Morgunblaðið - 06.11.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996 19
ERLENT
„Fundum höggin þegar byssukúl
urnar grófu sig inn í vegginn“
Jón Valfells, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, lýsir átökunum um Goma
STARFSMENN Alþjóða Rauða
krossins söfnuðu í gær saman og
grófu lík nokkurra af þeim 400
mönnum, sem létu lífíð í átökunum
um bæinn Goma í Zaire í síðustu
viku. Jón Valfells, upplýsingafulltrúi
Rauða krossins, fór með síðustu
flugvélinni til Goma síðdegis á mið-
vikudag, 30. október, áður en átök-
in hófust og komst brott við illan
leik á laugardagsmorgun.
Jón var í gær staddur í Nairobi
í Kenýa, þar sem leiðtogar Afríku-
ríkja hófu í gær fyrsta fund sinn
um ástandið í austurhluta Zaire, en
þar er talið að líf rúmlega einnar
milljónar flóttamanna úr röðum
Hútúa sé í hættu. Það varpaði
skugga á fundinn að forsætisráð-
herra Zaire, Kengo wa Dondo,
skyldi hundsa hann.
Leiðtogafundinum í Nairobi lauk
með sameiginlegri áskorun á Sam-
einuðu þjóðirnar um að senda hlut-
lausan her til austurhluta Zaire til
að vernda flóttamennina.
Viðvörun frá SÞ
„Við vorum að búa okkur þá um
morguninn þegar heyrðust hljóð í
sprengjuflaugum," sagði Jón Val-
fells. „Við heyrðum einnig kallað í
okkur í talstöð og reyndust það
vera Sameinuðu þjóðirnar að segja
okkur að ekki væri öruggt að vera
utan dyra og við ættum að láta fyrir-
berast inni í húsi okkar.“
Jón starfar sem upplýsingafull-
trúi Rauða krossins og hann hófst
því handa við að gera það sem hann
kann best og koma boðum til um-
heimsins. Hann hringdi í ijölmiðla
með aðstoð gervihnattasíma og
komst í tölvusamband við iandsfélög
Rauða krossins víða um heim. Þenn-
an morgun voru veitt um hundrað
viðtöl og hver sendifulltrúi komst að.
„Það kann að virðast harðneskju-
legt að gera þetta í neyðinni," sagði
Jón. „En það hafði tvennt jákvætt
í för með sér. Það dró úr einangr-
unartilfinningu sendifulltrúanna,
sem fengu útrás og tilfinningu fyrir
að vera að gera gagn, þótt þeir
gætu ekki unnið beint að hjálpar-
starfi. Þá fékk almenningur um all-
an heim upplýsingar um það, sem
var að gerast."
Farartækjum rænt
Þegar leið á daginn fór skothríðin
að ágerast og bardagar að færast
nær bænum. Starfsmenn Rauða
krossins mega ekki bera vopn og
var hópurinn, sem Jón Valfells var
í, því varnarlaus. Síðdegis á fimmtu-
deginum koma skyndilega vopnaðir
hermenn úr her Zaire og vilja taka
öll farartæki Rauða krossins.
Jón og félagar gátu ekki komið
í veg fyrir það, en settu þó eitt skil-
yrði: fyrst yrði að fjarlægja merki
Rauða krossins af bifreiðunum þar
sem koma yrði í veg fyrir að menn
Endurklœbum húsgögn.
Gott úrval áklceba.
Fagmenn vinna verkib.
BólstnutÁsgríms,
Bergstaðastræti 2,
sími 551 6807
undir vopnum gætu dulist undir
merkjum samtakanna. „Þeir urðu
stöðugt grimmari og því varð að
vinna hratt,“ sagði hann. „En þeir
leyfðu okkur að ijarlægja merkin."
Upplausnin í bænum fór nú jafnt
og þétt vaxandi.
„Við settumst niður og fórum að
velta fyrir okkur hvað væri nú til
bragðs að taka, sérstaklega ef aðrir
vopnaðir hópar kæmu aðvífandi, því
ekki væri hægt að flýja,“ sagði Jón.
„Við ákváðum að leita skjóls á skrif-
stofu flóttamannahjálpar Samein-
uðu þjóðanna í bænum. Eftir nokkra
stund barst loks hjálp frá Samein-
uðu þjóðunum. Þetta voru hermenn
frá Zaire, sem flóttamannahjálpin
hafði ráðið til að vernda starfsmenn
sína á svæðinu. Síðan var ekið á
150 km hraða gegnum miðjan bæ-
inn.“
Þessir hermenn vöktu hins vegar
frekar skelfingu, en öryggiskennd,
þar sem þeir ráfuðu um með Kalas-
hnikov-byssur í annarri hendi og
hálfar viskýflöskur í hinni.
f eldlínunni
„Skyndilega fóru hermenn flótta-
mannahjálparinnar að skjóta og
þeirri skothríð var svarað um hæl,“
sagði Jón. „Það var þá, sem við
fórum að skríða meðfram gólflist-
um. Sem betur fer voru veggirnir í
húsinu þykkir. Þegar mest var sát-
um við með bökin uppvið veggina
og fundum höggin þegar byssukúl-
urnar grófu sig inn í vegginn hinum
megin.“
Skyndilega dró úr átökunum.
Vildu þá hermenn SÞ komast brott
og ætluðu þeir að taka með sér
hjálparstarfsmenn. „Við sögðum nei
takk og það var hættulegt augna-
blik,“ sagði Jón. „Hefðu þeir reynt
að þvinga okkur með hefðum við
verið dauðans matur."
Starfsmaður Rauða krossins, sem
var fyrrverandi norskur hermaður,
tók nú fána Rauða krossins og gekk
út með hann og annar fór út með
hvítt lak.
Mannslffi bjargað
„Við sáum fjóra dauða hermenn
liggja fyrir utan húsið og einn með
lífsmarki," sagði Jón. „Þegar okkar
maður sá að einn var á lífi sagði
maður Sameinuðu þjóðanna, „Æi,
látið hann bara liggja". En við bár-
um hann inn. Læknir og tveir hjúkr-
unarfræðingar frá Rauða krossinum
tóku að gera að sárum hans. Við
gátum bjargað lífi mannsins og af
því gátum við starfsmenn Rauða
krossins verið hreyknir."
Á föstudagskvöld var bardagan-
úm í raun lokið. Her Rúanda náði
Goma á sitt vald síðdegis á föstu-
degi og eftir það var aðeins um
smáskærur að ræða.
„Á laugardagsmorgni kom til-
kynning frá Sameinuðu þjóðunum
um að haldið skyldi af stað,“ sagði
Jón. „Fóru þá allir upp í bílana og
við ókum á brott, hundrað manns í
um 30 bíla lest.“
Goma er aðeins spottakorn frá
landamærunum og eftir fimm mínút-
ur var bílalestin komin til Rúanda.
Reuter
UPPREISNARMENN vakta
götur Bukavu, sem féll í þeirra
hendur fyrir tæpri viku.
Útboðsfjárhæð: 250.000.000 kr.
Flugleiðirhf. kt. 601273-0129, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík.
Sölutímabil:
Frá 6. nóvember til 31. desember 1996.
Forkaup sréttartímabil:
Frá 6. nóvember 1996 til 27. nóvember 1996.
Sölugengi:
Útboðsgengi tilforkaupsréttarhafa er 2,80. Gengi hlutabréfanna verður
3,10 við upphaf almennrar sölu, en getur breyst í takt við markaðsaðstæður.
Hlutabréf Flugleiðahf. eru skráð á Verðbréfaþingi íslands.
Umsjón og sölu annastVerðbréfamarkaður Islandsbanka hf..
Skráningarlýsing og samþykktir Flugleiða hf. liggja fyrir hjá
Verðbréfamarkaði íslandsbanka hf„ Kirkjusandi.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Aöili að Veröbréfaþingi íslanris
Kirkjusandi, 155 Reykjavfk. Sími S60-8900, myndsendir 560-8921