Morgunblaðið - 06.11.1996, Page 11

Morgunblaðið - 06.11.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996 11 FRÉTTIR FRÉTTIR Nunnur af Lög um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins reglu Móð- ur Theresu flytjast til Islands FJÓRAR nunnur af reglu Móður Theresu munu koma til íslands í janúarbyijun og setjast hér að. Fyrst um sinn munu þær eiga heim- ili í Breiðholti í Reykjavík. „Þær koma til landsins vegna allra íslend- inga og þar sem meirihluti fólksins býr hér á höfuðborgarsvæðinu munu þær hefja störf sín hér,“ sagði Johannes Gijsen, biskup kaþólska safnaðarins á Islandi. Ekki er enn vitað hvaðan nunnurnar koma né hverrar þjóðar þær eru. Gijsen sagði að heimili þeirra yrði opið öllum sem þangað leituðu, vildu biðjast fyrir eða spjalla. „Þær munu einnig bjóða upp á trú- fræðslu fyrir þá sem hafa áhuga,“ sagði hann. Sjái þær síðar meir fram á að þörf sé fyrir störf þeirra annars staðar á landinu munu þær færa sig um set. Þannig er til dæm- is gert ráð fyrir að þær muni dvelj- ast eitthvað á í,safirði næsta sumar. Persónuleg ósk Móður Theresu Að sögn Johannesar Gijsen er nokkuð um liðið síðan honum barst bréf frá Móður Theresu, sem ósk- aði eftir að systur af hennar reglu hæfu hér trúboðastörf. Nú þegar starfa systur af þeirri reglu í um 250 ríkjum, þar á meðal á hinum Norðurlöndunum. Kvaðst Móðir Theresa sannfærð um að þeirra væri einnig þörf á íslandi. Gijsen sagði að þó að Móður Theresu-syst- ur byggju víða meðal fátækra og gæfu þeim húsaskjól fælist starf þeirra ekki síður í að boða kristna trú og kærleika. Tii þess kæmu þær hingað til lands. ------» ♦ ♦----- Sveitarfélög við Breiðafjörð Gilsfjarðar- brú stuðlar að samvinnu FORSENDUR fyrir nánara sam- starfi sveitarstjórna Saurbæjar- hrepps, Dalabyggðar og Reykhóla- hrepps hafa skapast vegna brúar- smíðar sem hafin er yfir Gilsijörð, að sögn Guðmundar H. Ingóifsson- ar sveitarstjóra í Reykhólahreppi. Á fundi sveitarstjórnanna þriggja á þriðjudag var samþykkt að efla samstarfið enn frekar en verið hef- ur en slæmar samgöngur hafa hing- að til staðið náinni samvinnu fyrir þrifum. Á þessu stigi málsins er þó ekki unnt að segja til um með hvaða hætti samvinnan verður aukin, sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. Ýmsar leiðir hafa þó verið ræddar m.a. á sviði menning- ar- og félagsmála. Meiri samvinna táknar ekki sam- einingu sveitarfélaganna að sögn Guðmundar m.a. þar sem Reykhóla- hreppur tilheyrir Vestfjarðakjör- dæmi en Saurbæjarhreppur og Dalabyggð Vesturiandskjördæmi og samkvæmt lögum er ekki unnt að sameina sveitarfélög yfir kjör- dæmamörk. Á fundinum var einnig ályktað að vegtenging Vestfjarða við helstu vegi landsins skuli vera um Gils- fjarðarbrú. Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! Embættismaimabústaðir seldir BÚAST má við að 120-130 emb- ættisbústaðir ríkisstarfsmanna víða um landið verði seldir á næstu árum. Þetta kom fram í máli Friðriks Sophussonar, fjár- málaráðherra, er hann í gær mælti á Alþingi fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um íbúðar- húsnæði í eigu ríkisins. Samtals eru slíkir embættisbústaðir um 400 talsins. Fjármálaráðherra sagði frum- varpið vera skref í átt til þess að samræma þau skilyrði sem opin- berir starfsmenn búa við í landinu ásamt því að vera liður í að fram- fylgja þeirri stefnu ríkisstjórnar- innar, að þær eignir, sem ríkið þurfi ekki að eiga, verði seldar. Samkvæmt frumvarpinu á sú regla að gilda, að íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins á stöðum með yfir 1.000 íbúa verði selt og að þeim ríkisstarfsmönnum sem búa í umræddu húsnæði verði boðið að kaupa húsnæðið á sérkjörum. Afnám hlunninda Gagnrýnendur frumvarpsins úr röðum stjórnarandstöðunnar sögðu það löngum hafa talizt til kjarabótar starfsmanna f opin- berri þjónustu í fámennum byggð- arlögum, að eiga þess kost að búa í ódýru leiguhúsnæði í eigu ríkis- ins. Þessi hlunnindi hefðu í mörgum tilvikum ráðið úrslitum um hvort takast mætti að manna stöður í opinberri þjónustu á ýmsum stöð- um á landinu. Nú ætti að svipta þá þessum hlunnindum, sem gæti leitt til þess að enn erfiðara reynd- ist að manna sumar stöður en nú er. Fjármálaráðherra svaraði því til, að fráleitt væri að tengja á þennan hátt „óeðlilega“ húsaleigu á íbúðum í eigu ríkisins við launa- kjör opinberra starfsmanna. Hundruð þúsunda karla, kvenna og barna eru á vergangi vegna átakanna í Saír. Umfangsmikillar neyðaraðstoðar er þörf. Rauði kross Islands leitar liðsinnis Islendinga vegna hjálparstarfsins og hvetur landsmenn til þess að bregðast við neyð flóttafólksins. Söfnunarsíminn í bönkum og sparisjóðum Reikningur Hjálparsjóðs: ávísanareíkn. nr.12 í SPRON, Seltjarnarnesi RAUÐI KROSS ISLANDS Framlögin renna óskert til hjálparstarfsins 1 '^l rra 1 - • I L “ 1 :.. .1*1 -m ■Yy‘ '"-cálS■■ Rmjyi v,;0 m .V » V . -•£; I li <v/l mmmm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.