Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 23
ERLENT
Varnarmálaráðherra Bandarí kj anna á ferð um Asiu
Varar við hungurs-
neyð í Norðiu*-Kóreu
Seoul, Tókýó. Reuter.
WILLIAM Cohen, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
margt benda til þess að hungursneyð
væri yfirvofandi í Norður-Kóreu og
hvatti stjórnina í Pyongyang til að
hefja samstarf við Bandaríkjamenn
og Suður-Kóreumenn um lausn
vandans.
Cohen lét þessi orð falla þegar
hann kom til Suður-Kóreu eftir
þriggja daga heimsókn til Japans.
Hann kvaðst ennfremur óttast að
matvælaskorturinn gæti leitt til upp-
reisnar innan hers Norður-Kóreu eða
að herinn gripi til þess örþrifaráðs
að gera árás á Suður-Kóreu.
Vamarmálaráðherrann kvaðst
vonast til þess að Norður-Kóreu-
menn féllust á að hefja viðræður við
Bandaríkjamenn og Suður-Kóreu-
menn sem miðuðu að því að binda
formlega enda á Kóreustríðið
1950-53. Norður-Kóreumenn hafa
skýrt Bandaríkjastjórn frá því að
þeirri beiðni verði svarað á fundi í
New York 16. apríl.
Fréttir um að norður-kóresk börn
hafi soltið í hel vegna matvæla-
skortsins hafa valdið miklum óhug
meðal íbúa Suður-Kóreu, sem hafa
safnað jafnvirði tuga milljóna króna
fyrir matvælum handa nauðstöddum
Norður-Kóreumönnum. Stjórnin í
Segir hættu á
uppreisn innan
hersins
Seoul hefur einnig lofað að auka
framlag sitt í söfnun Matvælahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, sem er að
safna sem svarar 7 milljörðum króna
til að geta sent 200.000 tonn af
matvælum til Norður-Kóreu.
Bandarísku hermönnunum
verður ekki fækkað
Cohen er í fyrstu Asíuferð sinni
frá því hann varð varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna fyrr í árinu og
hann staðfesti í Japan að Banda-
ríkjamenn myndu ekki fækka her-
mönnum sínum í Asíu hver sem þró-
unin yrði í Kína og Norður-Kóreu á
næstu áratugum.
Ráðherrann lagði áherslu á að
bandarísku hermönnunum í álfunni
yrði ekki fækkað þar sem þeir væru
besta tryggingin fyrir friði í þessum
heimshluta. Ryutaro Hashimoto, for-
sætisráðherra Japans, fagnaði þess-
um ummælum og sagði að Banda-
ríkjamenn gætu treyst því að Japan-
ir yrðu áfram helstu bandamenn
þeirra í Asíu.
Cohen sagði að fækkun banda-
rískra hermanna gæti leitt til víg-
búnaðarkapphlaups í Asíu og auk-
innar hættu á átökum. Hann sagði
að bandarísku hersveitunum væri
ekki ætlað að hamla á móti vaxandi
hernaðarmætti Kínveija og að
bandarísku hermönnunum í Suður-
Kóreu yrði ekki fækkað þótt svo
kynni að fara að kóresku ríkin sam-
einuðust.
100.000 bandarískir hermenn eru
í Asíu, flestir þeirra í Japan og Suð-
ur-Kóreu. Um 75% bandarísku her-
stöðvanna í Japan eru á Okinawa-
eyju, þar sem íbúarnir hafa sam-
þykkt tillögu um að öllum herstöðv-
unum þar verði lokað fyrir árið 2015.
Atkvæðagreiðslan er þó ekki bind-
andi fyrir stjórnina.
Cohen og Hashimoto lofuðu að
reyna að koma til móts við íbúa
Okinawa-eyju en sögðu þó ekki að
hermönnunum þar yrði fækkað.
Hl^AINI^URENT
KYNNiNG
í dag, og á morgun á
GRAPHISME, nýju vorlitunum
frá Yves Saint Laurent.
Einnig kynnum við nýja
ilminn YVRESSE Légere.
Gréta Boða förðunar-
meistari, veitir ráðgjöf
um förðun og liti.
Glæsilegur kaupauki.
Muníð VIP kortín.
Verið velkomin
Mjódd, sími 587 0203
Nú er rétti tíminn fyrir:
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM GARB-
OG GRÓÐURRÆKT
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiöjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 321 1
I
>
I
NIKE stuttermagalli
Beinar buxur með smellum.
Stærðir: S-XXL. Leiðb. verð kr. 7.990.
■'
' ■ 'TSÍ ' ’
■ ■ í'
NIKE graphic ringer tee
Bómullarbolur með Swoosh". Margir litir.
Stærðir: S-XXL. Leiðb. verð kr. 3.490.
Stærðir: XSB-XLB. Leiðb. verð kr. 1.990.
NIKE softnylon galli
Síður jakki og beinar buxur.
Stærðir: S-XXL. Leiðb. verð kr. 9.990.
K
NIKE barnagalli polyester m/hettu
Litir: Blár/d.blár og rauður/d.blár.
Stæðir: XSB-XLB. Leiðb. verði kr. 4.990.
NIKE bómullarpeysur
Gæðabómullarpeysur. Stærðir: S-XXL.
Leiðb. verð kr. 4.990.
NIKE íþróttataska
Rúmgóð, m/skóhólfi og ól yfir öxl.
Leiðb. verð kr. 3.990.
NIKE bakpoki/taska
Fyrir allt Iþróttadótið!
Leiðb. verð bakpoki kr. 3.490.
Leiðb. verð taska kr. 3.990.
Air Zoom Flight Five
Körfuboltaskór með „Zoom Air" púða!
Air JORDAN
Sá besti fyrir þá bestu! „Zoom Air" púði.
Stærðir: 39-47,5. Leiðb. verð kr. 12.900.
Stærðri 35-38,5. Leiðb. verð kr. 7.990.
Air Moovin Uptempo
Loftpúði í hæl og tábergi.
Stærðir: 39-47,5. Leiðb. verð kr. 9.990.
Stærðir: 32-38,5. Leiðb. verð kr. 7.990.
Air Flight Turbulence
Léttur og sterkur körfu- og götuskór
með loftpúða I hæl.
Stærðir: 39-47,5. Leiðb. verð kr. 8.990.
Stæðir: 32-38,5. Leiðb. verð kr. 6.990.
Aerobicskór með ökklastyrkingu.
Loftpúði í hæl og flexile Air" í tábergi.
Stærðir: 36-42. Leiðb. verð kr. 10.990.
Air Royo
Gæðaleiðurskór með stórum loftpúða í hæl.
Stærðir: 36-47,5. Leiðb. verð kr. 7.990.
Sandali með stórum loftpúða í hæl.
Stærðir: 35-47,5. Leiðb. verð kr. 6.990.
Sterkur leðurskór.
Stærðir: 32-38,5. Leiðb. verð kr. 3.990.
Bomb Force Velcro
Mjög sterkur barnaskór með frönskum
rennilás.
Stærðir: 25-31. Leiðb. verð kr. 3.900.
Baby Air Max Uptempo
Smábarnaskór með loftpúða I hæl.
Stærðir: 17-27. Leiðb. verð kr. 3.990.
Gula línan, s. 562 6262, og spurðu um NIKE söluaðila