Morgunblaðið - 31.05.1996, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 31.05.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 25 LISTIR Fegnrðarleitin er list og trú sameiginleg BENEDIKT Gunnarsson listmálari. Morgunbiaðið/Rax SÝNING á pastelmyndum eftir Bene- dikt Gunnarsson verður opnuð næst- komandi laugardag í Stöðlakoti. Sýn- ingin ber yfirskriftina „Ljós, land og líf“ og er á dagskrá Listahátíðar. Myndlist Benedikts hefur á ferli hans þróast frá geometrískri ab- straktsjón, á sjötta áratugnum, yfir í trúarlega list sem byggist oft á lögmálum geometríska abstrakt mál- verksins. „Það vilja margir meina að geometríska abstraktmálverkið sé lítt nýtanlegt sem grunnur fyrir ann- ars konar myndgerð en ég er því ósammála enda nota ég þá vinnu, sem ég hef lagt í að fást við mynd- skipulag á fleti, sem grunn í minni myndgerð í dag.“ Benedikt hefur komið að listinni frá mörgum hliðum og til dæmis prófað ljósmyndatækni til myndsköpunar og gert steinda glugga í kirkjur. Mannamyndir gerir hann eftir pöntun. „Þær myndir hef ég ekki sýnt enda gefa þær lítið frelsi í persónulegum efnistökum. Annars hef ég alltaf haft áhuga á manninum og ég fjalla bæði um hann í list minni og í starfi sem kennari í Kennarahá- skólanum. Með því finnst mér ég votta honum virðingu mína og vil að þeir sem eru að teikna fólk í módeltímum hjá mér líti á það sem virðingarvott við sköpunarverkið," sagði Benedikt. Svipur Krists Um titil sýningar sinnar „Ljós, land og líf“, segir hann: „Titillinn er ákveðið leiðarstef og er sprottinn af vinnu minni við gerð verka með trúarlegu inntaki. Ljósið er þar stór þáttur auk þess sem litur verður ekki sýnilegur án ljóss. Landið kemur dálítið fram í verkunum, þó þetta séu ekki landslagsmyndir, því velþekkt yfirborð landsins sést ekki heldur þættir eins og myndskipulag þess koma í ljós. Persónan kemur inn undir þættinum „líf“. Þar sýni ég að maðurinn er ekki gleymdur og svipir manna, þar á meðal svipur Krists, koma fram.“ Benedikt er trúaður maður og seg- ir að í raun sé ekki hægt að læra neitt í myndlist nema kynnast kristn- um áhrifum á hana í gegnum tíðina. List og trú er að hans mati samofin þar sem leitin að fegurðinni sé báðum sameiginleg. „Sá sem gerir listaverk er að þakka fyrir sig, hvort sem hann er trúaður eða ekki. Þó að Guð sé ekki endilega nefndur í texta skálds þá er hann að fjalla um mann- inn sem hluta sköpunarverksins." SNAGI eftir Grétu Guðmundsdóttur. Snagar í Gallerí Greip FORM Island opnar sýningu tengda Listahátíð í Reykjavík á snögum, næstkomandi laugar- dag kl. 15. „Snagar eru afar notadrjúgir en geta líka haft listrænt gildi. Það má líta á þá sem algjörlega praktíska hluti, en þeir geta líka verið formfagrir, fyndnir, grófir, hreyfanlegir og allt þar á milli. Sýnendurnir, sem eru tæplega 50 talsins, eru frá ólíkum sviðum hönnunar (arkitektar, iðnhönn- uðir, grafískir hönnuðir o.s. frv.), auk nokkurra myndlistarmanna til að vikka sjónarhorn sýningar- innar enn frekar,“ segir í kynn- ingu. Sýningunni er ætlað að sýna hve mikil fjölbreytni getur búið í einfaldri og afmarkaðri forsögn hönnunar. Sýningunni lýkur 23. júní og er opin alla daga nema mánu- daga frá kl. 14-18. Héraðsvaka Rangæinga ÁRLEG héraðsvaka Rangæinga verður haldin laugardaginn 1. júní kl. 14 á Laugalandi í Holtum. Hér- aðsvakan er menningardagskrá sem hreppar sýslunnar skiptast á um að halda. Að Jæssu sinni eru Djúpárhreppur, Ásahreppur og Holta- og Landsveit sem sjá um vökuna. Fjölbreytt dagskrá stendur til boða, m.a. atriði frá Tónlistarskóla Rangæinga, kórsöngur, ballett, upplestur og hagyrðingaþáttur. Þá fer fram verðlaunaafhending til íþróttamanns Rangæinga 1995. í tengslum við vökuna verður myndlistarsýning á verkum Smára Kristinssonar í Gíslholti í Holtum, en hann útskrifaðist nýverið frá Myndlista- og handíðaskólanum. Aðgangur að héraðsvökunni er ókeypis og boðið verður upp á fríar kaffiveitingar í hléi ásamt glaðningi fyrir börnin. ------♦ ♦ ♦------ Myndlistar- sýning í Konnakoti JÓNÍNA H. Jónsdóttir frá Patreks- firði opnar myndlistarsýningu í sal Barðstrendingafélagsins, Konna- koti, Hverfisgötu 105, 2. hæð á sunnudag. Jónína hefur áður tekið þátt í samsýningum og hún átti verk á afmælissýningu Barðstrendingafé- lagsins fyrir nokkrum árum. Jónína hélt einkasýningu á Patreksfirði í júní síðastliðnum. Verk hennar eru að þessu sinni flest unnin á þessu ári og eru úr íslenskum lopa, olíu- og vatnslitum. Sýningin er jafnframt sölusýning og verður opin 2.-14. júní kl. 13-19 alla dagana. mai ið þessu sinni leggur Alþjóða heilbrigðisstofnunin áherslu á viðfangsefni sem lýst er með kjörorðinu Stofnunin hvetur til að tóbaki verði úthýst í allri íþróttastarfsemi og við hvers kyns listviðburði og forðast sé að tengja listir og íþróttir við bcinan eða * óbeinan áróður fyrir tóbaksneyslu. Islendingar, föruni að essum sjálfsögðu tilmælum! FREISTANDI TILBOÐ Á BÍLUM FRÁ FJÓRUM LÖNDUM, L SKEMMTIDAGSKRÁ, VEITINGAR O.M.FL. UM HELGINA. ÁRMÚLA 13, SIMI: 568 1200 BEINNSÍMI: 553 1236
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.