Morgunblaðið - 13.06.1996, Side 4

Morgunblaðið - 13.06.1996, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Útköll Vinnueftirlits- ins vegna slysa Alvarlegum slysum hef- ur fækkað SAMKVÆMT skráningu eftirlits- deildar Vinnueftirlitsins hefur alvar- legum vinnuslysum fækkað á und- anfömum árum. Fram kemur að skráð vinnuslys á árinu 1995 voru 186 talsins og slösuðust í þeim alls 832 einstaklingar. Af þeim slös: uðust 44 á leið úr eða í vinnu. í nýjasta fréttabréfi Vinnueftirlitsins, Vinnuvemd, kemur fram að útköll- um vegna slysa hefur farið fækk- andi síðan árið 1991 ef frá er talið síðasta ár. Atvinnurekanda ber samkvæmt lögum að tilkynna Vinnueftirlitinu um vinnuslys sem hjá honum verða, en í Vinnuvernd kemur fram að mikill misbrestur er á því að þessum skyldum sé fullnægt. Komi þetta fram þegar gerður sé samanburður á Qölda skráðra slysa hjá Vinnueft- irlitinu og skráningu þeirra sem leita læknis vegna vinnuslysa ár hvert. Bent er á að tölur um fækkun slysa beri því að taka með þeim fyrirvara að tilkynningaskyldunni sé fremur illa sinnt og þær gefí því ekki mynd af raunverulegri tíðni vinnuslysa, en þó sé líklegt að um sé að ræða flest alvarlegri vinnuslys. Því sé ástæða til að ætla að alvarlegum vinnuslysum hafi fækkað á árunum 1991-1994. Helsta skýringin á fjölgun skráðra vinnuslysa árið 1995 er að samanburður, sem gerður var á gögnum frá Tryggingastofnun, leiddi í ljós vinnuslys, sem ekki höfðu verið tilkynnt Vinnueftirlit- inu. Þeim, sem þar áttu hlut að máli, var boðið að tilkynna slysin þangað og gerðu það margir. 80 afmælis- plöntur ASÍ Forstjóri Olíufélagsins um úrskurð Samkeppnisráðs Kannað hvort úrskurð- ALÞÝÐUSAMBAND íslands hefur gefið forseta Islands og islensku þjóðinni 80 tijáplöntur í tilefni af 80 ára afmæli sam- bandsins þann 12. mars síðast- liðinn. Grétar Þorsteinsson, nýkjörinn forseti ASÍ, fni Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, og meðlimir miðstjórnar ASÍ gróðursettu plönturnar í gær í Vinaskógi. urinn verður kærður Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær telur Samkeppnisráð setu Ólafs og Kristins í stjórn Olís ekki uppfylla skilyrði sem ráðið setti á síðasta ári þegar Olíufélagið hf. og Hydro Texaco A/S keyptu hlut í Olís og stofnað var sameiginlegt dreifingarfyrirtæki Olís og Olíufé- lagsins. Samkvæmt skilyrðinu mega ekki sitja menn í stjórn Olís sem eru í störfum sínum verulega háðir Olíu- félaginu, stjórnarmenn eða starfs- menn dótturfélaga, stjómarmenn og starfsmenn félaga sem Olíufélagið á meira en 1% hlut í, svo og stjórnar- menn eða starfsmenn félaga sem eiga meira en 1% í Olíufélaginu. Ekkert einsdæmi „Við höfum alla tíð gagnrýnt að 1% viðmiðun þama er langt umfram tilefni. Það er mjög þröngt og þreng- ir kosti allt of margra, en þetta eru á fímmta þúsund manns að mönnum telst til sem geta ekki farið í stjóm Olís út af þessu ákvæði. Ég er ekki viss um að menn sjái út yfír það hvað þeir em að gera,“ sagði Geir Magnússon í samtali við Morgun- blaðið. „Maður hlýtur líka að gera ráð fyrir því að svona úrskurður eigi þá við í öðmm tilfellum þar sem Stöð 2 á Sýn og Bylgjuna og 32% í Dagblað- inu, en ég veit ekkert hveijir em í stjórn þar, og svo hefur maður Bón- us, Hagkaup og Baug. Þetta er því ekkert einsdæmi í þjóðfélaginu. Þeir /íljóta að vera að setja reglur og maður gerir ráð fyrir að við séum ekki eitthvert sérfyrirbrigði fyrir lög- um,“ sagði Geir. GEIR Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf., segir að það verði metið á næstunni hvort kærður verður sá úrskurður Samkeppnisráðs að þeim Ólafi Ólafssyni, forstjóra Samskipa, og Kristni Hallgrímssyni lögmanni, stjórnarmönnum í Olíuverslun íslands, Olís, beri að víkja úr stjórninni fyrir 10. ágúst næstkomandi. Frestur til að kæra úr- skurðinn er fjórar vikur. Morgunblaðið/Þorkell Kaupmátturjókst um 3,1% 1994 -1995 Sophia Hansen vegna réttarhalda í forræðismáli hennar í dag Verð að viður- kenna að ég er full kvíða GREITT tímakaup landverkafólks innan ASÍ hækkaði um 5,2% frá fjórða ársfjórðungi 1994 til sama tíma 1995 samkvæmt úrtaki Kjara- rannsóknamefndar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,1%. Samkvæmt því jókst kaup- máttur greidds tímakaups um 3,1%. Samkvæmt úrtaki Kjararannsókn- amefndar hækkaði tímakaup allra stétta á tímabilinu. Tímakaup verka- fólks og afgreiðslukvenna hækkaði um 5-6% en iðnaðarmanna og af- greiðslukarla um rúm 3%. Vinnutími ASÍ-landverkafóIks í fullu starfí lengdist um 0,4 stundir frá fjórða ársfjórðungi 1994. Vinnu- tími lengdist hjá öllum stéttum nema afgreiðslukörlum. Mest varð breyt- ingin hjá verkafólki, en vinnutími þess lengdist að meðaltali um 0,3 og 0,7 stundir. Út frá tölum um meðaltímakaup og meðalvinnutíma má reikna út mánaðarlaun einstakra starfshópa miðað við fullt starf. Mánaðarlaun hjá ASÍ-landverkafólki hækkuðu að meðaitali um 6,9% frá íjórða árs- fjórðungi 1994 til sama tíma 1995 og jókst kaupmáttur mánaðarlauna að meðaltali um 4,7%. Mánaðarlaun hækkuðu hjá öllum starfshópum. Hækkunin hjá verkafólki var rúm- lega 7% og 6,5% hjá iðnaðarmönnum enda lengdist vinnutími þeirra um eina stund á viku. Andlát HELGA S. ÞORGILS- DÓTTIR HELGA Soffía Þorgilsdóttir, fyrrum yfírkennari og skólastjóri, lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík 11. júní síðastliðinn, á hundraðasta ald- ursári. Helga fæddist 19. nóvember 1896 í Knarrarhöfn í Dalasýslu. Hún lauk kennaraprófí 1919, sótti handavinnu- og teikninámskeið í Kaupmannahöfn 1927 og kennara- námskeið í Vadstena í Svíþjóð 1935. Hún starfaði sem kennari í Fljótshlíð 1919-21, var heimiliskennari í Bjamanesi í Homafírði 1921-22, starfaði við baðvörslu í Miðbæjarskóla í Reykjavík 1922-23 og kenndi við bamaskólann á Stokkseyri 1923-24. Helga var skólastjóri bamaskólans á Húsatóftum á Skeiðum 1924-30 og kennari við Miðbæjarskóla 1930-46 og Melaskóla frá 1946, þar af sem yfirkennari frá 1947. Helga gekk í hjónaband með Þor- steini Arnóri Arnórssyni skipstjóra og síðar starfsmanni Útvegsbanka árið 1946. Hún sat í stjórn kvenfé- lags Hvítabandsins um margra ára skeið og í sjúkrahúsráði í fjögur ár. Helga var sæmd Riddarakrossi hinn- ar íslensku fálkaorðu árið 1976. „ÉG VERÐ að viðurkenna að ég er full kvíða. Kvíðinn innra með mér snýr að fjölmiðlafárinu og því hvort mannfjöldinn við dómshúsið verður mikill. Hvað eftir annað kemur upp í hugann árásin á okkur við dómshús- ið fyrir nokkrum árum. En ég reyni að bægja hugsuninni frá og sann- færa sjálfa mig um að treysta á al- íriættið. Almættið hjálpi, styðji og vemdi,“ sagði Sophia Hansen í Ist- anbúl í gær. Forræðismál hennar í Tyrklandi verður tekið fyrir í undir- rétti í Istanbúl fyrir hádegi í dag. Dætur Sophiu og Halims Al, fyrrum eiginmanns hennar, hafa verið kall- aðar fyrir réttinn. Tyrkneskir íjölmiðlar hafa fjallað töluvert um forræðismálið að undan- fómu. Halim A1 hefur í viðtölum far- ið fram á stuðning þjóðar sinnar. Sophia segir að íjölmiðlar hafí hringt í hana í gríð og erg. Hún hafí hins vegar ekki treyst sér til að koma fram í mörgum viðtölum og vísað á lög- fræðing sinn eða að hægt yrði að tala við hana sjálfa í réttarhöldunum. Verð að sýna stillingu Sophia sagðist hafa áhyggur af því að starfsmenn tyrknesku örygg- isþjónustunnar hefðu ekki komið til að láta sig vita hvernig öryggisgæsl- unni yrði hátt í dag. Lögfræðingur hennar hefði sagt henni að hafa ekki áhyggjur af því enda yrði hennar örugglega vandlega gætt. Hún segist hafa átt í erfíðieikum með að hvíla sig og vera full kvíða vegna réttar- haldanna. Henni fyndist undarlegt að mega eiga von á því að sjá dætur sínar við réttarhöldin. „Ég veit ekki hvers konar tilfínningar koma til með að brjótast fram og auðvitað verð ég að reyna að sýna stillingu. Hins vegar er spuming hvort ég get stillt mig,“ sagði hún. Sophia verður ekki ein við réttar- höldin. í fylgd með henni verður Hasíp Kaplan, lögfræðingur hennar, Olafur Egilsson, sendiherra íslands í Tyrklandi, ræðismaður íslendinga í Tyrklandi, íslenskir fulltrúar af Habitat II ráðstefnunni í Istanbúl og nokkrir fulltrúar fjölmiðla. Dómari víki Lögfræðingur Sophiu fer í réttar- höldunum fram á, að dómarinn í for- ræðismálinu víki. Rök hans fyrir því eru allmörg. Hann minnir á að dóm- arinn hafí aldrei farið að tilmælum hæstaréttar, ekki einu sinni eftir til- mælum aðalnefndar hæstaréttar, hann hafí ekki brugðist við brotum á umgengnisrétti og neitað að færa bömin til vandalausra enda hafí Ha- lim ekki frekar forræði yfír bömunum en Sophia. Lögfræðingurinn tekur í ræðu sinni fram að ekki hafí verið tekið tillit til meðferðar föður, afa og ömmu, á bömunum og þess hvemig bömin hafi lýst aðstæðum sínum á myndbandi. Að lokum bendir lögfræð- ingurinn á að dómarinn hafi brotið gegn tyrkneskum lögum með því að biðja bömin um að segja vilja sinn í réttinum, því að samkvæmt tyrknesk- um lögum megi ekki taka mið af vitn- isburði bama innan við 18 ára. Dagskráin næstu da Vimmtudagur 13. júni; Heimsókn til Hriseyjar og Ölafsfjarðar Fundir: Dalvík, Víkurröst kl. 12:00 Siglufjörður, Bíósalur kl 17:30 Akureyri, Alþýðusalur kl. 20:30 Föstudagur 14. júní: Heimsókn á Akureyri Setið fyrir svörum í Þjóðarsálinni á Rás 2 kl. 18:00 Fundur: Akranes, Barbró kl. 20:30 Vinir vors og blóma skemmta Upplýsingar um forsetakosningarnar eru gefnar á kosningaskrifstofunni i Borgartúni 20 og i síma 588 6688

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.