Morgunblaðið - 03.08.1996, Síða 35

Morgunblaðið - 03.08.1996, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1996 35 MINNINGAR GUÐJON JÓNSSON + Guðjón Jónsson fæddist í Flatey á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu 11. ágúst 1912. Hann lést 27 . júlí síðast- liðinn Foreldrar hans voru Jón Jóns- son, f. 31.10. 187.5, d. 2.9. 1940, bóndi í Flatey, Jóns Þor- steinssonar frá Felli í Suðursveit og Steinunnar Jóns- dóttur frá Kálfa- felli, og Guðrún Sig- urðardóttir, f. 25.3. 1879, d. 11.3. 1966, Sigurðar Benediktssonar bónda á Vind- borði og Guðnýjar Sigurðar- dóttur, Sigurðar bónda í Flatey. Guðjón var yngstur fimm systkina en þau voru: Guðný Sigurbjörg, f. 8.10. 1903, d. 30.6. 1970, gift Vilhjálmi Guð- mundssyni, f. 21.8. 1900, d. 10.3.1992, og áttu þau sex börn og eru fjögur þeirra á lífi. Steinunn Sigríður, f. 2.8. 1904, Með söknuð í hjarta kveð ég þig í dag, elskulegi föðurbróðir og vin- ur. Eg hafði stefnt á að hitta þig í sumarfríi mínu _en vinur þinn og samhetji Óli Þ. Óskarsson hafði að- varað mig með að tímamörkin yrðu nær en þú vildir vera láta. En atvik- in höguðu því þannig að þú náðir ekki að þrauka komu minnar. En þú þessi eljusami maður sást ekki mikinn tilgang í að hanga yfir engu, enda trúi ég að nú sértu kominn í góðra vina félagsskap þeirra geng- inna hestamanna og annarra sem héldu gjarnan sínar hátíðir hjá þér í Austurbænum í Flatey. Guðjón gerði ekkj víðreist um ævina og eftir lát föður síns hélt hann bú ásamt Steinunni systur sinni með móður sinni og uppeldis- syni hennar, Sigurði. En á þeim árum var bærinn Flatey í þjóðbraut. Flestar ár í sýslunni óbrúaðar, Hornafjarðarfljót nánast ófært allt sumarið og einu samgöngur til vest- urs sjóleiðis frá Höfn um Melatanga til Flateyjar. Þá voru ferðamenn ekki sauðsvartur almúgi heldur vís- indamenn, listamenn og auðmenn utan úr heimi er vildu kynnast þess- um frumbyggjum norður í Ballar- hafi. Þótt Guðjón hefði ekki þá náð- argáfu systur sinnar sem gat numið allt utan að er hún heyrði eða las þá náði hann púlsi þessara manna, gat látið þá tjá sig þótt á framandi tungumáli væri og þannig varð Guð- jón að mínu viti „heimsborgari" löngu áður en við íslendingar vissum hvað það þýddi. Þessi náðargáfa hans naut sín er Suðursveitungar komu með reksturinn á haustin og höfðu lokaáfanga rekstursins frá Flatey. Guðjón gat fengið þessa sag- naglöðu menn til að tala og segja sögur, græskulausar um sig og ná- ungann - trúlega uppdiktaðar á stundinni - svo lengi lifði nætur. Þótt þetta stæði í viku hélt lífsbar- átta áfram því öll vinna var unnin með handverkfærum og hver dagur dýrmætur. Stundum fannst okkur nóg um, til dæmis þegar Guðjón var lungann úr sumrinu með finnskum vísindamanni að rannsaka skrið jökla og lét fóstbróður sínum, Sig- d. 20.5. 1966, ógift. Lovísa, f. 1.8. 1905, gift Stefáni Einars- syni, f. 14.6. 1905, og eiga þau tvö börn. Þau eru nú vistmenn á DAS í Hafnarfirði. Sig- urður, f. 19.8. 1906, d. 30.9. 1982, kvæntur Hildi Ingi- björgu Halldórs- dóttur, f. 3.5. 1894, d. 24.4. 1945, og eignuðust tvo syni. Þá tóku þau Jón og Guðrún í fóstur Garðar Sigjónsson frá Vest- mannaeyjum. Einnig ólu þau hjón upp dótturson sinn Sigurð Vilþjálmsson, f. 27.4. 1929, sem dvaldi í Flatey þar til er hann lést af slysförum á Höfn 19.3. 1967. Utför Guðjóns verður gerð í dag frá Brunnhólskirkju á Mýr- um, Austur-Skaftafellssýslu, og hefst athöfnin klukkan 14. urði, ásamt hálfdrættingunum eftir að afla heyja. Þá kom það og fyrir að hlaup kom úr Vatnsdal og fleyttu burtu daga eða vikna vinnu eftir því hvernig á stóð. Fyrstu afskipti frænda af mér voru er sækja þurfti ljósmóður að Brunnhól þann 16. september 1934, en þá stóð svo á að Vatnsdalshlaup var í algleymingi og var þá eyrarlaus vatnsflaumur frá Eskeyjaroddum að Kálfhólslandi á að giska 2,5-3 km. Þessa ferð fóru þeir Guðjón og Bergur Þorleifs- son úr Vesturbænum í Flatey í nátt- myrkri og skiluðu ljósunni klakk- laust á leiðarenda vegna meðfæddr- ar reynslu sinnar af umhverfinu og eðlisgreind hestanna. Auðvitað var skapferli þessara bænda háð duttl- ungum veðurfars, en Guðjón hafði tileinkað sér vinnusálfræði föður síns, stuttar vinnulotur og þannig fékk hann hámarks afköst út úr óhömuðum unglingum sem dvöldu sumarlangt í Flatey. Þótt þá frænd- ur greindi á um ýmislegt höfðu þeir sammælst um að hefja nútíma bú- skap, rækta upp jökulurðina - sem og þeir og hófu, nota nýjustu tækni - fyrstir íslendinga - en þá gripu örlögin inn í, systir hans og móðir féllu frá og félagi hans og frændi, Sigurður Vilhjálmsson, fórst, allar framtíðaráætlanir um að hið víðf- eðma Iand Flateyjar yrði að grænum túnum hrundu til grunna. Mitt í þessum þrengingum bauðst þeim Flateyjarbændum að selja landið til graskögglaverksmiðju og trúðu þeir því að þá væri málunum borgið en allir vita hvemig stefna ríkisstjórnar hefur verið í landbúnaðarmálum síð- ustu áratugi. Þá komu ung hjón úr Reykjavík og vildu halda verkinu áfram þrátt fyrir skilningsleysi ríkisvalds og öf- und sveitunganna, Austur-Mýra- manna, sem allt í einu töldu sig eiga nytjarétt af landi sem þeir hafa aldr- ei viljað vita af eða haft nytjar af. Þeir félagar fundu sig í barátt- unni og héldu ótrauðir hugmyndum Guðjóns um framtíð Flateyjarlands áfram. Er enginn vafi að þau hjón Óli Óskarsson og hans ágæta kona efldu honum styrk og gáfu honum t Okkar kæra systir og mágkona, BRYNHILDUR STEINÞÓRSDÓTTIR (Stella), sem andaðist í Kaupmannahöfn 9. júlí, verður kvödd frá Fossvogskapellu mið- vikudaginn 7. ágúst kl. 13.30. BirgirSteinþórsson, Kristín Ingimundardóttir. trú á framtíðina og þær hugsjónir sem hann bar í brjósti. Ég og kona mín áttum þess kost að fá hann sem ferðafélaga með Eddunni, skemmtiferðaskipi, sem sigldi frá Reykjavík til Evrópu árið 1983. Þá birtist „heimsborgarinn úr sveitinni", hann þekkti alla unga sem gamla, gat vakað fram á elleftu stund (næturklúbburinn lokaði klukkan 6 að morgni). Þegar gest- gjafar í náttstað í nágrenni Parísar uppgötvuðu að Guðjón var afmælis- bam dagsins var honum haldin dýr- leg afmælisveisla. Þótt þekking gest- gjafa á íslandi hafi verið úr alfræði- bók frá 1850, skorti ekkert á göfug- lyndi þeirra og um tjáskipti þeirra veit undirritaður ekki því hann átti að _aka til Versala daginn eftir. Á áttræðisafmæli Guðjóns áttum við hjón leið um Frakkland og vildum við gjarnan heimsækja þessi ágætu hjón og fórum fram á að Guðjón kæmi með því annars væri heim- sóknin gagnslaus. En þá bar hann við slæmsku og óáran. Ekki grunaði okkur þá að hann væri heltekinn af þeim sjúkdómi er nú hefur yfirbugað þennan mann sem þó mátti þola bæklun vegna slyss frá unga aldri Hugljúfar þakkir fylgi þér inn í sólarlönd framtíðarinnar. Þinn frændi og vinur, Sölvi Sigtirðsson. Guðjón Jónsson fæddist í Flatey á Mýrum. Guðjón bjó alla sína ævi í Flatey, fyrst með foreldrum sínum en tók ungur við forræði búsins eft- ir lát föður síns. Lengi bjó hann með móður sinni, systur og systursyni. Á miðjum sjöunda áratugnum stóð Guðjón allt í einu einn uppi með búið í Flatey eftir lát þeirra sem með honum biuggu sem öll féllu frá á einu ári. Eftir það bjó Guðjón einn í Flatey að undanskildum tveimur síðustu árum hans þegar hann stríddi við hinn erfiða sjúkdóm sem leiddi hann til dauða. Þann tíma dvaldi hann í Skjólgarði á Höfn og vil ég sérstaklega þakka því fólki sem annaðist hann þar. I uppvexti mínum dvaldi ég öll sumur hjá frændfólki mínu í Flatey og hlaut þar stóran hluta þess upp- eldis og veganestis sem vel hefur dugað. Að sjálfsögðu var Guðjón sá sem mesta ábyrgð bar og áhrif hans og lífsviðhorf meitluðust í hug manns og lifðu þar síðan. Guðjón eignaðist ekki börn en fáir hafa skilað jafn stóru uppeldis- hlutverki sem hann, því öll sumur í hans búskap voru böm og unglingar undir hans forsjá. Hann umgekkst þessa unglinga eins og fullorðið fólk og treysti þeim eins og sjálfum sér til allra verka en studdi þá án þess að eftir væri tekið, nýtti vel hæfí- leika þeirra og veitti þeim sjálfs- traust. Lærðir uppalendur hefðu ekki gert þetta betur. Guðjón lifði með þá hugsjón að skulda ekki neinum neitt enda var örlætið og hjálpsemin svo rík í blóði hans að þakkir til hans fyrir greið- ann komust ekki fyrir. Guðjón átti þess ekki kost frekar en margir aðrir á þeim tíma að njóta menntunar en samt var hann vel að sér um alla hluti og fylgdist grannt með öllu og gat rætt hvaða málefni sem var enda nutu menn návistar hans. Ég tel mig geta mælt fyrir munn alls þess æskufólks sem naut hand- leiðsu hans. Hafðu þakkir okkar allra og við munum minnast þín sem mannsins með stóra hjartað. Guðmundur Sigurðsson. Sérfræðingar í blómaskreytinguiu við öll tækil'æri blómaverkstæði INNAfe Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími. 19090 t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR PÉTURSSON, Skúlagötu 40B, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 24. júlí. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Svava Sigurðardóttir Rúdólf Ingólfsson, Ruth Arelíusdóttir, Sigrún Ingólfsdóttir Wood, Clifton Wood, Urinur Ingólfsdóttir, Gunnar H. Tyrfingsson, Jean Jensen, Guðrún Hlíðar, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, JÓHANN BJARMI SÍMONARSON fyrrverandi skrifstofustjóri, Klettaborg 4, Akureyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 2. ágúst síðastlið- inn. Freygerður Magnúsdóttir, Þorleifur Jóhannsson, Olga Ellen Einarsdóttir, Símon Jón Jóhannsson, Hallfríður Helgadóttir, Gfgja Símonardóttir, Sverrir Sigurðsson og barnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI GUÐMUNDSSON, Skriðustekk 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. ágúst kl. 13.30. Laufey Ólafsdóttir, Ólafur Rúnar Árnason, Ása Ásgrímsdóttir, Guðmundur Árnason, Guðrún Samúelsdóttir, Sigurður Árnason, Guðbjörg Skjaldardóttir, Þráinn Árnason, Unnur Vilhjálmsdóttir, Már Árnason, Valdís Snorradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, bróðir og venslamaður, HAUKUR HELGASON ritstjóri, Lundarbrekku 6, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn 7. ágúst kl. 13.30. Nanci Arnold Helgason, Marfa Kristoffersen, Steen Kristoffersen, Mikael, Daniel og Robert, Bertha Richter, Þórhallur Gunnlaugsson, Karen og Ástþór, Dagný Michelle Jónsdóttir, Kristján Guðmundsson. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eigin- konu, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ELÍNBORGAR DRAFNAR GARÐARSDÓTTUR (Boddu), Háuhlið 14, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra- húss Sauðárkróks, sjúkradeild, fyrir góða umönnun og hlýhug. Friðrik A. Jónsson, Anna Sigriður Friðriksdóttir, Hörður Ólafsson, Elínborg Björk Harðardóttir, Hrafn Guðmundsson, Ólafur Friðrik Harðarson, Lísa Dröfn Harðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.