Morgunblaðið - 06.11.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996 21
ERLENT
Kosningar til þings Júgóslavíu
Rændur
mmm
Vinnufélagar,
starfsmannafélög
og vinahópar!
Munid eftir
kerfisseðlunum.
%
'f kl.
3
•ÍP
Að loknum útdrætti í dag verður aukaútdráttur í Víkingalottóinu
þar sem dreginn verður út einn stór vinningur.
Sami miðinn gildir í báðum útdráttunum svo að
þátttakendur fá tvö tækifæri til að vinna á sama miðann.
stjórnbúnaður
Þú finnur f
varla betri
lausn.
s HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
í seinni útdrættinum verður dreginn út einn vinningur sem er
sameiginlegt framlag norrænu fyrirtækjanna sem standa að Víkingalottóinu.
Til þess að hljóta hann þarf að hafa sex tölur réttar.
Til mikils að vinna!
: með hefðbundnu sniði.
Bandalag Serbíu-
forseta sigrar
Belgrad. Reuter.
ALLT benti til þess í gær að
Vinstrabandalag Slobodans Milo-
sevic Serbíuforseta hefði unnið stór-
sigur á sunnudag í kosningum til
þings Júgóslavíu, sambandsríkis
Serbíu og Svartfjallalands. í kosn-
ingabaráttunni var lögð áhersla á
að lýsa Milosevic sem friðarhöfð-
ingja en hann er á Vesturlöndum
talinn hafa verið einn af helstu
hvatamönnum ófriðarins við hinar
þjóðirnar í gömlu Júgóslavíu.
Stjórnarandstaðan sakar stjórnar-
sinna um að hafa misnotað herfi-
lega ríkisfjölmiðlana í kosningabar-
áttunni.
Sagt var að Vinstrabandalagið
hefði þegar fengið 64 sæti þegar
búið var að telja um 80% atkvæða.
Þrír flokkar eiga aðild að bandalag-
inu, þ. á m. vinstriflokkur undir
stjórn eiginkonu forsetans, Miijönu
Markovic, er áhrifamestur en hún
er sögð marxisti af gamla skólan-
um. Talsmaður bandalagsins, Ivica
Dacic, sagði að tryggt væri að það
hlyti með stuðningi samstarfs-
flokksins í Svartfjallalandi minnst
tvo þriðju þingsætanna 108 sem
Serbía hefur á þinginu og myndi
verða allsráðandi á þingi.
Erlendir stjómarerindrekar segja
að Milosevic muni að líkindum láta
gera sig að forseta sambandsríkis-
ins. Nýja þingið mun kjósa til emb-
ættisins sem fær öflugt fram-
kvæmdavald.
Þjóðernissinnar öflugir
Næstöflugasti flokkur á þingi
verður Zajedno, samtök stjórnar-
andstæðinga, sem hafði fengið 21
þingsæti samkvæmt síðustu tölum
en í þriðja sæti voru Róttækir Serb-
ar, flokkur ákafra þjóðernissinna
með 13 þingsæti. Hinir síðast-
nefndu saka Milosevic um allt of
miklar tilslakanir gagnvart grann-
þjóðunum og hafna Dayton-friðar-
samkomulaginu.
Stjórnarandstaðan segir að
árangur hennar geti talist sigur,
fulltrúar hennar hafi engan aðgang
fengið að stóru fjölmiðlunum sem
eru í ríkiseign.
Kjörsókn var 61% í Serbíu og
67% í Svartfjallalandi þar sem einn-
ig var kosið til þings héraðsins og
sigruðu stjórnarsinnar í þeim.
Fulltrúi bandaríska sendiráðsins
í Belgrad sagði að sjálfar kosning-
arnar til sambandsþingsins hefðu
farið vel og lýðræðislega fram.
Reuter
sigri?
DANIEL Ortega, leiðtogi flokks
sandinista í Niearagua og for-
setaefni þeirra í kosningunum
nýverið, ávarpar aukafund
æðstu valdastofnunar flokksins.
Ortega tapaði fyrir hægrimann-
inum Arnoldo Aleman sem hlaut
tæpan helming atkvæða. Ort-
ega, sem fékk nær 40% at-
kvæða, segir útilokað að segja
til um það hver raunveruleg
úrslit hafi verið. Stuðningsmenn
hann telja að hann hafi verið
rændur sigrinum. Ekki hefur
enn verið skýrt frá lokatölum í
kosningunum 20. október.
í Víkingalottóinul