Morgunblaðið - 10.08.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 10.08.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 11 FRÉTTIR DRÁTTARBÍLL með tengivagn valt á fimmtudag þegar hann beygði inn á Krísuvíkurveg frá því að taka möl í malarnámu Borgartaks hf. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu Hafnar- fjarðar fékk bílstjóri dráttarbíls- ins talsvert höfuðhögg. Vegfar- andi veitti manninum fyrstu þjálp þangað til sjúkrabíll og lög- Dráttar- bíll valt reglan í Hafnarfirði kom á stað- inn. Dráttarbíllinn er stór- skemmdur. Morgunblaðið/Golli Bílstjórinn var fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur. Sam- kvæmt upplýsingum frá læknin- um sem gerði að sárum mannsins var líðan hans þokkaleg og var hann undir eftirliti um nóttina vegna höfuðhöggsins. Betur fór en á horfðist og fékk maðurinn að fara heim í gærmorgun. Vegtenging úr Hvalfjarðargöngum Agreiningnr um kostnaðartölur GUÐMUNDUR Vésteinsson, vara- bæjarfulltrúi á Akranesi, segir við- brögð Halldórs Blöndal samgöngu- ráðherra við áskorun bæjarráðs Akraness um að aðalvegtenging vegna Hvalfjarðarganga verði vest- an Akrafjalls, yfir Grunnafjörð, ófullnægjandi. Hann kveðst undra sig á fullyrðingu ráðherra um að austari vegtengingin væri einum milljarði ódýrari en hin vestari. Hann segir nær lagi að fram- kvæmdir við vestari vegtenginguna auki kostnað við vegtengingu úr Hvalfjarðargöngum um 500-700 milljónir króna. Guðmundur fullyrðir að sú tala sem ráðherra nefni máli sínu til stuðnings sé a.m.k. 3-4 ára gömul. Það sé aftur á móti eindregin áskor- un bæjarráðs Akraness til ríkis- stjórnarinnar allrar að tillögur bæj- arráðs um vestari vegtengingu verði skoðaðar að nýju með jákvæð- um hætti og að menn bindi sig ekki við hluti í fortíðinni. Fleira hangir á spýtunni „í þessu máli hangir fleira á spýtunni en vegagerð," segir Guð- mundur. „Við teljum að þessi veg- tenging geti eflt héraðið með ýms- um hætti. Hér er verið að staðsetja opinbera stofnun og stór sjávarút- vegsfyrirtæki eru að sameinast. Þá eru menn að undirbúa sameiginlega sorpurðun á Mýrum og þessi leið styttir leiðina þangað. Loks hefur yfirlæknirinn á sjúkrahúsinu á Akranesi lýst þeirri stefnu heil- brigðisyfirvalda að Sjúkrahús Akraness eigi að þjóna í vaxandi mæli Snæfellsnesi og Dölum.“ Skólamálastefna samþykkt í annað sinn í bæjarstjórn Hornafjarðar Mikil óánægja meðal foreldra BÆJARSTJÓRN Hornafjarðar sam- þykkti á fundi sínum á þriðjudag samhljóða þá skólamálastefnu sem áður hafði verið samþykkt á fundi 21. mars sl. Samþykktin frá því í mars var kærð til félagsmálaráðuneytis á grundvelli stjórnsýslulaga þar sem þrír bæjarstjórnarmenn sem jafn- framt eru skólamenn tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Félagsmálaráðherra hefur enn ekki úrskurðað í málinu. Þrátt fyrir það var ákveðið að boða til fundar bæjarstjórnar til þess að taka af allan vafa um stefnuna í grunnskóla- málum og um lögmæti afgreiðslunn- ar, að sögn bæjarstjóra Hornafjarð- ar, Sturlaugs Þorsteinssonar. Varamenn kallaðir til Varamenn skólamannanna þriggja voru boðaðir á fundinn og lagði bæjarstjóri sömu tillögu fyrir fundinn og samþykkt var 21. mars sl. Tillagan var samþykkt umræðu- laust og með öllum atkvæðum. Haraldur Blöndal, lögfræðingur foreldra, segir það misskilning hjá bæjarstjórn, telji hún sig hafa lokið málinu með þessari samþykkt. Hann telur að í henni felist viðurkenning eða ótti um að rangt hafi verið farið að í fyrra tilfellinu. Hann segir að fyrri samþykktina verði að ógilda áður en ný sé gerð og vitnar þar til 25. greinar stjórnsýsluiaga þar sem segir að því aðeins sé hægt að aftur- kalla ákvörðun að hún sé ógildanleg. Árétting á fyrri samþykkt Sturlaugur segir að af hálfu bæj- arstjórnar sé þetta ekki afturköllun á fyrri ákvörðun, heldur árétting og staðfesting á fyrri samþykkt. Hann telur vinnubrögð bæjarstjórnar á engan hátt stangast á við stjórn- sýslulögin, sveitarstjórnarlögin eða samþykkt um stjórn Hornafjarðar- bæjar. Bæjarstjórn hafi ekki talið rétt að bíða eftir úrskurði félags- málaráðuneytis með tilliti til þess að skólastarf sé að heijast eftir fáar vikur og formsatriði megi ekki tefja málið. Bráðabirgðalausn Sigurgeir Benediktsson, einn tals- manna foreldra í Hornafirði, segir mikla óánægju ríkjandi meðal for- eidra með þessa afgreiðslu. Hann segir stóran hluta foreldranna vera á móti skólaakstri og telur það ein- ungis vera bráðabirgðalausn að setja fjármuni í uppbyggingu Nesjaskóla. Áuk þess hafi sú þrískipting grunn- skólans sem nú hefur verið ákveðin aldrei verið inni í umræðunni um sameiningu sveitarfélaga. Því hefði þvert á móti verið lofað að skólamál- in myndu verða óbreytt frá því sem verið hefði fyrir sameiningu sveitar- félaganna þriggja, Hafnar, Nesja- hrepps og Mýrahrepps. Dreifing hafin á myndlyklum Stöðvar 3 Dagskránni læst um næstu mánaðamót DREIFING er hafin á myndlyklum Stöðvar 3 og gert er ráð fyrir að dagskrá stöðvarinnar verði læst um næstu mánaðamót. Að sögn Guðmundar Hannesson- ar, þjónustustjóra Stöðvar 3, er far- ið að dreifa myndlyklunum hér og hvar í borginni, en myndlyklana þarf að prófa á sem fiestum svæðum áður en þeir fara í almenna dreif- ingu. Guðmundur segir einnig tals- verða vinnu í því fólgna að þjálfa upp starfsfólk sem sjái um að setja myndlyklana upp, því mikilvægt sé að tengja rétt og það sé ekki einfalt mál. Hjá Stöð 3 leggja menn nótt við dag til að ná að ljúka dreifingu og uppsetningu myndlyklanna og að sögn Guðmundar er lögð geysileg áhersla á að það takist fyrir 1. sept- ember. m ■ ■ -: SVÓgiítobjiiíúu Skógræktarfélögin bjóða gestum í skógarsvæði sín víðsvegar um land, laugardaginn 10. ágúst. Dagskráin hefst kl. 14.00 Vesturland Sk.fél. Akranes Sk.fél. Skilmannahrepps Sk.fél. Borgfirðinga Sk.fél. Heiðsynninga Sk.fél. Stykkishólms Vestfirðir Sk.fél. Barðastranda Sk.fél. Limgarður Sameiginlegur Skógrækt- arardagur Dýrfirðinga, Önfirðinga og ísfirðinga Sk.fél. Strandasýslu Noróurland Sk.fél. A-Húnvetninga Sk.fél. Skagfirðinga Sk.fél. Eyfirðinga Sk.fél. S-Þingeyinga Austurland Sk.fél. Landbót Sk.fél. Borgarfjarðar eystri Sk.fél. Austurlands Sk.fél. Seyðisfjaröar Sk.fél. Neskaupstaðar Sk.fél. Fáskrúðsfjarðar Suðurland Sk.fél.in Mörk Sk.fél. Rangæinga Sk.fél. Selfoss Suðvesturland Sk.fél. Suðurnesja Sk.fél. Hafnarfjarðar Sk.fél. Garðabæjar Sk.fél. Kópavogs Sk.fél. Reykjavíkur Sk.fél. Mosfellsbæjar Slaga við Akrafjall Selhagi Stálpastaöir í Skorradal Hofstaðaskógur í Miklaholtshreppi Grensás við Stykkishólm Birkimelur á Barðaströnd Sveinseyrarskógur í Tálknafirði Stóraurð ofan (safjarðar Hermannslundur Gunnfríðarstaðir (Langadal Hólaskógur í Hjaltadal Hánefsstaðaskógur í Svarfaðardal. Verður haldinn Sunnudaginn 11.ágúst. Fossselsskógur Þorbrandsstaðir Álfaborg Vallarnes Skóghlíð Hjallaskógur Fáskrúðsfjöröur Giljaland í Skaftártungu. Skóguar undir Eyjafjöllum Helliskógur við Selfoss Vatnsholt i Keflavík. Höföaskógur Vífilstaðahlíð, vesturendi Fossá í Hvalfirði Fossvogur, gróörarstöö. Veröa með Skógræktarardag 18. ágúst Hamrahlíð Skógræktarfélag íslands ytgíF Nánari upplýsingar um dagsskrá fást í síma 551 8150

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.