Morgunblaðið - 10.04.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 10.04.1997, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Tilmælum bandarískra heilbrigðisstofnana ber ekki saman Misvísandi ráðlegging- ar um brjóstaskoðun MISVÍSANDI yfirlýsingar heilbrigð- isyfirvalda og stofnana í Bandaríkj- unum um hópskoðun með brjósta- myndatöku hafa vakið litla hrifningu þarlendra kvenna, sem vita vart hverju þær eiga að trúa. Bandaríska krabbameinsfélagið, sem er sjálfs- eignarstofnun, og Bandaríska krabbameinsstofnunin, sem starfar á vegum hins opinbera, hafa gefið mismunandi ráðleggingar um hversu oft konur á fimmtugsaldri eigi að fara í brjóstaskoðun, og hafa svo breytt þeim að nýju, nú síðast í lok mars. I Time og The Economist er látið að því liggja að ástæðan sé fyrst og fremst pólitískur þrýsting- ur, ekki umhyggja fyrir velferð kvenna en Baldur F. Sigfússon, yfir- maður röntgendeildar Krabbameins- félagsins, er ekki á sama máli, segir Bandaríkjamenn fyrst nú vera að viðurkenna niðurstöður evrópskra rannsókna. Bandaríska krabbameinsfélagið sendi í lok mars frá sér nýjar ráð- leggingar varðandi bijóstaskoðun kvenna á aldrinum 40-49 ára. Hing- að til hefur konum á þessum aldri verið ráðlagt að fara í bijóstamynda- töku á eins til tveggja ára fresti en nú mælir félagið með því að konur á fimmtugsaldri fari árlega. Nokkrum dögum seinna breytti Bandaríska krabbameinsstofnunin nýjustu meðmælum sínum, úr því að konum ætti að vera það í sjálfs- vald sett hvort þær færu í slíka skoð- un, í það að rétt væri að fara á eins til tveggja ára fresti. Þá hefur ráð óháðra sérfræðinga, sem starfa á vegum bandarísku heilbrigðisstofn- ananna, ráðlagt konum að taka ákvörðun sjálfar. Pólitískur þrýstingur? Allar þijár stofnanirnar byggja ráðleggingar sínar á sömu gögnum, og því vekja mismunandi ráðlegg- ingar nokkra furðu. Niðurstaða Time og The Economist er sú að um póli- tískan þrýsting sé að ræða. Það þyki samrýmast pólitískri rétthugs- un að bera heilsu kvenna fyrir bijósti og að ýmis kvennasamtök þrýsti á um að tíðni bijóstaskoðunar sé auk- in. Þá eigi ýmis samtök og læknar hagsmuna að gæta í málinu, svo sem rannsóknarstofur og læknastofur. Deilt er um hvort verið sé að gera of mikið úr hættunni á bijósta- krabbameini í konum á þessum aldri. Líkurnar á því að konur á fímmtugs- aldri, sem ekki eiga nána ættingja, t.d. móður eða systur, sem hafa fengið bijóstakrabbamein, fái krabba eru 1 á móti 66. Hættan eykst talsvert þegar konur komast á sextugs- og sjötugsaldurinn og mælt er með því að konur á þessum aldri fari árlega í bijóstamyndatöku. í The Economist eru færð fyrir því rök að óráðlegt geti verið fyrir yngri konur að fara of oft í bijósta- myndatöku r, þar sem það auki lík- urnar á því að þær verði látnar gang- ast undir meðferð sem reynist ónauðsynleg, þar eð erfiðara sé að greina hvort um krabbamein sé að ræða í yngri konum en eldri, auk þess sem bijóstamyndatökur veiti falskt öryggi. Um fjórðungur æxla í konum á fimmtugsaldri sjáist ekki við bijóstamyndatöku. Beygja sig fyrir evrópskum rannsóknarniðurstöðum Baldur F. Sigfússon, yfirlæknir röntgendeildar Krabbameinsfélags- ins, segir Bandarísku krabbameins- stofnunina hafa hlaupið á sig og að hún sé nú að bæta úr því. Hún hafi árið 1993 tekið tillit til meingallaðr- ar kanadískrar rannsóknar, sem hafi bent til þess að hópbijóstaskoð- un gerði ekki gagn meðal kvenna á fimmtugsaldri. Framkvæmd þeirrar rannsóknar hafi verið áfátt og aðrar áreiðanlegri, sem gerðar hafa verið í Svíþjóð og Skotlandi, bendi til a.m.k. 23% lægri dánartíðni við reglubundna bijóstaskoðun. Baldur segir Bandaríkjamenn hafa verið í fararbroddi um rann- sóknir á hópskoðunum á bijósta- krabbameini á sjöunda áratugnum, en þeir hafi misst af lestinni, aðrar þjóðir hafi skotið þeim ref fyrir rass og þeir átt erfitt með að viðurkenna evrópskar rannsóknarniðurstöður þar til nú. „Mismunandi meðmæli banda- rískra stofnana nú byggjast hins vegar einkum á mismunandi skoðun- um á því hvað geti talist næg sönn- un á þessu sviði læknisfræðilegra forvarna, þrátt fyrir að nýlega end- urtekið mat Bandaríkjamanna á heildarniðurstöðum ofangreindra rannsókna gefí heldur meiri lækkun dánartölu og sé marktækara en ársgömul samantekt Svía á sömu rannsóknum, sem kynnt var í Falun í Svíþjóð í mars í fyrra og birt síðar á árinu,“ segir Baldur. Sænskir læknar og vísindamenn, sem eru í fremstu röð í rannsóknum á bijóstakrabbameini, mæla nú með því að hópskoðun fari fram á eins til eins og hálfs árs fresti á konum á fimmtugsaldri en misjafnt er eftir lénum hvernig málum er háttað þar í landi, sums staðar er engin hóp- skoðun á konum á fimmtugsaldri. Hér á landi eru konur á aldrinum 40-69 ára skoðaðar á tveggja ára fresti og segir Baldur Krabbameins- félagið ekki hafa bolmagn til þess að taka upp tíðari skoðun, slíkt sé ákaflega dýrt og mannfrekt. Þó sé stefnt að því að síðar verði hægt að bjóða upp á tíðari brjóstamyndatöku en nú er, þegar samningur félagsins við heilbrigðisráðuneytið verði end- urnýjaður næst. Tekið er á móti heilum og hreinum fatnaði. Gott er ef menn hafa tök á að flokka fötin sín: karlmanna, kven- og barnaföt. Tekið er við góðum skóm, bundnum saman. OPIÐ: Fimmtudag og föstudag frá kl. 10 til 20 Laugardag frá kl. 10 til 18 (nema ísafirði). \Q£j HJÁLPARSTOFKUN KIRKJUNNAR Við söfnum fötum og skóm á eftirtölúum stöðum: • Skútuvogi 1, í sama húsi og Raftækjaverslun íslands • Fella- og Hólakirkju • Seltjarnarneskirkju • Hafnarfjarðarkirkju v/Strandgötu • ísafjarðarkirkju • Glerárkirkju, Akureyri • Egilsstaðakirkju Nýtt prót- ein stöðv- ar alnæm- isveiru VÍSINDAMENN við Genfar- háskóla hafa framleitt nýja kjarnsýra, AOP-Rantes, sem við tilraunir kom í veg fyrir að alnæmisveirur brytust inn í frumur. Leiði frekari og ítar- legri rannsóknir til sömu nið- urstöðu yrði kjarnsýran notuð til að framleiða nýtt lyf gegn alnæmi. Leiðtogi rannsókn- anna sagði að hugsanlega ætti uppgötvunin eftir að verða talin stórt skref fram á við í baráttunni gegn sjúkdómnum. Klúður hjá lögreglu BELGÍSKA lögreglan og dóm- arar sem rannsakað hafa fjölda barnsrána og morða að undanförnu voru ómannúðleg- ir, klaufskir og óskilvirkir en auk þess vanþjálfaðir til að vinna verkið og klúðruðu því málum, samkvæmt niðurstöð- um skýrslu þingnefndar sem rannsakað hefur frammistöðu lögreglunnar og dómaranna. Verður skýrslan birt í næstu viku en hlutar hennar láku þó til fjölmiðla í gær. Utgjöld auk- ast í Svíþjóð ÚTGJÖLD sænska ríkisins munu aukast samkvæmt nýju ljárlagafrumvarpi, sem kynnt verður 15. apríl en upplýsingar úr því láku út í gær. Til þess að reyna auka eigin vinsældir er Göran Persson forsætisráð- herra ætla auka útgjöld til öldrunarmála, dagvistar barna og skólamála. Minnihluta- stjórn Persons nýtur 27,6% fylgis samkvæmt nýjum skoð- anakönnunum en flokkarnir fengu 45% atkvæða í kosning- unum 1994. Reyna að slíðra sverðin FRANSKIR jafnaðarmenn freistuðu þess í gær að slíðra sverðin í innanflokksdeilu um ólögmætar símhleranir sem gerðar voru að fyrirmælum Francois Mitterrands fyrrver- anda forseta hjá blaðamönn- um, lögmönnum, stjórnmála- mönnum og listamönnum. Li- onel Jospin flokksleiðtogi hef- ur reynt að firra flokkinn ábyrgð á málinu en Michel Charasse, fyrrverandi fjár- málaráðherra, hefur sagt hler- animar fyllilega réttlætanleg- ar. Hefur hann gagnrýnt Josp- in harðlega í blaðaviðtölum en bað hann hins vegar afsökunar í gær og sagðist hafa veitt viðtölin úr símklefa við óþægi- legar aðstæður. I fangelsi fyr- ir skopmynd RITSTJÓRI tyrknesks tíma- rits var dæmdur í gær í þriggja og hálfs mánaðar fangelsi fyr- ir að birta skopmynd af Nec- mettin Erbakan forsætisráð- herra. Sýndi hún hann á mitt- isskýlu einni fata í baði og var Tansu Ciller utanríkisráðherra að þvo honum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.