Morgunblaðið - 10.08.1996, Síða 1
72 SÍÐUR B/C
179.TBL.84.ÁRG. LAUGARDAGUR10. ÁGÚST1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Varaforsetaefni
repúblikana
Kemp lík-
legastur
Washington. Reuter.
BANDARÍSKIR fjölmiðlar töldu í
gær líklegast að Jack Kemp, fyrrver-
andi húsnæðismálaráðherra, yrði
fyrir valinu sem varaforsetaefni
repúblikana í forsetakosningunum í
Bandaríkjunum 5. nóvember.
CN’JV-sjónvarps-
stöðin hafði eftir
heimildarmönnum
að Dole hefði
hringt í Kemp síð-
degis í gær og boð-
ið honum að verða
varaforsetaefni og
Kemp fallist á það.
Dole sagði _ þetta
ekki rétt. „Ég hef
ekki boðið neinum
þetta - ég hef ekki hringt í nokkurn
mann.“
Aður hafði Dole sagt fréttamönn-
um að hann hefði gert upp hug sinn
en vildi ekki skýra frá því strax
hver hefði orðið fyrir valinu. Hann
hyggst tilkynna ákvörðun sína í
Kansas í dag. Dole og varaforseta-
efni hans verða tilnefndir formlega
á landsþingi repúblikana í San Diego
á miðvikudag.
Kemp er frá New York og átti
sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
í 18 ár og var húsnæðismálaráð-
herra í stjórn George Bush á árunum
1988-92. Hann er 61 árs og hallur
undir þá kenningu að skattalækkan-
ir séu nauðsynlegar til að stuðla að
hagvexti og sé rétt að þeim staðið
dragi þær ekki úr tekjum ríkisins.
Vegna þessarar afstöðu hefur hann
stundum verið á öndverðum meiði
við Dole, sem hefur þar til nýlega
ekki viljað beita sér fyrir miklum
skattalækkunum vegna fjárlagahall-
ans.
Að sögn bandarískra fjölmiðla
kemur Connie Mack, öldungadeild-
arþingmaður frá Flórída, einnig til
greina sem varaforsetaefni.
Bob Dole
Rússlandsforseti sver embættiseið í skugga blóðsúthellinga í Grosní
Reuter
FRÁ innsetningarathöfninni í Kremlarhöll. Frá vinstri eru Vladímír Túmanov, forseti stjórnlagadómstólsins, Níkolaj I\jabov, formað-
ur yfirkjörstjórnarinnar, Viktor Tsjernomyrdín, forsætisráðherra, Borís Jeltsin, forseti, Jegor Strojev, forseti efri deildar þingsins,
Gennadí Seleznjov, forseti neðri deildarinnar, og Aleksí II, patríarki í Moskvu. 3.000 gestir voru við athöfnina.
Jeltsín segir fríðarvið-
ræður einu lausnina
Viðræður um vopnahlé tii að bjarga
íbúum Grosní og særðu fólki
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín sór embættiseið sem forseti Rússlands við hátíðlega athöfn
í Kremlarhöll í gær. Mannskæð átök í Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju, vörp-
uðu skugga á innsetningarathöfnina og Jeltsín sagði að árásum tsjetsj-
enskra aðskilnaðarsinna yrði svarað af fullri hörku en hins vegar væru
frekari friðarviðræður eina leiðin til að binda enda á stríðið. Rússneskir
og tsjetsjenskir embættismenn komu saman til að ræða hugsanlegt vopna-
hlé til að hægt yrði að koma hundruðum særðra manna á sjúkrahús og
gefa tugum þúsunda óbreyttra borgara færi á að flýja borgina.
„Aflát hjá
einkatölvu“
Bonn. Rcuter.
NÝJU forriti, sem gefur fólki
kost á að játa syndir sínar fyr-
ir tölvunni sinni, hefur verið
illa tekið hjá kaþólsku kirkjunni
í Þýskalandi. Eru kirkjunnar
menn allt annað en ánægðir
með þennan nýja skriftaföður.
Talsmaður þýska biskupa-
ráðsins sagði, að forritið ætti
ekkert skylt við skilning kaþól-
skra manna á játningu synd-
anna enda væri ekki unnt að
biðja um fyrirgefningu þeirra
með því einu að ýta á hnapp.
„Aflát hjá einkatölvu“ eins
og diskurinn heitir er gefinn
út af Lazarus-félaginu í Köln.
Á honum er langt syndaregist-
ur, listi yfír 200 syndir, og af
honum velja menn þær, sem
við eiga hvetju sinni.
„Strax og syndin hefur verið
valin ákveður forritið yfirbót-
ina á grundvelli Boðorðanna
tíu,“ segir í kynningu með
disknum.
Ekkert lát var á bardögunum í
Grosní sem hafa kostað hundruð
manna lífið frá því á þriðjudag.
„Yfirmenn rússnesku hersveitanna
hafa gjörsamlega misst tökin á
ástandinu,“ hafði fréttastofan
Interfax eftir heimildarmanni í
rússneska hernum. Fréttir hermdu
að liðsauki rússneska hersins, sem
sendur var til Grosní, hefði þurft
að hörfa og að 7.000 hermenn
væru umkringdir aðskilnaðarsinn-
um.
Tugir þúsunda íbúa Grosní haf-
ast við í kjöllurum og rússneska
stjórnin hét því að „stöðva blóðbað-
ið sem allra fyrst og losa Grosní
við glæpamennina". Stjórnin lýsti
aðskilnaðarsinnunum sem hryðju-
verkamönnum sem víluðu ekki fyrir
sér að drepa tsjetsjenska samborg-
ara sína.
Jeltsín sagði að markmiðið með
árásum aðskilnaðarsinna í Grosní
væri að eyðileggja vopnahléssam-
komulagið sem hann náði við Ze-
limkhan Jandarbíjev, leiðtoga
þeirra, 27. maí. Hann sakaði enn-
fremur stjórnina í Tsjetsjníju, sem
nýtur stuðnings ráðamanna í
Moskvu, og rússneska embættis-
menn um „gróft vanmat" á styrk
aðskilnaðarsinnanna.
Sergej Sliptsjenko, ritari Tsjetsj-
níju-nefndar rússnesku stjórnarinn-
ar, sagði að leiðtogar aðskilnaðar-
sinna hefðu lagt til að samið yrði
um vopnahlé til að koma særðu
fólki og óbreyttum borgurum úr
borginni. Hann kvað Rússa geta
BORÍS Jeltsín sver embættis-
eiðinn og leggur hönd á sér-
staka útgáfu af stjórnarskrá
Rússlands.
fallist á tímabundið vopnahlé en
sagði óljóst hvort samkomulag
gæti náðst um það.
„Virtist fremur fjörlegur"
Jeltsín þótti ganga stirðlega og
tala hægt við innsetningarathöfnina
og var aðeins í sextán mínútur á
sviðinu í Kremlarhöll. Þetta er í
fyrsta sinn sem forsetinn kemur
fram opinberlega frá 26. júní eftir
erfiða kosningabaráttu.
Jeltsín talaði aðeins í 45 sekúnd-
ur þegar hann sór embættiseiðinn
og hét því að virða og vernda
mannréttindi og stjórnarskrá Rúss-
lands.
Forsetinn virtist sprækari í veislu
sem haldin var eftir athöfnina fyrir
gesti, m.a. erlenda sendiherra og
leiðtoga fyrrverandi sovétlýðvelda.
í skálaræðu sem hann flutti hét
hann því að halda áfram því starfi
sem hann hóf þegar hann var fyrst
kjörinn forseti fyrir fimm árum.
„Hann virtist fremur fjörlegur
þegar hann gekk út,“ sagði vest-
rænn stjórnarerindreki. Ólíklegt er
þó að frammistaða Jeltsíns í gær
verði til þess að lát verði á vanga-
veltum um að hann sé ekki fær um
að gegna embættinu vegna heilsu-
brests.
Fljótlega eftir athöfnina tilnefndi
Jeltsín Viktor Tsjernomyrdín sem
forsætisráðherra næsta kjörtímabil
og Dúman, neðri deild þingsins,
kemur saman í dag til að greiða
atkvæði um tilnefninguna. Líklegt
þótti að Dúman legði blessun sína
yfir Tsjernomyrdín, sem hefur
gegnt embættinu frá því í desember
1992.
■ Látlausathöfnenvirðuleg/16