Morgunblaðið - 11.04.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 23
Guðrún Einarsdóttir og
Sólveig Eggertsdóttir
opna sýningar
GUÐRÚN Ein-
arsdóttir og Sól-
veig Eggerts-
dóttir opna sitt
hvora sýninguna
í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b,
laugardaginn
12. apríl kl. 16.
Guðrún sýnir
ný verk unnin í
olíu og akryl í
efri sölum safnsins. Hún hefur hald-
ið nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í samsýning-
um hér heima og
erlendis á undan-
förnum árum.
Á sýningu Sól-
veigar eru verkin
„huldir spegiar"
og ... svo sem í
skuggsjá ...“ sem
er innsetning úr
gleri.
Sýningamar er
opnar alla daga nema mánudaga frá
kl. 14-18 og þeim lýkur 27. apríl.
Sólveig
Eggertsdóttir
Tvöföld jassdagskrá
í tali og tónum á
Jómfrúnni
TRÍÓ Ólafs Stephensens leikur á
Jómfrúnni, Lækjargötu 4, á vegum
djassklúbbsins Múlans.
Ólafur Stephensen píanóleikari
hefur fengið til liðs við sig leikkon-
una Jóhönnu Jónas og munu þau
ásamt þeim Tómasi R. Einarssyni
kontrabassaleikara og Guðmundi R.
Einarssyni trommuleikara flytja tvö-
falda dagskrá í tónum og tali. Sú
fyrri nefnist Central Park North og
fjaliar um Harlem og rithöfundinn
Langston Hughes, en sú seinni kall-
ast Sjötti djassáratugurinn og er
byggð á tónlist New York-djass-
píanista á árunum 1950-60.
Hljómsveitin hefur leik sinn
klukkan 21, en miðaverð á tónleik-
ana er kr. 1.000, fyrir eliilífeyrisþega
500 krónur.
Tónlistarskóli Reykjavíkur
Morgunblaðið/Kristinn
NEMENDUR Tónlistarskóla Reykjavíkur.
Einsöngvarapróf og
frumflutningur
Sýnir ljós-
myndir
í Osló
Einsöngs-
tónleikar í
Norræna
húsinu
EYRÚN Jónasdóttir mezzo-
sópran og Ólafur Vignir Al-
bertsson píanóleikari halda ein-
söngstónleika í
Norræna hús-
inu í Reykjavík
laugardaginn
12. apríl kl. 16.
Aðgangur að
tónleiknum er
ókeypis.
Á efnis-
skránni eru ís-
lensk og bresk
þjóðlög í út-
setningum
Jórunnar Við-
ar, Cecil J.
Sharp og Her-
bert Hugehes,
Sönglög Jóns
Ásgeirssonar
við ljóð Hall-
dórs Laxness,
ljóðasöngvar
eftir Brahms
og Mahler, og
aríur úr Brúð-
kaupi Figaros
eftir Mozart, Faust eftir Gounod
og Carmen eftir Bizet.
Eyrún söng titilhlutverkið í
uppsetningu Nemendaóperu
Söngskólans á „Töfraheimi
prakkarans" eftir Mauris Ravel
í íslensku óperunni 1995. Hún
hefur sungið með Módettukór
Hallgrímskirkju og Kór Bú-
staðakirkju og einnig komið
fram sem einsöngvari við ýmis
tækifæri. Hún stundara nú nám
við kennaradeild Söngskólans,
kennir við Tónlistarskóla
Rangæinga og er stjórnandi
tveggja kóra þar eystra.
Olafur Vignir Albertsson er
píanókennari við Söngskólann í
Reykjavík.
TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík
heldur tónleika í Langholtskirkju
sunnudaginn 13. apríl kl. 20.30.
Tónleikarnir eru fyrri hluti einsöngv-
araprófs Xu Wen, sópran frá skólan-
um. Einnig verða frumflutt þtjú
hljómsveitarverk eftir nemendur
sem útskrifast úr tónfræðideild skól-
ans í vor.
Á efnisskrá eru Forleikurinn að
Meistarasöngvurunum frá Nurnberg
eftir R. Wagner, aríur úr óperunni
Dan Pasquale eftir G. Donizetti,
Rigoletto eftir G. Verdi, Rómeó og
Júlía eftir Ch. Gounod og Lakme
eftir L. Delibes, Glámsaugun eftir
Sesselju Guðmundsdóttur, Án tillits
eftir Kolbein Einarsson og La
Commedia eftir Arnar Bjarnason.
Kór Langholtskirkju syngur með
hljómsveitinni í verki Sesselju Guð-
mundsdóttur. Stjórnandi er Bern-
harður Wilkinson.
Aðgangseyrir er 500 kr.
LJÓSMYND íslenzkrar stúlku,
Steinunnar Margrétardóttur, er
nú sýnd á menningarhátíð ungs
Steinunn myndunum.
Margrétar- Prjú verk af
dðttir þeirri sýningu
komust áfram á sýninguna í
Osló og þar á meðal mynd Stein-
unnar „Ást í skóginum". Sýning-
in er í Stenersen museum í Osló
og þegar henni lýkur verða valin
verk til landskeppninnar. Stein-
unn sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að hún hefði svo sem
engar framtíðaráætlanir aðrar
en að halda áfram að taka ljós-
myndir. „Eg nýt þess að taka
myndir og er afskaplega þakklát
fyrir að fá tækifæri til að sýna
þær. Allar myndirnar eru teknar
inni í borgum og eiga að sýna
okkur þá fegurð, sem þar býr,
en okkur sést svo oft yfir í öllum
flýtinum."
Tónlistardagskrá barna og unglinga
TÓNLISTARSKÓLI íslenska
Suzukisambandsins býður til tón-
leika í Ráðhúsinu um heglina.
Fyrstu tónleikarnir heíjast kl. 14
sunnudaginn 13._apríl.
Tónlistarskóli Islenska Suzuki-
sambandsins tók til starfa haustið
1988. í kynningu segir, að mark-
mið hans sé að kenna ungum
börnum samkvæmt kennslustefnu
japanska fiðluleikarans Shinichi
Suzuki, en sú stefna er oft nefnd
móðurmálsaðferðin. Hún byggist
á þeirri grunnhugmynd að öll börn
sem geti lært móðurmál sitt geti
einnig lært Ijölmargt annað, m.a.
tónlist með sama hætti.
Um 170 nemendur stunda nú
nám við skólann ár hvert.
Kennslugreinar eru píanó, selló
og einsöngur. Launakostnaður
er greiddur af Reykjavíkurborg,
miðað við ákveðinn fjölda
kennslustunda, en skólagjöld
standa undir öðrum rekstri eins
og tíðkast með tónlistarskóla.
Tónleikarnir í Ráðhúsinu
sunnudaginn 13. apríl munu
standa yfir í 45 mínútur. Síðan
verður gert hlé og byijað aftur
um kl. 15.15.
Meðal verka sem flutt verða
af nemendum má nefna píanósó-
nötu K 545 í c-dúr og K 331 í
a-dúr eftir Mozart, Sónötu eftir
Scarlatti, Bagatellu eftir
Tcherapnin, fiðlusónötur eftir
Handel, Schön Rosmarin og
Prelludium og Allegro eftir
Kreisler, verk eftir Jón Nordal
og hið sívinsæla Cardas eftir
Monti.
Ólafur Vign-
ir Albertsson
Landsmót
yngri
bamakóra
LANDSMÓT yngri barnakóra
verður haldið í Mosfellsbæ
laugardaginn 12. apríl. Tón-
menntakennarafélag íslands
hefur frá árinu 1977 staðið
fyrir Landsmóti íslenskra
barnakóra og er þetta í ellefta
sinn sem það er haldið. Fjöldi
þátttakenda hefur vaxið með
hveiju móti og er orðinn það
mikill að nauðsynlegt reyndist
að tvískipta mótinu í yngri
og eldri deild.
Eldri deildin, kórsöngvarar
á aldinum 10-16 ára, sungu
saman eina helgi á Laugar-
vatni í mars sl. og voru kór-
söngvarar á 6. hundrað. í
Mosfellsbæ er gert ráð fyrir
allt að 400 þátttakendum á
aldrinum 7-10 ára. Sýnir
þetta vel þá grósku sem á sér
stað í kórstarfi barna í grunn-
skólum og við kirkjur lands-
ins, segir í tilkynningu.
Dagskráin er þéttskipuð og
munu börnin æfa fram eftir
degi lög úr litlu kórlagahefti
sem hefur verið tekið saman
fyrir mótið. Flatbökuveisla
verður um miðbik dagsins og
lýkur mótinu með tónleikum
í íþróttahúsinu. Þar munu
kórarnir syngja hver og einn
nokkur lög, en tónleikunum
lýkur með samsöng allra
barnanna.
Tónleikarnir heljast kl. 16,
aðgangur er ókeypis.
Sýningu Elín-
ar og Sigríð-
ar að ljúka
SÍÐASTA sýningarhelgi er
hjá Elínu P. Kolka og Sigríði
Einarsdóttur í Gallerí Horn-
inu, Hafnarstræti 15. Elín
sýnir grafíkverk og Sigríður
„gouache11- og vatnslita-
myndir. Sýningin heitir í
lausu lofti sem vísar til við-
fangsefnis flestra myndanna;
himingeimsins.
Sýningin í Gallerí Horninu
verður opin alla daga kl.
11-23.30 og stendur til mið-
vikudagsins 16. apríl.
QKisag
RJóma-
sprautur
•Terturmeðrjóma •Kökurmeðrjóma
• Kaffi með rjóma • ís með rjóma
Rjómasprautur og gashylki
(passar í allar gerðir)
...^ B_ R Æ Ð U R _N I _R
í§)ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800