Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞAÐ var löngu tímabært að hefna innrásarinnar frá Mars og láta litlu, grænu, slím- ugu, kvikindin dansa að kúrekasið . . . Borgarsljóni sam þykkir endurskoð að aðalskipulag Doktors- próf í mannfræði • HJÖRLEIFUR Rafn Jónsson varði á síðastliðnu ári doktorsritgerð sína í mannfræði við Cornell-háskóla í Iþöku í Bandaríkjunum. Ritgerðin sem ber titilinn „Shifting Social Landscape: Mien (Yao) Upland Com- munities and Histories in State-Cli- ent Settings", hlaut Lauriston Sharp- verðlaun sem Suðaustur-Asíufræða- deild Comell-háskóla veitir. Ritgerðin er í senn lýsing á þjóð- emisminnihluta í jaðri nútímaþjóð- félags, sagnfræði- leg greinargerð um þjóðfélags- og menningarlegar breytingar og greining á áhrif- um ólíkra gerða ríkismenningar. Ritgerðin er byggð á umfangsmiklum gmnnrannsókn- um sem Hjörleifur stundaði á Tæ- landi á árunum 1991-94. Hjörleifur er sérfræðingur í mál- efnum þjóðarbrota á Tælandi, í La- os, Kambódíu og Víetnam. Leiðbein- endur Hjörleifs við Comell-háskóla voru dr. A. Thomas Kirsch, mann- fræðingur sem víðkunnur er af rann- sóknum sínum á Tælandi, dr. David Wyatt, sérfræðingur í sögu Tælands og dr. Davydd Greenwood, menning- armannfræðingur. Hjörleifur er fæddur 11. septem- ber 1961 í Reykjavík. Hann er sonur Jóns R. Hjálmarssonar, fyrrum skóla- og fræðslustjóra og Guðrúnar Hjörleifsdóttur á Selfossi. Hann ólst upp í Skógum, á Selfossi og í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1981, nam eftir það mannfræði við Háskóla íslands og lauk B.A.-prófi þaðan 1986; árið 1988 lauk hann M.A.-prófí í sömu grein frá háskólan- um í Iowa í Bandaríkjunum og hlaut M.A.-gráðu frá Cornell-háskóla 1991. Eiginkona Hjörleifs er Nora Tayl- or sem á liðnu ári lauk doktorsprófi í listasögu frá Comell-háskóla; þau eiga eina dóttur, Mánu Hao og eru nú búsett í Singapúr. MEIRIHLUTI borgarstjómar Reykjavíkur samþykkti nýtt endur- skoðað aðalskipulag Reykjavíkur 1996-2016 á síðasta fundi borgar- stjómar fyrir sumarleyfí. Jafn- framt var samþykkt að leita eftir samþykkt skipulagsstjóra ríkisins og staðfestingu umhverfisráð- herra. Ómarkviss vinnubrögð I bókun borgarfulltrúa Sjálf- stæðismanna kemur fram að aðal- skipulagið hafí verið í vinnslu í þrjú ár og að þrátt fyrir langan vinnslutíma hafi aldrei borist jafn margar athugasemdir og nú. Vandræðagangur meirihlutans og ómarkviss vinnubrögð hafi ein- kennt vinnuna, enda hafi stefna hans og vilji verið óljós og ekki verið tekið á mikilvægum málum. Meirihlutinn hafí ekki gert upp við sig hvort í Geldinganesi eigi að vera íbúðabyggð eða athafnasvæði og á gatnamótum Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar hafí verið horfið frá mislægum gatnamótum. Fram kemur að í tillögunni sé lítið tekið á umferðarmálum og að stofnbrautakerfið muni ekki anna þeirri umferð sem fyrirsjánleg sé. Með því að fella niður Hlíðarfót og göng um Fossvog sé enn aukið á umferðarvandann með þeim af- leiðingum að umferð muni leita í auknum mæli í íbúðahverfi. Bent er á að þrátt fyrir háværar yfirlýsingar meirihlutans um að flytja aðstöðu fýrir innanlandsflug frá Reykjavíkurflugvelli sé ekki gert ráð fyrir breytingum á gild- andi aðalskipulagi. Þá gefi meiri- hlutinn til kynna að í tillögunum felist ný stefnumörkun og breyttar áherslur í umhverfís- og útivistar- málum en eins og fram komi víða í greinargerð með tillögunni þá séu það órökstuddar fullyrðingar. Sjálfstæðismenn iýsa ánægju með að áfram verður haldið þeirri stefnu, sem þeir mörkuðu á síðasta kjörtímabili að leggja göngu- og hjólreiðastíga. Sátt um niðurstöðuna I bókun Reykjavíkurlistans segir að bókun minnihlutans beri með sér að hann sé í raun sáttur við niðurstöðu þeirrar vinnu sem unnin hafí verið við endurskoðun aðal- skipulagsins enda einkennist hún af skýrri stefnumörkun og mark- vissum og vönduðum vinnubrögð- um. í svari við bókun minnihluta kemur fram að Geldinganesið sé ætlað fyrir athafnahverfí en að austasti hluti nessins sé sýndur sem íbúðahverfi. Eftir sameiningu Reykjavíkur og Kjalarness sé mik- ilvægi Geldinganess, sem hverfís með blandaðri landnotkun enn augljósari. Nesið sé það svæði inn- an borgarmarkanna sem uppfylli að mörgu leyti best skilyrði um stórt samfellt atvinnusvæði í ná- grenni við höfn og aðalumferða- ræð. Fram kemur að tillaga um útfærslu á gatnamótum Kringlu- mýrarbrautar og Miklubrautar sé byggð á nákvæmri úttekt sem sýni að mismunur á umferðaröryggi með mislægum gatnamótum rétt- læti ekki 500 millj. kostnaðarmun miðað við þá lausn. í bókuninni er fullyrðingum um að lítið sé tekið á umferðarmálum vísað á bug. Aldrei fýrr hafi verið mótuð jafn framsækin stefna í umferðarmálum. Þá segir að greinilegt sé að minnihlutinn hafí skipt um skoðun varðandi lokun flugbrautar sem í skýrslu um ör- yggismat er talin skapa hættu vegna aðflugs yfir stærsta sjúkra- hús landsins og íbúðarbyggð. Loks segir að greinargerð með aðla- skipulaginu svari fullyrðingum um að settar séu fram órökstuddar yfirlýsingar um nýja stefnumörkun og breyttar áherslur. Sumartónleikar á INJorðurlandi Tónleikar í kirkjum og Jök- ulsárgljúfrum Hrefna Harðardóttir SUMARTÓNLEIKAR á Norðurlandi eru nú haldnir í kirkjum á austanverðu Norðurlandi ellefta árið í röð, en þeir heljast fyrstu helgina í júlí og lýkur fyrstu helgina í ágúst. Á undanfömum 10 ámm em tónleikamir 151 í 12 kirkjum og tónlistar- menn, sem fram hafa kom- ið, em orðnir 332 frá 14 þjóðlöndum. Tónleikagestir em orðnir á ellefta þúsund talsins, nokkum veginn til jafns heimamenn á tón- leikastöðunum og ferða- fólk, innlent og erlent. Fyrstu sumartónleikamir sumarið 1987 vora haldnir að framkvæði Björns Stein- ars Sólbergssonar organ- ista á Akureyri og Margrét- ar Bóasdóttur söngkonu, sem þá bjó á Grenjaðarstað. Þau standa enn að Sumartónleikum. -Hvar verða tónleikamir í sum- ar? „Sumartónleikamir em undan- tekningarlítið fluttir í fleiri en einni kirkju en hverri tónleikalotu lýkur jafnan í Akureyrarkirkju á sunnudegi. Að þessu sinni verða tónleikar auk þess í Reykjahlíðar- kirkju í Mývatnssveit, Raufar- hafnarkirkju og Svalbvarðskirlqu í Þistilfírði. í lokalotunni verður að þessu sinni bryddað upp á því nýmæli að hafa opinbera tónleika í Hljóðaklettum í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfmm. Það er Hörður Áskelsson, organisti Hallgríms- kirkju, sem á þessa hugmynd. Honum hafði komið í hug að hafa tónleika við Botntjörn í Ásbyrgi, þar sem hljómur er talinn afar góður, en valdi frekar að vera í Hljóðaklettum, og það er ekki talið síðra. Þetta verður náttúm- lega afskaplega mikil og óvenjuleg upplifun, tónleikar i þessu hrik- afagra umhverfí. Það er erfítt að fínna hliðstæðu þessa atburðar. Þama verður Hörður með Kam- merkór Hallgrímskirlqu, Schola cantomm, og söngurinn mun hljóma um gljúfrin, en efnisskráin verður valin eftir veðri og vind- um.“ -Hvemig er framkvæmd tón- leikahaldsins háttað? „Fyrirkomulagið er þannig að kirkjur og sóknamefndir hafa fmmkvæði að því að halda tón- leika. Sóknamefndimar sjá lista- fólkinu fyrir mat og gistingu ef þörf krefur, annar kostnaður eins og fargjöld og þóknun til lista- mannanna er á vegum fram- kvæmdastjómar, sem aflar styrlcja til starfsins auk þess að semja við listamenn um að koma til starfa, setja saman dagskrá og kynna tón- leikana.“ -Hvað kostar svo aðgangurinn? „Aðgangur að tón- leikunum er ókeypis en tónleikagestum gefst færi á að reiða fram gjald við kirkjudyr.“ -Hvemig gengur að fá iista- menn tii að taka þátt? „Þetta er raunar afar þakklátt verk allt saman. Listamenn sem hingað koma, bæði innlendir og ekki síður erlendir, sækjast eftir því að koma aftur og sem oftast. Spurnin eftir því að koma fram eykst ár frá ári og nú em til dæmis komnar um 20 skriflegar umsóknir fyrir næsta sumar. En gleði og ánægja tónleikagesta er ► Hrefna Harðardóttir fram- kvæmdastjóri Sumartónleika á Norðurlandi er fædd í Vest- mannaeyjum 1954, ólst að mestu upp í Reykjavík, en á Akureyri hefur hún búið í tíu ár. Hrefna bjó erlendis; á Italíu og í Frakklandi í fimm ár og stundaði listnám og hún lauk námi frá Myndlista- og hand- íðaskóla Islands, leirlistadeild, 1995. Hrefna er gift Birni Steinari Sólbergssyni organ- ista og eiga þau tvær dætur, Lindu og Sólbjörgu. líka mikil. Það er áberandi hversu margir fastagestir sækja tónleik- ana og margir sæta færis að koma á tónleika með sumargesti sína. Þá er töluverður hluti gestanna erlendir ferðamenn, ekki síst í Mývatnssveit og á Ákureyri. Það þykir ekki ónýtt að búa á tjald- svæði með alla þessa íslensku feg- urð allt um kring og geta svo dottið inn á vandaða alþjóðlega tónleika í kirkju rétt við hliðina á tjaldinu. Hrifning tónleikagesta er oft mikil og við sem að þessu stöndum höfum iðulega hlotið að launum faðmlög og kossa frá gjö- rókunnugu fólki.“ Hvað ersvo á dagskrá um heig- ina? „ Efnisskrámar að þessu sinni era afar fjölbreyttar hvað varðar hljóðfæraskipan og verkefnaval, spanna allt frá fomum íslenskum söng og evrópskri barokktónlist til nútímaverka. Nú um helgina verða fjölþjóðlegir barokktónleik- ar. Þar kemur fram kvartettinn Ouadro Corydon, fjórar konur sem allar starfa í Hollandi, ein íslensk, önnur frá Þýskalandi, sú þriðja frá Bandaríkjunum og hin fjórða frá Ítalíu. Þetta em Rannveig Sif Sigurðardóttir messósópran, Gabriele Wahl blokk- flautuleikari, Julie E. Maas sellóleikari og Beatrice Sterna, sem leikur á sembal. Á efn- isskránni em verk frá 16., 17. og 18. öld, meðal annars eftir Monteverdi, Scarlatti, Frescobaldi og Vivaldi. Tónleikamir verða í Reykjahlíð- arkirlqu í Mývatnssveit klukkan 21 laugardagskvöldið 12. júlí og í Akureyrarkirkju daginn eftir klukkan 17.“ -Hvað með framtíðina? „Ég veit satt að segja ekki hvemig sumarið væri ef ekki væm þessir tónleikar. Og miðað við allt verður ekki annað séð en Sumartónleikarnir á Norðurlandi eigi glæsta framtíð". 20 umsóknir um þátttöku næsta sumar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.