Morgunblaðið - 10.08.1996, Side 40

Morgunblaðið - 10.08.1996, Side 40
40 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ljóska Smáfólk SPIKE'.WHAT ARE YOU D0IN6 IN THE H05PITAL? 'I HAVE THE FLU.. WRITE TO M0M, LÚILL VOU7TELL I4ER TO COME SEE ME.. TELL HER WHERE FRANCE 15..^ Sámur! hvað ertu að gera á Viltu skrifa til Ég skal skrifa henni .. sjúkrahúsi? Eg er með flens- mömmu og biðja segðu henni að við séum ; una ... hana um að koma Frakklandi... til mín ... Ég skal gera það. Segðu henni hvar Frakkland er. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Ævintýríð um Jón forseta Frá Hallgrími Sveinssyni: ÞEGAR hinn nýkjörni forseti ís- lands tók til starfa 1. ágúst síðast- liðinn, sagði hann meðal annars í ræðu sinni: „Mitt í fátækt og rétt- leysi nýlendunnar setti Jón forseti sjálfstæðisbaráttunni markmið í stjórnmálum, viðskiptum og verk- legum efnum, og studdi kröfur landsmanna sögulegum rökum.“ Ennfremur sagði forsetinn: „Ein- stæðir sögulegir atburðir, svo sem kristnitaka og sjálfstæðisbarátta sem eingöngu var háð með orðsins brandi, leggja okkur á herðar þá skyldu að miðla öðrum af reynslu okkar og friðarhefð." Daglega heyrum við fréttir um valdbeitingu og ofbeldi í mannleg- um samskiptum víða um heim. Og sjálfstæðisbarátta margra þjóða er enn í algleymingi. Nægir þar að nefna baráttu Tsjetsjena við rússneska björninn, svo dæmi sé tekið. Menn geta ímyndað sér hvernig umhorfs væri í heiminum í dag ef ýmsar valdbeitingarþjóðir hlustuðu á söguleg rök líkt og Danir gerðu er Jón forseti varðaði veginn í sjálfstæðisbaráttu okkar og notaði pennann sem vopn. Sú saga er í rauninni einstæð, nokk- urs konar ævintýri og lýsir ekki síður Dönum en Jóni og samheij- um hans. Það þarf nefnilega oft- ast tvo til. Löngu er tímabært fyrir okkur íslendinga að segja öðrum þjóðum frá því hvernig Danir handléku Jón Sigurðsson og báru fyrir honum og málflutningi hans fulla virðingu í það heila tekið. Það er hveijum manni heiður að því að hrósa öðr- um, ef þeir eiga það skilið. Skiptir þá ekki máli þótt Dönum hafi stundum verið mislagðar hendur í stjórn sinni á íslandi í gegnum aldirnar. Slíkt tilheyrði hjá ný- lenduveldum þeirra tíma. Það er fagnaðarefni að Ólafur Ragnar Grímsson skuli taka svo afdráttarlaust til orða í upphafi forsetaferils síns. Hann hefur bent á vel færa leið fyrir íslendinga til að láta rödd sína heyrast og stuðla að bættum samskiptum í heimin- um. Það ætti að vera Ijúf skylda öllum Islendingum sem samskipti hafa við erlent fólk, með forsetann í broddi fylkingar, að segja því ævintýrið um Jón forseta. Betri landkynning er vandfundin. HALLGRÍMUR SVEINSSON, Hrafnseyri. Umbótastefna ■ umbótasinnar Frá Einari Gísiasyni: YFIRLEITT eru erfiðir tímar og ævinlega mikil nauðsyn að þeir batni. Það gerist með umbótum. Á síðari tímum eru umbætur, um- bótastefna, umbótaöfl og umbóta- menn orðin föst einkunnarorð þeg- ar fjölmiðlar fjalla um ákveðna efnahagsstefnu, markaðshyggj- una, nútíma kapítalisma. Afleiðingar umbótanna koma óinnvígðum stundum undarlega fyrir sjónir. Sumir vissu ekki að það teldust umbætur að gera þá fátæku fátækari og þá ríku rík- ari, að afhenda bröskurum eða glæpamönnum eigur ríkisins og sparifé almennings gegn vægu mútugjaldi, að afnema þingræði til þess að æðsti valdsmaður geti stjómað með tilskipunum, að skattbyrðin sé flutt frá þeim ríku til hinna fátæku samtímis því að félagsleg samhjálp er afnumin. Trúin En slíkar hugrenningar eru merki um afturhald og fáfræði. Um skeið hefur markaðshyggjan, trúin á alræði peninganna, verið boðuð sem hin eina sanna trú. Flytjendur orðsins, hagfræðingar og fjárplógsmenn, kenna okkur í trúboði sínu að markaðshyggjan sé sáluhjálpin eina sem tryggi okkur frelsi, velferð og sælu. En eins og í öðrum trúarbrögð- um á hið góða í baráttu við hið illa sem er: félagshyggja, ríkisaf- skipti og velferðarhugmyndir. Af- skipti ríkisins eiga helst ekki að vera önnur en þau að halda úti her og lögreglu og gæta hagsmuna fjármagnsins. Auðvitað vilja fjöl- miðlar ekki gerast trúníðingar heldur boða orðið klárt og kvitt. Þeir leggja því rétt út af ritningun- um er þeir tala um Jeltsín í Rúss- landi, Salínas í Mexíkó og aðra handhafa réttlætis markaðshyggj- unnar sem umbótasinna er þeir svipta fátæka eignum, launum og atvinnu en færa fjármagnið og völdin til bófa. Við skulum sameinast í bæn fyrir umbótum þeirra og játa trú vora. Ég trúi á heilagan, algóðan og almáttugan fijálsan markað. Ég trúi á hagfræðingana og kaupmangar- ana, helga boðbera hans. Ég trúi á hamingju óendanlegrar neyslu. EINAR GÍSLASON, Sóleyjargötu 15, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.