Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Breytingar framundan á rekstri kynningarskrifstofa Ferðamálaráðs Flugleiðir draga sig út úr samstarfi í áföngum FLUGLEIÐIR hyggjast draga sig smátt og smátt út úr sameiginlegum skrifstofurekstri með Ferðamálaráði erlendis. Að sögn Péturs J. Eiríkssonar, framkvæmdastjóra hjá Flugleið- um og stjómarmanns í Ferðamálaráði, hefur verið tekin ákvörðun um að hætta sameiginleg- um rekstri skrifstofu í París, en í staðinn verð- ur sett á fót skrifstofa Ferðamálaráðs, sem Flug- leiðir hyggjast greiða tvær milljónir króna til árlega. Fram hefur komið að Flugleiðir telji samstarf- ið við Ferðamálaráð bagga á sér og vilji hætta því. „Við emm í raun búnir að ákveða að segja þessu upp, en ætlum að gera það í samráði við Ferðamálaráð," segir Pétur. „Við ætlum ekki að rjúka úr þessu samstarfi í einum hvelli held- ur gera það með þeim hætti að báðir geti vel við unað.“ Umfangið orðið of mikið Pétur segir að umfang kynningarstarfsemi fyrir Ferðamálaráð hafí verið orðið mikið. „Eft- ir að ferðamannastraumur jókst svona mikið er svo komið, ekki sízt á litlum skrifstofum eins og í París og London, að við erum komin með heilan starfsmann í þetta, auk þess sem póst- kostnaður við útsendingu þúsunda bæklinga er verulegur. Við teljum rétt að Ferðamálaráð eigi að sjá um þetta sjálft þegar umfangið er orðið svona mikið,“ segir Pétur. Hann segir að Flugleiðir muni hætta sem fulltrúar Ferðamálaráðs í París 1. júlí næstkom- andi. Ferðamálaráð muni þá starfrækja sjálf- stæða skrifstofu, sem Flugleiðir muni greiða til, eins og til núverandi skrifstofa Ferðamála- ráðs í Frankfurt og New York. Flugleiðir muni áfram starfrækja eigin skrifstofu í París. Pétur segir að áformað sé að hafa sama hátt á í Kaupmannahöfn, þar sem Ferðamálaráð hyggst opna sjálfstæða skrifstofu, sem þjónusti alla Skandinavíu. Samvinnuferðir-Landsýn hafa boðið Ferðamálaráði afnot af skrifstofu sinni í Kaupmannahöfn. Stjórn Ferðamálaráðs hefur tekið afstöðu til erindis fyrirtækisins þar um og mun svarbréfið á leið til Samvinnuferða í pósti. Flugleiðir eru nú fulltrúar Ferðamálaráðs í Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi, Amsterdam og London. Rætt um tengingu við sendiráðin Magnús Oddsson ferðamálastjóri segir að ævinlega hafi verið stefnt að því að Ferðamála- ráð ræki sjálfstæðar kynningarskrifstofur sem víðast, en fjármunirnir hafi ekki verið fyrir hendi og þess vegna hafi sú leið verið farin að hafa samstarf «ið Flugleiðir. Magnús segir að einn þeirra möguleika, sem ræddir hafi verið til að lækka kostnað við rekst- ur kynningarskrifstofa, sé að starfsmenn þeirra gætu á einhvern hátt tengzt sendiráðum íslands og notið þannig skattfríðinda á við starfsmenn utanríkisþjónustunnar. „Menn eru stöðugt að leita leiða til að auka markaðsvinnu og upplýs- ingastarf, bæði með því að fá aukið fé og gera reksturinn ódýrari," segir hann. Vorverk í Garðabænum NÚ ER kominn tími vorverk- anna og húseigendur tína rusl, sópa í kringum hús sín og sinna garðinum. Jón Sveinsson var að hreinsa rusl í Garðabænum í gær. -----» ♦ ♦-- Strokustelp- ur fundust í Breiðholti STÚLKURNAR þijár sem struku af vistheimili í Skagafirði á mánu- dagskvöld fundust í fyrrinótt í fjöl- býlishúsi í Breiðholti. Ein þeirra reyndist bera lítilsháttar áverka eftir að þær veltu bifreið sem þær stálu við strokið. Eftirgrennslan lögreglu leiddi í ljós að tvær stúlknanna höfðust við í íbúð í fjölbýlishúsi við íra- bakka í neðra Breiðholti, og í fram- haldi af því fannst þriðja stúlkan í íbúð í öðrum stigagangi. Morgunblaðið/Golli Flugmenn samþykkja verkfall . FLUGMENN samþykktu með miklum meirihluta atkvæða að boða til verkfalls síðar í mánuðin- um. Verður fyrst boðað verkfall í þrjá daga, 18. til 20. apríl, og síð- an ótímabundið verkfall frá 25. apríl. Alls er nokkuð á fjórða hundrað félaga í Félagi íslenskra atvinnu- flugmanna og greiddu 130 at- kvæði. Voru 94% fylgjandi verk- fallsboðun en tölur lágu fyrir upp úr hádegi í gær fljótlega eftir að atkvæðagreiðslu lauk. Rætt um vinnutíma og kauphækkanir Næsti samningafundur er boð- aður hjá sáttasemjara eftir helgina. Náðst hefur nokkur árangur í ágreiningi FÍA og Flugleiða vegna flugmanna hjá Flugfélagi íslands, verði af stofnun þess, og verður starfsaldurslisti flugmanna einn. Umræðum um endanlegan frágang listans var frestað á síðustu fund- um og rætt áfram um vinnu- og vakttíma og kauphækkanir. Stúlkan látin TUTTUGU og eins árs gömul stúlka, sem slasaðist alvarlega þegar hún féll af hestbaki í Stokks- eyrarhreppi á laugardag, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í fyrrinótt. Stúlkan hét Ama Rún Haralds- dóttir, til heimilis að Hléskógum 3 í Reykjavík. Hún lætur eftir sig unnusta. Mál Sophiu sent til Strassborgar Istanbúl. Morjfunblaðið, SOPHIA Hansen og lögmaður hennar fengu í gærmorgun skriflega staðfestingu um úrskurð Hæsta- réttar í Tyrklandi um forræði Halims A1 yfir dætrum þeirra. Þau eru ákveðin í að kæra úrskurðinn til Alþjóða mannréttindadóm- stólsins í Strassborg. Þau bíða ekki boð- anna því strax á sunnudag ætla þau þangað með kæruna. Hafa þau fengið leyfí til að leggja dóminn fram á tyrknesku, svo þýðing tefur ekki. „Auðvitað er ég döpur, en það er þó viss léttir að því að þetta er búið - 6 ára barátta - og að Sophia Hansen ég er laus úr þessu ótrúlega réttarkerfi í Tyrklandi,“ segir Sophia í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins. „En ég mun ekki hætta að elska dætur mínar og beij- ast fyrir því sem ég er sannfærð um að sé best fyrir þær.“ Með dómi Hæsta- réttar féll vikulegur umgengnisréttur Sophiu frá föstudegi til sunnudags niður frá og með 29. mars sl. og því ekki í gildi í síðustu viku eða þessari. Aftur á móti fær móðirin umgengnisrétt- inn á tímabilinu 1. júlí-31. ágúst ár hvert í Tyrklandi. Rannveig Fríða semur við óperuna í Frankfurt RANNVEIG Fríða Bragadóttir óperusöngkona hefur gert samning við óperuna í Frank- furt til tveggja ára. Hún segir að líta megi á samninginn sem mikla viðurkenningu þar sem óperan í Frankfurt sé ein af þeim fremstu í heiminum. Rannveig Fríða mun syngja aðalhlutverk í nokkrum óper- um, þar á meðal hlutverk Rós- ínu í Rakaranum frá Sevilla eftir Mozart, Kompónistans í Ariadne auf Naxos eftir Rich- ard Strauss, Kerubínu í Brúð- kaupi Fígarós eftir Mozart, Olgu í Evgeníj Onegin eftir Tjækovsky og Fjodors í Boris Godunov auk lítils hlutverk í Töfraflautunni. Hún sagði að samningurinn hefði ekki átt sér langan að- draganda. „Ég fór og söng fyrir þá í gærkvöldi (þriðju- dag) og í framhaldi af því var mér boð- inn samningur til tveggja ára. Honum fylgja aðalhlutverk og það sem mér hentar best að syngja. Þetta verður örugglega bæði ánægjulegt og ind- ælt,“ sagði Rannveig Fríða. Syngur í fyrsta sinn í janúar Hún syngur í fyrsta sinn í óperunni í Frank- furt í janúar á næsta ári hlut- verk Rósínu í Rakaranum frá Sevilla. „Kompónist- inn er eitt af mínum glanshlutverkum og það verður ánægju- legft að takast á við það hlutverk í þess- um ramma sem óp- eran í Frankfurt er,“ sagði Rannveig Fríða. Rannveig Fríða var á samningi við óperuna f Vin fyrir nokkrum árum og hefur verið lausráð- in síðustu ár við ýmis óperuhús. Hún segir að í Frankfurt sé eitt af betri óperuhúsum heimsins. Við húsið starfi nokkrir af þekktustu leik- stjórum í Evrópu. Rannveig Fríða Bragadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.