Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Áfengisvarnarráð
opnar Vímuvarnarvefinn
Upplýsingamið-
stöð um fíkniefni
og forvamir
ÁFENGISVARNARRÁÐ hefur
tekið í notkun svo kallaðan
Vímuvarnarvef, sem er upplýs-
ingavefur þess, en tilgangur
hans er einkum sá að veita upp-
lýsingar um ávana- og fíkniefni
og forvarnir gegn þeim.
Kristján Kristjánsson, sem
hafði umsjón með uppsetningu
Vímuvarnarvefsins, segir að við
val á efni hafí verið lögð áhersla
á að það væri ritað af sérfræð-
ingum og kunnáttumönnum á
hveiju því sviði sem fjallað er
um. Hann telji að fyrir vikið
megi finna fjölbreyttar og áreið-
anlegar upplýsingar á vefnum.
Hlutlaus, fræðileg umfjöllun
Meðal þess sem er að finna á
vefnum eru skrif eftir Jóhannes
Bergsveinsson yfirlækni og Þor-
kel Jóhannesson prófessor, yfirlit
frá lögreglu yfir slangur sem
viðgengst á meðal ungmenna í
umræðu um fíkniefni, niðurstöð-
ur nýlegrar Gallup-könnunar
auk margvíslegs efnis sem Krist-
ján segir fengið úr sálarfræði og
lyfjafræði og tengist ávana- og
fíkniefnum.
„Okkur finnst mikilvægt að
safna öllum þessum upplýsingum
á einn stað þar sem þær eru
aðgengilegar. Oft er það svo að
fræðimenn og sérfræðingar
leggja mikla vinnu á að rita grein
um fíkniefni eða forvarnir, sem
birtist svo kannski einungis í
fagritum sem almenningur á
ekki aðgang að, en með Vímu-
varnarvefnum telja menn að
flestir eigi kost á að nálgast
upplýsingar.
Hugmyndin er sú að vefurinn
sé eins konar upplýsingamiðstöð,
þar sem hlutlausa umfjöllun er
að finna, frá sérmenntuðum
mönnum þannig að hún teljist
marktæk. Ef menn eru að leita
að gögnum við ritgerðasmíði eða
grúska af öðrum ástæðum er
handhægt að finna slóðina undir
náms- og fræðsluefni á íslenska
menntanetinu," segir Kristján.
Hann segir forsvarsmenn
Vímuvamarvefsins gera sér vonir
um að efni hans eigi erindi til
almennings, bæði þeirra sem séu
áhugasamir um þennan mála-
flokk og þekki hann af eigin raun,
nema og kennara sem þurfi upp-
lýsingar fyrir kennslu eða ritgerð-
arsmíði, fréttamenn og raunar
alla þá sem vilja fræðast meira.
Bjartsýnir um viðtökur
„Það er von Áfengisvarnar-
ráðs að vefurinn megi nýtast vel
þeim fjölmörgu sem leita til ráðs-
ins um upplýsingar og fræðslu
og við erum bjartsýnir um við-
tökurnar," segir hann.
Veffang Vímuvarnarvefsins
er http://ismennt.is/vefir/vimu-
varnarvefurinn. Einnig er hægt
að fínna hann undir liðnum
Náms- og fræðsluefni hjá ís-
ienska menntanetinu. Veffang
þess er http://ismennt.is.
Ármúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033
Hrísateigur — hús með
tveimur íbúðum
Vorum að fá í sölu þetta hús við Hrísateig. Á hæðinni eru
góðar stofur, 2 svefnherb., eldhús og bað, stórar svalir
(verönd). Á neðri hæð er sér 2ja herb. íbúð. Ca 25 fm
bílskúr. Eign í góðu ástandi — vinsæl staðsetning. Veró
12,9 millj. Áhv. 5 mjllj.
Ásvallagata
Vorum að fá í sölu rúmmgóða 2ja herb. íbúð á 1. hæð í einu
af nýlegri húsunum við Ásvallagötu. M.a. góó stofa og
sérlega góðar suðursvalir. Verð 6,4 millj.
sœtir sófar*
HÚSGAGNALAGERINN
• Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475*
FRÉTTIR
Tollgæsla efld til varnar
innflutning'i fíkniefna
RÍKISSTJÓRNIN mótaði á síðast-
liðnu ári stefnu í fíkniefna-, áfeng-
is- og tóbaksvörnum til ársins 2000.
Liður í þeirri stefnu er að efla toll-
gæslu til þess að draga úr innflutn-
ingi fíkniefna og var ákveðið að
ráðstafa 25 m.kr. á ári í því skyni.
Fjármálaráðuneytið hefur nú
samið áætlun til eflingar fíkniefna-
eftirlits tollgæslunnar. í áætluninni
felst að sett verður á stofn sérstök
deild innan embættis ríkistollstjóra
sem m.a. annast skipulagningu á
fíkniefnaeftirliti tollyfirvalda á
landinu öllu. í samráði við viðkom-
andi tollstjóra, hefur umsjón með
leitarhundum og annast fræðslu
fyrir tolleftirlitsmenn. Starfsmönn-
um verður ijölgað hjá embættinu
og bætt við leitarhundi.
Á öllu landinu verður eftirlit m.a.
með auknu úrtakseftirliti í skipum,
gámum og farangri ferðamanna og
farmanna. Til þess að ná sem best-
um árangri verður leitað leiða til
að einfalda og hagræða starfsemi
og afgreiöslu tollsins.
Eftirlit um borð í skipum, vöru-
geymslum og á Reykjavíkurflug-
velli verður hert og eftirlit tollvarða
með flokkun á pósti aukið. Fjölgað
verður um tvo tolleftirlitsmenn í
fíkniefnadeild á Keflavíkurflugvelii
til almennra starfa og þjálfunar og
notkunar hunda.
Við komu feijunnar Norrönu til
landsins verður eftirlit aukið með
fleiri tollvörðum og leitarhundi. Þá
verða leitarhundar í umsjá ríkistoll-
stjóra nýttir eftir því sem unnt er
við skipa- og flugvélakomur alls
staðar á landinu.
Tollyfirvöld munu hafa sam-
vinnu við framkvæmdastjóra samt-
arfsverkefnis ríkis, Reykjavíkur-
borgar og ECAD (European Cities
Against Drugs), en þar er um að
ræða samstarfsverkefnið ísland án
ólöglegra fíkniefna árið 2002.
Jafnframt verður leitað eftir auknu
samstarfi við lögregluyfirvöld,
helstu flutningafyrirtæki og miðl-
ara um eftirlit með innflutningi
fíkniefna.
Morgunblaðið/Sigrún Davíðsdóttir
MARIANNA Friðjónsdóttir og Björn G. Björnsson.
Brotið blað í danskri
fjölmiðlasögu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Á MÁNUDAGSMORGUNINN
klukkan sex hófust útsendingar
á TvDanmark, nýrri danskri
einkasjónvarpsstöð, sem verður
þriðja stærsta stöðin á eftir ríkis-
stöðvunum tveimur. Með nýjum
lögum, sem heimila samsending-
ar staðbundinna stöðva breyttist
Kanal 2 í landsjónvarp undir
nafninu TvDanmark.
Maríanna Friðjónsdóttir fram-
kvæmdastjóri framleiðslu- og
tæknisviðs stöðvarinnar segir að
þar með fái stöðin mun meira fé
til umráða og verði það nýtt til
eigin framleiðslu, enda vilji Dan-
ir helst sjá danskt efni. Björn
Björnsson sviðsmyndahönnuður
hefur hannað leikmyndir fyrir
stöðina og þar vinna þrír aðrir
Islendingar auk Maríönnu.
Ný tækni og nýjar
starfsaðferðir
Stöðin er auglýsingastöð enda
sagði Jesper Lund forstjóri
TvDanmark í ávarpi sínu í bítið
á mánudagsmorgun að markmið
stöðvarinnar væri að auka hlut-
deild sína á auglýsingamarkaðn-
um úr 10 prósentum í 25 prósent
um aldamótin. Stöðin er að sögn
Maríönnu best (ækjavædda sjón-
varpsstöðin í Danmörku og þótt
víðar væri leitað og þar eru til
dæmis tæki, sem aðeins nýlega
er hafin framleiðsla á.
Allt efnið er klippt í sjö tölv-
um, sem er stærsta klippieiningin
Maríanna Friðjóns-
dóttir ein helsta
driffjöður nýrrar
landstöðvar
í Danmörku. Maríanna segir að
þessi nýju tæki, sem séu að ryðja
sér til rúms, muni gjörbreyta
öllum starfsaðferðum við sjón-
varpsgerð og eins og alltaf við
slíkar aðstæður muni það visast
taka tíma áður en starfsfólkið
nái tökum á nýrri hugsun, sem
fylgi nýrri tækni.
Heilu starfsgreinunum verði
ofaukið og um 80 prósent vinnu-
keðjunnar falli út. Með þessu
móti geta fréttamenn sjálfir
gengið frá efninu í mun ríkari
mæli en áður. Þessi tækni gjör-
bylti ekki aðeins fréttafram-
leiðslunni, heldur geri hana mun
ódýrari og losi þannig fé til ann-
arrar framleiðslu.
Framleiðslu- og tæknisviðið,
sem Maríanna stýrir er rekið sem
sjálfstæð eining, sem aðrir hlutar
stöðvarinnar kaupa vinnu af.
Framleiðslunni er hagað með
hámarkshagkvæmni í huga varð-
andi nýtingu tækja og afköstin
því mikil. Framleiðslunni er hag-
að eftir árstímum og nú fyrri
hluta ársins eru framleiddir þar
300 1/2 klukkustundar þættir,
175 auglýsingar, 200 dagskrár-
auglýsingar og daglega er fram-
leiddur klukkutíma fréttaþáttur.
Hún segir það fé sem hún hafi
til umráða mun meira en hægt
sé að hugsa sér við íslenskar
aðstæður, enda sé meira efni
unnið við stöðina en þekkist á
Islandi.
27 ára samstarf
Björn G. Björnsson leikmynda-
hönnuður og eigandi fyrirtækis-
ins List og saga hefur unnið með
Maríönnu og starfsfólki hennar
undanfarna viku við leikmynda-
gerð, sem hann hefur áður verið
viðriðinn á Kanal 2. Þau Mar-
íanna hafa starfað saman í 27
ár, fyrst á ríkissjónvarpinu, síðan
á Stöð 2 og nú í Danmörku, enda
segir Björn með bros á vör að
hann sé leikmyndadeildin hennar
Maríönnu.
Á stöðinni vinna þrír aðrir Is-
lendingar auk Maríönnu. Jóhann
Sigfússon er kvikmyndatöku-
maður og vinnur við þáttagerð.
Honum bauðst vinna í Danmörku
fyrir 2 Vi ári og hefur verið hér
síðan, en vann áður hjá íslenska
sjónvarpinu.
Hann segist ánægður með
vinnuna, því bæði séu verkefnin
spennandi og góðar aðstæður
feli í sér mikla möguleika, auk
þess sem launin séu hærri. Einar
Bjarnason vinnur við dagskrár-
kynningardeild stöðvarinnar og
Bergur Már Bernburg er laus-
ráðinn klippari.