsmaður LÍU. Umræðuefni
verður m.a. ný skipting aflaheim-
ilda milli skipa og smábáta, afla-
markskerfið o.fl.
------♦ ♦ ♦-----
Skaftárhreppur
á myndakvöldi
ÚTIVIST stendur fyrir mynda-
kvöldi fimmtudaginn 2. maí í Fóst-
bræðraheimilinu, Langholtsvegi kí.
20.30.
Sýndar verða myndir Lárusar
H. Bjarnasonar af þemasvæðj Úti-
vistar, Skaftárhreppi. Erla ívars-
dóttir kynnir hreppinn og hrikalega
náttúru. Á meðal áhugaverðra
staða eru Eldgjá, Fögruijöll, Langi-
sjór, Lakagígar og Núpstaðarskóg-
ar svo fátt eitt sé nefnt.