Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 3
FRÉTTIR
Áhöfn olíuskipsins North Wind fékk greidd laun sem hún átti innihjá útgerðinni
Menn ganga frá borði
með fullar hendur fjár
KOMIÐ hefur verið til móts við
kröfur áhafnar olíuskipsins North
Wind, sem lagði niður störf við
komuna.til Reykjavíkur í fyrra-
kvöld.
Áhöfnin gerði kröfur um að hún
fengi greitt samkvæmt kjarasamn-
ingum sem undirritaðir höfðu verið
31. mars sl. og nutu fulltingis ITF,
þ.e. Alþjóða flutningaverkamanna-
sambandsins.
115 þúsund
dollarar um borð
Að sögn Borgþórs Kjærnested,
fulltrúa ITF á íslandi, gerði áhöfn-
in kröfu um að fá greitt fyrir apríl,
maí og júní, samkvæmt fyrrnefnd-
um kjarasamningum. Einnig átti
eftir að greiða áhöfninni fyrir hluta
af febrúar og mars.
Hafði Samskip hf., umboðsaðili
North Wind á íslandi, milligöngu
um að koma laununum áleiðis.
„Komið var um borð með 115 þús-
und dollara og er verið að greiða
þá út,“ sagði Borgþór í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Eitthvað var líka til i kassa-
skápnum í skipinu þannig að menn
ganga frá borði með fullar hendur
§ár. Hæsta útborgunin var 15
þúsund dollarar. Menn voru að fá
allt niður í 4 til 5 þúsund dollara."
Á sjónum síðan í september
Deilan snerist ekki aðeins um
launagreiðslur heldur einnig leyfi
fyrir skipverja. Eftir er að ganga
frá því að nokkrir skipverja komist
heim til sín. Þeir hafa sumir unnið
samfleytt um borð frá því í septem-
ber síðastliðið haust, að sögn Borg-
þórs.
Hann segir að nýir menn séu
væntanlegir til landsins á morgun,
sem eigi að leysa þá af.
Skipið losar olíu í Hvalfirði í dag
og er hugsanlegt að það sigli utan
á morgun, að sögn Guðjóns Guð-
mundssonar, starfsmanns Siglu,
dótturfyrirtækis Samskipa, sem
sér um umboðsþjónustu fyrir er-
lend skip.
Ríkisstjórnin styður
verkefni WHO í
Norður-Kóreu
Milljón til
lyfjakaupa
og rann-
sókna
ÁKVEÐIÐ var á fundi ríkisstjórnar-
innar í gærmorgun að leggja Norð-
ur-Kóreumönnum til eina milljón
króna til að kosta rannsókn og
greiningu smitsjúkdóma og til lyfja-
kaupa.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu barst beiðni þessa efn-
is frá Álþjóða heilbrigðismálastofn-
uninni (WHO) í gegnum fastanefnd
íslands hjá Genf. Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra upplýsti
Morgunblaðið í gær um að WHO
sinnti baráttu við alvarlega smit-
sjúkdóma sem hafa látið á sér kræla
í kjölfar hruns heilbrigðisþjón-
ustunnar í Norður-Kóreu. Sagði
hún að í bréfi frá WHO væri ann-
ars vegar vakin sérstök athygli á
þörf dreifingu lyfja og hins vegar
á rannsóknum á smitsjúkdómum.
Ríkisstjórnin samþykkti að
leggja fram eina milljón króna til
þessara verkefna og sagði heil-
brigðisráðherra hugsanlegt að um
frekari framlög yrði að ræða síðar.
Handtekinn
með ólög-
mæt efni
MAÐUR var handtekinn eftir
að bifreið hans var stöðvuð í
Póshússtræti um klukkan tvö
í fyrrinótt, eftir að ólögmæt
efni fundust í fórum hans.
Við leit á manninum fund-
ust meðal annars sterar, lyf
og fleiri fíkniefni. Hann var
fluttur í fangageymslur lög-
reglu og vistaður þar þangað
til í gærdag, að hægt var að
yfirheyra hann.
Unglingar
veittust að
stúlku
HÓPUR unglinga veittist að stúlku
í Hafnarstræti við Lækjargötu í
fyrrakvöld, með þeim afleiðingum
að flytja þurfti hana á slysadeild.
Lögreglan handtók nokkur ung-
menni á vettvangi og færði þau á
lögreglustöð, en samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu liggur ástæða
árásarinnar ekki fyrir. Stúlkan
hlaut minniháttar áverka.
•f
j
Allt fylgir með:
*Álfelgur og samlitir stuðarar með þokuljósum.
*Útvarp og segulband og flott innrétting með fjórum höfuðpúðum.
*100 hestöfl úr 1600cc. 16 ventla, Ecotec vélinni.
*Þú getur bœtt aðeins við og fengið þér einn sjálfskiptan.
L. -« ,
jafnvel þótt hann sé hlaðinn aukahlutum. Verðlistaverð á sama bíl eru kr. 1.455.000.-
Opel Astra 1600,4ra dyra
kostar nú aðeins
kr. 1.379.000.-
jafnvel þótt hann sé hlaðinn aukahlutum.
Verðlistaverð á sama bíl eru kr. 1.519.000.-
-Þýskt eðalmerki
e
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfba 2a Sími:525 9000
Sérsending frá Opel
O O GD
ö 0 ö
teD