Morgunblaðið - 06.11.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996 15
LANDIÐ
MorgunDlaoio/bigurgeir Jonasson
JÓN Bragi Arnarsson, knattspyrnumaður, að leik í Herjólfsdal
með börnum sínum Margréti Steinunni, Önnu Fríðu og Þorgils.
ÞESSAR stelpur, Stefanía, Jóna og Barbara, voru saman í
Herjólfsdal um helgina.
Sjúkrahús Suðurlands fær ástungusett við sónartæki
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
KVENFÉLAGSKONUR á Selfossi við tækjabúnaðinn ásamt for-
svarsfólki Sjúkrahúss Suðurlands.
Kvenfé-
lagskonur
gefa nýtt
tæki
Selfossi - Kvenfélagskonur á Sel-
fossi afhentu Sjúkrahúsi Suður-
lands nýlega að gjöf ástungusett
við sónartæki. Tækið er notað í
tengslum við sónartæki til þess
að taka sýni.
Tæki þetta er eitt af íjölmörgum
sem konur í Kvenfélagi Selfoss
hafa gefið sjúkrahúsinu. Bjarni
B. Arthúrsson framkvæmdastjóri
Sjúkrahússins sagði að heilbrigðis-
þjónustan væri töluvert aftar hvað
tækjabúnað snerti ef kvenfélag-
anna hefði ekki notið við og að
starf kvenna hefði skilað sér marg-
falt inn á sjúkrastofnanir.
Sérfræðiskoðun á staðnum
Tækið sem konurnar gáfu verð-
ur meðal annars notað í verkefni
sem Sjúkrahús Suðurlands vinnur
að með eðlisfræði- og tæknideild
Landspítalans og kvensjúkdóma-
deild með styrk frá Pósti og síma.
Verkefnið gengur út á það að
tækið er tengt um sérstaka símal-
ínu og búnað við sams konar tæki
á Landspítalanum. Læknir á Sel-
fossi, sem er með sjúkling í skoð-
un, getur rætt við sérfræðing á
Landspítalanum og þeir skoðað
sjúklinginn saman. Læknarnir tal-
ast síðan við á sjónvarpsfundi í
símanum.
Þessi tækni mun gagnast lækn-
um á landsbyggðinni sem geta á
þennan hátt náð beinu sambandi
við sérfræðinginn og sjúklingur-
inn þarf ekki að fara um langan
veg til skoðunar hjá sérfræðing-
um.
Fjör í snjón-
um í Eyjum
Vestmannaeyjum - Óvenjumik-
ill snjór hefur verið í Vest-
mannaeyjum síðustu vikuna og
hefur verið ágætis sleðafæri
alveg frá því snjó festi um miðja
síðustu viku. Ekki er algengt á
þessum árstíma að jafnmikill
snjór sé í jafnlangan tíma og
nú hefur verið.
Á sama tíma á síðasta ári
spiluðu golfáhugamenn í Eyjum
golf upp á hvern dag en um
helgina voru engir golfarar á
golfvellinum heldur sáust þar
menn ganga á skíðum og börn
og fullorðnir nýttu sér gott
sleðafæri og brunuðu í brekk-
unum í Herjólfsdal.
Samband
iðnmenntaskóla
Yfirlýsing-
um fagnað
um eflingu
starfs-
menntunar
Selfossi - Samband iðnmennta-
skóla hélt aðalfund sinn á Selfossi
25. október. Á fundinum var með-
al annars fjallað um málefni skól-
anna og eftirfarandi ályktun sam-
þykkt:
„Aðalfundur Sambands iðn-
menntaskóla fagnar yfirlýsingum
stjórnvalda um að efla þurfi starfs-
menntun hér á landi. Jafnframt
lýsir aðalfundurinn áhyggjum yfir
niðurskurði á fjárveitingum til
framhaldsskóla og harmar að
niðurskurðurinn bitni einkum á
starfsmenntaskólum."
Fundurinn var vel sóttur og
fjallað um hið breiða svið sem
skólarnir ná til í menntunarmálum
ungs fólks og þeirra sem vilja
auka við verkþekkingu sína. Að
loknum fundarstörfum fóru fund-
armenn í skoðunarferð um Selfoss
undir leiðsögn Þórs Vigfússonar
fyrrum skólameistara Fjölbrauta-
skóla Suðurlandg.
o
o
o
■
o
LO
>o