Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 7 Styrkar stoðir und- ir Leifi heppna LEIFUR heppni stendur traustum fótum á Skólavörðuholtinu. Stöp- ullinn undir styttunni, sem er úr graníti, er settur saman af 18 steinbjörgum, og er heildarþyngd stöpulsins hátt í fimmtíu tonn. Sjálf myndin af Leifi vegur hins vegar um eitt tonn. Styttan og stöpullinn mynda saman eina órofa heild. Stöpullinn er hugsaður sem skipsstafn og þykir hann ekki síður merkilegur frá listrænu sjónarmiði en styttan sjálf. Gjöf Bandaríkjamanna Bandaríkjamenn gáfu Islend- ingum styttuna í tilefni Alþingis- hátíðarinnar 1930. Árið 1929 var haldin samkeppni í Bandaríkjun- um um gerð styttu af Leifi heppna til að gefa íslendingum. Sam- keppnina vann bandaríski lista- maðurinn Alexander Stirling Calder og hann mun hafa gert bæði styttuna og stöpulinn. Árið 1931 kom stöpullinn til landsins. Eins og fyrr segir er stöpullinn settur saman úr 18 ein- ingum og vegur hver um sig nokk- ur tonn. Bandaríkjamenn höfðu af því nokkrar áhyggjur að í Reykjavík fyndist ekki nógu sterkt farar- tæki til að flytja verkið frá höfn- inni uppá Skólavörðuholt. Á þess- um tíma fannst þó einn vörubíll í bænum sem talinn var nógu FRÉTTIR sterkbyggður í verkefnið. Hann dugði þó ekki til. Því var brugðið á það ráð að fá Tryggva Magnús- son, glímukappa, til að hjálpa bílnum síðasta spölinn, a.m.k. þegar þyngstu björgin voru flutt. Það var svo 17. júlí 1932 sem Coleman, sendiherra Bandaríkj- anna á Islandi aflienti þáverandi forsætisráðherra, Ásgeiri Ás- geirssyni, styttuna að gjöf. Og síðan þá hefur Leifur staðið óhreyfður á Skólavörðuholtinu. Engin teikning til Engin teikning hefur fundist af stöplinum og það er því ýmsum vandkvæðum bundið að taka styttuna niður og ekki síður að koma henni fyrir á ný. En þótt ekki hafi verið lagt í að hreyfa styttuna hefur verið töluverður ágangur við hana. Bandaríkja- mönnum mun hafa blöskrað svo mjög umgengnin við styttuna fyrstu árin að brugðið var á það ráð að setja vörð um styttuna. Var sá styttuvörðurinn starfandi fram undir stríð. Mun Leifur heppni vera eina styttan í borg- inni sem sérstakur vörður var staðinn um. Annar Leifur á Rhode Island Þegar heimssýningin var hald- in í New York 1939 óskuðu Islend- ingar eftir að fá að gera eftir- mynd af Leifi heppna til að hafa á sýningunni. Fékk íslenska nefndin leyfi til að nota gifsmótin af upphaflegu styttunni, sem þá voru geymd á Smithsonian Instit- ution í New York, til að gera nákvæma eftirmynd. Eftir sýninguna þurfti hins veg- ar að finna nýju styttunni framtíð- arstað. Voru hugmyndir á lofti um að koma henni fyrir í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Henni mun þó hafa verið fundinn staður í hafnarborginni Rohde Island. Þar stendur styttan nálægt sjó og horfir Leifur til hafs. Gera þarf við stöpulinn Frá því að styttunni var komið fyrir á Skólavörðuholtinu hefur ekki verið hróflað við henni. „Að- alástæðan fyrir því að verið er að taka styttuna niður núna er að stöpullinn hefur skemmst tölu- vert í áranna rás og verður hann lagfærður í sumar“, sagði Ög- mundur Skarphéðinsson, arkitekt og annar höfunda að breyttu skipulagi á Skólavörðuholtinu. „Styttan sjálf er hins vegar í mjög góðu lagi. Þar sem ástæða þótti til að laga stöpulinn verður hún færð lítillega þannig að styttuna beri í miðlínu kirkju og Skóla- vörðustígs". Ein fé- lagsmála- stofnun í Þingeyjar- sýslum? SAMÞYKKT var á fundi Hér- aðsnefndar Þingeyinga í vik- unni að leggja tii við sveitarfé- lögin að stofnuð yrði sameig- inleg félagsmálastofnun sem öll sveitarfélögin 13 ættu að- ild að. Sigurður Rúnar Ragn- arsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar, sagði fulitrúa allra sveitarfélaganna nema tveggja hafa lýst fylgi sínu við hugmyndina en fulltrúi eins sveitarfélags var fjar- staddur. Mörg og smá sveitarfélög „Sveitarfélögin eru það mörg og smá að þau geta ekki hvert um sig uppfyllt lagaskyldu um félagsþjónustu sveitarfélaga,“ segir fram- kvæmdastjórinn og segir tví- mælalaust hagræði að því að koma upp slíkri sameiginlegri stofnun. Undir þessa þjónustu féllu til dæmis barnaverndar- mál, margháttuð aðstoð við unglinga og aldraða og fjár- hagsaðstoð og nokkrir aðrir málaflokkar sem lög um fé- lagsþjónustu sveitarfélaga tækju til. Hugmyndin er að slík stofnun geti tekið til starfa um næstu áramót.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.