Morgunblaðið - 23.05.1996, Síða 64
<o>
AS/400 er...
...mest selda
fjölnotenda
viðskiptatölvan í dag
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
plp Vectra
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANC MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sjávarútvegsfyrirtæki við ísafjarðardjúp
Rætt um að sameina
Ishúsfélagið og Frosta
STJÓRNIR tveggja útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækja _við Isafjarð-
ardjúp, íshúsfélags ísfirðinga og
Frosta hf. í Súðavík, hafa ákveðið
að láta kanna hagkvæmni sameining-
ar fyrirtækjanna. Forráðamenn fé-
laganna eru bjartsýnir á að viðræð-
umar leiði til jákvæðrar niðurstöðu
og að félögin sameinist í sumar.
Stuttur aðdragandi
Samkomulag það sem stjórnir fé-
laganna gengu frá í gær á sér stutt-
an aðdraganda. Hugmyndin kvikn-
aði eftir að slitnaði upp úr viðræðum
um sameiningu allra stóru sjávarút-
vegsfyrirtækjanna á ísafirði og
Kambs á Flateyri.
Nýtt sjávarútvegsfyrirtæki myndi
reka nýtískulega rækjuvinnslu í
Súðavík og stórt frystihús fyrir bol-
fiskvinnslu á ísafirði. Það yrði öflugt
útgerðarfélag sem réði í upphafi
yfir fimm togurum og 8.700 tonna
kvóta. Þá ætti það misstóra eignar-
hluti í nokkrum öðrum sjávarútvegs-
fyrirtækjum og þjónustufyrirtækj-
um, meðal annars 10% hlut í SH.
Forráðamenn félagsins sjá mikla
möguleika í hagræðingu veiða og
samnýtingu kvóta. Hugsanlega yrði
hægt að fækka skipum. Sameinað
félag yrði með fjölbreyttari vinnslu
en hvort fyrir sig og þar með betur
í stakk búið til að mæta sveiflum í
einstökum greinum sjávarútvegsins.
Forráðamenn félaganna vilja einnig
styrkja sig til frekari átaka með því
að fá inn nýtt hlutafé og segir Magn-
ús Reynir Guðmundsson, stjórnar-
formaður íshúsfélagsins, að fjárfest-
ar hafi þegar sýnt því áhuga að
ganga til liðs við félagið.
■ Bjartsýnir á góðan/12
Helgi vann
Margeir
FYRSTA umferð \ landsliðs-
flokki á Skákþingi íslands var
tefld í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ í gærkvöldi. Flestir
af bestu skákmönnum landsins
eru keppendur og eru meðalstig
keppenda 2.386 skákstig. Alls
verða tefldar 11 umferðir og
þarf sjö vinninga til að ná
áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli.
Úrslitin í gærkvöldi urðu
þessi: Hannes Hlífar vann Þröst
Þórhallsson, Helgi Ólafsson
vann Margeir Pétursson, Jó-
hann Hjartarson vann Torfa
Leósson, Helgi Áss Grétarsson
vann Jón Viktor Gunnarsson,
Jón Garðar Viðarsson vann
Sævar Bjarnason og Magnús
Örn Úlfarsson vann Benedikt
Jónasson.
Morgunblaðið/Kristinn
BENEDIKT Davíðsson, fráfarandi forseti ASÍ, óskar nýkjörinni forystu ASÍ til hamingju.
Ólga á þingi ASÍ vegna kjörs nýrrar forystu
Grétar Þorsteinsson
kjörinn forseti ASÍ
GRETAR Þorsteinsson, formaður
Samiðnar, var kjörinn forséti Alþýðu-
sambands Islands á þingi þess í
gær. Hann fékk 76% atkvæða, en
Eiríkur Stefánsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Fáskrúðs-
fjarðar, fékk 24% atkvæða. Hervar
Gunnarsson féll frá forsetaframboði
sínu og var kjörinn 1. varaforseti og
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, sem
verið hefur 1. varaforseti ASI, var
kjörin 2. varaforseti.
Talsverð átök urðu fyrir kjörið,
einkum milli forystumanna Verka-
mannasambandsins annars vegar og
fulltrúa iðnaðar- og verslunarmanna
hins vegar. Á þriðjudagskvöld náðist
samkomulag í þröngum hópi um
framboð Grétars Þorsteinssonar til
forseta, Halldórs Björnssonar, for-
manns Dagsbrúnar, sem 1. varafor-
seta, og Ingibjargar R. Guðmunds-
dóttur í stöðu 2. varaforseta. Stefndi
þá í kosningu milli Grétars og Her-
vars. Skömmu áður en kjörið átti að
fara fram i gær dró Hervar hins
vegar framboð sitt til baka og féllst
á að vera í kjöri til 1. varaforseta
og varð niðurstaðan sú að kjörnefnd
mælti með kosningu Grétars, Her-
vars og Ingibjargar.
Skömmu áður en tillaga kjör-
nefndar var borin fram varð Eiríkur
Stefánsson við áskorunum óánægðra
j)ingfulltrúa_ um að vera í kjöri til
forseta ASÍ. Hann segir að með
framboði sínu hafi hann viljað gefa
þeim sem voru óánægðir með vinnu-
brögðin við undirbúning tillögu kjör-
nefndar færi á að láta óánægjuna í
ljósi. Eftir kjörið lýsti Eiríkur yfir
eindregnum stuðningi við Grétar.
Sóknarfæri framundan
Grétar Þorsteinsson sagði eftir
kjörið að verkefni nýrrar forystu
væri að bregðast við vinnumarkaðs-
frumvörpum ríkisstjórnar. Hann
sagði ljóst að þau myndu spilla fyrir
góðu sambandi aðila á vinnumarkaði
við gerð næstu kjarasamninga. Hann
sagði að framundan væru sóknar-
færi fyrir íslenskt launafólk og kraf-
ist yrði umtalsverðra kjarabóta í
næstu samningum.
Hervar Gunnarsson sagði eftir
kjörið að það sem skipti verkalýðs-
hreyfinguna öllu máli væri að hún
stæði saman. Hann sagði að þegar
það hefði legið fyrir að Grétar Þor-
steinsson væri tilbúinn til að gefa
kost á sér og fús til samstarfs við sig
hefði hann ákveðið að draga framboð
sitt til baka. Meginatriðið væri þau
verkefni sem þyrfti að vinna en ekki
þær persónur sem ynnu verkin.
Benedikt Davíðsson, fráfarandi for-
seti ASÍ, lýsti yfir eindregnum stuðn-
ingi við nýkjörna forystu sambands-
ins. Hann sagði á fyrsta fundi kjör-
nefndar að hann sæktist ekki eftir
að verða endurkjörinn forseti ASÍ.
■ Tillaga kjörnefndar/6
■ Leynifundur/32
■ Krafist verður/33
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Vestfjarða-
göngin lokuð
Flateyri. Morgunblaðið.
NÚ hefur Vestfjarðagöngum
verið lokað til hausts vegna mal-
biksframkvæmda.
Ökumenn þurfa í sumar að
leggja á brattann og keyra
Breiðadalsheiði en hún hefur
ekki alltaf þótt árennileg heiðin
sú er snjóa hefur leyst enda í 600
metra hæð yfir sjávarmáli. En
menn horfa til þess að þegar
göngin verða loks opnuð í haust
með malbikið „ilmandi“, losna
þeir við „þvottabrettið" en keyra
á beinum og sléttum vegi í gegn.
Sparisjóð-
irnir lána
til skipa-
kaupa
VINNSLUSTÖÐIN hf. í Vest-
mannaeyjum hefur gert kaup-
leigusamning að fjárhæð um
600 milljónir króna við spari-
sjóðina, Sparisjóðabanka Is-
lands og SP-fjármögnun hf.
vegna nótaveiðiskipsins Sig-
hvats Bjarnasonar sem keypt
var frá Noregi og kom til iands-
ins 3. maí síðastliðinn. Fjár-
hæðin stendur undir öllum
kostnaði við kaupin á skipinu
og er aflahlutdeild þess innifal-
in í verðinu. AIls koma 6 lán-
veitendur að iánveitingunni.
Skipið sem um ræðir kemur
í stað nóta- og togveiðiskipsins
Sighvats Bjarnasonar. Það hef-
ur þegar hafið veiðar og kom
nýlega að landi með stærsta
síldarfarm sem komið hefur til
Vestmannaeyja.
Lánveitendur stofna
eignarhaldsfélag
Vinnslustöðin leitaði í byrjun
apríl til Sparisjóðs Vestmanna-
eyja til að kanna möguleika á
fjármögnun og beindi spari-
sjóðurinn erindinu áfram til
Sparisjóðsbankans sem er í
eigu sparisjóðanna. Þar var
ákveðið að fjármögnunin yrði
í formi kaupleigu og að fram-
kvæmd samningagerðarinnar
yrði í höndum SP-fjármögnun-
ar, eignarhaldsfélags sparisjóð-
anna. Um kaupin var stofnað
sérstakt eignarhaldsfélag,
Bárustígur ehf., og eru eigend-
ur þess lánveitendur í hlutfalli
við framlag sitt í lánveiting-
unni.
■ Nótaveiðiskip/IB