Morgunblaðið - 13.06.1996, Síða 46

Morgunblaðið - 13.06.1996, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Faðir okkar, BERGÞÓR ÓLAFSSON THEODÓRS húsasmíðameistari, Bólstaðarhlið 8, lést á heimili sínu 9. júní. Fyrir hönd tengdabarna, barnabarna og annarra ættingja. Ólafur Bergþórsson, Sigríður Ólafía Bergþórsdóttir, Bergþór Bergþórsson, Helga Theodóra Bergþórsdóttir. t Okkar ástkæra stjúpmóðir, HELGA SOFFÍA ÞORGILSDÓTTIR fyrrverandi yfirkennari, áðurtil heimilis á Víðimel 37, Reykjavik, andaðist á Droplaugarstöðum 11. júní sl. Jarðarförðin auglýst síðar. Fyrir okkar hönd og annarra vanda- manna, Gunnfinna Þorsteinsdóttir Green, Valgerður Þorsteinsdóttir, Valmundur Þorsteinsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURJÓN DAVÍÐSSON, Álfhólsvegi 34, Kópavogi, andaðist í Landspítalanum 11. júní. Guðlaug Einarsdóttir, Björgvin Sigurjónsson, Sædis Magnúsdóttir, Björn Sigurjónsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MAGNÚS ÞÓRARINSSON, Álfheimum 48, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 11. júní. Guðbjörg Jónsdóttir, Þórarinn Magnússon, Sigrún Reynisdóttir, Kristinn Magnússon, Hanna Bjartmars Arnardóttir og barnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HELGASON, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Akranesskirkju föstudaginn 14. júní kl. 14.00. Helgi Sigurðsson, Stefanía Sigmarsdóttir, Sigrún Erla Sigurðardóttir, Haukur Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR, sem lést þann 5. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. júní kl. 13.30. Elias Ragnar Gissurarson, Vera Snæhólm, Þórdís Gissurardóttir, Sverrir Þórólfsson, Hákon Örn Gissurarson, Valdfs Kristinsdóttir, Hjördis Gissurardóttir, Geir Gunnar Geirsson, Magnús Þórarinn Gissurarson, Anna Ágústa Hauksdóttir, Ásdís Gissurardóttir, Ragnar Thor Sigurðsson og barnabörn. GUÐMUNDUR JÓHANNESSON + Guðmundur Jó- hannesson, bóndi frá Króki í Grafningi, fæddist í Eyvík í Grímsnesi 12. október 1897. Hann lést á hjarta- deild Landspítal- ans 6. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jóhannes Ein- arsson, Einarsson- ar Einarssonar, all- ir bændur að Eyvík og Guðrún Geirs- dóttir frá Bjarna- stöðum í Gríms- nesi. Þau áttu fimm syni og tvær dætur, sem öll komust upp. Eiginkona Guðmundar var Guðrún Sæmundsdóttir, fædd í Reykjavík 7. ágúst 1904, d. 17. júní 1987. Foreldrar henn- ar voru Sæmundur Þórðarson, múrari í Reykjavík, ættaður frá Lækjarbotnum í Lands- sveit og Guðlaug Jóhannsdótt- ir frá Baugsstöðum í Flóa. Guðrún og Guðmundur eign- uðust átta börn. Þau eru Egill, f. 13. maí 1921 í Eyvík, Guðrún Mjöll, f. 17. september 1923 á Nesjavöllum, d. 29. mars 1995, Aslaug Fjóla, f. 25. febrúar 1926 á Nesjavöll- um, Jóhannes Þór- ólfur Gylfi, f. 20. maí 1931 í Króki, Sæunn Gunnþór- unn, f. 15. júní 1933 í Króki, Jóhanna, f. 12. ágúst 1936 í Króki, Elfa Sonja, f. 28. mars 1945 í Reykjavík, og Erlingur Þór, f. 1. desem- ber 1947 í Reykjavík. Afkom- endur Guðrúnar og Guðmund- ar eru 99 talsins í dag, en hundraðasti afkomandinn er væntanlegur eftir þijár vikur. Útför Guðmundar Jóhannes- sonar fer fram frá Langholts- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Jarðsett verður í kirkjugarðinum við Úlfljóts- vatn í Grafningi. Guðmundi Jóhannessyni bónda frá Króki í Grafningi mun hafa lið- ið vel í föðurgarði sínum, Eyvík. Hann lýsti foður sínum svo, að hann hefði verið greindur maður og frjáislyndur í hugsun. Aldrei varð honum sundurorða við móður sína og enga óvildarmenn mun hún hafa átt. Gætu þessar lýsingar átt við Guðmund sjálfan, þegar litið er yfir æviveg hans. Vorið 1921 hófu þau Guðmundur og Guðrún búskap í Eyvík, þeirra félagi gerðist Jóhann, bróðir Guðmundar. Kolbeinn bróðir þeirra hóf um sama leyti búskap á hinum helmingi jarðarinnar. Guð- mundur fann að þröngt var um í Eyvík, en hvergi var jarðnæði að fá í Grímsnesi. Gnægt var lausra jarða við Þingvallavatn. Honum var ljós sú staðreynd að eyðijarðir við Þing- vallavatn væru illa hýstar, girðingar engar en beitiland nokkurt og veiði mikil. Rétt er að geta hér einnar ferðar Guðmundar í leit að jörð til ábúðan Einn dag í fögru veðri í marz- mánuði árið 1922 lagði hann af stað í jarðarleit. Ferðinni var heitið að Þingvaliavatni. Frá Eyvík fór hann á skíðum að Svínavatni, þaðan norður á Lyngdalsheiði. Á háheið- inni skildi hann skíðin við sig vegna slæms skíðafæris. Stakk hann þeim í skafl og gekk eftir það. Eftir lið- lega tveggja tíma ferð frá Svína- vatni kom Guðmundur að helli nokkrum, skammt ofan við Laugar- dalsvelli. Veðrið var milt, krapaelg- ur eftir hláku og ungi bóndinn bull- votur í fætuma. Hann sá enga skepnu, beitarhús hellisbúanna vom úti í Bjarnaskarði. Allt var hvítt af snjó. Mjög stór gluggi var á timbur- gafli í hellismunnanum. Er hann kom að dyrum hellisins, birtist hús- freyjan útifyrir, heilsaði og bauð Guðmundi inn. Kannaðist hún við föður hans. Var honum boðið upp á kaffi og meðlæti inni í hellinum. Húsnæði þetta var þiljað innan og fannst Guðmundi vistlegt þar. Innst í hellinum var bergleki, notaður sem vatnsból. Hlýlega var þama í heliin- um tekið á móti lúnum ferðamanni en eftir skamma viðdvöl lá leiðin að Gjábakka, sem þá var í eyði. Síðan að Skógarkoti þar sem gist var um nóttina hjá Jóhanni Krist- jánssyni bónda og konu hans. Morg- uninn eftir hélt Guðmundur enn gangandi að Svartagili sem þá var í eyði með afar lélegum moldarkof- um, en beitiland fagurt. Þaðan fór Guðmundur að Þing- völlum, til séra Jóns. Eggjaði prest- ur Guðmund á að taka Gjábakka til ábúðar. Hafði Guðmundur hug á því, en féll frá því síðar, m.a. vegna vandkvæða á að hemja fé sitt frá Eyvík þar. Mun það hafa valdið séra Jóni vonbrigðum að ná ekki þessum unga manni í sveitina. Frá Þingvöllum fór Guðmundur að Arnarfelli við Þingvallavatn. Þar var jörðin til leigu og húsin til sölu, en ekki samdist þar. Á bakaleið til Eyvíkur tók Guðmundur skíði sín úr skaflinum á Lyngdalsheiðinni. Kom hann að Stóru-Borg, örþreytt- ur og matarþurfi. Síðan kom hann heim til Eyvíkur, jarðarlaus. (Þessi frásögn gefur lítinn útdrátt um þeirra tíma erfiðleika, samgöngur, ákveðni og dugnað þessa fólks að sjá sér og sínum farborða.) Jörðin Nesjavellir í Grafningi losnaði til ábúðar 1923. Tóku þeir bræður, Guðmundur og Jóhann, jörðina á leigu. Fagran vormorgun í áliðnum júní var Guðmundur ferð- búinn ásamt skylduliði sínu á hlað- inu í Eyvík. Söknuður var í sinni unga fólksins, ekki síst Guðrúnar, en henni hafði liðið vel í Eyvík. Jóhannes gamli var kvaddur en Guðrún kona hans var þá látin. Þrír hestar voru til ferðarinnar, einn sat Guðrún í söðli þá 19 ára gömul með Egil son sinn tveggja Minnismerki úr steini Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki. Áralöng reynsla. SKEMMUVEGI 48 • SlMI 557 6677 ags. HELGASON HF ISTEINSMIÐJA 4W \ 4W VM(.»J* JH «M M4N ára, bundinn við hana með trefli. Laufey systir hennar sat annan ( hest, þeim þriðja var beitt fýrir vagn. Guðmundur og Jóhann teymdu vagnklárinn og kýmar. í vagninum var m.a. sængurfatnað- ur, pottar og önnur eldhúsáhöld. Seinna voru ýmsir aðrir munir og féð sótt til Eyvíkur. Um kvöldmat- arleytið komu þau að Úlfljótsvatni og gistu þar hjá þeim hjónum Kol- ,, beini frá Hlíð og Geirlaugu frá Nesjavöllum. Næsta dag var komið ■ að Villingavatni til Magnúsar ( Magnússonar og Þjóðbjargar Þor- geirsdóttur. Svo feginn var bóndinn á Villingavatni, er hann heimti þetta unga fólk í sveit sína, að hann leiddi kú Guðmundar beint í slægju. - Síðan hélt fólkið áfram með kerruna upp Grafning og enginn vegur þar, en rudd hafði verið kerrubraut frá Villingavatni að Hagavík. Það gerði | Guðbjöm í Hagavík, en hann fór síðar í vatnið. Frá Hagavik var skrönglast eftir gamalli hestagötu I að Nesjavöllum. Þar var fátæklegt og frambýlingslegt um að litast. Moldargólf var í gangi og eldhúsi, sem var hlóðaeldhús, timburgólf annars staðar og gamall baðstofu- stíll að öðm leyti. Nóg var til mat- ar, ijúpan ropaði á stéttinni, ijúpna- súpa þótti góð. Bleikja og urriði veiddur í Þingvallavatni, étinn salt- aður og nýr. Silungur gaf nokkuð í aðra hönd, mikið fyrir því haft, rekið í nótt eftir nótt, veiðin borin heim á bakinu sem var klukku- stundargangur frá vatni og þung, ef vel veiddist. Síðan var farið með silung Dyraveg að Kolviðarhóli, sem var þriggja tíma lestarferð og erfið með baggahest. Þaðan flutt með bifreið til Reykjavíkur. Árið 1927, eftir íjögurra ára búsetu á Nesjavöilum, festu þeir bræður kaup á jörðinni Króki í Grafningi. Þetta var talin dijúg bújörð ásamt veiði í Þingvallavatni frá Hagavík að Ölfusvatnsfjalli. í Króki var unnið af dugnaði að upp- byggingu staðarins, túnrækt, áveit- um og virkjun kom þar árið 1929 og var með þeim fyrstu á landinu. Áður en nokkur traktor kom, var bústærðin 550 ær, átta kýr í fjósi og átta hross. í Króki var veiði stunduð jafnhliða búskap. Þar var gestkvæmt mjög og búskaparreisn hin mesta hjá þeim Guðmundi og Guðrúnu. Jóhann bróðir Guðmund- ar lést fyrir aldur fram 9. nóvem- ber 1937, þá 38 ára að aldri. Var þá höggvið mikið skarð í fylkingu unga fólksins sem lagði upp frá Eyvík í upphafi. Guðmundur og Guðrún lögðu af búskap í Króki árið 1958. Egill son- ur þeirra tók þá við búinu. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu hafði Guð- mundur aldrei misst sjónar á því merki sem hann leitaði að. Hann hafði unnað fegurð, leitað hennar og fundið hana í hrikalegu og und- urfögm umhverfi sögufrægra slóða við Þingvallavatn. Fagra sjáðu Grafningsgrund, gróðri stráðan völlinn. Vötnin bláu, laufgan lund, ljósbrýn háu piin. (Guðm. Jóh.) Þau hjón festu kaup á íbúð í Ljós- heimum 4 í Reykjavík og hefur hann búið þar síðan. Hann tók jörð- ina Krýsuvík á leigu og bjó þar árin 1962 og 1963. Guðmundur vann eftir það við rif á mótatimbri utan af nýbyggingum og vann við það fram á 93 ára aldur. Þá missti hann vinnuna, því allir hans vinnu- veitendur voru hættir eða látnir. Guðmundur var víðlesinn og unni mjög ljóðum Einars Benediktssonar og einn vísasti maður hérlendis um þann kveðskap. Sjálfur orti hann talsvert og ekki síður nú á seinni ámm. Andleg og líkamleg orka þessa manns var undraverð. Islenska heil- brigðiskerfið náði aldrei til hans, fyrr en undir það síðasta, er hann féllst á að fara á sjúkrahús og var hann þar einn sólarhring áður en yfir lauk. Var það hans fyrsta og síðasta spítalavist. Guðmund Jóhannesson langaði að mæta á kristnitökuhátíðina á Þingvöllum árið 2000 og hefði hann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.