Morgunblaðið - 23.05.1996, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.05.1996, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Umferðarátak á Norðnrlandi í sumar Morgunblaðið/Kristján DANÍEL Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, og Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, við bíl lögreglunn- ar á Sauðárkróki, en um helgina hefst sameiginlegt umferðar- átak lögreglunnar á öllu Norðurlandi þar sem áhersla verður lögð á ökuhraða, bílbeltanotkun og öryggisbúnað fyrir börn. VEGFARENDUR á Norðurlandi mega eiga von á því að sjá meira af lögreglubílum á vegum nú um hvitasunnuhelgina en endranær, en þá hefst norðlenskt umferð- arátak sem stendur yfir í allt sumar. Hvítasunnuhelgin er fyrsta ferðahelgi ársins og má búast við að fjöldi ferðalanga verði á vegum úti. Sýslumenn á Norðurlandi, frá Strandasýslu í vestri til Þingeyj- arsýslu í austri ákváðu á fundi fyrir nokkru að embættin myndu skipuleggja sameiginleg umferð- arátök í sumar og verður hið fyrsta nú um hvítasunnuhelgina. Megináhersla að þessu sinni verður á ökuhraða, bílbeltanotk- un og öryggisbúnað fyrir börn. Öðrum umferðarlagabrotum verður eftir sem áður sinnt á venjulegan hátt, að sögn Daníels Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns á Akureyri, og Björns Mikaels- sonar, yfirlögregluþjóns á Sauð- árkróki, en þeir kynntu átakið í gær. Þykir viðeigandi að leggja höfuðáherslu á þessi atriði, öku- hraðann, bílbeltanotkun og ör- yggisbúnað fyrir börn fyrstu ferðahelgi sumarsins og reyna með því að Ieggja grunninn að slysalausri umferð á Norðurlandi í sumar. Tilgangur með sameiginlegu umferðarátaki á þessu svæði er að samræma og ná sem bestri nýtingu á mannafla ogtækja- kosti þannig að hægt sé að halda úti árangursríkara eftirliti. Emb- ættin á Norðurlandi hafa yfir að ráða um 20 bílum. „Við höfum yfir að ráða nægum bílaflota og mannskap til að geta staðið vel að þessu átaki, en það þarf að skipuleggja nokkuð fyrirfram. Við höfum áður haft með okkur samvinnu, lögreglumenn á svæð- inu, og hún gefist vel,“ sagði Björn Mikaelsson. Daníel sagði að skynsamlegt hefði þótt að leggja áherslu á ökuhraða og öryggisbúnað fyrstu ferðahelgina og reyna þannig strax í upphafi sumars að ná niður hraðanum. Hann væri alltof oft of mikill og í mörgum tilvikum einn helsti or- sakavaldur slysa í umferðinni. „Það fer best á því að ætla sér ekki um of og taka fyrir ákveðið viðfangsefni hveiju sinni,“ sagði Daníel. Tvö innbrot upplýst TVÖ innbrot sem framin voru að- faranótt síðastliðins þriðjudags hafa verið upplýst. Annars vegar var brot- ist inn í félagsmiðstöðina Dynheima og þaðan stolið myndbandstæki og sælgæti og hins var var farið inn í Lundarskóla, þar var litlu stolið en skemmdir unnar. Tveir piltar, 15 og 16 ára auk tveggja vitorðsmanna, hafa viðurkennt innbrotin við yfir- heyrslur. Annar piltanna hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Innbrot í verslunarmiðstöðina Krónuna í Hafnarstræti um síðustu helgi er óupplýst en í rannsókn. ------» ♦ ♦----- Síðustu sýningar á Nönnu systur SÍÐUSTU sýningar á gamanleiknum Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson verða í Sam- komuhúsinu á Akureyri um helgina. Sýnt verður á föstudagskvöld, 24. maí og laugardagskvöldið 25. maí, en nær Ijögur þúsund manns séð sýningarnar. Arnarfell hf. fyrirferðarmikið í verktakavinnu víðs vegar um landið Fjárfest í fullkomínni færanlegri steypustöð FYRIRTÆKIÐ Amarfell hf. hefur verið nokkuð fyrirferðarmikið í verktakavinnu víðs vegar um landið síðustu ár. Amarfell, sem er fjöl- skyldufyrirtæki, var stofnað í Skagafirði fyrir tæpum 10 árum en flutti lögheimili sitt til Akureyrar um áramótin 1991-’92. Eigendur þess era fjórir bræður frá Ytri- Brekku II í Akrahreppi í Skagafirði og faðir þeirra og starfa þeir allir hjá fyrirtækinu. Hjá Arnarfelli starfa nú um 10 manns og mun fjölga um 2-3 í næsta mánuði, en fyrirtækið hefur nýlega fjárfest í fullkominni færanlegri steypustöð og tveimur steypubílum. Fyrir á fyrirtækið fjöldann allan af gröfum, ýtum, gijótflutningabílum og vöra- bílum og þijár malarasamstæður til steinefnavinnslu. Vakið athygli fyrir dugnað og útsjónarsemi Eigendur Arnarfells hafa vakið töluverða athygli á Akureyri og víð- ar fyrir dugnað og útsjónarsemi. Bræðumir Sigurbergur, Þór, Björn .cow Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Bensínstöðvar og helstu byggingavöruverslanir. Dreifing: Hringás ehf., Langholtsvegi 84, s. 533 1330. og Þorvaldur eru hluthafar í fyrir- tækinu ásamt föður sínum Konráði Vilhjálmssyni og systir þeirra Sig- ríður Pála starfar þar einnig við dagleg skrifstofustörf. Elsti bróðir- inn býr og starfar á Raufarhöfn og tvær yngstu systurnar era enn við- loðandi búskapinn heima á Ytri- Brekku ásamt móður sinni Valgerði Sigurbergsdóttur. Valgerður sér um búskapinn og er auk þess hús- vörður í félagsheimilinu Miðgarði. Sigurbergur er elstur þeirra bræðra sem að fyrirtækinu koma, rétt 31 árs og hann er jafnframt framkvæmdastjóri þess. Sigurberg- ur sagði í samtali við Morgunblaðið að reksturinn hafi gengið nokkuð vel í gegnum tíðina og þá sérstak- lega eftir 1990. „Við höfum nú seinni ár snúið okkur meira að sérhæfðum verkefn- um og keyrt aðeins út úr hörðustu samkeppninni. Útboðsmarkaðurinn er á sæmilegu róli i dag og skilin á milli stærri og minni verktaka era að verða skýrari. Eins eru menn farnir að vanda betur valið á verk- tökum sem fá að bjóða í þessi stærri verk. Það er uppsveifla í ár og ekki annað séð en að hún standi fram undir aldamót. Við áttum mjög heilladijúgt samstarf við norska aðila árið 1993, bæði hvað varðar þekkingu og afkomu. Við lærðum mikið af Norðmönnunum og höfum nýtt okkur þá þekkingu við rekstur- inn.“ Sigurbergur segir að reksturinn hafi farið rólega af stað á sínum tíma en stigin hafi verið stærri skref eftir því sem árin hafi liðið. „Það sem okkur þykir lítið í dag var stórt í okkar huga á upphafsárunum. Það er mikið og náið samstarf okkar eigendanna. Vinnutíminn miðast ekki við kl. 9-5, heldur að ljúka ákveðnum verkum og þá er dagur- inn búinn.“ Það er ekki mikil yfirbygging á fyrirtækinu og Sigurbergur er sjálf- ur þar sem áherslurnar eru hveiju sinni. Þegar blaðamaður hitti hann að máli var hann að vinna á stórri hjólaskóflu á Akureyrarflugvelli. Þeir feðgar eru ekki langskóla- gengnir en sjálfmenntaðir á flestum svið.um. Arnarfell er með aðsetur að Óseyri 8 og þeir feðgar sjá einn- ig um nánast allt viðhald á vélum og tækjum. „Það er ekki keypt verk- stæðisvinna nema þegar annað er ekki hægt vegna anna hjá okkur. Dagurinn er því oft langur en við höfum notað vetrartímann m.a. til þess að gera við okkar vélar og tæki.“ Á leið inn á hálendið Sigurbergur segir að starfsmenn Arnarfells hafi unnið við verkefni vítt og breitt um landið og í raun kannað flest svæðin oftar en einu sinni. A síðasta ári spannaði vinnu- svæðið t.d. frá Skeiðarársandi til vestustu tanga á Vestfjörðum. Hvarfinnurþú orku til að standast §§ vinnuálagið Og reka heimili Og sinna Efþérlíðurstundum einsogþigvanti orku ofurmennis til að ráða við þetta allt gæti I belgur á dag af Ostrin GTZ plus verð einmitt það sem þú þarfnast. Hentar sérstaklega íþróttamönnum ogöldmðum. Heilsu hornið Sendum í póstkröfu. Skipagötu 6, Akureyri, sími/fax 462 1889. bömunum Og stunda félagslífið Og stunda líkamsræktina og...? Morgunblaðið/Kristján ARNARFELL átti lægsta til- boðið í framkvæmdir á Akur- eyrarflugvelli ásamt Hlaðbæ Colas og þar er m.a. unnið að því að breikka flugbraut- ina um.15 m og sefja nýtt yfirlag.Á innfelldu myndinni er Sigurbergur Konráðsson, framkvæmdastjóri Arnarfells hf. Hann situr ekki á skrif- stofu daginn út og inn, heldur er þar sem eitthvað er um að vera. Hér er hann að vinna á einni hjólaskóflu fyrirtækis- ins, en eins og við er að búast þarf hann einnig að nota sím- ann töluvert í vinnunni. Stærsta verkefnið var við Vest- fjarðagöng en þar sá fyrirtækið um niðurbrot og þvott á steinefnum. Þá hefur fyrirtækið verið með stein- efnavinnslu fyrir Vegagerðina á Reyðarfirði og gerir Sigurbergur ráð fyrir að þar starfi þrír menn á vegum fyrirtækisins í sumar. Stærsti einstaki samningur fyrir- tækisins til þessa var gerður árið 1993 og snéri að efnisvinnslu fyrir Vegagerðina á Norðurlandi vestra og þar var Arnarfell í samstarfi við Norðmennina sem áður er getið. Arnarfell hefur nýlokið fram- kvæmdum við flugvöllinn í Mý- vatnssveit og þessa dagana er fyrir- tækið að vinna við Akureyrarflug- völl í samstarfi við Hlaðbæ Colas. Flugbrautin verður breikkuð um 15 m og sett á hana nýtt yfirlag, auk þess sem sett verða niður rör og brunnar fyrir lagnir. Sigurbergur segir að samkvæmt útboði eigi verkinu að ljúka 15. júní nk. en hann gerir ráð fyrir að því verði lokið fyrr. Þá eru starfsmenn fyrir- tækisins á leið inn á hálendið en Arnarfell verður undirverktaki hjá Suðurverki hf. við Kvíslarveitu- framkvæmdir. Þar verður unnið við eina stærstu jarðvinnuframkvæmd í landinu fyrir utan Hvalfjarðar- Sem fyrr sagði hefur fyrirtækið keypt nýja og fullkomna færanlega steypustöð frá Þýskalandi og er ráðgert að hún verði komin til landsins í byrjun júní. Einnig hefur verið fjárfest í tveimur notuðum steypubílum. Sigurbergur segir að þeir stefni ótrauðir að því að koma steypustöðinni í vinnu vítt og breitt um landið. „A öðrum tímum verður steypustöðin staðsett á Akureyri. Við getum þá tekið þátt í sam- keppni um steypusölu í bænum, enda er ekki eðlilegt að aðeins einn aðili sitji á þessari þúfu,“ segir Sig- urbergur. Afkastageta steypustöðvarinnar er um 60 rúmmetrar á klst. og tek- ur aðeins einn dag að pakka henni saman. Sigurbergur segir að tals- vert aðrar kröfur séu gerðar um steypu i t.d. virkjunarframkvæmd- um. „Talað er um að steypa sem framleidd er í steypubíla megi ekki standa lengur í þeim en eina klukkustund og því hlýtur að vera betra að hafa stöðina sem næst sjálfum framkvæmdunum. Stöðin er stór miðað við afköst en lítil miðað við umfang og er því tilvalin til notkunar bæði við brúarsmíði og virkjunarframkvæmdir víðs vegar um landið. Og það eru heldur engir aðrir að keppa nákvæmlega á þess- um markaði í dag,“ segir Sigur- bergur. Arnarfell hf. á auk þess 4 hjóla- skóflur, 4 stórar jarðýtur, 6 belta- gröfur, 3 stóra gijótflutningabíla, 3 vörubíla og 3 mölunarsamstæður göngin. Arnarfell mun sjá þar uni og segir Sigurbergur að í mölunar- steinsteypuþáttinn. úthaldinu liggi mestu peningarnir. ■ > í i » . , i I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.