Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Lyklar að
hálendi
*
Islands
Morgunblaðið/Þorkell
KRISTJAN Steingrímur Jónsson myndlistarmaður.
MYNDLISTARMAÐURINN
Kristján Steingrímur Jónsson
sýnir verk sín í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu, Ásmundarsal, til 13.
apríl næstkomandi. Hann hefur
unnið með náttúru íslands og
málverkið síðastliðin sex ár en
segist í samtali við Morgunblaðið
ekki hafa notað pensla allan þann
tíma. „Það liðu í raun nokkur ár
áður en ég áttaði mig á því að í
rauninni málaði ég ekki. Ég
þrykkti og stimplaði. Ég hef notað
svampa og tuskur og slíkt við
málverkið hingað til auk þess sem
ég hef sandblásið í flötinn," sagði
Kristján sem nú hefur tekið upp
pensilinn að nýju.
GPS-staðsetningartæki
Verkin á sýningunni, sem öll
eru ný, eru í raun lyklar að ýms-
um stöðum á hálendi íslands, stöð-
um sem listamaðurinn fór sjálfur
á og varð fyrir upplifunum á.
Hann notar síðan GPS-staðsetn-
ingartæki til að mæla út nákvæma
legu staðanna og málar viðeig-
andi tölur á hvert málverk. „Notk-
un tækisins byggist á alþjóðlegu
hnitakerfi sem gefur mjög ná-
kvæma staðsetningu á því hvar
maður er. Ég nota táknin sem
þetta tæki gefur og hægt er að
lesa út úr þeim líkt og úr öðrum
táknum sem ég hef notað í verk-
um mínum áður. Áhorfandinn
hefur sem sagt tök á því að um-
breyta þessum óhlutbundnu áhrif-
um, sem málverkið gefur í sýning-
arsalnum, yfir í raunverulegt
ástand með því að fara á staðinn
o g kynnast verkunum og stöðun-
um betur. Verkin fjalla því um
merkingu í eiginlegri og óeigin-
legri merkingu og fyrir einhverj-
um eru þessi tákn sjálfsagt teikn.“
Hvernig koma áhrifin af stöð-
unum fram í málverkunum?
„Ég nota minnið og leita að hlut-
um í vinnustofunni sem kalla fram
áhrifin. Stundum koma þau strax
en stundum seint eða jafnvel aldr-
ei, hafa þurrkast úr minninu."
Skipti úr áli yfir í striga
„Þessi verk eru í raun beint
framhald af því sem ég hef verið
að fást við undanfarin sex ár. I
fyrstu málaði ég á álplötur og var
að vinna með árfarvegi, eða ár
sem höfðu verið virkjaðar. Svo
málaði ég rafmagnstákn og stærð-
fræðitákn, úr rafrásarteikningum
frá Landsvirkjun, yfir árnar.“
Þegar Kristján skildi við árfarveg-
ina gerði hann til dæmis verk sem
byggðust á veðurlýsingum frá
ákveðnum stöðum á ákveðnum
dögum og seinna gerði hann verk
sem fjölluðu um gróðurfarslýsing-
ar en þau sýndi hann á sýningunni
íslensk náttúrusýn á Kjarvalsstöð-
um á síðasta ári. „Ég málaði jarð-
veg á óhlutbundinn hátt. Þessar
lýsingar voru frá ákveðnum stöð-
um og ég notaði jarðfræðitákn
sem lýstu til að mynda gróður-
þekju.“ Þegar hér var komið við
sögu ákvað Kristján að hætta að
mála á álplötur og fara að nota
strigann því hann hafði enga þörf
fyrir álið lengur. „Ég hætti að
nota það þegar ég sá að það var
í raun bara orðið undirlag til að
mála á en ég hafði alltaf notað
álið sjálft sem efnivið í verkunum."
Kristján segir að hægt sé að
yfirfæra merkingu verkanna á
sýningunni í Ásmundarsal yfir í
staðsetningu mannsins í menning-
unni. „Það að áhorfandinn er í
raun staðsettur hér á þessari sýn-
ing^u og að honum er gefinn kost-
ur á að færa sig til og staðsetja
sig annars staðar. I vissum skiln-
ingi eru þetta skírskotanir í fleira
en það virðist vera í fljótu
bragði," segir Kristján sem ekki
var kunnugt um hvort einhver
hefði leitað verkin uppi í náttúr-
unni enn sem komið væri.
Hydrus puðaver
50x50
590,-
atalia gluggatjöld
690.-
Dida S metravara
lia sto sessa
Blomskar metravara
150x500
ida S sængurverasett
L.690.-
verslun IKEA er að
finna fjölbreytt úrval vefnaðarvöru.
Nú efnum við til spennandi tilboða
meðan á vefnaðvörudögum stendur.
Afgreiðslutími:
Mán.-föstud. 10:00-18:30
Laugardag: 10:00-17:00
Sunnudag: 13:00-17:00
Fyrir alla snjalla
Borist á
banaspjót
KVIKMYNPIR
Stjörnubíó, Bíóhöll-
in, Laugarásbíó,
Borgarbíó, Akureyri
(frá 11. apríl)
UNDIR FÖLSKU FLAGGI
(THE DEVIL’S OWN)
★ ★ ★
Leikstjóri Alan J. Pakula. Handrits-
höfundar Kevin Jarre, David Aaron
Cohen, Vincent Parker. Kvikmynda-
tökustjóri Gordon Willis. Tónlist
James Horner. Aðalleikendur Harri-
son Ford, Brad Pitt, Margaret Colin,
Rubén Blades, Treat Williams, Paul
Ronan., George Heam, Natasha
McElhonr. 111 min. Bandarísk. Col-
umbia 1997.
ÁTÖK kaþólskra og mótmælenda,
breska setuliðsins og innfæddra á
N-Irlandi er bakgrunnur Undir
fölsku flaggi, nýjustu myndar Alans
J. Pakula. Þau eru uppspretta þess
ágæta og frumlega drama sem kem-
ur nokkuð á óvart, það reikna sjálf-
sagt flestir með dæmigerðri spennu-
mynd í þessari pakkningu en fá í
staðinn óvenjulegt spennudrama.
Kaldrifjuð aftaka sem hinn átta
ára Frankie McGuire verður vitni
að við eldhúsborðið heima hjá sér
fyllir hann ævarandi hatri í garð
mótmælanda. Þegar óslitin fram-
vinda Undir fölsku flagg hefst er
Rory Deavaney/Frankie McGuire
(Brad Pitt) orðinn háttsettur í
hryðjuverkasamtökum IRA og er
sendur til New York í kjölfar
mannskæðra átaka sem hann var
þátttakandi í. Ástæðan fyrir vestur-
ferðinni er að ganga frá kaupum á
eldflaugum sem McGuire á síðan að
koma úr landi. Honum er komið
fyrir hjá Tom O’Meara (Harrison
Ford) einörðum lögreglumanni sem
má ekki vamm sitt vita. -Milli þess-
ara ólíku manna myndast sterk og
óvænt vinátta. Hún getur ekki endað
nema á einn veg.
Myndir sem koma á óvart eru
alltof sjaldséðar. Obbinn af Holly-
wood-framleiðslunni er iðnaðarvara,
klæðskerasniðin eftir formúlum met-
sölumynda. Oft leynir vatnsbragðið
sér ekki. Höfundar Undir fölsku
flaggi fara aðra leið og, þrátt fyrir
annmarka selja þeir sig ekki ódýrt.
Myndin snýst fyrst og fremst um
vináttu tveggja einstaklinga sem eru
afar gjörólíkir utan þess að báðir
eru þeir kostamenn, reiðubúnir að
beijast og falla fyrir sínum málstað.
Þessi sérstæðu tengsl (O’Meara veit
lengst af ekki um hið rétta hlutverk
leigjanda síns) eru langsterkasti
þáttur Undir fölsku flaggi og lyftir
henni yfir miðjumoðið. I annan stað
ijallar hún um ómennskar aðstæður,
djöfullegar í afdráttarleysi sínu. Þeir
Ford og Pitt eiga mestan heiðurinn
af því hversu vel tekst til, sýna báð-
ir afburðaleik. Ford ekki verið betri
en hinn strangheiðarlegi og stað-
fasti lögregluþjónn, síðan í Vitninu
og Pitt er engu síðri. Hann er mikið
meira en hörkutöffari, hann er
hörkuleikari og tekst vel að blanda
saman harðneskjulegum ósveigjan-
leika og mýkt persónunnar. Há-
dramatísk atriði þeirra á milli eru
bestu senur myndar sem jafnframr
inniheldur vel gerð spennuatriði, svo
vel útfærð sð þau hefðu getað verið
í kvöldfréttunum í Belfast. Pakula
virðist á réttri leið með að komast
í gamla, góða formið sem einkenndi
fyrstu myndir hans (AIl The Presid-
ent’s Men, Klute og The Parallax
View). Handritshöfundunum tekst
oft prýðisvel upp, einkum í þeim
atriðum sem fjalla um mannlegu
hliðina og minna á _að ævintýrin
enda sjaldnast vel hjá írum. Drama-
tíski þátturinn reynir þess vegna
talsvert á Undir fölsku flaggi og
þarf á köflum að sætta sig við minni
pokann. Raunsæið látið víkja fyrir
hentugum sögufléttum. Það er svo
sem daglegt brauð og vandalaust
að Iáta það ekki pirra sig. Tónlist
James Horners er hreint út sagt stór-
kostleg spennudramamúsik, krydd-
uð með írsku ívafi. í sama flokki er
kvikmyndataka gamla snillingsins
hans Gordons Willis. Þegar á heild-
ina er litið stendur uppúr langt frá
því gallalaus en engu að síður nýst-
árleg mynd sem sker sig úr fyrir
frammistöðu tveggja stórleikara,
öðru fremur. Mynd sem hefur tilfinn-
ingaleg áhrif á áhorfandann.
Sæbjörn Valdimarsson
Ein af þessum
stóra
ÚTGÁFA Random
House á Sjálfstæðu
fólki eftir Halldór
Laxness í Bandríkj-
unurn nýverið, hefur
vakið mikla athygli í
þarlendum útgáfu-
heimi. Áður hafa
birst fréttir af lof-
samlegri umsögn í
stórblaðinu Washing-
ton Postþ ar sem
sagði að Halldór Lax-
ness væri mikill rit-
höfundur frá litlu
landi og þetta væru
gleðilegir endur-
fundir. Nú hafa fleiri blöð bæst
í hópinn vestra og kveður þar
við sama tón. Skáldsagan Sjálf-
stætt fólk er kölluð „meistara-
verk“, „skáldleg veisla“ og sögð
vera „ein af þessum stóru“. Þá
er mikið Iof borið á persónsköp-
un höfundarins, - hún eigi sér
fáar hliðstæður.
Tvö áhrifamikil blöð í banda-
rískum útgáfuheimi, Kirkus
Reviews og Publishers Weekly,
birtu umsagnir sínar um Sjálf-
stætt fólk áður en bókin fór á
markað, svo sem venja er. í dómi
Kirkus Reviws er talað um
„ógleymanlegar per-
sónur“ en síðan segir:
„Sú mynd sem Hall-
dór Laxness dregur
upp af Bjarti (í Sum-
arhúsum) á sér fáar
hliðstæður í skáld-
skap og það eru fáar
nútímaskáldsögur
sem sýna viðlíka vídd
og áhrifamátt. Þessi
bók er einafþeim
stóru.“
Publishers Weekly
segir um Sjálfstætt
fólk að sagan sé
„skáldleg veisla,
barmafull af háðsádeilu, skopi,
samúð, köldu veðri og sauðkind-
um“.
I News & Observer segir
bandaríski rithöfundurinn og
gagnrýnandinn Herbert Mitgang
að sagan sé köld, margslungin,
þétt og afburðasnjöll, - 20. aldar
meistaraverk. Útgáfan á Sjálf-
stæðu fólki verður gagnrýnand-
anum síðan tilefni til þess að
velta vöngum yfir því hvort hún
muni ekki ryðja norrænum bók-
menntum braut inn á Banda-
ríkjamarkað þar sem þær hafa
fram að þessu vakið litla athygli.