Morgunblaðið - 13.06.1996, Page 38
^38 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1996
AÐSENDAR GREINAR • FORSETAKJÖR
MORGUNBLAÐIÐ
Fortíð og upplýsinga-
skylda fjölmiðla
NÚ getur hver um
f sig, bæði almenningur
(og fréttamenn, haft
f sína skoðun á því hvort
, Jón Steinar Gunn-
j laugsson sagði sig úr
yfirkjörstjórn á réttum
' tíma og hvort hann
hafi átt að gefa upp
ástæður sínar fyrir
því.
Starfsferill og
mistök
En það er ekkert
sem breytir þeirri
staðreynd, að þeim
ástæðum sem Jón
Steinar hafði fyrir gjörðum sínum,
var nauðsynlegt að koma á fram-
færi við þjóðina. Ólafur Ragnar
Grímsson forsetaframbjóðandi hef-
ur ekki haft fyrir því að svara
þeim staðreyndum sem fram komu
um starfsferil hans sem alþingis-
manns og þau mistök sem kostuðu
ríkissjóð stórfé þegar hann var
fjármálaráðherra auk þess sem
hann er ber orðinn að ósannindum.
Ólafur Ragnar hefur alla tíð
fram til síðastliðins hausts, er hann
mun að öllum líkindum hafa ákveð-
ið að bjóða sig fram til forseta
íslands, verið þekktur fyrir allt
annað en að svara ekki fyrir sig,
né tjá sig um mál sem hæst hefur
borið hveiju sinni. En nú er Bleik
brugðið, hann hefur Iátið tals-
manni sínum eftir, lögfræðingi, að
koma fram fyrir sína hönd. Sá lét
sig hafa það að segja frammi fyrir
alþjóð að þetta væru
gömul mál sem óþarft
hafi verið að rifja upp,
enginn hafi haldið
þeim leyndum og allir
hafi vitað um.
Blekkingar
Það þarf enginn að
segja mér að lögfræð-
ingurinn geri sér ekki
grein fyrir að þegar
þessi mál voru sem
mest í fjölmiðlum og í
umræðu manna á
meðal, voru þeir sem
nú eru rétt komnir á
kosningaaldur böm,
jafnvel allt niður í sex ára. Hann
getur ekki með nokkurri sanngimi
ætlast til þess að þetta fólk hafi
hugmynd um fortíð Ólafs Ragnars
og það sama má reyndar segja um
hina frambjóðendurna.
Að bregðast skyldu sinni
Hér kemur að þætti fjölmiðl-
anna. Þeir hafa algerlega brugðist
skyldu sinni. Þeim ber siðferðisleg
skylda til þess að kanna gaum-
gæfilega fortíð allra frambjóðend-
anna og leggja það sem þar er að
finna með greinargóðum hætti fyr-
ir þjóðina. Almenningur á rétt á
að fá þessar upplýsingar. í öllum
löndum, þar sem lýðræði er í há-
vegum haft, hefðu fjölmiðlar kapp-
kostað hver um annan þveran að
vera fyrstir til að koma þessum
upplýsingum á framfæri. En ekki
á Islandi! Þar á að ekki að gefa
þjóðinni færi á því að mynda sér
skoðun með þeim hætti sem við-
gengst í siðuðu lýðræðisþjóðfélagi.
Fortíðina í dagsljósið
Síðastliðinn sunnudag fór fram
kynning í ríkissjónvarpinu á forseta-
frambjóðendunum. Spumingar fyr-
irspyrjenda voru fyrir neðan allar
hellur og eru reyndar dæmigerðar
um áhugaleysi þeirra á því sem þeir
ættu að leggja metnað sinn í, þ.e.
að kynna hvern mann frambjóðend-
urnir hafa að geyma. Spurningarnar
sem þeir virtust hafa hvað mestan
áhuga á, beindust að fjármálum
kosningabaráttunnar og því hvort
menn ættu ekki bara að fara eftir
skoðanakönnunum og leggja nú þeg-
ar árar í bát, í stað þess að rýna í
bakgrunn þeirra og kanna hæfni
þeirra til starfsins. Ef þetta er þver-
skurðurinn af getu íslenskra fjöl-
miðla til rannsóknarblaðamennsku,
þá rís stjama þeirra ekki hátt.
Upplýsingaöflun
Ég skora á alla fjölmiðla að
koma heiðarlega fram við væntan-
lega kjósendur og frambjóðendur,
með því að setja af stað með mikl-
um krafti upplýsingaöflun og birta
með áberandi, skipulegum og að-
gengilegum hætti hvers þeir verða
fróðari um þá sem nú bjóða sig
fram til þess mikilvæga embættis
sem staða forseta íslands er.
KRISTÍN S. KVARAN.
Höfundur er kaupmaður.
Kristín S. Kvaran
(
Æ
glæsileg, öflug og metnaöarfull
Komdu og kynntu þér ^§[
AcerAspire margmiðlunartölvuna
í Heimilistækjum, í Sætúni 8.
AcerAspire hlaut nýverið 17 verðlaun
í flokki heimilistölva hjá hinu virta
tölvutímariti PC Magazine:
• Nýstárlegt og fallegt útlit
• Uppsetning á hvers manns færi
• Hönnuð með þægindi og réttar
vinnustellingar í huga
Að auki er hún aflmikil og gædd öllum þoim
tæknilegu kostum sem margmiðlunartölva
nútímans þarfað vera búin.
pentium
Heimilistæki hf
TÆKNI-OG TOLVUDEILD
SÆTÚNI B SlMI 5691500
AceR
Fréttastofa
eða kosninga-
skrifstofa?
FYRIR þá sem eru
áhorfendur að kosn-
ingabaráttu vegna
væntanlegra forseta-
kosninga, hefur sitt-
hvað rekið á fjörurnar
sem eftirtekt hefur
vakið. Eitt af því sem
virkar einna forvitni-
legast er afstaða fjöl-
miðla til þessara kosn-
inga. Eftir upphafleg
þyngsli og síðbúna
kynningu eru þeir
komnir á fulla ferð
með viðtöl og frásagn-
ir af fundum. Þá hefur
umræðan um eðli for-
setaembættisins og æskilega eig-
inleika væntanlegs forseta orðið
nokkuð fyrirferðarmikil í fram-
haldi af ítarlegri umfjöllun Jóns
Baldvins Hannibalssonar um það
efni hér á síðum Morgunblaðsins.
Allir stærstu fjölmiðlarnir hafa
tekið þátt í þeirri umfjöllun og
margt gert vel.
Það hefur einnig einkennt þessa
baráttu fram til þessa að lítið hef-
ur verið um persónulegar svívirð-
ingar eða aðra neikvæða umfjöllun
um einstaklinga, ef frá eru talin
nokkur aumkunarverð lesenda-
bréf, sem mest hafa skaðað ritara
bréfanna. Það er jákvætt og þakk-
arvert.
Einn er þó sá þáttur þessarar
baráttu sem komið hefur áhorf-
endum á óvart. Það er þáttur
Stöðvar 2. Þar á bæ virðast menn
hafa tekið beinharða afstöðu með
Ólafi Ragnari Grímssyni. í frétta-
tíma á fímmtudagskvöldið 6. júní
var furðulag frétt um að Pétur
Kr. Hafstein forsetaframbjóðandi
hefði sagt ósatt í frambjóðenda-
kynningu kvöldið áður, þegar hann
sagðist ekki hafa tekið þátt í
flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins
undanfarin ár né gegnt þar trún-
aðarstörfum. Til marks um það
var tekin blaðagrein, sem Pétur
skrifaði vorið 1991, þegar form-
annskosningar stóðu fyrir dyrum
þar á bæ. Þetta vakti athygli mína,
því fyrir mér var það nýlunda að
ritun einnar greinar jafngilti þátt-
töku í flokksstarft. Það er allt
annað að hafa skoðun á tveimur
einstaklingum sem keppa um emb-
ætti og taka þátt í flokksstarfí.
Ekki fór á milli mála að verið var
að reyna að gera Pétur tortryggi-
legan og væna hann óbeint um
ósannsögli.
Þröstur
Ólafsson
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvclli
og Rábhústorginu
|Hair0utihlaMb
-kjarni málsins!
Nú er sá sem þetta
skrifar enginn sér-
stakur talsmaður Pét-
urs Kr. Hafstein. Mér
varð bara hugsað til
sumra annarra fram-
bjóðenda, sem ekki
eru alveg fortíðarlaus-
ir og hægt væri, ef
vel er leitað, að finna
ýmislegt um, sem
ekki væri allt jafn
þægilegt. Það er
óneitanlega viss þver-
stæða í þesskonar
fréttaflutningi þar
sem annarsvegar fer
fram grannskoðun á
þessu skrifi Péturs og svo grafar-
þögn um fortíð annarra frambjóð-
enda hinsvegar, þ. á m. um um-
deildan feril Ölafs Ragnars
Grímssonar.
Utanaðkomandi áhorfandi hlýt-
ur að spyija sig hveiju þetta sæti,
hverra erinda fréttastofan sé að
ganga.
En þetta er ekki eina dæmið í
þessa veru hjá fréttastofunni. Um
daginn var birt frétt um félag sem
hafði keypt gamalt drykkjarhorn
í útlöndum til að gefa Þjóðminja-
safni íslands. Þá var smá kálfi
fléttað aftanvið fréttina til að
koma því kyrfilega á framfæri að
eiginkona Ölafs Ragnars væri í
stjórn félagsins.
Nokkrum dögum síðar vakti
þessi fréttastofa rækilega athygli
á klaufalegum ummælum stuðn-
ingsmanns Péturs Kr. Hafsteins á
Akureyri um konur í framboði.
Var með þessu verið að gefa í
skyn að ummælin lýstu afstöðu
frambjóðandans?
Ég las á sama tíma heldur sóða-
leg ummæli stuðningsmanns Ólafs
Ragnars um ákveðna einstaklinga,
sem hvorki mér né Stöð 2 datt í
hug að sýndu afstöðu Ólafs Ragn-
ars Grímssonar.
Samhengið varð mér ekki ljóst
fyrr en mér barst til eyrna að Sig-
urður G. Guðjónsson hrl., sem er
lögmaður Stöðvar 2 og stjórnar-
maður þar, er einnig umboðsmað-
ur Ólafs Ragnars Grímssonar í
forsetakosningunum. Afstaða
fréttastofunnar virðist því byggj-
ast á efnismeiri tengslum en ætla
mætti. Þetta er gagnlegt að vita,
svo við getum framvegis tekið
„fréttum" Stöðvar 2 með hæfileg-
um fyrirvara. Ég veit að fjölmörg-
um unnendum fijálsrar fjölmiðlun-
ar stendur ekki á sama um með
hvaða hætti þetta frelsi er ræktað.
Það úrkynjast auðveldlega ef því
er misbeitt.
ÞRÖSTUR ÓLAFSSON.
Höfundur er hagfræðingur.
mmmmm
BOKHALDSKERFI
STÓLPI fyrir Windows er
samhæfður Word og Excel.
Sveigjanleiki í fyrirrúmi.
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055