Morgunblaðið - 10.04.1997, Síða 56

Morgunblaðið - 10.04.1997, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS ÍDAG Opið bréf til Önnu H. Bragadóttur, Flúðum, Tunguhreppi Frá Jóni Steinari Elissyni: Á dauða mínum átti ég von en ekki afsögn þinni úr hreppsnefnd Tunguhrepps með hætti sem þess- um. Þú kýst að senda mér fax úr ritstjórn Áustra þess efnis að þú sért hætt í hreppsnefnd Tungu- hrepps. Það er rétt sem þú segir í bréf- ■* korninu að þú sért búin að vera í hreppsnefnd Tunguhrepps í 7 ár. Samstarf þitt við mig í hreppsnefnd- inni hefur verið með miklum ágæt- um. Þú hefur verið mjög áhugasöm um málefni Tunguhrepps, komið með ýmsar tillögur og ábendingar um málefni sem betur mættu fara. Aldrei hefur okkur orðið sundurorða og þú ekki hikað við að halda þínum j skoðunum fram. Við höfum haft það að markmiði að stuðla að aukinni samvinnu og samstarfí þessara þriggja hreppa. Á þessum tíma var tekin ákvörðun um að byggja nýtt íþróttahús við skól- i ann og framkvæmdir hafnar. Þetta verkefni er samstarfsverkefni þriggja hreppa. Brúarásskóli er í eigu ríkis, Tungu- og Hlíðarhrepps að jöfnu, þannig hefur hann verið rekinn í 17 ár með miklum ágætum. Rekstrinum er skipt milli Hlíðar- og Tunguhrepps að jöfnu, Jökuldals- ; hreppur greiðir 20%. Jökuldals- hreppur kemur inn með stofnfram- lag í hið nýja íþróttahús í sömu hlut- föllum og hann er í rekstri. Þessi ákvörðun þeirra að koma sem eig- endur í íþróttahúsinu gerði gæfu- muninn þannig að af framkvæmdum - gæti orðið. Að þessu vannst þú með okkur í hreppsnefndinni af heilum hug. Eins og þú manst höfnuðu Jök- uldælingar öllum sameiningarum- ræðum í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum. Við ákváðum að láta ekki deigan síga og halda áfram samein- ingartilraunum. Árangurinn fór svo smátt og smátt að koma í ljós því hreppsnefnd Jökuldalshrepps ákvað á fundi í byrjun júní að ræða samein- ingu þessara þriggja hreppa sem leiddi til kosninga 29. mars síðastlið- inn. Anna, þessar kosningar snerust um sameiningu þessara hreppa, ekki að leggja Brúarás niður sem skóla- stað. Þú veist eins vel og ég að á hreppsnefndarfundi 10. febrúar lagði fulltrúi Tunguhrepps í bygg- inganefnd íþróttahúss í Brúarási til að leggja 4 millj. kr. til íþróttahúss- ins og stefnt yrði að því að húsið yrði tilbúið til notkunar, a.m.k. að hluta til, 1. febr. ’98. Þetta sam- þykkti hreppsnefndin samhljóða. Af hveiju vilt þú leggja Brúarásskóla niður? Laugardagurinn fyrir páska verður í huga okkar sennilega nefndur laugardagurinn langi. Á skírdag eyddi meistarinn kvöldinu með lærisveinum sínum, laugaði fætur þeirra og snæddi með þeim síðustu kvöldmáltíðina. Hann vissi að daginn eftir myndi einn af læri- sveinum hans svíkja hann í hendur óvinum hans, líkami hans var seldur fyrir tíu skildinga á föstudaginn langa. Anna, ég vona að þú hafir haft meira upp úr krafsinu en Júd- as forðum þegar þú seldir æru mína til handa æstum múg ættuðum ofan af Jökuldal. Okkur ber að virða vilja meirihluta sveitunganna, annars hefðum við aldrei leitað eftir áliti þeirra. Anna, þér er fyrirgefið, ég skora á þig að koma aftur til starfa og halda áfram að vinna fyrir sveit- unga þína hveijir sem þeir kunna að verða. JÓN STEINAR ELISSON, oddviti Tunguhrepps. Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator féiag laganema. SKAK llmsjón Margcir Pctursson STAÐAN kom upp á stór- móti í Dos Hermanas á Spáni, sem nú stendur yfir. Hvít.-Rússinn Boris Gelf- and (2.700) hafði hvítt og átti leik, en Nigel Short (2.690), Englandi, var með svart. 29. — b5xc4 var síð- asti leikur svarts. 30. Dh2! - Rf7 30. - cxd3 31. Bxg5 - fxg5 32. Hxh6 var vonlaust með öllu) 31. Bxh6+ - Kg8 32. Be4 - Be8 33. Be3 - Hxh4 34. Dxh4 - Kf8 35. Bh6+ - Ke7 36. Bg7 - Kd7 37. Dxf6 og svartur gafst upp, því hann á sér enga við- reisnar von gegn tveimur samstæðum frípeðum hvíts á kóngs- væng. Staðan á mótinu eftir fimm umferð- ir: 1.—2. An- and og Júdit Polgar 3 'A v., 3. Gelfand 3 v., 4. Kramn- ik 2‘A v. af 4, 5.-7. Salov, Top- alov og Karpov 2 '/2 v., 8.-9. Shirov og Short 1 '/2 v., 10. Illescas 1 v. Markverðustu úrslitin til þessa voru þau að Kramnik vann öruggan sigur á Ana- tólí Karpov, FIDE heims- meistara í þriðju umferð. Það eru litlar líkur á því að fyrirhugað einvígi þeirra Kasparovs og Karpovs í haust verði sérlega spenn- andi og enn eiga kapparnir eftir að finna mótshaldara. HVÍTUR leikur og vinnur BRIDS Umsjón Guómundur Páll Arnarson ÞRÁTT fyrir ófriðlegar sagnir NS tókst sjö AV-pör- um af tíu að komast í al- slemmu í spili dagsins, sem kom upp í fyrstu umferð íslandsmótsins: Suður gefur; AV á hættu. Norður ♦ D1093 T 1063 ♦ 104 ♦ DG83 Austur 1111: H 4 ÁK109 Suður ♦ KG8654 V 5 ♦ 7653 ♦ 72 Björn _ Eysteinsson og Sverrir Ármannsson í sveit Landsbréfa fóru þannig að gegn liðsmönnum VÍB, þeim Aðalsteini Jörgensen og Matthíasi Þorvaldssyni: Vestur Norður Austur Suður Sverrir Matthías Bjöm Aðal- steinn - - - 2 hjörtu* Dobl 3 hjörtu** 4 hjörtu Pass 4 grönd 6 spaðar Pass *** Pass 6 grönd Pass 7 lauf Pass 7 tíglar Pass Pass 7 spaðar Pass *** Pass 7 grönd Pass Pass Pass * Margræð hindrun, m.a. veikir tveir í spaða. ** Leitandi. *** Kröfupass, Aðalsteinn og Matthías eru nokkuð seinir af stað vegna eðlis opnunarinnar. Á öðrum borðum var hindrunin beinskeyttari, en ekki að sama skapi árangursrík. Hér er eitt dæmi: 3 spaðar Dobl4 spaðar6 hjörtuDobl Pass6 spaðar- PassPass 7 hjörtuAllir pass Vestur hefur enga trygg- ingu fyrir því að ekki vanti ás þegar hann segir sjö hjörtu, en „eitthvað verður að gera“. Aðeins á einu borði fengu NS að spila fómina. Það voru sex spaðar, 1.100 niður. Tvö pör spiluðu sex hjörtu. Vestur 4 Á V KD9 ♦ ÁKD982 4 654 VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Handveski tapaðist SVART, kringlótt,_ hand- veski tapaðist við Ármúla 2. apríl. í veskinu voru peningar sem eru afmælisgjöf. Skilvís fmnandi vinsamlega hringi í síma 552-1847. Dýrahald Köttur í óskilum DÖKKGRÁR og hvítur stálpaður kettlingur er í óskilum að Bergþórugötu 7. Upplýsingar í síma 552-5981. Gefins kettlingur KETTLING, 4ra mánaða, vantar gott heimili. Uppl. í síma 565-3672. Læða óskar eftir heimili SVÖRT og hvít, blíð og góð, 2ja ára kettlingafull læða óskar eftir góðu heimili vegna sérstakra aðstæðna. Upplýsingar í síma 565-4671. Óska eftir kettlingi ÓSKUM eftir að fá kettl- ing gefins. Uppl. í síma 551-0060. Trýna er týnd! KISAN okkar hún Ttýna, sem á heima í Garðabæ, hvarf 30. mars og hefur ekki sést síðan. Hún gæti verið lokuð einhvers staðar inni í bflskúr eða geymslu. Trýna er 8 ára gömul, mjög sérstök í útliti, þrílit, dökkgrá, drapplit og hvít, talsvert loðin. Hún er mjög skrafhreifin og sjálfstæð kisa og hefur aldrei áður farið á flakk. Við erum því að vonum áhyggjufull og höfum haft samband við Kattholt og dýralækna án árang- urs. Við vonumst til þess að þessar línur verði til þess að Trýna finni rétta leið heim. Hennar er sárt saknað. Upplýsingar í síma 565-8264. Pennavinir FINNSKUR 62 ára frí- merkjasafnari vill auka eign sína af íslenskum merkjum og býður skipti: Jouko Huuskonen, KaHioniementie 3 A 7, SF-71850 Leppaka- arre, Finland. TUTTUGU og fimm ára Ghanastúlka með áhuga á íþróttum, kvikmyndum, tónlist, ferðalögum o.fl.: Emilia Baidoo, P.O. Box 1152, Cape Coast, Ghana. FIMMTÁN ára japönsk stúlka með margvísleg áhugamál: Miki Satake, 11-3 Higashisendai 1-C, Miyagino-k, sendai-s, 983 Japan. PÓLSKUR karlmaður sem getur ekki aldurs en hefur mikinn áhuga á neð- anjarðartónlist: Tomasz Szumski, ul. Cicha 9, 09-130 Baboszewo, woj. ciechanowskie, Poland. Víkveiji skrifar... NÝLEGA var klukkunni breytt í Evrópu og tekinn upp sum- artími. Þetta leiðir hugann að því hvers vegna við íslendingar gerum ekki það sama. Margvísleg rök mæla með slíkri breytingu. Fyrst og fremst þau að fólk geti notið sumarsins betur á virkum dögum. Það væri komið heim til sín úr vinnu klukkustund fyrr og getur notið dagsins betur þegar veður er fallegt, grillað og haft það gott. Víkveiji mælir með þessari breyt- ingu. xxx NOKKUR umræða spannst um það í kjölfar kjarasamninga verslunarmanna, sem giltu til 29. febrúar 2000, hvort hlaupár væri það ár eða ekki. í lesendabréfí var því m.a. haldið fram að aldamótaár væri ekki hlaupár ef talan 400 gengi upp i ártalinu. Þessu er einmitt öfugt farið. Aldamótaár eru aðeins hlaupár ef talan 4 gengur upp í tölunni. Þann- ig verður árið 2000 hlaupár en árið 1900 var ekki hlaupár svo dæmi sé tekið. Grunneiningar í tímatali okkar eru sólarhringur, mánuðir og ár. Árið er 365 dagar, en hið eiginlega ár, hvarfárið, er 365,2422 dagar. Til þess að leiðrétta þessa skekkju var bætt við einum degi fjórða hvert ár, hlaupárið. En það dugði ekki til að hafa tímatalið nákvæmt og því er ekki hlaupár nema fjórða hvert aldamótaár. xxx Alaugardaginn eru liðin 70 ár síðan hið merka félag íþróttafélagið Völsungur var stofnað á Húsavík. Stofnfélagar voru 27, drengir á aldrinum 10-14 ára, og merkilegt er að ennþá eru á lífi 12 af stofnendunum. Verða þeir eflaust í öndvegi þegar afmæl- ið verður haldið hátíðlegt. í skemmtilegu viðtali við 5 af stofnendunum í Víkurblaðinu fyrir skömmu kemur fram að þeir Haf- stein bræður, Jóhann, Jakob og Jón Kristinn, voru helstu hvatamenn að stofnun félagsins. Þeir voru foringjar í drengjahópnum á Húsa- vík á þessum árum og Jóhann varð síðar meir einn af foringjum þjóð- arinnar, m.a. forsætisráðherra um tíma. I viðtalinu er víða komið við. T.d. er upplýst að alltaf hafi verið leiðinlegt að spila fótbolta við Akureyringa og Þórsarar hafi ver- ið grófir í öll 70 árin! Adidas-verk- smiðjurnar voru ekki komnar til sögunnar á fyrstu árum Völsungs og því spiluðu menn á gúmmískóm eða strigaskóm og einstaka maður spilaði á selskinnsskóm. Boltarnir voru reimaðir blöðruboltar og það voru ekki nema örfáir strákar sem höfðu hugrekki til að skalla bolt- ann! Fimmmenningarnir sem Víkur- blaðið ræddi við fylgjast enn vel með fótboltanum og horfa mikið á leiki í sjónvarpinu. Þeim fínnst harkan orðin of mikil í knattspyrn- unni í dag og eru örugglega ekki einir um þá skoðun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.