Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
’ INNLENT
Fundur um
aðgerðarann-
sóknir og
stjórnmál
AÐGERÐARANNSÓKNAFÉLAG
íslands boðar til fundar um tengsl
aðgerðarannsókna og stjómmála
föstudaginn 11. apríl. Fundurinn
hefst með stuttu innleggi frá tveimru
alþingismönnum sem búa yfir hvað
mestri þekkingu á aðgerðarannsókn-
um en síðan gefst góður tími fyrir
umræður. Fundurinn verður haldinn
í stofu 101 í Odda við Sturlugötu,
kl. 16.15-17.45.
Frummælendur eru þeir Ágúst
Einarsson og Pétur H. Blöndal sem
em báðir félagar í Aðgerðarann-
sóknafélaginu. Sömuleiðis hafa þeir
báðir mikla reynslu af atvinnurekstri
og hafa báðir stundað rannsóknir og
kennslu við Háskóla íslands.
Ágúst Einarsson er með doktors-
próf í rekstrarhagfræði frá háskól-
anum í Hamborg. Hann er nú í leyfi
frá stöðu sinni sem prófessor í við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla ís-
lands sem hann tók við 1990.
Pétur H. Blöndal er með doktors-
próf í stærðfræði, tölfræði og skyld-
um greinum frá Kölnarháskóla. Hann
var sérfræðingur við Raunvísinda-
stofnun Háskóla íslands árin 1973-
1975 og stundakennari við Háskóla
íslands 1973-1977.
Að loknum erindunum tveimur
verða almennar umræður um við-
fangsefnið undir stjóm Þorkels
GE þvottavél, 800 snúninga. Réttverðkr.61.900stgr.
GEþvottavél,1000snúninga Réttverðkr. 69.900 stgr.
HEKLA LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5775
ÚTSÖIUSTABIR: HEIMSKRINGLAN, KRINGLUNNl, REYKJAVÍK, S.G.BÚOIN,
KJARNANUNI, SELF0SSI, JÓKÓ, AKUREYRI, VERSLUNIN VÍK, HESKAUPSSTAÐ,
RAFMÆTTI, MIOBÆ, HAFNARFIRÐI, REYNISSTAÐUR, VESTMANNAEYJUM,
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA, HÚSAVÍK, HLJÓMSÝN, AKRANESI.
Ný sýning í Póst- og
símaminj asafninu
Helgasonar orkumálastjóra. Þorkell
er með doktorspróf í aðgerðarann-
sóknum frá MIT og var um árabil
prófessor í aðgerðarannsóknum við
raunvísindadeild Háskóla íslands.
Hann hefur einnig verið aðstoðar-
maður heiibrigðisráðherra og ráðu-
neytisstjóri í iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytinu.
Ráðstefna um
þróun byggðar
RÁÐSTEFNA verður haldin á Akur-
eyri 22.-23. apríl á vegum landhluta-
samtaka sveitarfélaga, Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og Byggða-
stofnunar. Yfirskrift ráðstefnunnar
er: Þróun byggðar á íslandi — Þjóðar-
sátt um framtíðarsýn.
Á þessari ráðstefnu verður fjallað
um þróun byggðar á íslandi með
áherslu á framtíðarsýn þar sem mik-
il áhersla verður lögð á að um hana
geti náðst víðtæk sátt hvort sem það
er byggðastefna, menntastefna eða
landnýtingarstefna sem um er fjallað.
Ráðstefnan er haldin á 10 ára af-
mæii ráðstefnu sem haldin var á veg-
um Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Byggðastofnunar sem bar heitið:
Hefur byggðastefan brugðist. Þar var
fjallað um það sem hafði gerst eða
ekki verið gert en nú á að fjalla um
framtíðina. Það er sem sagt ekki
hugmyndin að fjalla mikið um þróun
og vandamál í fortíðinni og ekki held-
ur um tímabundinn aðlögunarvanda
að kerfisbreytingum sem eru að ger-
ast núna, nema það geti aðstoðað
okkar við að skilja hvert atvinnuveg-
ir og búseta eru að þróast.
Alls verða 20 erindi flutt en Davíð
Oddssson, forsætisráðherra, flytur
ávarp í upphafi ráðstefnunnar.
Áherslan er að fá fram mynd af
byggðarlegri stöðu innanlands og
einnig stöðu byggðar almennt á ís-
landi í framtíðinni nú þegar ungt
fólk getur alveg eins sest að erlendis
ef því bjóðast betri hlutir þar, segir
í fréttatilkynningu.
Á fýrri degi ráðstefunnar verður
iögð áherlsa á greiningu grundvall-
arstaðreynda um land og byggð og
takmarkanir og möguleika sem mót-
ast af þeirra völdum. Seinni daginn
verður meiri áhersla lögð á framtíðina
og þá möguleika sem menn sjá á að
ná þjóðarsátt um framtíðarsýnina.
Að undirbúningi ráðstefnunnar
hafa unnið: Jónas Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SSH, Hjalti Jóhannes-
son, Eyþingi, Halldór Halldórsson,
Fjórðungssambandi Vestfjarða, Sig-
urður Guðmundsson, forstöðumaður
Þróunarsviðs Byggðastofnunar, Ólaf-
ur Hilmar Sverrisson, bæjarstjóri
Stykkishólms, og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sambands ísl.
sveitarfélaga.
Ráðstefnan er öllum opin en ráð-
stefnugjald er 4.500 kr. fyrir báða
dagana.
PÓST- og símaminjasafnið hefur
verið opnað aftur eftir breyting-
ar og hefur verið sett upp sér-
stök sýning á neðri hæð safnsins
í Austurgötu 11 í Hafnarfirði.
Á sýningunni má sjá gamla
póstafgreiðslu frá fjórða áratug
aldarinnar. Ennfremur ýmis
bréf, uppdrætti og myndir af til-
efni af útkomu bókarinnar Póst-
sagaíslands 1776-1873, eftir
Heimi Þorleifsson sagnfræðing.
Almenningi
boðið á Djöfla-
eyjuna í dag
í TILEFNI af því að 75.000 manns
hafa séð íslensku^ stórmyndina
Djöflaeyjuna ætla íslenska kvik-
myndasamsteypan og Sambíóin að
bjóða frítt á Djöflaeyjuna í Sambíó-
unum, Álfabakka, fimmtudaginn
10. apríl kl. 5, 7, 9 og 11.
Athygli er vakin á því að þetta
er aðeins þennan eina dag meðan
húsrúm leyfir. Djöflaeyjan verður
síðan áfram sýnd í Sambíóunum,
Álfabakka.
Björn G. Björnsson leikmynda-
teiknari og Heimir Þorleifsson
hafa annast uppsetningu þessar-
ar sýningar.
Hægt er að skoða sýninguna á
opnunartíma safnsins en það er
opið á sunnudögum og þriðju-
dögum kl. 15-18. Þeir sem vilja
skoða sýninguna eða safnið á
öðrum tíma geta haft samband
við safnvörð. Aðgangur er
ókeypis.
Sýning á
tækjum til
linsufram-
leiðslu
í ÁR eru liðin 40 ár síðan fyrst
var farið að máta snertilinsur
(contact linsur) hér á landi. Jó-
hann Sófusson, sjóntækjafræð-
ingur, hafði þá lært mátun linsa
hjá sérfræðingi í London, mr.
R. Tyler-Jones.
„Fyrstu árin starfaði Jóhann
sjálfstætt en síðar hjá Gleraugna-
húsinu, Templarasundi 3. í fyrstu
voru linsurnar fluttar inn frá
Bretlandi en á árunum 1970-
1976 smíðaði Jóhann sjálfur lins-
umar. Eftir þann tíma voru þær
alfarið innfluttar," segir í frétta-
tilkynningur frá Gleraugnahús-
inu.
Vegna þessara tímamóta sýnir
Gleraugnahúsið, í gluggum
verslunarinnar, hluta af þeim
tækjum sem voru notuð við fram-
leiðslu linsanna hér á landi.
-----------» » ♦
Borgarmála-
fundur hjá
Heimdalli
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi og formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, verður
gestur á opnum fundi borgarmála-
hóps Heimdallar sem haldinn verður
í Valhöll, Háaleitisbraut 1, í kvöld
kl. 20.30.
Vilhjálmur mun m.a. ræða um
félagsmál og atvinnumál og þróun-
ina í þeim efnum á valdatíma R-list-
ans. Þá mun hann einnig ræða al-
mennt um málefni sveitarfélaga og
nýjar áherslur i rekstri þeirra.
í frétt frá Heimdalli segir að fund-
urinn sé öllum opinn og að loknu
framsöguerindi Vilhjálms gefist
fundarmönnum kostur á að koma
með fyrirspurnir og athugasemdir.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
I.O.O.F. 5 = 1784107 = Dd
Landsst. 5997041019 VIII
I.O.O.F. 11 = 178410816 =
Akranes.
Ulf Ekman
á íslandi
Ulf Ekman sam-
koma í Filadelfíu ÆNF' m
í kvöld kl. 20.00.
Allir hjartanlega
velkomnirl
T7
KFUM
V
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi.
Slðasti fundur vetrarins í kvöld
kl. 20.30.
Perlur Islands í máli og mynd-
um.
Umsjón: Leifur Þorsteinsson.
Hugleiðing: Þórarinn Björnsson.
Allir karlmenn velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjuitræti 2
I kvöld kl. 20.30 Lofgjörðarsamkoma.
Allir hjartanlega velkomnir.
>
P=
=3
Hnllvoignrstig 1 • simi 501 4330
Dagsferð 13. aprfl
kl. 10.30 Á útilegumannaslóð-
um. Útilegumannahellir við Eld-
vörp.
Helgarferð 12.-13. apríl
kl. 8.00 Þingvellir—Hlöðufell-
Laugarvatn. Frábær göngu-
skíðaferð.
Helgarferð 12.-13. aprfl
kl. 8.00 Jeppaferð í Setrið.
Lágmarks dekkjastærð 33" fyrir
létta bíla, 35" fyrir aðra. Ferð unr
spennandi svæði. Undirbúnings-
fundur þann 10. apríl. Gange
þarf frá greiðslu í ferðina fyrit
fundinn.
IMetslóð:
httpVAwww.centrum.is/utivis1