Morgunblaðið - 23.05.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ1996 23
ERLENT
Netanyahu á
hælum Peresar
Reuter
FÉLAGI í Verkamannaflokknum setur upp kosningaspjald fyrir flokkinn, yfir spjöld Likud-banda-
lagsins þar sem ráðist er að Arafat með því að sýna hann sem handsprengju sem haldið er föstu taki.
Fjöldamorð á Tútsum
Jerúsalem. Reuter.
BENJAMIN Netanyahu, leiðtogi
Likud-bandalagsins, er nú á hælum
Shimon Peres, forsætisráðherra
ísraels, samkvæmt skoðanakönn-
unum sem flokkur hans lét gera.
Netanyahu var ekki seinn á sér að
lýsa því yfir að hann hefði náð for-
ystu á Peres, sem er leiðtogi Verka-
mannaflokksins, en þeir sem gert
hafa skoðanakannanirnar segja það
fullmikið sagt, þó að ljóst sé að
afar mjótt sé á mununum.
Netanyahu segist vera með
tveggja prósenta forskot á Peres
samkvæmt skoðanakönnun sem
Likud-bandalagið lét gera. Frétta-
fulltrúi Verkamannaflokksins vísaði
þessum fréttum þegar í stað á bug
og sagði Peres vera með um 4-6%
forskot á hægrimenn í Likud. í
upphafi árs hafði Peres um 20%
forskot á Netanyahu.
Kosið er annars vegar um forsæt-
isráðherra og hins vegar á milli
flokka. Að sögn Hanoch Smith, sem
gert hefur skoðanakannanir fyrir
kosningarnar nú, er sáralítill munur
á Peres og Netanyahu. Ljóst sé að
hvorugur flokkurinn muni fá meiri-
hluta á þingi og því verði þeir að
reyna að mynda samsteypustjórn.
Ekki sé við því að búast að núver-
andi stjórn Peresar haldi velli.
Sá frambjóðandi sem mest fylgi
fær hefur 45 daga til að mynda
starfhæfa ríkisstjórn, samkvæmt
kosningalögunum nýju.
Lítil spenna hefur verið í kosn-
ingabaráttunni, báðir flokkarnir
hafa reynt að höfða til óákveðinna
kjósenda á miðjunni. Þá hafa morð-
ið á Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra, sjálfsmorðsárásir íslamskra
öfgamanna og átökin í Líbanon
skyggt á baráttuna. Vonast tals-
menn flokkanna til þess að sjón-
varpskappræður Peresar og Net-
anyahu næstkomandi sunnudags-
kvöld muni hleypa lífi í kosninga-
baráttuna og vekja áhuga almenn-
ings á henni.
Sakar írani um afskipti af
kosningabaráttu
Peres lýsti því yfir í gær að íran-
ir væru enn að leggja á ráðin um
árásir á ísrael, í von um að geta
komið í veg fyrir að hann sæti
áfram sem forsætisráðherra. Yfir-
lýsing þessi kemur í kjölfar þeirra
orða Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, að æ frek-
ari sannanir væru fyrir því að íran-
ir notuðu hryðjuverk til að grafa
undan friðarumleitunum í Miðaust-
urlöndum.
Ahmed Tibi, ísraelskur arabi og
ráðgjafi Yassers Arafats Palestínu-
leiðtoga, ákvað á þriðjudag að
hætta við framboð til þings og ein-
beita sér að stuðningi við Shimon
Peres forsætisráðherra.
Tibi sagði hætt við að flokkur
sinn myndi ekki vinna neitt þing-
sæti, en flokkur sem ekki nær 1,5%
fylgi á landsvísu hlýtur engan þing-
mann. Arabar eru um 12% kjósenda
í landinu.
ísraelar kjósa til þings 29. maí
og þar að auki forsætisráðherra
beinni kosningu í fyrsta sinn. Sigur-
vegarinn fær 45 daga til að mynda
stjórn og takist það ekki verður að
kjósa á ný til embættisins.
Nairobi. Reuter.
ÁRÁSARMENN, sem ekki eru vit-
uð nánari deili á, myrtu um 100
manns af þjóðerni Tútsa frá Rú-
anda sem búa í austurhéruðum
Zaire. Um 3.000 Tútsar að auki
hafa verið umkringdir í tveim þorp-
um, að sögn fulltrúa alþjóðlegra
hjálparstofnana í gær. Morðin voru
framin fyrir 10 dögum.
Samtökin Læknar án landamæra
hvöttu Sameinuðu þjóðirnar og
aðrar alþjóðastofnanir til að sjá til
þess að Tútsunum 3.000 yrði þegar
í stað bjargað, ella væri hætta á
að þeir yrðu einnig myrtir.
Tútsarnir settust að í Zaire á
sjötta áratugnum. Blóðugt borg-
arastríð milli Hútúa og Tútsa í
Rúanda kostaði um milljón manns
lífið árið 1994, aðallega Tútsa.
Ofstækisfullum Hútúmönnum, sem
flúið hafa frá Rúanda af ótta við
að verða dregnir fyrir rétt, sakaðir
um þjóðarmorð, hefur verið kennt
um nokkur morð á Tútsum í Zaire
fyrr á árinu.
FULL BUB AF HJOLUM
Á FRÁBÆRU VERBI
ITALTRIKE þríhjól, vönduð og endingargóð þríhjól,
margar gerðír með og án skúffu.
Verð frá kr. 3.450, stgr. 3.278
Lucy 10" kr. 4.500, stgr. 4.275
Transporter kr. 5.100, stgr. 4.845
Touring kr. 4.700, stgr. 4.465
VIVI barnahjól með hjálpardekkjum og fótbremsu.
Létt, sterk og meðfaerileg barnahjól.
Frá 3 ára 12,5' kr. 9.600, stgr. 9.200
Frá 4 ára 14" kr. 10.400, stgr. 9.880
Frá 5 ára 16" kr. 10.900, stgr. 10.355
VIVI fjallahjól barna með hiálpardekkjum og
fótbremsu. Vönduð og endingargóð barnahjól.
Frá 3 ára 12,5'kr. 11.100, stgr. 10.545
Frá 4 ára 14" kr. 11.900, stgr. 11.305
Frá 5 ára 16" kr. 12.600, stgr. 11.970
DIAM0ND R0CKY16" og 20'fjallahjól
barna með fótbremsu, skítbrettum, standara,
keðjuhlíf og glitaugum
16" 12.500, stgr. 11.875
16" m/hjálpardekkjum kr. 13,350, stgr. 12.682
20" kr. 13.500, stgr. 12.825
BRONCO TRACK24" og 26” 18 gíra
fjallahjól á frábæru verði. Shimano gírar,
átaksbremsur, álmarðir, brúsi, standari, glit,
gírhlíf og keðjuhlíf.
24’ verðkr. 20.400, stgr. 19.380
26- verð kr. 20.900, stgr. 19.855
BR0NC0 TRACK 20" 6 gíra með Shimano
gírum og Grip-Shift, átaksbremsum, álgjörðum,
standara, brúsa, gliti, gírhlíf og tvöfaldri keðjuhlíf.
Verð kr. 17.900, stgr. 17.005
BRONCO PRO TRACK 26" 21 gíra
fjallahjól á frábæru verði. Shimano gírar,
ataksbremsur, álgjarðir, brúsi, standari, glit,
girhlíf og keðjuhlif.
Herrastell dökk blátt, dömustell blágrænt.
Verð kr. 25.900, stgr. 24.605
DIAM0ND NEVDA 24" og 26" 18 gíra
vönduð fjallahjól á mjög góðu verði. Shimano
gírar með Grip-Shift, álgjarðir, brúsi, standari,
glit, gírhlíf og keðjuhlíf. 24' blátt, 26" metal. grænt.
24" verð kr. 22.400, stgr. 21.280
26" verð kr. 22.900, stgr. 21.755
BR0NC0 TRACK 24" og 26" 18 gira
fjallahjól á frábæru verði. Shimano gírar,
átaksbremsur, álgjarðir, brúsi, standari, gl
gírhlíf og keðjuhlíf.
24" verð kr. 20.400, stgr. 19.380
26" verð kr. 20.900, stgr. 19.855
VARAHLUTIR
AUKAHLUTIR
Hjalmar. barnastolar, grifflur, Ijos.
tatnaður biöllur. brusar, töskur,
hraðamæiar sióngur, hjólafestingar
á bíla olast skitnretti, bógglaberar.
dekk. standarai demparagafflar,
styrisendar og margt, margtfleira.
DIAMOND SAHARA 24" og 26" 18 gíra
vönduð fjallahjól á mjög góðu verði. Shimano
gírar með Grip-Shift, álgjarðir, brúsi, standari,
glit, gírhlíf og keðjuhlíf. Litur metal. grænt.
24" verð kr. 22.400, stgr. 21.280
26" verðkr. 22.900, stgr. 21.755
DIAMOND OFF-ROAD 26" 21 gíra
með demparagaffli, drauma fjallahjól
strákanna með oversize-stellum. Shimano
gírum, Grip-Shift, átaksbremsum, álgjörðum,
brúsa, standara, gliti, girhlíf og keðjuhlíf.
Verð kr. 32.600, stgr. 30.970
BR0NC0 TERMINATOR FREESTYLE
BNIX 20" Cr-IVIo stell, rotor á stýri, styrktar-
gjarðir, pinnar og annar öryggisbúnaður.
Verð kr. 24.900, stgr. 23.655
Hjólin eru afhent samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði.
Árs ábyrgð og frí upphersla eftir einn mánuð. Vandið valið og verslið í sérverslun
BRONCO HIMALYJA 26" 21 gíra
mjög vel útbúið fjallahjól á frábæru verði.
Cr-Mo stell, Shimano Acera gírar með
Grip-Shift og Acera útbúnaði, átaks-
bremsum, gliti, álgjörðum, brúsa^ standara, og
glrhlíf. Herra- og dömustell, lltur blágrár.
Verð kr. 32.600, stgr. 30.970
Greiðslukort og greiðslusamningar,
sendum í póstkröfu. Ármúla40,
símar 553 5320 & 568 8860
5% stgreiðslu Verslunín
afsláttur
EUR0STAR FJALLAHJÓL dömu frá V-Þýskalandi.
3 gíra með fótbremsu, skítbrettum,
bögglabera, Ijósi, standara, gliti, bjöllu og keðjuhlíf.
20" verð kr. 24.900, stgr. 23.655
24" verðkr. 25.900, stgr. 24.605
26" verðkr. 27.900, stgr. 26.505
RKID