Morgunblaðið - 04.04.1997, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lægstu laun
verði auglýst
ÞRÍR þingmenn Þingflokks
jafnaðarmanna hafa lagt fram
frumvarp til laga um að fyrir-
tækjum verði skylt að auglýsa
í samráði við stéttarfélög hver
séu lægstu laun sem þau greiða.
Jafnframt skuli opinberar
stofnanir sem fara með þau mál
auglýsa hveijar lágmarks-
greiðslur séu til örorku- og
bótaþega.
Flutningsmenn telja að lögin
muni skapa aðhald og eyða
sögusögnum og misskilningi um
það hver séu lágmarkslaun og
lægstu bótagreiðslur sem hafi
verið áberandi í umræðu um þau
mál.
Morgunblaðið/Golli
Dugleg-
ur að
hjálpa
MARGIR bílar komu nyög aurug-
ir í bæinn eftir páskana og í
góðviðrinu undanfarna daga hef-
ur víða mátt sjá þrifna bíleigend-
ur að störfum því ailir vilja hafa
bíla sína gljáandi. Þessi hjálpaði
til við bílþvottinn í Hafnarfirði.
TILKYNNING UM UTBOÐ MARKAÐSVERÐBREFA
BÁSAFELL HF., ÍSAFIRÐI
ALMENNT HLUTAFJÁRÚTBOÐ
Utgefandi: Básafell hf., kt. 680^92-2059,
Sundstræti 36, 400 Isafirði.
Heildarnafnverð nýs hlutafjár: Allt að kr. 250.000.000.- að nafnvirði.
Sölugengi: 3,86 til forkaupsréttarhafa. Gengi hluta-
bréfanna getur breyst í samræmi við markaðs-
aðstæður eítir að forkaupsréttartímabili lýkur
og almenn sala hefst.
Forkaupsréttur: Núverandi hluthafar hafa forkaupsrétt á
hlutabréfum í útboðinu í hlutfalli við eign sína
sbr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög
og er hann framseljanlegur.
Sölutímabil: Forkaupsréttartímabil er frá
4. apríl 1997 - 25. apríl 1997 og almennt
sölutímabil frá 29. apríl 1997 - 1. okt. 1997.
/
Söluaðili: Askrift a forkaupsrettartimabilinu fer fram a
skrifstofu Básafells hf. og hjá Landsbréfum hf.
Landsbréf hf. eru söluaðili á almennu sölu-
tímabili.
Umsjón með útboði: Landsbréf hf.
Skráning: Hlutabréf Básafells hf. eru skráð á
Opna tilboðsmarkaðnum.
Útboðslýsing ofangreindra hlutabréfa
mun liggja frammi á skrifstofúm Básafells hf. ísafirði og hjá Landsbréfum hf
J-i-úP1
<y
BÁSAFELL HF.
Jf
LANDSBR.EF HF.
^4«
hv — 'Jt'hx
t A Jt
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 535 2000, bréfasími 535 2001.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILi AD VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.
Erfðabreyttar sojabaunir í Toblerone
Ekkí verið fiutt
hingað til lands
EKKERT bendir til þess að Tobler-
one-súkkulaði sem innihaldi hráefni
úr erfðabreyttum sojabaunum hafi
verið flutt til íslands, að sögn Þórð-
ar Sveinssonar, umboðs- og dreifing-
araðila Tobierone á íslandi, en eins
og sagði í frétt Morgunblaðsins á
miðvikudag hefur komið í ljós að
Toblerone sem framleitt er á þessu
ári innihaldi lesitín sem unnið er úr
erfðabreyttum sojabaunum. En lesit-
ín er heiti á fítuefnum sem notuð
eru í sælgæti, matvæli og snyrtivör-
ur.
Að því er segir í yfirlýsingu frá
framleiðanda Toblerone í Sviss, Kraft
Jacobs Suchard, hefur fyrirtækið
aldrei haft í hyggju að nota lesitín
úr erfðabreyttum sojabaunum við
framleiðslu sína. Það hefði hins vegar
fundist í Toblerone-súkkulaðinu við
hefðbundið eftirlit fyrir nokkru, þrátt
fyrir að upprunavottorð frá seljanda
hráefnisins segði annað.
Þá segir í yfirlýsingunni að sam-
kvæmt Bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitinu og heilbrigðisyfirvöld-
um í Evrópu og þar á meðal Sviss
séu erfðabreyttar sojabaunir með öllu
skaðlausar. Hins vegar hafi ekki ver-
ið leyfílegt að nota þær við fram-
leiðslu í Sviss um tíma og því hafi
verið ákveðið að afturkalla allt Tobl-
erone-súkkulaðið af svissneska mark-
aðnum.
Spurning um siðferði
en ekki skaðsemi
Franklín Georgsson, yfirmaður
rannsóknarstofu Hollustuvemdar
ríkisins, segir að lesitín sem framleitt
sé úr erfðabreyttum sojabaunum sé
nákvæmlega eins og lesitín sem
framleitt sé úr venjulegum sojabaun-
um og það fýrmefnda sé því á engan
hátt hættulegt. Hann telur að spum-
ingin um það hvort selja eigi vömr
með hráefni úr erfðabreyttum lífver-
um sé fyrst og fremst siðferðislegs
eðlis og snúist um það hvort merkja
eigi slík matvæli sérstaklega eða
ekki. „Því margir sætta sig ekki við
það að verið sé að erfðabreyta plönt-
um og vilja því ekki neyta matvæla
sem unnin séu úr slíkum hráefnum."
Franklín segir ennfremur að á ís-
landi sem og í fleiri Evrópulöndum
eigi eftir að setja skýrar reglur um
það hve langt eigi að ganga í því að
merkja vörar sem innihaldi hráefni
úr erfðabreyttum lífverum.
í Noregi, Svíþjóð og Danmörku sé
hins vegar búið að ákveða að til-
greina innihald vöm mjög ítarlega.
Snæfellsbær
Nýtt aðalskipu
lag samþykkt
BÆJARSTJÓRN Snæfellsbæjar hef-
ur samþykkt nýtt aðalskipulag fyrir
tímabilið 1995-2015, sem sent verð-
ur til umfjöllunar í skipulagsstjóm
rikisins. Er þetta fyrsta sameinaða
sveitarfélagið sem samþykkt hefur
aðalskipulag.
í formála bæjarstjóra að aðalskipu-
laginu segir að eftir sameiningu sveit-
arfélaganna undir jökli og á sunnan-
verðu Snæfellsnesi 1994, hafi það
verið með fyrstu verkum bæjarstjóm-
ar að ráðast í gerð aðalskipulags
fyrir bæjarfélagið. Til að vinna að
skipulaginu og vera til ráðuneytis um
verkefnið var kjörin sex manna nefnd
og var Drífa Skúladóttir formaður
hennar en Hildigunnur Haraldsdóttir
arkitekt, var ráðin til verksins.
Ásvallagata
Risíb. - útsýni
Mjög falleg 70 fm 3ja herb. risíbúð á
frábærum staö í vesturbæ. Rúmgóð
herb. Glæsil. útsýni til suðurs.
Mikil veðursæld í garði. Þvottaaðstaða í
íbúð. Áhv. 3,1 millj. húsbr. Verð 6,3 millj.
Valhöll fasteignasala,
Mörkin 3, sími 588 4477.
Bent er á í formálanum að aðal-
skipulag Snæfellsbæjar verði að telj-
ast ögrandi verkefni fyrir þá sem að
koma enda byggðin sérstæð hvað
varðar legu, umgjörð og náttúmfar.
Það helgist ekki síst af fjallgarðinum
sem gangi í gegnum byggðina endi-
langa með Snæfellsjökul sem útvörð
í vestri.
Tveir byggðakjarnar
Fram kemur að í þeim sveitarfé-
lögum sem standa að Snæfellsbæ
hafi þróast tveir öflugir byggðakjam-
ar út frá nálægð við fiskimið og nátt-
úrulega hafnaraðstöðu auk þess hafi
landbúnaður verið vænlegur sunnan
fjallgarðsins. Þá bendi stórbrotin
náttúra á utanverðu nesinu, sem og
annars staðar í Snæfellsbæ, til mik-
illa möguleika á sviði útivistar og
ferðamennsku.
Loks segir að með nýja aðalskipu-
laginu sé skipulagsleg þróun sveitar-
félaga sem hafa sameinast, sam-
ræmd og aðlöguð þeim fjölbreytileika
og þeirri framtíðarsýn sem höfundar
sjái fyrir sér fram til ársins 2015.
Ekki aðeins í þróun atvinnulífs og
byggðar heldur einnig með stofnun
þjóðgarðs og friðlýsingu náttúm-
minja að leiðarljósi.
Til sölu er ofangreind húseign i miðbæ Keflavlkur. Húsið er tvær
hæðir og ris. Jarðhæðin er 140 fm verslunar- eða iðnaðarhúsnæði,
sem gefur margvíslega notkunarmöguleika. Önnur hæð og ris er
íbúðarhúsnæði, sem breyta má i tvær íbúðir. Einnig fylgir 40 fm bíl-
skúr. Nánari upplýsingar um söluverð og greiðsluskiimála gefur
Fasteignasalan Hafnargötu 27, líeflavík,
í síma 421-1420 eða 421-4288.
KEFLAVÍK
Hafnargata 48A