Morgunblaðið - 09.03.1997, Page 18

Morgunblaðið - 09.03.1997, Page 18
YDDA F69.99 / SlA 18 SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Franshl og Shemmlun vefrarins íSúlnnsnl Það er franskt jjör á laugardagskvöldum í Súlnasal. Skemmtikraftarnir Egill Ólafsson, Sigrún Eva Armannsdóttir, Rósa Ingólfsdóttir ogfulltrúarfrá hinni óborganlegu Spaugstofu: ÖmÁmason og KarlAgúst Úlfison nueta ásamt Tamlasveitinni. Dansarar sýna can can og önnur frönsk spor undir stjórn Helenu Jónsdóttur. Tónlistarstjóri er Jónas Þórir. Aggi SLe og Tamlasveitin ásamt Sigrúnu Evu leikajyrir dansi til kL 3.00. Þríréttuð kvöldmáltíð að frönskum hœtti. Æft í Svíþjóð flutt í Finnlandi Hinn víðfræffl sænski Kroumata-hópur ásamt fremsta trompetleikara Svíþjóðar flytja Kappann, nýtt tónverk eftir Atla Ing- * ólfsson, í Operuhúsinu í Helsinki í Finnlandi þessa helgi. Sigurjón Pálsson hitti Atla í Stokkhólmi þar sem Kappinn var æfður. KAPPINN er nýjasta verk tón- skáldsins Atla Ingólfssonar, sem Kromuata-hópurinn mun flytja á tónlistarhátíðinni Tvíæringnum í Helsinki (Helsinki Biennale) í Finn- landi í kvöld, laugardagskvöld. Kroumata-hópurinn samanstendur af sex slagverksleikurum en með þeim til að flytja Kappan (L’Atlcta) verður trompetleikarinn Hákan Hardenberger, fremsti trompetleik- ari Svía og þótt víðar væri leitað. Tónverkið segir Atli að megi hugsa sér þannig: „Kappinn birtist, byijar að gera æfingar sínar og kennir öllum viðstöddum þær þang- að til þeir eru orðnir fullnuma. Kappinn gengur svo eins og aðrir í gegnum breytingaskeið, lendir í ævintýrum og eldist. Það kemur hins vegar að því að hann verður að standa fyrir framan þá sem áður voru nemendur hans og sýna og sanna að hann er enn bestur og getur gert sínar æfingar jafnvel og áður.“ Hákan Hardenberger spilar hlut- verk kappans á tónleikum í Finn- landi en Atli skrifaði verkið með hæfileika hans í huga. Kroumata- hópurinn spilar hlutverk þeirra sem læra af kappanum. Það voru þeir, sem fengu Atla til að skrifa verkið fyrir sig en Norræna tónlistarráðið NOMUS greiddi kostnaðinn við það. Undir lok verksins, sem er um þrettán mínútna langt, kemur allt að því yfirgengilega erfiður kafli. Atli segist viljandi hafa gengið mjög langt í að gera verkið erfitt fyrir trompetinn en þó ekki fyrir erfið- leikans sakir heldur þannig að það hefði þýðingu í verkinu. ísland, Mílanó, París, Bologna Atli Ingólfsson lauk námi árið 1990 eftir að hafa lært fyrst á ís- landi, svo í Mílanó á Ítalíu og loks í París. Núna býr hann í Bologna á Ítalíu. Eitt af fyrri verkum Atla er til dæmis La Métrique du eri (Bragur hrópsins), sem var fyrst flutt í París, síðan á íslandi núna í febrúar af Caput hópnum og verð- ur flutt í Noregi og Lissabon í maí. Eins flutti íslenska hljómsveit- in verkið 0 versa fyrir píanó og tólf hljóðfæri árið 1991 og En- semble intercontemporaine hefur flutt í París verk hans, Envoi, fyrir tölvupíanó og nítján hljóðfæri. ít- alska útgáfufyrirtækið Ricordi gef- ur út nótur eftir Atla en einnig innifalið í verði: Flug og gisting með morgunverði og þríréttuðum kvöldverði. Skoðunarferðir og verslunarferðir. Brottfarar- og komudagar: 26. iúní - 3. júlí 17. júlí - 24. júlí 7. ágúst - 14. ágúst 21. ágúst - 28. ágúst 4. sept. -11. sept. Fjölbreytt og skemmtileg ferð um Skotland. Dvalið er í 7 nætur á Inversnaid hótelinu sem stendur við Loch Lomond, eitt frægasta stöðuvatn Skotlands. Daglegar ferðir um skoskar sveitir og borgir, farið í siglingar, verslunarferðir o.fl. undir leiðsögn Ólafar H. Guðmundsdóttur fararstjóra. I'lvRDASKRIFS'IDfA 1 ÍSLANDS ICELAND TOURIST BUREAU Sími 562 3300

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.