Morgunblaðið - 04.04.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
AUSTFIRÐINGAR
„Koma og dansa“ með
Iðunni og Eymundi í
Fellaskóla.
Dansinn
dunar
Egilsstöðum - Á Austurlandi
hafa verið haldin fjölmörg
námskeið undir merkinu
„Komið og dansið". Það eru
hjónin Iðunn Kröyer og Ey-
mundur Hannesson sem eru
leiðbeinendur. Þau segja
dansáhuga mikinn á Austur-
landi. Nýlokið er framhalds-
námskeiði sem haldið var í
Fellaskóla í Fellabæ, þar sem
voru mætt 18 pör af Fljóts-
dalshéraði. Leiðbeinendur voru
gestir úr Reykjavík. Hluti
hópsins hefur æft saman viku-
lega í allan vetur.
Eymundur segir þessa
dansa vera kærkomna fyrir
þá sem ekki þora út á dans-
gólfið. „Þama er hægt að taka
fjögur mismunandi grunnnám-
skeið og dansa við létt og
hressileg sving- og rokklög.
Þegar fólk losnar við „gólf-
hræðsluna" dansar það fijálst
og af innlifun og þarf þar af
leiðandi ekki að drekka í sig
kjark til þess að fara á gólfið.
Námskeið sem þessi hafa verið
liður í því að draga úr vímu-
■ efnanotkun hjá ungmennum",
segir Eymundur.
Iðunn og Eymundur fagna
því hvað Austfirðingar eru
opnir fyrir dansinum og segja
stemmninguna á námskeiðum
stundum jafnast á við gott
sveitaball.
Aldarafmæli
__ Sigurðar
Ágústssonar
Stykkishólmi - Þann 25. mars voru
100 ár liðin frá fæðingu Sigurðar
Ágústssonar, kaupmanns og al-
þingismanns í Stykkishólmi. Af því
tilefni var Hólmurum boðið í af-
mæliskaffi á skrifstofu fyrirtækis-
ins Sigurðar Ágústssonar ehf.
Þangað komu margir og þáðu veit-
ingar því flestir sem eru komnir
á miðjan aldur þekktu Sigurð og
hans störf.
Sigurður Ágústsson stofnaði
fyrirtæki sitt árið 1933 er hann
keypti verslun Tangs og Riis. Þá
verslun rak hann í 33 ár. Þá stund-
aði Sigurður útgerð í áratug bæði
í Stykkishólmi og víðar. Árið 1942
byggði hann hraðfrystihús sem
hefur verið starfrækt síðan og
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
FRAMKVÆMDASTJÓRAR fyrirtækisins Sigurðar Ágústssonar
ehf. þeir Sigurður Ágústsson og Ellert Kristinsson við málverk
af Sigurði.
breyst mikið í gegnum árin. Þar
er unninn hörpudiskur hluta árs-
ins og síðan er uppistaðan rækju-
vinnsla en fyrirtækið hefur sér-
hæft sig i að pakka rækju beint
á neytendamarkað.
Sigurður var alþingismaður
Snæfeilinga frá árinu 1949 og sat
á þingi til ársins 1967. Þar lét
hann margt gott af sér leiða til
framfara á Snæfellsnesi og síðar
á Vesturlandi.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
FRÁ afhendingu verðlauna í unglingaflokki. Sverrir Siguijónsson á Feng, Þóranna Másdóttir á
Árdegi og Baldur Gauti Tryggvason á Nökkva.
Líflegt punktamót Sleipnis á Selfossi
Selfossi - Punktamót hestamannafélagsins Sleipnis,
annað af þremur, fór nýlega fram á Selfossi. Ríflega
50 þátttakendur voru á mótinu og greinilega mikill
hugur í hestamönnum. Keppnisfyrirkomulag er þann-
ig að tiu efstu knapar í hveijum flokki safna stigum
og verða sigurvegarar krýndir að loknu þriðja mótinu
12. apríl. Helstu úrslit urðu þau að Skúli Steinsson
sigraði á Lýsingi í 150 metra skeiði, í opnum flokki
sigraði Sævar Sigurvinsson á Flaumi, Hulda Brypjólfs-
dóttir sigraði í kvennaflokki á Rómi, Sverrir Sigur-
jónsson sigraði í unglingaflokki á Feng og Sandra
Hróbjartsdóttir sigraði í barnaflokki á Verðanda.
Borgfirð-
ingar
halda há-
tíð á Hótel
Islandi
Borgamesi - Borgfirðingar og
Mýramenn halda stórhátíð og
skemmtikvöld á Hótel íslandi í
kvöld. Að sögn Kristjáns B.
Snorrasonar, bankastjóra í
Borgarnesi og eins aðalhvata-
manns hátíðarinnar, er þetta í
annað sinn sem slík hátíð er
haldin. Hátíðin í fyrra var mjög
vel sótt og tókst í alla staði vel.
Sagði Kristján að núna væru
töluvert fleiri þátttakendur og
þetta væru örugglega mestu
fólksflutningar á tónlistar- og
söngfólki úr héraðinu á árinu.
Kvaðst Kristján aðspurður hafa
komið þessari hátíð á í sam-
vinnu við Ólaf Laufdal á Hótel
íslandi. Kvaðst hann hafa sagt
Ólafi að það gætu fleiri sungið
en Skagfirðingar en þeir hafa
verið með skemmtikvöld í svip-
uðum dúr hjá Ólafí.
Mikill söngur
á dagskránni
Á dagskránni syngjur Sam-
kór Mýramanna, Kveldúlfskór-
inn, Kirkjukór Borgamess,
Freyjukórinn og Karlakórinn
Söngbræður. Þá verður hagyrð-
ingaþáttur þar sem Helgi bóndi
Bjömsson frá Snartastöðum,
Jón Þ. Bjömsson yfírkennari og
Dagbjartur Dagbjartsson, bóndi
frá Refsstöðum, leiða saman
hesta sína. Þá sýnir dansflokkur
frá Hvanneyri þjóðdansa.
Hljómsveitin Upplyfting leikur
fyrir dansi en gestaleikari þar
verður Gunnar Ringsted gítar-
leikari og söngvari Ari Jónsson.
Kynnir og veislustjóri verður
Kristján B. Snorrason.
Sagði Kristján að Sæmundur
Sigmundsson yrði með sérstak-
ar sætaferðir frá Borgamesi og
Kleppjárnsreykjum á hátíðina
kl. 16.30.