Morgunblaðið - 11.04.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 19
ÚRVERINU
Dynex ofurtóg notað
í nætur loðnuskipanna
DYNEX-ofurtóg frá Hampiðjunni i
fellilínum á loðnunótum auðveldar
vinnu við fellingu og drátt að mati
þeirra loðnuskipstjóra sem hafa not-
að efnið í nætumar. Tógið er fléttað
og er fjórum sinnum sterkara en
polyestertóg af sama sverleika.
Dynex tógið er mun léttara og
grennra en hefðbundið tóg og með
notkun dynex í bæði efri og neðri
tein nótarinnar verður vinna við
hana mun auðveldari því það kemur
þar í stað tveggja til þriggja upp-
snúinna kaðla. Þá styttist kast- og
dráttartími og minni hætta verður
á tildrætti eða snúningum á teinin-
Fjórum sinn-
um sterkara
en hefðbund-
iðtóg
um, auk þess sem nótin tekur minna
pláss um borð.
Tognar lítið
Dynex tognar mjög lítið, eða um
3% við slit, og lítil hætta er á að
SKIPSTJÓRINN Oddgeir Jóhannsson segir það allt annað líf að
nota Dynex-ofurtógið. Vinnan verði auðveldari og tógið léttara.
nótarteinninn lengist við langtíma-
notkun. Ekki er lengur nauðsynlegt
að bensla fellilínuna við teininn,
heldur er henni einfaldlega stungið
í gegnum teininn og stíft fléttað tóg
dregið í gegnum lykkjuna sem þar
myndast og er engin hætta á að
lykkjan dragist til á teininum.
Dynex efnið flýtur og eykur þar
með flotið í teininum.
Allt annað líf
Oddgeir Jóhannsson, skipstjóri á
Hákoni ÞH, hefur verið brautryðj-
andi í notkun dynex tógs á loðnu-
nætur og lætur hann vel af reynslu
sinni af tóginu, bæði í slæmum
veðrum og ekki síst í stórum köst-
um.
„Það hafa margir verið hræddir
við að reyna dynex efnið en við
notuðum dynex í efri tein nótarinn-
ar hjá okkur alla vertíðina og það
sér ekki á tóginu. Ég er ákveðinn
í að setja dynex einnig í neðri tein-
inn. Vinnan við að fella nótina verð-
ur mun auðveldari og strákarnir í
korkinum segja að þetta sé allt
annað líf. Tógið verður mun léttara
og liprara en hefðbundnu tógin sem
menn hafa verið að nota jafnvel
þreföld. Ég er sannfærður um að
þetta er það sem koma skal,“ segir
Oddgeir.
Árangnrinn við Falk-
landið metinn í vor
FORSVARSMENN Island Fish-
eries Holdings Ltd., sem stofnað
var í fyrrahaust í kringum útgerð
íslendinga við Falklandseyjar,
ætla að meta árangur, útlit og
horfur og taka síðan ákvörðun
um hvernig framhald verði á
starfseminni að afloknu ákveðnu
tilraunatímabili, sem lýkur í maí-
lok á sama tíma og leigutíma
Engeyjar RE lýkur. Aðalvertíð
smokkfiskveiða er nú að hefjast
og ræður útkoma á henni miklu
um framhaldið.
Félagið hefur síðan um áramót
gert tvö skip út frá Falklandseyj-
um, Tjald sem keyptur var af
Kristjáni Guðmundssyni á Rifi
og Engey, sem Grandi leigði til
verkefnisins. Tjaldur hefur nú
hætt veiðum og er á leið til lands-
ins þar sem fyrri eigandi hefur
keypt skipið að nýju, en Engey
verður á smokkfiskveiðum út
vertíðina.
í júní má vænta þess að hún
sigli sömuleiðis heim á leið þar
sem að Grandi hefur selt skipið
nýsameinuðu fyrirtæki Þormóðs
ramma á Siglufírði og Sæbergs
á Ólafsfírði.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hafa væntingar
manna ekki að fullu og öllu leyti
gengið eftir sem helgast fyrst og
fremst af ónógum aflabrögðum
við línuveiðamar og töluverðu
veiðarfæratjóni í upphafi. Því
hafi m.a. verið ákveðið að kippa
Tjaldi út úr rekstrinum.
Rúmgóður tækjasýningarsalur þar sem þú getur prófað tækin
tæki
til að byggja upp og
koma sér í topp form
Ein sem getur allt. Vönduð og
fullkomin æfingastöð með
5 tækjum auk þrekstiga með
tvívirkum dempurum. Einföld I
notkun, fyri.ferðarlítil.
Engar plötu- eða vfraskiptingar.
Meira en 30 æfingamöguleikar.
HREYSTI .
sporí vöru n us
Fosshálsi 1-112 Reykjavík - Sími 577-5858