Morgunblaðið - 04.04.1997, Blaðsíða 24
ðS TOOÍ Jbn/. .1 H!JOAQUT8Örl
24 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
KYRRLÁTUR
DIMMUR DAUÐINN
Tung’lskinseyjan fær
góða dóma í Kína
ÓPERA Atla Heimis
Sveinssonar, Tunglskins-
eyjan, sem sýnd var á ís-
lenskri menningarhátíð í
Kína 22. mars síðastliðinn
hefur fengið góða dóma í
þarlendum blöðum. Cliina
Youth Daily segir að
óperan hafi verið flutt
með hætti Pekingóper-
unnar. Ennfremur segir
að tónlist óperunnar sé
afar framúrstefnuleg eins og
Atli Heimir
Sveinsson
heimaland tónskáldsins,
land íss og eldá. Gagnrýn-
andinn segir óperuna
öfgakennda á flestum
sviðum tónlistar og að hún
hreyfi við áheyrendum.
Gagnrýnandi Peple’s
Daily segir að nútímaleg-
ur stíll uppsetningarinn-
ar, frábær flutningur tón-
listarmannanna og áhrifa-
rík saga hafi hrifið áheyr-
endur með sér.
Masterclass Elly
Ameling í Gerðubergi
Síðustu
sýningar á
„Skækjunni“
NÚ ERU aðeins fjórar sýningar
eftir á Leitt hún skyldi vera skækja
eftir John Ford sem gengið hefur
fyrir fullu húsi á Smíðaverkstæðinu
frá liðnu hausti. Leikhópnum hefur
verið boðið á
norræna listahá-
tíð í Stokkhólmi
í maí og verður
sýningum því að
ljúka í apríl.
„Leitt hún
skyldi vera
skækja er skrif-
að í kringum
1630 og segir
frá forboðinni
ást ungra systkina og örlögum
þeirra. Hispurslaust en jafnframt
rómantískt verk, erótískt og hrylli-
legt í senn. Sígilt og afar umdeilt
leikrit, af mörgum talið meistara-
stykki höfundarins,“ segir í kynn-
ingu.
Leikendur eru Hilmir Snær
Guðnason, Margrét Vilhjálmsdótt-
ir, Steinn Ármann Magnússon,
Edda Arnljótsdóttir, Stefán Jóns-
son, Ragnheiður Steindórsdóttir,
Kristján Franklín Magnús og Erl-
ingur Gíslason. Filippía I. Elísdóttir
er höfundur búninga ásamt Indriða
Guðmundssyni og Stígur Stein-
þórsson höfundur leikmyndar. Lýs-
ingu hannar Páll Ragnarsson. Þor-
valdur Bjarni_ Þorvaldsson semur
tónlist, Karl Ágúst Úlfsson þýddi
verkið. Leikstjóri er Baltasar
Kormákur.
Þegar er uppselt á tvær af fjór-
um sýningum í apríl, en laus sæti
eru enn í síðdegissýningu laugar-
dag 5. apríl.
TONLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍ UTÓNLEIKAR
Flutt voru tónverk eftir Jón Nordal,
Mahler og Schumann. Einsöngvari:
Alina Dubik. Stjómandi: Antoni Wit.
Fimmtudagurinn 3. apríl 1997.
TÓNLEIKARNIR hófust á hljóm-
sveitarverkinu Leiðslu, eftir Jón
Nordal, sem er samið 1972. Staða
þess meðal hljómsveitarverka Jóns
er miðsvæðis og má heyra ákveðna
sátt modernismans og afturhvarfs-
ins til hefðbundins lagferlis, enda
er stemmning þess sótt til Sólar-
ljóða, er fæst við sínýtt efni, sam-
band föður og sonar og lífið eftir
dauðann. Öll blæbrigði verksins,
samfléttun steija, úrvinnsla þeirra
og notkun hljómsveitarinnar er
ákaflega vel unnin og verkið í heild,
sannfærandi hugleiðing um dular-
gildi iífs og dauða. Hljómsveitar-
stjórinn, Antoni Wit, mótaði verkið
mjög fallega og lagði sig eftir að
draga fram ýmis fíngerð blæbrigði
og andstæður í styrk og hraða, sem
hljómsveitin svaraði með mjög góð-
um leik.
Lagaflokkurinn Kindertotenlied-
er, eftir Gustav Mahler, er mettaður
þeim dauðabeyg, sem, sífellt þjakaði
Mahler, enda ásótti hann sú hug-
mynd, að hann hefði með þessu
verki storkað örlögunum. í raun er
tónmál verksins eins konar saga og
fyllt upp með alls kyns „effektum",
t.d. er tveggja tóna „stef“ klukku-
spilsins í niðurlagi fyrsta ljóðsins,
táknmynd ljóssins og heyrist aftur
í „vögguvísunni" í lok fimmta ljóðs-
ins. Þetta er ekki rismikið verk en
ákaflega fagurlega unnið fyrir
hljómsveitina, er lék t.d. undurvið-
kvæmt niðurlag verksins mjög vel,
sérstaklega var samspil homsins og
fagottanna fallegt svo og enda-
hljómurinn, er var tandurhreinn.
Alina Dubik söng mjög vel þessi
viðkvæmu ljóð, sérstaklega „vöggu-
vísuna" í niðurlagi verksins og
fjórða ljóðið, Oft denk’ ich, sem er
viðamest, hvað söng varðar. Þessi
ljóð eru ekki mikil átakaverk en
gera miklar kröfur til fiytjenda um
túlkun og var mótun Alinu Dubik
mjög sannfærandi og sérlega fallega
mótuð.
Lokaverk tónleikanna var „sú
fjórða“, eftir Schumann. Antoni Wit
er góður stjórnandi en gáði þar ekki
að, sem er styrkvægið á milli máim-
blásara og strengja, því á köflum
yfirtóku blásarnir tónefni verksins,
svo að lítið heyrðist oftlega í strengj-
unum, einkum í fyrsta og síðasta
þættinum. Rómansan (hægi þáttur-
inn), sem er ótrúlega stutt, var opn-
uð með mjög fallegum óbóeinleik.
Fiðlueinleikurinn í rómönsunni
heyrist ekki vel, vegna þess að
strengjasveitin var of sterk!
Scherzo-þátturinn var best fluttur,
sem þrátt fyrir miklar endurtekn-
ingar tónhugmyndanna, er best
unninn af hálfu tónskáldsins. Verkið
í heild er aðallega gagnrýnt fyrir
allt of einhliða tematíska vinnu, þar
sem hugmyndirnar eru oftlega að-
eins endurteknar en ekki unnið úr
þeim. í heild var flutningurinn á
sinfóníunni eftir Schumann nokkuð
grófur og má segja að hann hafi
verið eins konar mótvægi við hinn
kyrrláta og dimma dauða, sem ort
var um í tveimur fyrri verkunum.
Jón Ásgeirsson
DAGANA 4., 5. og 6. apríl mun
hollenska sópransöngkonan Elly
Ameling halda námskeið (master-
class) fyrir unga söngvara í sam-
vinnu við menningarmiðstöðina
Gerðuberg. Námskeiðið er hluti
Schubert-hátíðar sem hollenski
hljómsveitarstjórinn og píanóleikar-
inn Gerrit Schuil hefur komið á fót
í Garðabæ.
Elly Ameling kom hingað til lands
fyrir tíu árum en í febrúar á síðasta
ári hætti hún að syngja opinberlega
og hefur síðan ferðast víða um heim
og haldið námskeið fyrir unga
söngvara. Síðastliðnar 7 vikur hefur
hún ferðast vítt og breitt um Banda-
ríkin og haldið námskeið og mun
koma hér við á heimleið til Hollands.
í kynningu segir: „Það er síst of
mikið sagt að Elly Ameling sé ein
mesta ljóðasöngkona þessarar aldar.
Fjörutíu ára glæstur söngferill henn-
ar er einstakur í sinni röð að því
leyti að hún lagði alla tíð mesta
áherslu á ljóðasöng. Gagnrýnendur
um allan heim hafa rómað fagra
rödd hennar, fullkomna tækni og
einstakan skiining og túlkun á þýsk-
um og frönskum sönglögum. Hún
hefur verið heiðruð með fjölmörgum
viðurkenningum og heiðursdoktors-
nafnbótum víða um heim. Hún hefur
sungið inn á yfir 150 hljómplötur
og mun söngur hennar verða kom-
andi kynslóðum ævarandi uppörvun
og innblástur.
Heimsókn hennar til íslands nú
er ómetanlegt tækifæri fyrir alla
íslenska söngvara og unnendur
sönglistarinnar til að fá að njóta
kunnáttu og reynsiu þessarar miklu
listakonu."
Námskeiðið er opið áheyrendum
og verður í Gerðubergi í dag kl.
16.00-19.00, laugardag kl. 10.00-
13.00 og 14.30-17.30 og á sunnu-
dag kl. 10.00-12.30.
Fritt í bílastœði
LAUGAVEGUR OG NAGRENNI Stemmning í bœnum
- , WŒFmtBBm&BBHÍI wb, _
NYJAR VORVÖRUR
SPENNANDI
HELGARTILBOÐ
Driana peysa 3.590
Tracey pils 4.590
VERO mODA
Laugavegi 95, s. 552 1444.
SÍÐUSTU OflCflR
Verslunin hættir - Allt á að seljast
ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT
Peysur - buxur - pils - flauels-
jakkar -flauelsbuxur - kápur -
úlpur - yfirhafnir og margt,
margt fleira.
Laugavegi 97. sími 552 2555
S: benelíon
■N\
V.
Jakkaföt
áður 15.900
nú 9.900
Stakar
áður 4.900
nú 2.900
Skyrtur
áður
nú 1.900
áður
nú 3.900
vou
laugavegi 51, sími 551 8840
Kringlan, sími 533 1720
( \
BIODROGA
snyrtivorur